Tíminn - 24.10.1950, Síða 8

Tíminn - 24.10.1950, Síða 8
„ERLEIVT YF1RLÍT“ t DAG Btekur og höfundar ,4 FÖRMJM VEG1“ t DAG Erlendir vatnafiskar Bílaleiðangur á ieið- inni í lllugaver Tveir íslendingar og' fjórir ESamlaríkja- monn munn ganga á Vatnajökul Hjálparleiðangur, sem fyrirhujað er, að taki þátt í hjörgun skíðaflugvélarinnar af Vatnajökli, gisti í fyrrinótt j að Galtalæk og lagði þaðan af stað í gærmorgun áleiðis j i Illugaver. j Þrír íslendingar, sex Banda- rikjamenn. Leiðangur þessi lagði af stað úr Reykjavík eftir há- degið á sunnudaginn og fór að Galtalæk. Fararstjóri hans er Guðmundur Jónasson frá Múla, en einnig eru með hon um tveir íslendingar Egill Kristbjörnsson og Guðjón Jónsson flugmaður Fóru þeir á þrejn bílum, einum stórum tíu hjóla vcrubíl og tveim minni herbílum til fólksflutn inga, með drifi á öllum hjól- um. Gistu þeir á Galtalæk í fyrrinótt. í förinni eru sex Bandaríkj amenn. Mikiil útbúnaður. Leiðangur þessi hefir með sér mikinn útbúnað til að setja upp vel búna bækistöð í Illugaveri, en þaðan mun hafin ganga á jökulinn. Þang að mun helikopterflugvél flytja menn og nauðsynleg tæki. Mun hún m. a. flytja þangað sleðahunda, ef heppi- legt þykir að nota þá til jök- ulfararinnar. gefið til að fljúga á þær slóð i ir, sem bilaleiðangurinn er nú á, en það mundi verða gert þegar er fært yrði. Ekkert samband var haft við bíla- leiðangurinn í gær, og er þvi ekki v.tað, hvernig honum gengur fcrin austur frá Galta ' læk. Koptir.n ckominn. i Helikopti sá, sem annast á flutninga austur í Illugaver, er ekki kominn t'l landsins enn, en hans er von bráðlega. Mun hann síðan flytja þá Árna Stefánsson og Friðþjóf Hraundal, sem ganga með Bandaríkjamcnnum á jökul- inn, austur i Illugaver og e. t. v. einn eða tvo Bandarikja menn, þegar er veður gefur. Sex ganga á jökul nn. Á jökulinn munu ganga sex menn, þeir Árni og Friðþjóf- ur og fjórir Bandaríkjamenn, tveir flugmenn og tveir véla- menn, sem einnig eru vanir jöklafarar. Minkur veiddur í Mývatnssveit Frá fréttaritara Tímans í Mývatnssveit. Freysteinn Jónsson bóndi á Vagnbrekku í Mývatns- sveit náði í fyrradag mink lifandi við læk vestan bæj arins er nefnist Sortulæk- ur. Braut Freysteinn upp fylgsni minksins í lækjar- bakkanum, og gróf upp grenið unz hann náði lion- um. Reyudist þetta vera karidýr móbrúnt að lit á stærð við lítinn kött. Þetta er fyrsti minkur- inn, sem veiðist í Mývatns sveit, en slóðir eftir mink hafa sézt þar áður. Eitt dýr fannst einnig dautt við Laxá vorið 1948. Er þar með fullvíst að skaðsemdardýr þetta hefir numið land í Mývatnssveit og stendur mönnum að sjálfsögðu stuggur af því fyrir varplöndin og veiðina í vatninu. SUNDMASKÍNA Hingað til hefir ósynt fólk orðið að láta sér nægja að busla við ströndina á baðstöðunum. En nú býðst því nýtt úrræði. Franskur bátasmiður, Georges de Saver, hefir nefnilega fundið upp sundmaskínu. Þetta er blikk dúnkur, sem búinn er þriggja hestafla vél og skrúfu, og ijpessu verkfæri getur ósynt fólk farið yfir fimmtán kílómetra breitt sund á einni klukkustund. Koma meö bílana aftur. íslendingarnir þrir, sem með bifreiðarnar eru, búast við að koma aftur ofan að Galtalæk á miðvikudag eða fimmtudag ef ferðin upp i Illugaver gengur vel, en ann ars