Tíminn - 29.10.1950, Qupperneq 2
2.
TÍMINN, sunnudaginn 29. október 1950.
241. blað.
'Jrá hafi til heiía
S.K.T.
Nýju og gömlu dansamlr 1 Q. T.-
húsinu sunnudagskvöld kl. 1 —
Húsinu lokað kl. 10.30.
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 6.30.
f>--\
dtvarpið
■Útvarpið í dag:
8.30 Morgunútvarp. 9.10 Veður
fregnir. 11.00 Messa í Dómkirkj-
unni (séra Bjarni Jónsson).
12.15—3.15 Hádegisútvarp. 15.15
Útvárp til íslendinga erlendis:
Fréttir. 15.30 Miðdegistónleikar
(plötur). 16.25 Veðurfregnir.
18.25 Veðurfregnir. 18.30 Barna
timi (Þorsteinn Ö. Stephensen).
19.30 Tónleikar: Fiðlulög eftir I
Sarasate (plötur). 19.45 Aug-
lýsingar. 20.00 Fréttir 20.20 Er-
indi: Störf Sameinuðu þjóð-
anna (Thor Thors sendiherra).
20.35 Tónleikar: Thomanerkór-
inn í Leipzig syngur (plötur).
20.55 Erindi: Um dr. Carl
Straube (Páll Isólfsson). 21.15
Tónleikar: Píanókonsert í C-dúr
op. 26 eftir Prokofieff (plötur).
21.45 Upplestur: „Leiðin lá til
Vesturheims", bókarkafli eftir,
Svein Auöun Sveinsson (höf-
undur les). 22.00 Fréttir og veð
urfregnir. 22.05 Danslög (plöt-
ur). 23.30 Dagskrárlok.
Útvarpið á morgun:
8.30 Morgunútvarp. — 9.10
Veðurfregnir. 12.10—13.15 Há-
degisútvarp. 15.30—16.30 Miðdeg
isútvarp. — (15.55 Fréttir og
veðurfregnir). 18.25 Veðurfregn
ir. 18.30 íslenzkukennsla; II. fl.
— 19.00 Þýzkukennsla; I. fl.
19.25 Þingfréttir. — Tónleikar.
19.45 Auglýsingar. 20.00 Fréttir.
20.20 Útvarpshljómsveitin (Þór
arinn Guðmundsson stjórnar):
a) íslenzk alþýðulög. b) „Don
Juan“, forleikur eftir Mozart.
20.45 Um daginn og veginn (sr.
Helgi Konráðsson á Sauðár-
króki). 21.05 Einsöngur: Guð-
munda Elíasdóttir syngur (plöt
ur). 20.20 Erindi: í leit að heil-
brigðinni iBaldur Johnsen
læknir). 20.40 Tónleikar: Kon-
? ert, fyrir harmoniku og hljóm-
sveit eftir Roy Harris (plötur).
22.00 Fréttir og veöurfregnir.
22.10 Létt lög (plötur). 22.30
Dagskrárlok.
Hvar eru skipin?
Sambandsskip:
M.s. Arnarfell lestar salt-
fisk á Austfjörðum. M.s.
Hvassafell er í Denia á Spáni.
Hvassafell er í Denía á Spáni.
Ríkisskip:
Hekla er í Reykjavík. Esja
er í Reykjavík. Herðbreið er
í Reykjavík. Skjaldbreið fer
frá Reykjavík á morgun til
Húnaflóahafna. Þyrill er í
Reykjavík. Straumey er á
Austfjörðum á norðurleið. Þor
steinn fór frá Reykjavík í gær
kvöld til Vestmanftaeyja.
Eimskip:
Brúarfoss fór frá Ceuta 27.
10. til íslands. Dettifoss er í
Reykjavík. Fjallfoss er í Reykja
vík. Goðafoss kom til Hauge-
sund 26.10. fer þaðan til Siglu
fjarðar og Reykjavíkur. Gull
foss er í Kaupmannahöfn.
Lagarfoss er á Akranesi. Sel-
foss ko m til Ulea í Finnlandi
25.10. Tröllafoss kom til Steph
ansville í New Foundland 24.
10. frá Reykjavík. Laura Dan
fermir í Halifax um 20.10. til
Reykjavíkur. Pólstjarnan ferm
ir í Leith 1—2.10. til Reykja-
víkur. Heika fermir í Hamborg
Rotterdam og Antwerpen 3.11.
