Tíminn - 25.08.1950, Blaðsíða 7
185. blað.
TÍMINN, föstudaginn 25. ágúst 1950.
7,
Knattspyrnufélagið
Þróttur efnir til
happdrættis
Knattspyrnufélagið Þrótt-
ur í Reykjavík hefir efnt til
happdrættis til styrktar starf
semi sinni. Kostar miðinn 2
krónur og er jinningurinn
borðstofuhúsgögn að verð-
mæti 8000 krónur. Dregið
verður 1. október. Félagið var
stofnað 5. ágúst 1949 og voru
stofnendur félagsins 36.Síðan
hefir félagatalan farið ört
vaxandi og eru nú rösklega
300 manns í félaginu.
Það hefir þegar tekið þátt
í vormóti IV. flokks og kom
þar mönnum skemmtilega að
óvörum með eitt sterkasta
liðið og varð nr. 2 í mótinu.
Einnig hefir Þróttur tekið
þátt í íslandsmóti I. og III.
flokks og mun taka þátt í II.
flokks mótinu. Handbolti hef
ir einnig verið iðkaður og von
andi eigum við eftir að sjá
það lið keppa á innanhús-
mótunum í vetur.
Áhugi félagsmanna er mik-
ill og hafa þeir sótt um vall-
arstæði fyrir vestan Tivolí og
mun meginhluta ágóðans var
ið í hina fyrirhuguðu vallar-
gerð. — Við fögnum þessu
unga og efnilega íþróttafé-
lagi, sem ásamt hinum gömlu
félögunum stuðlar að holl-
um og drengilegum skemmt-
unum fyrir æskuna.
Skemmtiferð sjómanna-
dagsráðs til Akraness
Akurnesingar leggja ágóða sjóniannadags
í sundlaug og heimili aldraðra sjómanna.
Síöastliðinn sunnudag efndi Sjómannadagsráðið í Reykja-
vík til skemmtiferðar upp á Akranes. Var farið þangað með
strandferðaskipinu Esju, sem Skipaútgerð ríkisins lánaði
endurgjaldslaust til þessarar farar, enda á allur ágóði að
renna til dvalarheimilis aldraðra sjómanna, sem ráðgert er
að byggja í nágrenni Reykjavíkur.
Verður herlögregla
Þýzkalands
stækkuð?
Talsmaður brezku stjórn-
arinnar sagði í gær að brezka
stjórnin væri hlynnt kröfum
Adenauers forsætisráðherra
Vestur-Þýzkalands um að
koma upp sterkari lögreglu
og landvarnarliði, þar sem
einnig nyti stuðnings her-
námsveldanna. Shinwell her-
málaráðherra Breta var til-
lögunni samþykkur en sagði,
að hernámsveldin þrjú, yrðu
að taka ákvörðun um málið
í sameiningu.
Fallhlíf fór upp,
en ekki niður
Rússneska blaðið Izvestia
skýrði nýlega frá því, að fall-
hlíf hefði í fyrsta skipti í
sögu flugferðanna hafizt í
loft upp með mann í, í stað
þess að síga til jarðar.
Ivan Adamuk hafði stokk-
ið út úr flugvél í átta hundr-
uð metra hæð yfir Minsk.
Fallhlífin þandist út og tók
brátt að stíga, og innan lít-
illar stundar var hún komin
hátt yfir flugvélina. Þannig
sveif hún í meira en tvo tíma
í frosti og kulda og tók loks
að hlaðast á hana ising. Þá
byrjaði hún loks að síga.
Talið er, að óvenjulega
mikið uppstreymi hafi vald-
ið þessu.
Sjómannaráðið í Reykjavík
hefir nokkrum sinnum áður
efnt til svipaðra skemmti-
ferða upp á Akranes og jafn-
an verið fjölmenni mikið í
þessum ferðum. Að þessu
sinni var þó þátttaka lítil,
miðað við það, sem áður hefir
verið. Tóku þátt í ferðinni
um 200 manns. Ótryggt veð-
urútlit mun hafa dregið nokk
uð kjark úr fólki að leggja
upp.
Lagt var af stað frá Reykja
vík kl. 1 eftir hádegi.
Er skipið lagðist að bryggju
á Akranesi flutti Hállfreður
Guðmundsson formaður Sjó-
mannadagsráðsins á Akranesi
ræðu, og bauð aðkomumenn
velkomna til Akraness. Síðan
bauð Sjómannadagsráðið þar
fulltrúum í Sjómannadags-
ráðinu í Reykjavík og Hafn-
arfirði til kaffidrykkju i Báru
húsinu. Flutti sóknarprestur-
inn, sr. Jón Guðjónsson ræðu
þar, síðan talaði Hallfreður
Guðmundsson, og lýsti hann
aðaláhugamálum sjómanna-
dagsins á Akranesi.
