Tíminn - 03.08.1950, Qupperneq 6
TÍMINN, fimmtudaginn 3. ágúst 1950
167. blað
6
TRIPD LI-BÍÚ
Slóttng kona
Sýnd kl. 9.
Gullræningjarnir
Afar spennandi ný amer-
ísk kúrekamynd.
Aðalhlutverk:
Whip Wilson
Andy Clyde
Sýnd kl. 5 og 7.
Bönnuð innan 14 ára.
Sími 1182.
Bimi aim.
t ræningjahöndum
Afar taugaæsandi saka-
mynd. Aðeins fyrir sterkar
taugar.
Aðalhlutverk:
Jack La Rue
Hugh Mac Dermott
Bönnuð innan 16 ára.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Erlent yfirlit
(Framhald af 5. síðu.)
til þingsins ekki langt undan
og gerir það flokkana vitan-
lega órólegri í samstarfinu og
torveldar það á ýmsan hátt.
Hins ber og jafnframt að
gæta, að aðstaða Plevenstjórn-
arinnar er á vissan hátt sterk.
Hinar alvarlegu horfur í al-
þjóðamálum gerir flokkana
ófúsari til að fella stjórnina en
ella. Skipun stjórnarinnar hefir
yfirleitt heppnast vel, því að
hún hefir á að skipa flestum
þeim mönnum, sem mest álit
hafa unnið sér á stjórnmála-
sviðinu eftir styrjöldina. At-
hyglisvert er og það, að hún er
skipuð fleiri mönnum úr mót-
spyrnusamtökunum en áður
eru dæmi tií.
Þá má nefna eitt stórmál,
sem þykir vænlegt til að tryggja
samstarf miðfiokkanna fram
að þingkosningum, sem eiga að
verða á næsta ári. Það er fyrir
huguð breyting á kjördæma-
skipuninni. Breytingar þær, sem
helzt eru ráðgerðar, myndu
veikja aðstöðu Gaullista og
kommúnista, en styrkja aðstöðu
jafnaðarmanna og radikala.
Fullt samkomulag er þó enn
ekki fengið milli stjórnarflokk-
anna um slíkar breytingar, því
að kaþólski flokkurinn hefir
nokkra sérstöðu. Ein helzta
breytingin, sem talað hefir ver-
ið um, er að koma á skipun
einmenningskjördæma utan
stórborganna, en þar eiga bæði
radikalir og jafnaðarmenn mest
fylgi.
ELDURINN
gerir ekki boð á undan sér!
Þeir, sem eru hyggniir
tryggja strax hjá
Samvinnutryggingum
N Ý J A B í □
Ranðar rósir
(Roses are Red)
Ný amerísk sakamálamynd
spennandi og viðburðarík.
Aðalhlutverk:
Don Castle
Peggy Knutsen
Patricia Knigth
Aukamynd:
Holland og nýlendur þess.
(Marc of Time.)
Bönnuð börnum yngri en
16 ára.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Sendiboði
himnaríkis
(Heaven Only Knows)
Mjög spennandi og sér-
kennileg ný amerísk kvik-
mynd er fjallar um engil í
mannsmynd, sem sendur' er
frá Himnaríki til jarðarinn-
ar og lendir þar í mörgum
hættulegum og skemmti-
legum ævintýrum.
Aðalhlutverk:
Robert Cummings,
Brian Donlevy,
Marjorie Reynolds.
Bönnuð börnum innan 16 ára
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
TJARNARBÍÚ
Orlagafjallið
(The Glass Mountain)
Skemmtiieg og vel leikin
nú ensk mynd. í myndinni
syngur m. a. hinn frægi
ítalski söngvari Tító Gobbi.
Aðalhlutverk:
Michael Denison
Dulcie Gray
Tito Gobbi.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Sala hefst kl. 1 e. h.
F IJ R I A
Heimsfræg ítölsk stórmynd
um öra skapgerð og heitar
ástriður.
Aðalhlutverk:
Isa Pola
Rossano Brassi
Gino Cervi
Bönnuð yngri en 16 ára
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
GAMLA BÍÚ
Dagdraumar
Walters Mitty
Hin bráðskemmtilega gam
anmynd í eðlilegum litum.
Aðalhlutverk:
Skopleikarinn óviðjafnlegi,
Danny Kaye
og hin fagra
. Virginia Mayo
Sýnd kl. 5. 7 og 9.
■
--,----------
3ÆJARBÍL
HAFNARFIRÐI
Um heiðloftin blá
Áhrifamikil ensk kvik-
mynd frá síðustu heims-
styrjöld.
Aðalhlutverk:
Miilvel Redwart
John Mills
Sýnd kl. 7 og 9.
Sími 9184.
Gryf jurnar ...
(Framhald af 3. síOu.)
skuli treysta á sitt eigið vit.
Ojæja, lágt eru nú íslenzkir
bændur lagstir, þegar þeir
þurfa ekki að hugsa Iengur.“
Orðin „um of“ eru náttúrlega
ekki löng né fyrirferðamikil,
en þau skipta þó býsna miklu
um meining máls í setningu.
Þeim fróma manni Kristjáni
á Brekku klíjar ekki við að
fella þau brott, ef það virðist
til þæginda í rökræðum. Slíkt
eru álíka smámunir og nokk-
ur tonn af grjóti í steypuvegg.
Þar sem ég geri ráð fyrir
að menn hafi lítinn áhuga á
því að lesa frekar um votheys
gryfjurnar á Brekku, læt ég
hér útrætt um þær af minni
hálfu. Kristján getur því ról-
egur komið með nýjar „upp-
lýsingar“ og nýjar „tilvitn-
anir“ án þess að verða fyrir
ónæði af mér.
