Tíminn - 10.09.1950, Blaðsíða 7
198. blað.
TÍMINN, sunnudaginn 10. september 1950.
7.
Skuggavaldurinn
(Framhald af 4. síSu.)
hafa hreiðrar um sig í ein-
hverri góðri graslaut, láta
svo börnin rífa upp berjaklas
ana og færa sér, una svo ró-
lega við að losa berin í tínur
sínar. Hvað væri sagt ef
sveitamenn legðu leið sína í
skrúðgarða Reykjavíkurbúa,
tættu í sundur gangstígana,
veltu sér makráðir í grasinu,
tíndu svo berin af trjánum
og skæfu um leið brumið af
greinunum, en rækju svo upp
ramakvein og réðust að eig-
endum með skammir og
svívirðingar ef þeirr vönduðu
um framferði þeirra, eða
beiddu bóta fyrir? |
Ajax þessi hreykir-fér á há
an hól þekkingarinnar og seg
ir. „Hvernig færi ef hver bóndi
á leiðinni milii Reykjavíkur
og Akureyrar færi að heimta
afgjald af sérhverjum bíl sem
um land hans færi. — En i
rauninni hafa bændur á
þeirri leið alveg sama rétt til
að heimta vegatoll eins og
Sandsbóndinn.“
Ekki vantar Ajax vitið!
Hann segir, að hver bóndi
sem land á þar sem vegur
liggur hafi sama rétt og Sands
bóndinn. Hann getur engan
mun fundið þess, hvort vegur
inn er þjóðvegur lagður fyrir
almannafé, til afnota fyrir al
þjóð, eða hvort vegurinn er
einkavegur á eigin jörð, lagð
ur fyrir eigið fé, til eigin af-
nota.
Það virðist svo að Ajax
þessi sé haldinn aðalmanns-
hroka miðaldanna, því grein
hans ber með sér, að honum
finnst bóndinn eigi ekki að
hafa umráðarétt yfir sinu
eigin landi eða eigin hand-:
verkum; honum beri möglun
arlaust að þola margskonari
átroðning óþekktra manna,
þegar þeim þóknast að sýna
sig í sumarsólskininu. Reyni
bóndinn að bera hönd fyrir
höfuð sér og halda á rétti
sínum, hleyptur þessi rit- j
snápur og hyggt að út-
hrópa hann á opinberum vett
vangi og lætur sér sæma
að bera hann ímynduðum
sakargiítum.
Lögfróður virðist hann vera,
því hann segir: „Fyrir slíku
er engin heimild í íslenzkum
lögum, fyrir nú utan það, að
þetta ber vott um ótrúlegan
lubbahátt.“ Ég skal ekki
segja hvað eru lög eða ekki
lög í þessu sambandi, en hitt
vil ég segja að hann er næsta
ófróður í okkar eigin réttar-
sögu. Hann virðist ekki
þekkja að Reykjavikurbúi
hefir fyrir allmörgum árum
síðan keypt jörð í sveit hér
á Suðurlandi, byggt sér þar
fagran sumarbústað til þess,
að njóta listsemda sumarsæl
unnar sem bezt; lagt veg fyr
ir eigið fé af þjóðveginum
heim til sín, bannað svo ná-
grönnum sínum umferð um.
veginn nema fyrir ákveðið j
gjald og fengið dóm fyrir því
að jafnvel örvasa gamalmenni
sem aldrei hefir veginn séð
eða farið, megi ekki eftir
honum fara. 1
Oddur á Sandi þarf ekki að
fara aftur í miðaldir eða til
annara landa, að finna for- j
dæmi því að taka gjald fyrir 1
umferð um einkaveg sinn,
dæmið er að finna meðal auð
kýfinga Reykjavíkur. i
Ég nenni ekki að eltast
meira við Ajax þennann að
sinni, en legg það undir dóm
alþjóðar, hvort sýni meiri
lubbahátt, framkoma bónd-
ans Odds á Sandi eða rit-
smíði Ajax í Mánudagsblað-
inu 4. sept. 1950.
Sólmundur Einarsson
41þjóðlegi sam-
vinnudaguriim
(Framhald af 1. síSu.)
bæði félög og einstaklingar.
Síðar var þessu breytt og nú
eru einungis félög innan
sambandsins. Tilgangur sam-
bandsins er:
1. að safna upplýsingum um
undirstöðuatriði samvinnunn
ar og framkvæmd samvinnu-
hugsjónarinnar.
2. að vinna að kynningu og
skilningi á meðal fulltrúa
hinna ýmsu samvinnusam-
banda heims.
