Tíminn - 04.10.1950, Síða 2
2.
TÍMINN, migvikudaginn 4. október 1950.
219. blað.
Jrá kafi til heiia
Útvarpib
Útvarpið í kvöld:
Fastir liðir eins og venjulega.
Kl. 20,30 Útvarpssagan: „Ketill
inn“ eftir William Heinesen;
XXXV. (Vilhjálmur S. Vilhjálms
son rithöfundur). 21,00 Tónleik-
ar: Howard Barlow og hljóm-
sveit hans leika létt lög (plötur)
21,20 Erindi: Um framkvæmda-
stjórn sveitarfélaga (Jónas Guð-
mundsson skrifstofustjóri). 21,40
Danslög (plötur). 22,00 Fréttir
og veðurfregnir. 22,10 Danslög
(plötur). 22,30 Dagskrárlok.
Hvar eru skipin?
Sambandsskip:
M.s. Amarfell er í Ibiza. M.s.
Hvassafell fór frá Reykjavík 2.
þ. m. áleiðis til Italíu með salt-
fiskfarm.
Eimskip:
Brúarfoss er í Færeyjum.
Dettifoss fer frá Reykjavik kl.
10 í kvöld til Hull og Rotterdam.
Fjallfoss fór frá Reykjavík 30. 9.
til Svíþjóðar. Goðafoss er í Vest
mannaeyjum. Gullfoss fór frá
Leith 2. 10. til Reykjavíkur. Lag-
arfoss fer frá Akureyri í dag
3. 10. til Norðfjarðar. Selfoss er
í Keflavík. Tröllafoss fer frá
Halifax í dag 3. 10. til Reykja-
víkur.
Ríkisskip:
Hekla er í Reykjavík. Esja fór
frá Reykjavík i gærkveldi vestur
um land til Akureyrar. Herðu-
breið fór frá Reykjavík í gær-
kveldi austur um land til Bakka
fjarðar. Skjaldbreið fer frá Rvík
í dag til Húnaflóahafna. Þyrill
er í Reykjavík. Ármann fór frá
Reykjavík síðdegis í gær til Vest
mannaeyja.
Árnað heilla
Hjónaefni:
Nýlega opinberuðu trúlofun
sína ungfrú Vigdís Þormóðsdótt
ir prests á Vatnsenda S.-Þing.
og Sveinn Skorri Höskuldsson,
stúdent frá Vatnshorni í Skorra
dal.
Hjónaband.
Nýlega voru gefin saman í
hjórlaband á Akureyri ungfrú
Ingiríður Steingrímsdóttir, Rvík
og Gunnar Þórsson, skrifstofu-
stjóri Akureyri.
Sextugsafmæli.
Frú Margrét Árnadóttir, kona
Egils Benediktssonar, forstjóra
Tjarnarcafé átti sextugsafmæli
í gær.
Sextugur er í dag
Þorsteinn Kristleifsson, bóndi
að Gullberastöðum í Lundar-
reykjadal.
B/öð og tímarit
Samtíðin.
Tímaritið Samtíðin, október-
heftið (8. hefti, 17 árg.) hefir
blaðinu borist og er það að
vanda mjög fjölbreytt og læsi-
legt. Efni: Þetta segja Bretar,
eftir ritstjórann, Sigurð Skúla-
son. Það er sagt (nýr þáttur).
Aimælisviðtal við Guðmund
skáld Daníelsson frá Guttorms-
haga fertugan. Bernskuminning
ar úr Biskupstungum eftir Guð-
rúnu Vigfúsdóttur. Svipur Tyr-
ones lávarðar (framhaldssaga).
Um feldskurð eftir Óskar Sól-
bergs, íslensk íþróttaafrek vekja
athygli erlendis eftir Ingólf
Steinsson, Undir fjögur augu
eftir Sonju B. Helgason Spurt
og svarað (nýr þáttur). Bridge-
þáttur eftir Árna M. Jónsson
Skopsögur. Þeir vitru sögðu. Enn
fremur eru frásagnir um inn-
|Hvað skapar glæpamenn?