Ur ýmsum áttnm
Sjónleskurian Marsrrét
eftir Ðagfinn bónda hefir ver-
ið sýndur tvívegis á Flateyri,
og í gærkvöldi átti að sýna
hann að Núpi í Dýrafirði. Það er
leikflokkur frá íþróttafél. Gretti
á Flateyri og stúkunni þar, er
til þessara sýninga efnir.
Sir Stafford Cripps, sem nú
hefir látió af starfi fjármála
ráðherra vegna vanheilsu,
' dvest, mn þessar mundir sér
j til heilsubótar í Ítalíu. Hér
sést hann á hinni daglegu
j morgöngungu sinni í fögru
umhverfi
^ Franska sendiráðið
: hefir flutt skrifstofur sínar af
j Skálholtsstíg 2 í Vonarstræti 4.
I
j Tregur afli
er á smábáta, sem stunda róðra
frá Flateyri í Önundarfirði.
Beinamjöisverksmiðjan
á Flateyri hefir beðið þess al-
búin að taka á móti karfa til
vinnslu, og voru vonir manna
um atvinnu að verulegu leyti
I við það bundnar, að karfa-
vinnsla gæti hafizt þar. En þess
ar vonir munu hafá brugðizt
algjörlega.
Nýjar bækur.
Þessar bækur eru nýkomn-
ar i bókasafn bandarísku upp
lýringaþjónustunnar að Lauga
vegi 24:
Roosevelt in Retrospect,
myndir úr sögu eftir John
Gunther. The Unitet States
eftir Edwin O. Reishauer, bók
um þátt í bandariskum utan-
ríkismálum. Knights Gambit
eftir William Faulkner. Peace,
My Daugthers eftir Shirley
Barker, saga frá 17. öld, ger
ist í Salem, Massachusetts. The
golden apples eftir Eudora
Welty. The Phow Must Go
On eftir Elmer Rice, skáld-
faga að nokkru með leikrits-
sniði.
Bókasafnið er opiö alla virka
daga nema laugardaga frá kl.
9 árdegis til kl. 6 síðdegis og
einnig á kvöldin til kl. 10 þriðju
daga og föstudaga.
Flugfélag íslands ,
hefir geíið út ferðaáætlun um
innanlandsflug og gildir hún
frá 1. okt. Alla daga vikunnar
er ílogið frá Reykjavík til Ak-
ureyrar og Vestmannaeyja, til
Neskaupstaðar á mánudögum,
til Seyðisfjarðar á mánudögum,
til Biönduóss á þrið.judögum og
laugardögum. til Sauðárkróks á
þriðjudögum, fimmtudögum og
laugardögum, til ísafjarðar á
m'övikudögum og laugardögum,
til Hólmavíkur á miðvikudögum
til Fáskrúðsfjarðar á fimmtu-
dögum. til Reyðarfjarðar á
fimmtudögum, til Kirkjubæjar-
klausturs á fösjudögum og einn
ig til Fagurhólsmýrar og Horna
fjarðar. Frá Akureyri eru sér-
stakar flugferðir til Siglufjarð-
ar og Ólafsfjarðar, Kópaskers
og Austfjarða.
i
!
Verölagssektir á þessu ári.
Guðlaugur Gíslason, gullsmið
ur, Rvk. kr. 800,00 og ólöglegur
varningur upptækur. Holgeir
Clausen, jr„ Rvk. 2000,00 fyrir
brot gegn 147. gr. hegningar-
laga. Ingi Þór Stefánsson kr.
500,00 fyrir tolllagabrot. Páll
Þoxieifson, heildsali kr. 200,00.
Sverrir Einarsson, Rvk. kr.
300,00. Vérzl. Ninon kr. 200,00.
Júlíus Evert kr. 200.00. Matbar-
inn, Rvk. kr. 1000,00. Uppsala-
kjallari kr. 400,00. Verzl. Þórar-
inn Kjartansson, Rvk. kr. 100,00
Ennfremur frá bæjarfógetanum
I Hafnarfirði.
Verzl. Katla, Grindavík kr.
