Tíminn - 12.07.1950, Blaðsíða 7
149. blað
TÍMINN, miðvikudaginn 12. júlí 1950
7
„Margt býr
í þokunni”
(Framhald af 4. siðu.)
ljúfara en öðrum, og valda
skoðanir á félagsmálum og
stjórnmálum að sjálfsögðu
þar nokkru um. Það mun og
mála sannast, að eigi muni
þeim mönnum ljúft að skipta
við kaupfélög, sem fyrr og
síðar hafa talið sér sæma að
auðkenna þessa sjálfsbjargar
viðleitni almennings með
verstu hrakyrðum tungunn-
ar. Slík'r menn eru að vísu
ekki sérlega margir, og eng-
in sanngirni mælir með því,
að þeim sé, fremur en öðrum
meinað að verzla, þar sem
þeir helzt kjósa, enda lítil
ánægja fyrir starfsfólk kaup-
félaganna að návist slíkra
manna.
Mbl. segir, að Framsóknar
menn hafi talið Sjálfstæðis-
flokkinn „andvígan samvinnu
stefnunni“, og sé sú ein á-
stæða til þess, að Sjálfstæð s
flokkurinn hafi „barizt gegn
misnotkun Framsóknarflokks
ins á samvinnufélogunum“!
Ekki þurfa Morgunblaðs-
menn að halda uppi neinni
baráttu af þessum sökum,
því að ekkert félagslegt sam-
band er milli samvinnufélag-
anna og Framsóknarflokksins.
Samvinnufélögin og samband
þeirra ráða sjálf öllum sín-
um málum, og Framsóknar-
flokkurinn hefir ekkert vald
til notkunar þeirra eða „mis-
notkunar“ — óskar heldur
ekki eftir neinu slíku valdi.
Ef samvinnufélögin kynnu
að ákveða að styrkja pólitíska
starfsemi Framsóknarflokks-
ins, eins og t. d. brezku sam-
vinnufélögin þar í landa og
samvinnufélög annara landa
aðra stjórnmálaflokka er það
af þvi einu, að félögin telja
sér hag að stefnu flokksins.
Sömu ástæðu hefðu þau t. d.
að styrkja t. d. Sjálfstæðis-
flokkinn og aðalmálagan
hans, Morgunblaðið, ef þess-
ir aðilar tækju upp aðra
stefnu en þau nú hafa, og
létu sér skiljast, að giftusam
legra er að styðja almanna-
hagsmuni en gróðastarf
semi fárra manna. — Hitt er
rétt, að Framsóknarmenn
hafa hingað til talið Sjálf-
stæðisflokkinn sem slíkan,
„andvígan samvinnustefn-
unni“, enda þótt ýmsir gegnir
samvinnumenn séu í þeim
flokki. Slíkir menn hafa al-
drei fengið neinu ráðið um
afstöðu flokksins til úrræða
samvinnustefnunnar, en á á-
stæðurnar fyrir fylgi þeirra
v-ð flokkinn og samstöðu með
málsvörum kaupmennskunn-
ar heíir verið drepið hér að
fram. Kaupsýslustétt lands-
ins hlýtur alltaf að leita sér
einhversstaðar pólitísks at-
hvarfs, og þetta athvarf er
Sjálfstæðisflokkurinn ís-
lenzki, en eðli hennar er líkt
og hjá þeirri tegund „fiður-
fjár“ sem, samkvæmt frá-
sögn náttúrusögunnar, hlýt-
ur uppeldi sitt meðal annarra
fugla, að verða allsráðandi í
hreiðri sinu og lítt smnandi
annara þörfum. Sjálfstæðis-
flokkurinn er hennar „heiðna
berg“ eins og formaður Fram
sóknarflokksins sagði eitt
s'nn mjög réttilega, og á
þessu bergi kunna samvinnu
menn landsins góð skil, þótt
þokusamt kunni þar að vera
á stundum, og ekki berizt allt
af sömu hljóð úr þeirri þoku.
Tilra4inastofnun
sjávariítvegsfns
(Framhald af 1. síðu.)
verði reist í áföngum, þann-
ig, að sem fyrst megi taka
nokkurn hluta þess í notkun.
Hve skjótt verður hægt að
ljúka byggingunni verður að
sjálfsögðu fyrst og fremst
undir fjárhagsafkomu þjóðar
innar komið.
I
Brýn þörf.
Um nauðsyn þessarar bygg
ingar verður ekki' deilt. Horf-
urnar í afurðasö'íumálum >
sjávarútvegsins eru slikar, að j
grannskoða verður alla mögu 1
leika til aukinnar fjölbreytni
í framle ðslu og gera gang-j
skör að því, að gjörnýttur|
verði allur sá afli, sem á land
berst. Þá er það ekki síður
nauðsynlegt að aflað sé sem
ítarlegastra upplýsinga, úm
lifnaðarhætti og göngur
nytjafiskanna, svo að sem
fyrst fáist' skýring t. d. á fyr-
irbrigðum eins og þeim, sem
valda hinum miklu breyting-
um á síldaraflanum hér við
land og haft hafa svo geig-
vænleg áhrif á alla afkomu
landsmanna.