3. að safna statistiskum upp
lýsingum um samvinnufélög.
4. að stuðla að samvinnu-
fræðslu.
Alþjóðasambandið heldur 1
þing yfirleitt þriðja hvert ár.
Sambandið sjálft annast ekki
bein viðskiptastör., en veitir
alls konar fræðslu og fyrir-
greiðslu um þau efni og hefir
stuðlað að stofnun ýmiss kon-
ar viðskiptanefnda og deilda
á vettvangi alþjóðarsamvinn-
unnar.
Að tilhlutan Alþjóðasam-
bandsins var regnbogafáninn
gerður að fána alþjóðasam-1
vinnuhreyfingarinnar. Sam-
bandið gefur út mánaðarrit,
„Review of International
Cooperation,“ og er það prent
að bæði á ensku, frönsku og
þýzku.
I Núverandi framkvæmdar-
stjóri Alþjóðasamvinnusam-
bandsins er sænski íslands-
vinurinn Thorstein Odhe.
!
Dagskrá samvinnumanna.
í kvöld er dagskrá sam-
vinnumanna i útvarpinu og
hefst kl. 20.20:
Ávarp: Vilhjálmur Árna-
son, lögfræðingur.
Samtöl: Leifur Bjarnason,
framkvæmdastjóri, og pró-
fessorarnir Ólafur Jóhannes-
son, Ólafur Björnsson og
Gylfi Þ. Gíslason.
Leikrit: Fegurðarsamkeppni
eftir Loft Guðmundsson, rit-
höfund. Leikstjóri: Brynjólf-
ur Jóhannesson. Leikarar:
Emelía Jónasdóttir, Lúðvík
Hjaltason, Árni Tryggvason,
Steindór Hjörleifsson, Karl
Sigurðsson, Kristín Finnboga
dóttir, Andrea Þorleifsdóttir.
Erindi: Af sjónarhóli sam-
vinnumanns eftir Hannes
Jónsson, félagsfræðing. Flutn :
insmenn: Leifur Bjarnason,!
Harry Fredriksen, Klara Jón-
asdóttir, Kristín Finnboga-
dóttir, Hermann Þorsteinsson,
Hannes Jónsson.
Einsöngur: Guðmundur
Halldór Jónsson. Fritz Weiss-
happel annast undirleik.
Þáttur frá m. s. Arnarfelli:
Baldvin Þ. Kristjánsson, er-
indreki.
Allt til að auka
ánægjuoa
Glös undir berjasultuna,
fyrir saftina flöskur og tapp-
ar. Blómapottarnir komnir
aftur.
VERZLUN INGÞÓRS
Selfossi, sími 27.
Gerist áskrifendur að
íntanum
Áskriftarsími 2323
TlMINN á hvert íslenzbt
: heimili.
ÚtAöluAtaiimr í
íZeifhjatih
\ Vesturbær:
' Vesturgata 53
Fjóla Vesturgata
Veitingast. Vesturg. 16
Miðbær:
Bókastöð Eimreiðarinn-
ar.
Tóbaksbúðin Kolasundi
Hressngaskálinn
Söluturninn við Kalk-
ofnsveg.
Austurbær:
Bókabúð Kron.
ísbúðin Bankastræti 14
Gosi Skólavörðustig
óðinsgata 5
Laugaveg 45
Veitingastofan Vöggur
Laugaveg 64
Veitingastofnan Stjarn
an Laugaveg 86
Söluturnin við Vatns-
þró
Verzlun Jónasar Berg-
manns Háaleitisv. 52
Verzl. Krónan Máva-
hlíð 25
Verzlunin Ás Laugaveg
160
Matstofan Bjarg Lauga
veg 166
Vogar:
Verzlunin Langholtsveg
174
Verzlunin Nökkvavog
13.
-----—j
LÖGCÐ
finpúsning
send gegn póstkröíu um allt
land.
Fasteignasöfu-
miðstöðin
Lækjargötu 10 B. Sími 6530
Annast sölu fasteigna,
skipa, bifreiða o. fl. Enn-
fremur alls konar trygging-
ar, svo sem brunatryggingar,
innbús-, líftryggingar o. fl. í
umboði Jóns Finnbogasonar
hjá Sjóvátryggingarfélagi ís-
lands h. f. Viðtalstími alla
virka daga kl. 10—5, aðra
tfma eftir samkomulagi.
Allt til að auka
ánægjuna
Dívanar að norðan komnir,
borðstofustólarnir að koma.
VERSL. LNGÞÓRS
Selfossi — Sími 27
Köld borð og heit-
nr matnr
eendum út um allan bse
SlLD & FISKUR
ELDURINN
gerir ekki boð á undan sér!
