Tíminn - 16.08.1950, Page 8
„ERLEIVT YFiRLIT“ í DAG:
Er KóreustríðiS rerk Ifiólótoffs?
Forsætisrádherra N.-Kóreu skipar:
Rekið bandaríska herinn i
sjóinn fyrir mánaðamot
Geysiharðir bardagar á Waeg'taii-svseSitiu
í sókn norðurhersins til Taes'n
Forsætisráöherra Norður-Kóreu ávarpaði hersveiiir norð-
urhersins í gær í tilefni af því að fjmm á eru iiðin frá
uppgjöf Japana í iandinu. Gaf hann í lok ræðu sinnar hern-
un skipun um að reka bandaríska herinn vægðarlaust í
sjóinn og hafa hreinsað skagann og tortímt hernum með
öllu fyrir næstu mánaðamót.
i
í
&
ol
^«+» - ýt # **/ € ij x Áf&it ^
Hörð sókn til Taegu.
Það fór eins og búizt hefir
verið við undanfarna daga,
að norðurherinn hæfi mikla
sókn á Waegwan-svæðinu í
áttina til Taegu. Á þessum
slóðum hefir norðurherinn
komið yfir Naktong-ána um
10 þúsund manna her og 100
skriðdrekum og heldur áfram
að ferja her yfir á þessum
slóðum. Bíður um 60 þúsund
manna her þess að komast
yfir.
Geysiharðir bardagar geis-
uðu þarna á austurbakkan-
um um 40 km. frá Taegu í
gær og fóru sifellt harðnandi.
Hefir suðurherinn þarna all-
mikið lið, en búast má þó við,
að hann verði að láta undan
síga.
Harðar flugárásir.
Bandaríski flugherinn hef-
ir haldið uppi látlausum loft-
árásum á þessum slóðum á
sóknarherinn og valdið geysi-
legu tjóni.
Sunnar með fljótinu hefir
suðurhernum tekizt að afmá
með cllu allmikið lið norður-
Trygve Lie
til Noregs
Trygve Lie aðalritari S. Þ.
dvelur nú í Noregi sér til hvíld
ar. í viðtali við blaðamenn í
Oslo lét hann i ljós bjartsýni
um úrslit Kóreustyrjaldarinn
ar og taldi vist að S. Þ. bæru
sigur úr býtum.
„Eina ráðið,“ sagði Lie, „til
að koma á friði er að sigra
árásarher kommúnista í
Kóreu svo að réttlætið megi
sigra í baráttunni við ofbeld-
ið“.
Hoy slegið að morgni
má liirða að kvöldi
Hey, sem slegið er að
morgni, er hægt að hirða að
kvöldi sama dags, skrifa tveir
ameriskir vísindamenn í rit-
ið Scientific Agriculture. Það,
sem gerir þetta mögulegt, er
vél, sem tekur grasið úr múg-
unum og malar það og press-
ar og dreifir því út um völl-
inn aftur, þar sem það sið-
an þornar á helmingi styttri
tíma en ópressað hey. Ekki
var þess getið í greininni,
hvort heyið tapaði næringar-
gildi við það að vera pressað,
en eðlilega mun það tapa all-
miklu af safa við aðgerðina.
hersins, sem komizt hafði
yfir ána, og syðst á vígstöðv-
unum áttu sér stað nokkrir
bardagar í gær, en vígstaða
breyttist lítið.
Halda enn flugveHinum
við Pohang.
Bandariskar hersveitir
halda enn flugvellinum við
Pohang en hafa nú sprengt
nokkurn hluta hans og munu
sprengja hann allan, ef þær
verða að hörfa þaðan. Við-
bótarlið hefir verið sett á
land miili Pohang og Yong-
dok, þar sem lið Bandarikja-
manna er innikróað á strönd-
inni.
-ír H '?>■X 4- i4t *>• */» 1 *> J ^
*•? SSO, ?j° ?S9-m tJföM‘Í.&ÁJ&Hf ,
Herlið Bandaríkjamanna í Kóreu hefir dreift yfir landið
flugritum, þar sem meðal annars er skýrt fyrir Kóreu-
miiunum, hvernig hinar bandarísku þrýstiloftsfluvéiar eru.