Þar var sjómannadagurinn
fyrst haldinn hátíðlegur 1939,
eða ári eftir að Reykjavík hélt
sinn fyrsta sjómannadag,
Hallfreður sagði 1 ræðu sinni
að 1 8 ár hafi öllum ágóða
sjómannadagsins verið varið
til byggingar Bjarnalaugar á
Akranesi. Árið 1948 voru allar
kvaðir Sjómannadagsins upp
fylltar varðandi Bjarnarlaug,
og var síðan stofnaður sjóð-
ur, ákveðið að verja 20% af
eignum og tekjum sjómanna-
dagsins til styrktar sjómönn-
um, sem verða fyrir veikind-
um eða slysum. En 80% af
tekj um dagsins renna til bygg
ingar dvalarheimilis aldraðra
sjómanna á Akranesi í sam-
bandi við Elliheimilið, sem
verið er að byggja á Akra-
nesi. Dvalarheimilissj óðurinn
á Akranesi nemur nú ca. 29.
þús. krónum.
Kl. 21,30 var lagt af stað
frá Akranesi, áður en Esja
lagði af stað, flutti forseti bæj
arstjórnar Akraness, Hálfdán
Sveinsson, ræðu. Þakkaði
hann mönnum fyrir komuna
fyrir hönd Akurnesinga og
sjómannadeildar Verkalýðs-
félags Akraness, en hann er
formaður þess félags, og að
lokum flutti Þorvarður Björns
son kveðjur og þakkir Full-
trúaráðs sjómannadagsins í
Reykjavík og Hafnarfirði.
Fulltrúaráð sjómannadags-
ins vill biðja blaðið að færa
forstjóra Skipaútgerðarinnar
þakkir fyrir þá rausn. að lána
Esjuna endurgjaldslaust til
þessarar farar, og skipstjór-
anum á Esju fyrir hans að-
stoð við ferðina, sem og skips-
höfn allri.
Verkfallið í
Amsterdam
Hafnarverkfallið í Amst-
erdam hefir nú staðið í átta
daga og er óleyst enn. í gær
voru um 11 þús. hafnarverka
menn þar í verkfalli. í Ant-
werpen hafa hópar hafnar-
verkamanna einnig lagt nið-
ur vinnu. Samkomulagsum-
leitanir hafa reynzt árangurs
lausar enda fara verkamenn
fram á allmikla kauphækk-
un.
Brezkt lið flutt
til Kóreu
í gær stigu tvær brezkar
herdeildir á skip í Hongkong
og verða þær fluttar til Kó-
reu. Lið þetta er vel vopn-
um búið og hefir gegnt her-
þjónustu i Austurlöndum um
nokkurn tíma.
Önnur er fræg sveit Há-
skota, sem gat sér góðan orð
stír í siðustu heimsstyrj-
öld, en herdeildin er skipuð
mönnum frá Middlesex, sem
börðust hraustlega við Jap-
ani í orrustunni um Hong-
kong fyrir 9 árum.
Alger vinnustöðvun
vofir yfir í Kanada
Þing Kanada hefir nú veitt
stjórninni leyfi til að taka
leigunámi allar farþega- og
flutningaflugvélar vegna
járnbrautarverkfallsins í
Kanada.
125 þúsund járnbrautar-
verkamenn eru nú i verk-
falli en alger vinnustöðvun
vofir yfir hjá 250 þús. manns
vegna skorts á flutninga-
tækjum. Talið er að stjórn-
in muni ekki taka flugvélarn
ar í þjónustu sína nema í
allra brýnustu nauðsyn.
Evrópumcistara-
mótið
(Framháld af 8. siOu).
sig glæsilega og kom 3. í mark
í milliriðli sinum. Hljóp hann
á nýju íslandsmeti, 48 sek,
og bætti metið um 0.9 sek.
Hefir hann miklar líkur til
að verða 3. í úrslitakeppni.
100 m. hlaup.
Keppni í milliriðlum í 100
m. var mjög hörð. Finnbjörn
hljóp í fyrra riðli og varð 4.
hljóp á 11,1 sek. Kemst hann
því ekki í lokakeppni. Haukur
var fyrst dæmdur 4. en ljós-
myndataka sýndi, að hann
var 3. og hljóp á 11 sek. í
lokakeppni varð hann 5.
maður og hljóp á 10,8 sek. Er
hann fyrsti íslendingurinn
sem hlýtur stig á þessu móti,
og fær 2 stig. Hlaupið vann
Bally, Frakklandi á 10,6 sek.
— í 1500 m. varð Pétur 7.
Stangarstökk.
Til þess að komast í úr-
slit í stangarstökki þurftu
keppendur að stökkva 4 m.
Torfi fór yfir þá hæð í ann- l
ari tilraun og kemst hann því
í úrslit. i
Eftir þennan dag má segja, I
að staða íslendinganna sé
mjög góð og standa vonir til,
að dagurinn í dag færi þeim
fleiri sigra, ef sæmilega geng
ur. — j
í 10 km. göngu varð Sviss-
lendingur fyrstur á 46,01,8
mín. Bretar áttu tvo næstu
menn.
fiEBIST ASKRIFENDIJR AÐ
TÍMAAEM. - ÁSKRIFTASÍMI 2323.