Þórir Baldvinsson.
Vatnsþéttir lampar og raf-
lagnir
Raftækjaverzlunin
LJÓS & HITI h. f.
Laugaveg 79. — Sími 5184.
Köld borð og helt-
nr matur
aendum út um allan bæ
SlLD & FISKCR.
BergurJónsson
Málaflutningsskrifstofa
Heima: Vitastig 14.
Laugaveg 65, sími 5833
- iMiMrnortirtwof i -jiht
JOHN KNITTEL:
FRÚIN Á
GAMMSSTÖÐUM
--------------- 70. DAGUR -----------------------
Ef hann hafði farið út yfir takmörk, er mönnum eru sett,
þá hafði hann aðeins gert það í huganum. Hann hafði
kannske syndgað í hjarta sínu. En enginn vissi um það, og
enginn gat rænt hann þeirri fróun, er sú synd var honum.
En það var hugsun, sem alltaf skaut upp kollinum og
hleypti honum í uppnám: Ef gamli maðurinn dæi? Þessa
áleitna spurning var ekki aðeins synd — hún var annað
verra. Gottfreð gat ekki fyllilega áttað sig á eðli hennar,
Hún hlykkjaðist i gegnum höfuðið á honum eins og eitur-
slanga, og hann nísti tönnum og hrópaði í hjarta sínu: Vík
frá mér! Mér býður við þér!
Þegar vora tók, og þeyvindar tóku að blása um fjöllin,
fannst Gottfreð sér ekki lengur vært á Gammsstöðum.
Hann tilbað Teresa. Hann læddist á eftir henni, hvert sem
hún fór, og sat um hana. Létt fótatak hennar gerði hann
viti sinu fjær. Hreyfingar hennar voru eins og áfengt vín.
Þegar hún litaðist um, sneri hún ekki aðeins höfðinu, held-
ur.líka hálsinum og öxlunum. Þó var engin tilgerð í fari
hennar. Hún var aðeins Teresa, hin óviðjafnanlega kona,
en ekki eftirlíking. neinnar annarrar.
Um þetta leyti var hinn þjáningaríulli sjúkdómur
Gammsstaðabóndans farinn að vinna bug á hinni sterku
skapgerð hans. Hánn var orðinn fullur örvæntingar. Hann
varð æ sannfærðari um það, að hann myndi deyja. En
lengi leyndi hann þessum ótta sínum. En svo kom það allt
í einu yfir hann, að hann vildi kalla Teresu til sín til þess
að segja henni hug sinn allan. En Teresa fannst hvergi.
Hann spurði Matfchildi, vinnukonuna, hvort hún vissi, hvert
Teresa hefði farið. Og Matthildur sagði honum, að hún
hefði farið út með Gottfreð eins og hún væri vön.
— Þá veit maður það! rumdi hann. Segðu eldhússtelp-
unni að fylla hitapokann af heitu vatni!
Stúlkan kom aff vörmu spori með hitapokann og lét hann
á magann á húsbóndanum. Hann greip tækifærið og spurði
um Gottfreð og Teresu, og stúlkan sagði að þau hefðu farið
Út.
— J stundi, Antoh Möller. Vesalings konan mín — já. Eru
blöðin komin?
— Ekki enn, svaraði stúlkan.
— Færðu mér þau undir eins og þau koma.
— Já, sagði stúlkan.
Skömmu síðar komu Gottfreð og Teresa heim. Hún fór
þegar inn til manns síns, og þá var hann að lesa blööin.
Hún spurði, hvort.Jiann þarfnaðist nokkurs, en hahn neit-
aði því, stuttur í spuna.
— Þá ætla ég að drekka tesopa, sagði Teresa.
— Gerðu það, kona góð, tuldraði hann.
Hún fór inn til Gottfreðs. Hann sat reykjandi í hæginda-
stólnum. Á borðinu var blómaker og á skrifborðinu opin
bók. Samræður þeirra urðu tregar. Ólgan í sálu þeirr hafði
sett mark sitt á álft viðmót þeirra.
— Nú ætla ég að lesa hátt fyrir þig, hrópaði Gottfreð allt
í einu og spratt 4 fætur.
Hann settist við borðið og fór að blaða i bókinni. Teresa
gekk til hans og laut yfir hann. Hönd hennar hvíldi á stól-
bakinu. í þessuni SVifum var hurðinni hrundið upp.
— Þá veit maður það!
Þau litu undrandi við. Þetta var rödd Antons Mölers.
— Anton! hrópaði Teresa.
Gottfreð stóð upp og gekk í áttina til föður síns, er stóð
í gættinni á náttskyrtu einni klæða, þrýsti hitapokanum
með lófanum að mága sér og horfði á þau Teresu til skiptis.
Teresa hló krampakenndum hlátri.
— Pabbi! sagði Gottfreð. Hvernig dettur þér í hug? Að
rjúka á fætur! Flýttu þér í rúmið aftur!
Teresa hló eim.
— Ha-ha! sagði hún. Veiztu, hvernig þú er búinn, Anton
— í náttskyrtu óg með hitapoka á maganum? Þú verður að
fara í rúmið undir eins. Komdu!
Hún leiddi mánn sinn inn i svefnherbergið.
— Gottfreð! hrópaði hún og leit um öxl. Sæktu te handa
mér. Ég drekk það-inni hjá föður þinum.
Gottfreð kom níeð' te handa sér og Teresu inn í sjúkra-
stofuna. Antort skreiddist með erfiðismunum upp i rúmið,
og Teresa breiddi oían á hann.
f