Vitur Kinverji svarar: Glæpir stafa af fá-
tækt. fátæktin af vanrækslu í landbunaði
Fyrir skömmu lauk 10 daga ráðstefnu, sem þátt tóku í
glæpasálfræðingar frá 60 löndum. Aðalverkefni ráðstefn-
unnar var að ræða spurninguna: „Hvers vegna verða menn
glæpamenn,“ og reyna að finna svar við henni.
Þar sem ekki tókst að finna
viðunandi svar við þessari þýð
ingarmiklu þjóðfélagsspurn-
ingu, var ákveðið að setja á
stofn sérstaka rannsóknar-
stofnun til að leysa þessa
miklu þjóðfélagsgátu.
Svarið gefið fyrir 20 öldum.
Ýmsir sálfræðingar hafa
hins vegar bent á það, að þeir
líti svo á að svar hafi feng-
izt við þessari spurningu fyr-
ir 20 öldum, þegar hinn vitri
Kínverji Ch’ao Ts’o, sem land
ar hann kölluðu „vizkusáinn“
ritaði nokkur vísdómsorð um
málið. Það var 155 árum áður
en okkar tímareikningur
lendar og erlendar bækur o. m.
fl.
*
Ur ýmsum áttum
Bæjarráð
hefir samþykkt að veita Barna
vinafélaginu Sumargjöf 50 þús.
kr. aukafjárveitingu á þessu ári.
Fór stjórn Sumargjafar þess
á leit við bæinn með bréfi, að
aukafjárveiting þessi yrði veitt
vegna rekstrarhalla vistheimila
og vöggustofu.
hófst, og Kínverjar geýma
orð hans í minni enn:
I „Glæpir eiga rót sína í fá-
tækt, fátæktin er dóttir hung
j ursins, og hungur skapast þeg
ar landbúnaðurinn er van-
ræktur. Án landbúnaðar er
maðurinn rótlaus og ekkert
bindur hann við jörðina. Án
slíks bands yfirgefur hann
fæðingarstað sinn og heim-
ili. —
í kuldanum spyrja menn
ekki um gæði klæðanna.og í
hungrinu ekki um gæði mál-
tíðarinnar. Þegar kuldinn og
hungrið halda innreið sína
skeyta menn ekki um skömm
eða heiður. Þegar magann
vantar fæðu og líkamann
klæði, getur móðurástin ekki
einu sinni haldið börnunum
I skefjum.
Hinn vitri stjórnandi veit
þetta. Þess vegna fylkir hann
þegnum sínum til starfá við
landbúnaðinn og býr sig und-
ir það að geta fætt og klætt
landslýðinn þegar harðindi
steðja að.“
i Og 20 öldum síðar er kölluð
saman ráðstefna til að leysa
gátuna: Hvers vegna vérða
menn glæpamenn*
Tónlistarskóiinn
verður settur laugardaginn 7.
október kl. 2 í Tripolibíó. Nýir
nemendur mæti til prófs á mið-
vikudag kl. 4, en allir aðrir nýir
nemendur mæti til prófs á'
fimmtudag kl. 4 í Tónlistarskól- I
anum, Laufásveg 7.
Anglýsingasími
Tímans er 81 300
er 81300.
-Jfö
ornum vec^i
Ger slíkt hið sama
Reykjavík - New York
Flugferð verður til New York 10. október n. k. ef
nægilegt þátttaka verður. — Allar nánari uppl. í skrif
stofu vorri, Lækjargötu 2.
Loftleiðir h.f.
í gær var sagt frá því hér í
blaðinu í lítilli rammagrein,
hvemig ungmennafélag Skeiða-
manna og bændur þar í sveit-
inni hafa tekið upp samvinnu
um ræktun heimilisskóga. Bænd
urnir leggja til hentugt land,
einn hektara að stærö, girða það
og friða. Siðan útvegar ung-
mennafélagið plönturnar og
leggur til mannafla við gróður
setningu.