Byggingarnefndin.
Sérstök nefnd sér um bygg-
ingu þessa, en í henni eiga
sæti þe r Davíð Ólafsson,
fiskimálastjóri, sem er for-
maður, dr. Þórður Þorbjarn-
arson, forstöðumaður rann-
sóknarstofu Fiskifélagsins,
Árni Fr'ðriksson, fiskifræð-
ingur og Hafsteinn Bergþórs-
son f ramkvæmastj óri. —
Halldór H. Jónsson húsasmið
ur hefir gert uppdrætti að
byggingunni.
Bjargræðistími
(Framhald af 3. slðu.)
því, út allan sláttinn, á móti
hinum, sem byrja hann fyrr
af fullum krafti. Að slá slöku
við sláttinn í góðri tíð hlýtur
allt af að hefna sín, og verð-
u* ekki bætt upp með neinu
móti. Það er maður marg bú-
■inn að sjá, og þeir, sem vinna
að slætti, hvort sem það eru
bændurnir sjálfir eða aðrir,
gem við hana vinna, mega
ekki taka sín írí um sláttinn,
heldur á öðrum hentugri tíma
ársins. Að halda stórar sam-
komur eða héraðsmót í sveit-
um landsins um sláttinn hef-
ir oft orðið til tafar og verður
ekki bætt upp á öðrum tíma
árs.
Það er ánægjulegt fyrir
hjón, sem eru samtaka og
búa í sveit, að geta byrjað
sláttinn snemma og stundað
hann með áhuga og vera bú-
in með hann snemma að
haustinu. Undir því er það
komið með haustverkin, að
þau geti byrjað nógu snemma,
því að oft byrjar veturinn
snemma með frosthörkum og
snjóum og *þó það viðri oft
betur en svo, þá er samt viss-
ast að búast við því verra, því
það góða skaðar ekki.
Og allir verða að muna það,
hvaða vinnu sem þeir stunda,
að þeim verður ekki hjálpað,
sem ekki hjálpa sér sjálfir.
Sveinn Sveinsson,
frá Fossi.
Köld borð og helt-
ur matnr
sendum öt um allan bæ
SlLD & FISKITB.
Sólin kveikti í bux-
UllUlll
Á herragarðinum Dammsbú
á Suður-Fjóni varð nýlega ó-
venjuleg íkveikja. Það kvikn-
aði bókstaflega í buxum
manns. sem var að bogra við
vinnu sína á rófnaekru.
Svo stóð á, að maðurinn
hafði daginn áður verið að
sprauta natríumklórati á ekr
unni, og fór aftur í sömu
buxur þennan dag. En natrí-
umklórat er mjög eldfimt, og
þegar sólin tók að skína á
buxurnar, kviknaði í þeim.
Maðurinn brann allmikið á
báðum lærum og var fluttur
í sjúkrahús.
Heyskajiuriim
(Framhald af 1. siðu.)
til óþurrka, svo að nú eru
það rigningarnar, sem tefja
slátt'nn, þegar kuldarnir loks
ins hætta að tefja gróður.
Léleg spretta á túnum
í Þingeyjarsýslu.
Fyrir og um þessa helgi
hófst sláttur víðast í Þing-
eyjarsýslu, en spretta er enn
tæplega í meðallagi. Hafa
gengið þar þurrkar og þrá-
látir kuldar, sem töfðu mjög
sprettu. Þessa dagana mundi
þó spretta þar því rignt hefir
nokkuð og hlýnað en nú er
ekki hægt að bíða lengur.
Miklar rigningar á Héraffi.
Á Fljótsdalshéraði er hey-
skapur um það bil að hefj-
ast. Hafa menn til þessa ver-
ið að bíða eft'r að betur
sprytti, því tún hafa verið illa
sprottin. Nú er hins vegar orð
ið sæmilega sprottið og því
tímabært að slá. Byrjuðu
margir um miðja síðustu
viku, en fæstum tókst að ná
neinu inn, áður en til óþurrka
brá fyrir helgina. Fáeinir
| bændur höfðu rétt byrjað að
I slá litla bletti i túnum sin-
uum um fyrri helgi og þeir
náðu því lítilræði áður en
óþurrkana gerði.
Almennt er þó heyskap
hald ð áfram á Héraði. Þeir,
sem stórvirkastar vélar hafa,
bíða þó átekta eftir þurrki, en
eru þá fljótir að slá niður
stór flæmi, þegar þurrkurinn
kemur og vonir standa til að
hann hald st eitthvað.