At«FVSIACASHMI TIMANS FR 81300
BergurJónsson
Málaflutningsskrifstofa
Heima: Vitastíg 14.
Laugaveg 65, sími 5833
Köld borð og hclt-
nr matur
aendum út um allan bœ
SILD & FISKUR.
Auglýsiugasími
Tímans
cr 81300.
Aldarminning
Framhald af 8. síðu.
ur aflamaður við Faxaflóa.
Þau Jakobína og Árni áttu
tíu börn, þar af þrenna tví-
bura, og eru niu barna þeirra
á lífi. Voru sex þeirra í för-
inni, ásamt þremur ættlið-
um öðrum. Yngsti þátttakand
inn var Guðmundur Davíðs-
son, tíu. ára, barnabarna-
barnabarn Jakobínu Jóns-
dóttur. Af börnum Jakob-
ínu voru í förinni Sveinn
fiskimatsstjóri, Kristján skip
stjóri. Jón skipstjóri, Ingvar,
starfsmaður í mjólkurstöð-
inni, Guðný ekkja Samúels
kaupmanns Pálssonar og Guð
mundína ekkja Kristjáns
skipstjóra Magnússonar.
Fjarverandi af börnum henn
ar voru Dagbjört. kona Jóns
kaupmanns Bjarnasonar á
Bíldudal, Jóhanna, ekkja
Kristjáns fiskámatsmanns
Sigurðssonar, og Guðfinna.
— Látin er Þóra, kona Ás-
geirs útgerðarmanns Ás-
geirssonar á Bíldudal.
Ferðafólkið dvaldi um
stund i fögrum hvammi of-
anvert við bæinn á Fjalli,
þar sem spor ættmóðurinn-
ar lágu í æsku, og rakti elzti
sonur hennar, Sveinn fiski-
matsstjóri, ætt hennar og
sögu, en dótturdóttir hennar,
Jakobina Ásgeirsdóttir, talaði
fyrir minni hennar og brá
upp ýmsum skyndimyndum.
En þess á milli var sungið.
Erlcnt yfirlit
(Framhald af 5. siðu.y
staka áherslu beri að leggja
á þrennt:
1. Næga atvinnu.
2. Hagstæða utanríkisverzlun.
3. Lægra verðlag.
Hinsvegar er ekki lofað kaup-
hækkunum, enda í samræmi við
skoðun jafnaðarmanna á síðari
tímum, að kjarabætur eigi að
reyna að tryggja með verðlækk
un en ekki kauphækkun.
Það eftirlit, sem talið er nauð
synlegt, er m. a. eftirlit með
fjárfestingu, svo að nauðsynleg
ir atvinnuvegir og framkvæmd-
ir hafi forgangsrétt. Jafnframt
þurfi að hvetja fyrirtækin til
fjárfestingar, m. a. með því að
takmarka hagnað þeirra og
hvetja þau þannig til að verja
honum til fjárfestingar. Eftir-
lit og aðhald er talið nauðsyn-
legt í sambandi við gjaldeyris-
verzlunina, og eins með staðsetn
ingu nýrra fyrirtækja, svo að
þau lendi ekki um of á fáum
stöðum, heldur dreifist eðlilega
um landið. Þá er talið nauðsyn-
legt, að rikið stuðli að stofnun
nýrra fyrirtækja, því að talið
er æskilegt að þau séu heldur
fleiri en færri í sömu grein, þar
sem það á við, því að það stuðli
að samkeppni og komi í veg fyr
ir, að stórir hringar geti náð
yfirráðum.
1 sambandi við utanríkismál-
in er lögð áherzla á auknar
hervarnir, sem sé þó ill nauð-
syn. Lögð er áherzla á að efla
Sameinuðu þjóðirnar og reynt
sé innan vébanda þeirra að ná
samkomulagi við Rússa um
kj arnorkumálin.
Afgreiðsla
Laxfoss
tekur daglega á móti flutn-
ingi til
Akraness,
Borgarness og
V estmannaeyja.
Farmgjöldin eru nú allt að
30% ódýrari, en aðrir geta
boðið á sömp flutningaleið-
um.
H.f Skallagrímur
Vatnsþéttir lampar og raf-
lagnir
Raftækjaverzlunin
UÓS & HITI h. f.
Laugaveg 79. — Sími 5184.
LÖGDÐ
fínpúsning
send gegn póstkröfu um allt
land.
Fínpúsningsgerðin
Reykjavík — Simi 6909
Fasteignasöiu-
miöstööin
Lækjargetu 10 B. Simi 6530
Annast sölu fasteigna,
skipa, bifreifc, o. fl. Bnn-
fremur alls konar trygging-
ar, svo sem brunatryggingar,
innbús-, liftryggingar o. fl. I
umboði Jóns Finnbogasonar
hjá Sjóvátryggingarfélagi ís-
lands h. f. Viðtalstími alla
virka daga kl. 10—5, aðra
tíma eftir samkomulagi.
tltbretóil Tíiftahh
Anglýsið I Tímannm.