Það má vel vera, að þessi hátt
ur hafi víðar verið upp tekinn.
En ekki hef ég tpurnir af því.
En mér finnst aðferð Skeiða-
manna til fyrirmyndar.
J Hér á landi eru margar víð-
| lendar og blómlegar sveitir, þar
j sem engin hrísla er lengur til.
Þar býr myndarlegt fólk, sem
innt hefir af höndum stórvirki
| við jarðyrkju og húsabætur. En
• það vantar drátt í svip þessara
: byggða. Yfirbragð þeirra er kalt
! og tómlegt. Það vantar skógar-
lundi, hléskóga heimilanna, er
græddir hafa verið og fóstraðir
af fólkinu, sem þar býr.
Okkur hefir nú miðað svo
langt í skógræktarmálum, að
fundnar eru allmargar tegundir
trjáa, sem með vissu geta' dafn-
að hér ágætlega, auk bjarkar og
reynis og víðis, er hér hafa vax-
ið frá öndverðu. Enn mun að
visu vera hörgull á sumum þess
ara erlendu tegunda, en sá dag-
j ur nálgast, að það verður ekki
1 lengur. En til þess, að skógrækt
in verði það, sem þarf að verða,
1 — hugsjón, sem nær til almenn
ings í landinu, verða ménn í
hverri byggð að leggja hönd á
plóginn.
Kannske er framtak Skeiða-
manna ekki nema spor í þá átt,
sem leiðin liggur i. Kannske 'hill
ir senn undir þann dag, að haf
in verður stórfelld skógrækt,
gróðursettur skógur á stórum
svæðum, er áður hafa verið lítt
nytjanleg. Þá verður þörf á
fólki, sem fengið hefir þjglfun
við gróðursetningu í smærri stíl
heima í byggðarlagi sínu. En
þetta er framtíðin. Þessi miss-
erin er draumurinn um heimilis
skóga að verða að veruleika,
þar sem framtak er mest. Far
þú og ger slíkt hið sama.
J. H.
AUGU ÁSTARINNAR
Þetta er heillandi ástarsaga sem hefir verið kvik-
mynduð og leikur hin vinsæla, enska leikkona Mar-
gert Lockwood, aðalhlutverkið með ágætum.
Saga þessi verður áreiðanlega ekki síður vinsæl en
Belinda, en hún seldist upp á hálfum mánuði hjá for-
laginu.
Lesið söguna áður en myndin kemur.
Verð aðeins kr. 14,50
Söguútgáfan Suðri
<►
<►
<►
N
BAZAR
Kvenfélag Óháða Fríkirkjusafnaðarins heldur bazar í
Listamannaskálanum n. k. föstudag, og verður hann
opnaður kl. 2 e. h. — Félagskonur og aðrir, sem hafa
hugsað sér að láta eitthvað af hendi rakna til bazars-
ins, afhendi vinsamlega gjafir sinar sem fyrst, og í
seinasta lagi fyrir hádegi fimmtudag 5. þessa mánaðar.
Eftirtadar konur veita munum á bazarinn viðtöku:
Álfheiður Guðmundsdóttir, Klapparstíg 26, Helga
Sveinsdóttir Vesturvallagötu 2, Rannveig Einarsdóttir
Laugaveg 27B, María Maack Þingholtsstræti 27, og
Katrín Jónasdóttir Stórhotli 18.
BAZARNEFNDIN
«iiiii»iw»»mmni«»aamugw:uxgauatgcmnw:»iiii)iiiiHU»Kimi’.»
Þakka innilega öllum þeim, er heiðruðu mig 18. þ. m.
með veglegu samsæti, ræðum, bréfum, skeytum og
góðri gjöf í tilefni af 35 ára fjallkóngsstarfi mínu.
Svínavatni, 30. 9. 1950
Ingileifur Jónsson
H