Þeir, sem eru hyggnlir
tryggja strax hjá
Samvinnutryggingum
Bergur Jónsson
Málaflutningsskrifstofa
Laugaveg 65. sími 5833
Heima: Vitastíg 14.
M.s.„Gu!lfoss“
fer frá Reykjavik laugardag-
inn 23.'september kl. 12 á há
degi til Leith og Kaupmanna
hafnar.
Pantaðir farseðlar skulu
sóttir eigi síðar en föstudag
15. september. Það skal tekið
fram, að farþegar verða að
sýna fullgild vegabréf þegar
farseðlar eru sóttir.
H.f. Eimskipaf élag íslands
Vatnsþéttir lampar og raf-
lagnir
Raftækjaverzlunin
LJÓS & HITI h. f.
Laugaveg 79. — Sími 5184.
Forðizt eldinn og
eignatjón
Framleiðum og seljum
; flestar tegundir handslökkvl
.tækja. Önnumst endurhleðslu
á slökkvitækjum. Leitið upp-
lýsinga.
Koisýruhleðslan s.f. Sími 3381
Tryggvagötu 10
Reykjavik
Fínpúsningsgerðin
Reykjavík — Sími 6909
Enginn íþróttaunnandi getui
verið án Sportsblaðsins, sem
flytur nýjustu fréttir frá öllum
löndum. Einnig birtast í blað-
inu innlendar og erlendar grein-
ar um iþróttir. Sportblaðið
kemur út einu sinni í viku og
kostar árgangurinn 30,00 krón-
ur. Gerizt áskrifendur.
Nafn .......................
Heimili ....................
Staður .....................
SPORTBLAÐIÐ, Vesturgötu 34,
Reykjavík.
Nýja fasteignasalan
Hafnarstræti 19. Sími 1518.
Annast sölu fasteigna, skipa,
bifreiða og verðbréfa. Við- j
talstími kl. 11—12 og 2—5
virka daga nema laugardaga
kl. 11—12.
Frímerkjaskipti
Sendið mér 100 íslenzk frí-
merki. Ég sendi yður um hæl
200 erlend frimerki.
JON AGNARS,
Frfmerkjaverzlun,
P. O. Box 356, Reykjavík.
| TILKYNNING
| frá Sildarútvegsnefnd um
söltun Faxasildar
S
Með hliðsjón af þeirri'sölu, nú hefir tekizt og sölu-
\ horfur á saltaðri Faxasíld hefir Síldarútvegsnefnd
= ákveði fyrst um sinn verð á fersksild til söltunar.
1. Uppsöltuð tunna 3 lög í hring kr. 125.00.
2. Uppvegin sild kr. 0.80 pr. kg. Verð þetta miðast
i við að 8% framleiðslugj ald verði ekki innheimt.
Þeir sem byrjaðir eru og ætla að hefja síldarsöltun
I á Suðurlandi þurfa nú þegar að tilkynna það skrif-
f stofu Síldarútvegsnefndar í Reykjavík ásamt eftir-
i farandi upplýsingum:
1. Söltunarstöð og aðstöðu til söltunar.
2. Hver verið eftirlits- og umsjónarmaður.
3. Af hvaða skipum saltað verði.
Síldarútvegsnefnd mun senda trúnaðarmann sinn
á söltunarstöðvarnar. Sé aðstaða til söltunar ónóg eða
óhæf mun söltun stöðvuð eða eigi leyfð á viðkomandi
stöð.
Gunnar Floventz fulltrúi Síldarútvegsnefndar verð-
ur til viðtals á skrifstofu nefndarinnar í Fiskifélags-
húsinu í Reykjavík, sími 80711 frá mánudegi 11. sept.
Ber mönnum að snúa sér til hans með allt er við-
I kemur söltun Faxasíldar. Ennfremur mun Síldarútvegs
I nefnd hafa einn eða fleiri eftirlitsmann til leiðbein-
í ingar saltendum. > j
Síldarútvegsnefnd leggur áherzlu á að saltendur
í vandi verkun síldarinnar sem allra bezt. Kasti frá
1 smáum, mögrum og gölluðum síldum og hlíti fyrirmæl-
f um nefndarinn í hvívetna.
Sildarútvegsnefnd.
ÍtllllHIIHMHIMHIHHIIHIIIIIHIIIIIHIIIIIIIHIIHIIHIIIIIIHHIIHHIMMIIIHIIIIIIHHIIIIIHHIIIIHIIHHIHHHHIIItNHIIHII
£ 1111111111111111111111111111111111111111111111111111111111