Hér sési mynd af því flugriti
Ssldarskfpgn veiða ufsa
þegar síld sést ekki
II It veðnr á
niiðiiniim o*»
veiði í gser
engin sí!d-
Mikiil fiskafli
við Grænland
Færeyingar hafa
fjögur flutninga-
skip i förum
Við Grænland er nú ágæt-
ur fiskafli. í sumar stunda
skip frá mörgum þjóðum veið
ar við vesturströnd Græn-
lands. Færeyingar hafa 300
skip á þessum miðum og Port
úgalar og Frakkar einnig
mörg skip. Auk þess eru Norð
menn i sumar með mikinn
flota við Grænland, eins og
að undanförnu.
Færeyingar hafa fjögur
stór flutningaskip í förum
milli Færeyja og Grænlands.
Er það stærsta þeirra um 4
þúsund smálestir. Taka þau
við saltfisknum af fiskipskip
unum. En aflinn er allur salt
aður nema lúða sú er Færey-
ingar veiða. Hún er fryst og
hefir frystiskip aðsetur i Fær
eyingahöfn á Grænlandi til að
taka við þeim afla.
í gær var illt veður á miðunum fyrir Norðurlandi. Engin
síld veiddist og voru öll skip í landvari eða höfnum, þegar
leið á daginn í gær.
í gærmorgun var sæmilegt
veður við Mánaeyjar og köst
uðu nokkur skip þar á ufsa-
torfu og fengu 200—500 mál
af ufsa. Nokkur áhætta er því
samfara að kasta síldarnót-
um á ufsatorfur, þar sem
þær eru ekki nægilegar sterk
ar fyrir ufsann. Yfirleitt lán
aðist þetta samt hjá flotan-
um, en fá skip urðu þó fyrir
tjóni vegna þessa á veiðar-
færum.
Síldarverksmiðjur ríkisins
kaupa ufsa til bræðslu fyrir
32,50 kr. málið, sem er hálft
andvirði síldarmáls.
Það hafa oröið mönnum
mikil vonbrigði, að sild skyldi
ekki veiðast í fyrradag og
sunnudag, þar sem ágætt
veiðiveður var þá víða við
Norðurland. Nokkur sild
veiddist þá að vísu, en hvergi
um verulega veiði að ræða.
Skoti fram í rauðan
dauðann
Tveir smápeningar urðu fyr
ir skömmu Skota nokkrum
að bana. Slysið henti í Hamm
> ersmith, útborg London. Litil
| dóttir Skotans hafði misst
tvo smápeninga út um glugg
' ann, og þeir höfðu hafnað á
syllu hálfan metra neðar á
veggnum. Faðirinn teygði sig
út um gluggann og ætlaði að
ná aurunum en missti jafn-
vægið og steyptist út. íbúðin
var á fjórðu hæð hússins og
beið Skotinn þegar bana.
Hafa Rússar 10
millj. manna í nauð-
ungarvinnu
Fulltrúar brezku stjórnar-
innar hafa nú lagt fram
skýrslur og gögn því til sönn
unar, að Rússar reki stór-
felldari ánauðarvinnu en
nokkur þjóð önnur um þess-
ar myndir. Sönnunargögnin
eru mestmegnis ljósmyndir
og skýrslur frá stjórnum lepp
ríkja Rússa. Mestan hluta
þessara vinnuþræla hafi
Rússar flutt til Síberíu og
muni láta nærra, að Rússar
hafi þannig um 10 millj.
manna í ánauðarvinnu. Ef
þeir vilji bera þennan áburð
af sér og hrekja þau sterku
sönnunargögn, sem hér liggi
fyrir verið þeir að birta
skýrslur um þessi mál og tölu
fanga og annarra afbrota-
manna eins og aðrar þjóðir
geri.
NÝSTÁRLEG
KVIKMYND
Nýja bíó sýnir á næstunni at
hyglisverða kvikmynd, sem
heitir Berliner Ballade, eftir
hinn þekkta kvikmyndastjórn
anda Gúnther Neumann. Efni
myndarinnar er hin rústum-
lagða Berlin í niðurlægingu
hinnar sigruðu borgar.