getur það dregist, ef snjór tefur ferð á fjöllum og ár eru bólgnar. Blaðið átti í gær tal við Sigurjón Pálsson, bónda á Galtalæk. Sagði hann, að leiðangursmenn hefðu lagt af stað kl. 7—8 í gærmorgun. Sagði hann, að nokkur snjór hefði verið kominn á fjall- lendið austur undan fyrir fá- um dögum. Flogið er veður gefur. Blaðið átti einnig tal við Chalefoux, flugumferðar- stjóra á Keflavíkurflugvelli, í gær. Sagði hann, að ekki hefði Fjárveitinganefnd flýg- ur til Akureyrar Skoðar |iar ýmsar framkvæmdlr, sjjíikra- lius. skölaliús, hafnarmannvirkl og’ flugvöll Fjárveitinganefnd Alþingis er á förum til Akureyfar til ! að skoða með eigin augum ýmsar framkvæmdir sem þar er í verið að vinna á vegum hins opinbera. Hvanneyrarskóli fullskipaður Bændaskóiinn á Hvanneyri var settur fyrT um það bil viku síðan Er skólinn full- skipaður að þessu sinni. Marg ir nemendanna eru óreglu- leg r, enda fer það nú í vöxt að piitar með gagnfræðapróf komi þangað til náms, en þeir fá að ljúka skólanum á ein- um vetri. Eru því. að þessu sinni 31 í eldri deild, þar af 16 er ljúka námi eftir einn vetur. Þrettán nemendur eru í yngri deild og 7 í framhalds de ld. Einn stúdent er í skólanum í vetur, sem ætlar sér síðan að halda áfram sérnámi í bú- vísindum. Hefir staðið til undanfarna vetur að þessi ferð yrði farin, j enda er nauðsynlegt að þeir ( menn er skipta niður fé hins t •opinbera er renna á til fram kvæmda, geti haft aðstöðu til að kynna sér sem bezt allar aðstæður og háttu við fram- kvæmdirnar. Verður þessi ferð nú farin á morgun og flogið til Akureyrar og aftur til baka annað kvöld, ef veð- ur leyfir. Það sem skoðað verður á Akureyri er fyrst og fremst hinar miklu framkvæmdir sem ýmist er verið að vinna þar að, eða stendur til að i hefjast handa um. Eru það heimavistarhús menntaskól- ans, sem verið er að byggja i áföngum og sjúkrahúsið, fjórðungssiúkrahús fyrir NorðlencIingafjó’'ðung, sem komið er langt á veg. | Auk þess verður skoðuð hafnarmannvirki, sem verið j er aö vinna að á Akureyri og athugað um næstu verkefni: í þeim málum. Os: loks síðast en ekki sizt verður athugað um flugvallaframkvæmdir. Hugsanlegar endurbætur á Melgerðismelum og bygging hins fyrirhugaða fiugvallar á hólmunum í Eyjafjarðará1 skammt fyrir innan Akureyri. Á laugardaginn fór fjárveit inganefnd austur að Markar fljóti til að skoða þar fyrir- hleðslur. Ekkert upplýst um áverka Karls Guð- mundssonar Ekkert hefir enn komið fram um það, hvernig Karl Guðmundsson myndskeri hlaut áverka þann, sem leiddl nann til dauða, að því er saka dómari tjáði Tímanum í gær. Rannsókn málsins er þó enn haldið áfram. Afmælishóf Skiíla GuÖimiiid.ssoiiar Afmælishóf Skúla Guð- mundssonar er i kvöld í Breið firðingabúð. Þeir sem til- kynnt höfðu þátttöku sina en ekki sótt aðgangskort enn eru beðnir að gera það sem allra tímanlegast í dag. Álit fulltrúafundar L.Í.