14 ára stúlka
ekur á húsvegg
í Hafnarfirði
Á mánudagsnóttina gerðist
sá atburður í Hafnarfirði, að
fjórtán ára gömul stúlka ók
á skátaskálann þar og braut
gat á vegginn. ■
Stúlka þessi var að koma
af hestamannamótinu á Þing
völlum, tók í leyfisleysi bif-
reið við Flugvallarhótelið i
Skerjafirði og ók henni suður
eftir.
Lögreglan seg r, að stúlkan
hafi verið svo vansvefta og
úrvinda af þreytu, að hún
gat tæplega haldið sér vak-
andi meðan lögreglan skráði
skýrslu hennar eftir slysið.
Tveir leikflokkar
í sýningarför
Tveir leikflokkar eru um
það bil að leggja af stað í
léikför um landið. Annar
þeirra nefnist Sex í bíl og var
stofnaður í fyrra. Fer hann á
fimmtudaginn og leikur fyrst
í Borgarnesi en síðan fer
hann til Norðurlands og Aust
urlands. Leikrit það, sem
hann sýnir, nefnist Brúin til
mánans.
Hinn flokkurinn nefnist
Sumargestir og lagði af stað
í gær. Verður fyrsta sýning
hans á Blönduósi í kvöld.
Leikrit það, sem hann sýnir,
nefnist Á leið til Dover.
Norðfjörðnr
(Framhald af 8. slðu).
til að vatnsrennslið kæmist í
lag í gær. Þá bilaði vatnsæð
hjá rafstöðinni og varð að
taka rafstraum af bænum í
fáar klukkustundir í gær-
morgun vegna þess. Það er nú
einnig komið í lag.
Norðfjarðará, sem óx mest
i flóðinu er nú aftur komin
eðlilegan farveg. Þokusúld og
lítil rigning var i Norðfirði i
gærdag.
Org'aiium I.
(Framhald af 8. siðu).
alda til sjávar og sveita um
gervallar byggð’r landsins,
kveðnar af heilum hug og
hjartans kæti. Áður fyrr voru
slíkir söngvar nefndir dans-
ar, rímur, hörpuljóð, grall-
aralög, stemmur, ljúflingslög,
kersknisvísur, víkivakar, tví-
söngvar .... “
Síðar segir: „Enginn söng
ur þjóðar þrífst án nægilegs
forða af eigin lögum. Lög,
tekin að láni frá öðrum þjóð-
um. verða ávallt stjúpbörn.
Þau tjá gleði og sorg með öðr
um hætti en oss er eiginlegt
og verða því hálfvegis utan
gátta, hversu oft sem þau
annars eru notuð yfir höfuð.
Vegur þeirra er vænstur til
mannfagnaðar við hlaðið
borð og dýra skál. En uppeld
isg'ldi þeirra er tvíeggjað, þvi
að þá fyrst vex maðurinn upp
til fullkomins skilnings á
söng sinnar þjóðar, að hann
þegar frá barnæsku temji sér
stöðugt samneyti við tóna þá,
er fólkið í landinu hefir kveð
ið úr eigin barmi að fornu
og nýju, í blíðu og stríðu.“
„Aðaltilgangur fyrsta heft-
is af „organum“ er að leiða í
ljós þessa laglínu fortíðar og
nútíðar,“ segir Hallgrímur
Helgason að lokum,“ slá á
þjóðborna strengi úr skírum,
dýrum málmi, er lengi lágu
í gildi þagnar, en glötuðu þó
aldrei göfugum hreim.“
Kórea
(Framhald af 8. slðuj.
verkamenn suður fyrir varnar
línu suðurhersins klædda
borgarabúningum í skjóli
náttmyrkurs. Menn þessir
hafa slegizt í för með flótta-
fólki og síðan unnið margvís
leg skemmdarverk á leið
sinni. Síðan reyna þeir að
flýja til fjalla og leynast þar
þangað til skriðdrekasveitjr
norðurhersins ná fram til
þeirra.
Rússar mótmæla enn.
Rússar hafa enn mótmælt
þeirri ákvörðun öryggisráðs-
ins að heyja styrjcld í Kóreu
undir stjórn S. Þ. og fána
samtakanna. Segja þeir þessa
samþykkt ólöglega af sömu
ástæðum og fyrri samþykkt-
ir ráðsins í þessum málum.
K.R.R. ♦
Sjællands Boldspil Union
(Úrvalslið)
og
leika í kvöld kl. 8.30
Leikur S.B.U. við Fram, var skemmtilegasti leikur, sem sézt hefir hér í sumar.
Komið og sjáið vel leikna knattspyrnu.
Islandsmeistararnir K.R. 1