Otto, aðalpersóna myndar-
innar, er persónugerfingur
hinnar hrjáðu Berlínar-al-
þýðu sem verður að leiksoppi
stórveldanna í baráttu þeirra
um yfirráðin. Myndin er ekki
beinlínis saga Ottos, sem
kemur heim að styrjöldinni
lokinni og finnur rústir Berlín
ar leiksvið soltinna vegleys-
ingja, auðugra samvisku-
lausra svartamarkaðs brask-
ara erlendra sigurvegara og
pólitískra áróðursmanna, sem
berjast um sannfæringu von
lausrar alþýðu, heldur eru
þetta þættir úr sögu þúsunda
sem hlotið hafa sömu örlög
og Otto.
Myndin er gerð á óvenjuleg
an hátt sem setur hana ofar
myndum sem hafa verið gerð
ar um þetta efni. í fyrsta lagi
er hin impressionistika með-
ferð efnisins áhrifa mikil.
Otto hverfur og gleymist
stundum og virðist myndinni
óviðkomandi alveg eins og í
raun og veru gerst um alþýöu
Berlínar í átökum stórveld-
anna. í öðru lagi eru örlög
Ottos sýnd á táknrænan hátt.
Yíirleitt má segja að myndin
sé symbolstisk og það á mjög
skemmtilega visu. í þriðja
lagi ber ekki á viðkvæmni
sem oft einkennir slíkar
myndir og viðist sem líf al-
þýðunnar sé sýnt með hæðnis
fullum gáska. Mörg mjög
skemmtileg atriðið eru í mynd
(Framhalð á 2. síðu.)
-----—7
Elízabet Englands-
prinsessa fæddi
dóttur í gær
Elísabet Englandsprins-
essa fæddi í gærdag mey-
barn er vó 12 merkur, og
Iíður bæði móður og dótt-
ur vel. Fæðingin átti sér
stað í Clarence House,
heimili prinsessunnar og
manns hennar, og tók hin
konunglega ljósmóðir, Hell
cn Rowe á móti barninu.
Dóttirin var þegar skýrð
Mary eftir ömmu sinni.
Fæðingunni var fagnað
með fallbyssuskotum og
klukknahringingum að
brezkum sið. Tilkynning
um fæðinguna var send ;
samtímis til allra samveldis
landanna í einu.
i—--------------
Rómantísk vika á
Englandi
í september í haust á að
halda svokallaða. rómantíska
viku í Whiteley Bay á Eng-
landi, og verða þátttakendur
að minnsta kosti tvö þúsund
piparsveinar og piparmeyjar.
Tilkynningar um þátttöku
hafa borizt hvaðanæva af
Englandi, jafnvel einnig frá
Frakklandi.
Markmiðið með þessu fyrir
tæki er að gefa einmana
fólki kost á að kynnast öðr-
um, er svipað er háttað um,
ef vera mætti, að einhverjir
fyndu þar örlög sin. Og menn
verða að vera trúaöir á, að svo
fari, því að þegar hafa borizt
miklar brúðkaupsgjafir handa
þeim, er svo ástfangnir kunna
að verða, að gifting fengi á
eftir. Mörg gistihús hafa líka
boðizt til þess að sjá brúð-
hjónum af rómantisku vik-
unni fyrir ókeypis dvöl á
fögrum stöðum í nokkra
daga.
Er Molotov staddur
í Peking
Sífellt ganga óstaðfestar
fregnir um það, að Moltov sé
nú staddur í Peking og ræða
við leiðtoga kínverskra
kommúnista, Mao-Tsetung.
Fréttaritar austur þar standa
á því fastar en fótunum, að
svo sé, og ræði þeir félagar
árás á Formósu og hjálp
Rússa. Er talið, að Mao sé
Rússum reiður fyrir það að
hafa lagt allt kapp á að
hljálpa Norður-Kóreu í stað
þess að styðja kommúnista í
Kína til að ganga milli bols
og höfuðs á stjórn kínverskra
þjóðernissinna á Formósa.
Molotov vilji hins vegar telja
Mao á það að láta árás á
Formosu bíþa þar til stríðið
í Kóreu sé með öllu útkljáð.
Ef hann vilji hlíta því, muni
Rússar veita honum öfluga
hjálp.