Ú. Fiskverðið svo lágt að utgerðin ber sig ekki Um 90 lnisuiid króna tap á vortíðarliát inoð núverandi vrrðlagi Fulltrúafundur Landssambands ísl. útvegsmanna var hald inn hér í Reykjavik dagana fyrir helgina og mættu á honum um 20 atkvæðisbærir fuiltrúar úr öllum landshlutum nema Austfjörðum. Gerðar voru þar ýmsar samþykktir um mál er aðallega varða bátaútveginn. Taldi fundurinn að eins og væri með núverandi verðlag á bátafiski, það er 75 aurar fyrir kílóið væri ekki starfsgrundvöllur fyrir bátana og þyrfti verðið að vera um kr. 1,30 ef bátarnir ættu að bera sig. Nefndarsklpan. Á fundinum var samþykkt eft'rfarandi tillaga: Fundurinn lýsir yfir því, að með óbreyttum aðstæðum, er ekki unnt að starfráekja vél- bátaflotann á komandi vetrar vertíð. Óskar fundurinn því eftir, að Alþingi og ríkisstjórn velji nú þegar menn, til að starfa að þvi, ásamt stjórn og verð- lagsráði L. í. Ú., að finna lausn á vandamálum vélbáta flotans fyrir næstu vetrarver- tið, svo hægt verði að hefja veiðar á eðlilegum tíma. 90 þúsund króna halli á vertíðarbát. Tillcgunni fylgdi alllöng greinargerð, þar sem lýst var ástandinu í útgerðarfnálum bátaútvegsins, og einnig rekstraráætlun fyrir 60 lesta bát á vetrarvertíð við Faxa- flóa. Samkvæmt þeirri rekstr aráætlun yrði rösklega 90 þúsund króna rekstrarhalli á bátnum, með núverandi fisk- verði. Hafa margir útgerðarliðir hækkað mikið eftir gengis- breytinguna, en fiskverðið hef j ir staðið í stað til bátanna. Sú hækkun er varð við geng- isfellinguna hefir ekki gert meira en vega á móti verð- uppbótunum á fiskinn, sem hættu með gengisbreyting- unn'. Núverandi verð er 75 aurar fyrir kílógramm. Telja útvegs menn sig þurfa að fá minnst kr. 1.30 fyrir kg. til að út- gerðin beri sig. Þessa hækkun telja útvegsmenn að ekki muni vera hægt að fá nema með sérstökum aðgerðum. Út litið í fisksölumálunum sé þannig nú að ekki sé ástæða til að vona að meira fáist fyr ir fiskinn erlendis en verið hefir. Mestar hækkanir hafa orðið (Framhald á 7. síðu.) oniiiiiMi 11111111111111111111111111111111111111111111111111111111:11 | Aðalfundur F.U.F. | í Reykjavík | | Aðalfundur Félags ungra | I Framsóknarmanna í I | Reykjavík verður í Eddu- | i húsinu á fimmtudagskvöld | | io kemur, og hefst kl. 8,30. | I Á þessum fundi verða f f kosnir fulltrúar á flokks- | | þing Framsóknarmanna í f I haust. | iiiiii ■111111111111111111111111111 iiiiimiiiiiiin 11 iiiiiiiiimiiiii* Suðurherinn aðeins 70 km. frá landamærum Mansjúríu j Tók 2fi liiísimd fanga s. I. sólarhring'. — \ð- oins 00 |ins. nndir vwpmiin í norðiirliorniim Hersveitir S. Þ. í Kóreu tóku í gær járnbrautarborgina Huichon, sem er á miðjum skaganum um 70 km. frá landa- mærum Mansjúríu og um 150 km. austur af Sinuiju, sem stjórn Norður-Kóreu hefir gert að síðasta aðsetursstað sín- um í landinu. Aðeins 69 þús. eftir Sóknin hefir verið mjög hröö síðustu tvo daga og er nú orðin svo dreifð að erfitt er að fylgjast með henni til fullnustu. Síðasta sólarhring hefir suðurherinn tekið 26 þúsund fanga, og eru fang- arnir alLs orðnir um 140 þús. Er talið að leifar norðurhers- ins, sem enn eru undir vopn- um, séu ekki nema um 60 þúsund. Taka Iluirhon. í gær tók suðurherinn járn brautarborgina Huichon og brauzt yfir Chongchon-ána. Voru þar nokkrar varnir, en urðu þó ekki til teljandi fyrir stöðu. Rannsóknaruefnd skipuð. Herstjórn S. Þ. telur, að Norður-Kóreumenn hafi alls myrt um 3. bús. Suður-Kóreu menn og 200 Bandaríkja- menn, er þeir hafa tekið til fanga. Mun S. Þ. skipa sér- staka nefnd til að athuga þessi mál og safna gögnum.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.