200,00. Hattaverzl. Hafnarfjarð-
ar kr. 200,00 — ólöglegur hagn- j
s aður kr. 160.
i Á fimmtudaginn
I var sunnanrigning í Fljótsdal,1
en fátítt er að rigni þar í þeirri
átt. I gær var þurrt veður og
sunnanátt, en rigningarlegt út- j
lit. Úrkoman ætlar sýnilega
ekki að gera endasleppt við
Austurlandi. Þó má geta þess,
að Fljótsdalur slapp mun betur »
í sumar en flestar aðrar sveit-
ir á Norðaustur- og austur-
landi.
Bólusetning gegn barnaveiki.
Pöntunum veitt móttaka
þriðjud. 31. okt. og þriðjud.
7. nóv. kl. 10—12 f. h. í síma
2781.
Indælistíð
er nú á Fjöllum. Er þar orðið
alautt. En vegurinn yfir Möðru-
dalsfjallgarð er enn ófær bif-
reiðum og litlar líkur til þess,
að hann opnist aftur í vetur.
75 ára.
Eðvald F. Muller á Akureyri
varð 75 ára í gær 28. okt.
Félag austfirzkra kvenna
starfar hér í bæ. Hefir það
lagt áherzlu á að gleðja aust- j
firzka sjúklinga í sjúkrahúsum
með jólagjöfum eftir getu fé- !
lagsins, og auk þess glatt ein-
staklinga í bænum, er hafa átt
við veikindi og erfiðleika að
stríða. Á fyrsta starfsári sínu
varði félagið á þennan hátt ná
lega 4000,00 kr. og hefur auðn-
ast að auka styrktarstarfsemi
sína svo að á s. 1. ári var út-
hlutað til sjúkra nær 8000.00
krónum.
Hefur félagið hug á að afla
fjár til styrktarstarfseminnar
m. a. með bazar, sem verður
haldinn föstudaginn 3. nóv.
ekki að efa að Austfirðingar og
aðrir bæjarbúar, styrki gott
, starf félagsins með framlagi,
i þó í smáu væri. Gjöfum til þess
j arar styrktarstarfsemi er veitt
j móttaka hjá frú Pálínu Guð-
mundsdóttir, Thorvaldsenstræti
, 4, og frú Sigríði Guðmundsdótt
ir, Hringbraut 41.
BSblíu-bréfaskólinn
Sj«»vinnuvélarnar
(Framhald af 1. síðu.)
og mér fannst strax, að
þarna Væri stigið spor í
rétta átt. Það þarf tölu-
vert að endurbæta og fuil-
komna þessi tæki enn. En
eftir mínu viti er það nokk
urn veginn öruggt, að það
tekst að leysa vandann, ef
aðstoð fæst til þess að fuU
komna tækin. En það get
ur kannske tekið nokkurn
tíiúa enJ
býður yður ókeypis nám
skeið 25 lexíur auðskild-
ar og skemmtilegar. Lexi
urnar fjalla um mikil-
væg atriði kristindóms-
ins og svara þýðingar-
miklum spurningum
lífsins.
Allir sem óska að
verða þátttakendur,
sendi nöfn sín og heim-
ilisfang til
Biblíu-bréfaskólans
Box 262, Reykjavík
óli S.Í.S.
NAMSGREINAR:
íslenzk réttritun, enska, danska, esperantó, skipulag
og starfshættir samvinnufélaga, fundarstjórn og fund
arreglur, siglingafræði, mótorfræði, búreikningar, bók-
færsla í tveimur flokkum, reikningur algebra.
Bréfaskólinn gefur yður kost á námi jafnframt starfi
yðar. Ungir sem gamlir, hvar sem þeir eru búsettir á
landinu, geta með námi í bréfaskólanum notið tilsagna
hinna færustu kennara.
Bréfaskóli S.Í.S.
Reykjavík.
Stangarveiði í Vatnsdalsá
í Húnavatnssýslu er hér með auglýst til umsóknar.
Tilboðum sé skilað skriflega fyrir 1. desember n. k.
til formanns veiðlifélagsins, Guðmundar Jónssonar,
sýslunefndarmanns í Ási eða Jóns Pálmasonar alþing
ismanns.
Stjórn félagsins áslikur sér rétt til að taka hvaða
tilboði sem er eða hafna öllum.
Rivers of lceland
Bók hins kunna laxveiðimanns, Major General R. N.
Stewart, um veiðiár íslands, er komin út. Bókin, sem
er prýdd fjölmörgum myndum, hefur að geyma gagn-
merkar upplýsingar um veiðiár íslands, svo og skemmti-
legar frásagnir af landi og þjóð.
Tilvalin bók til að senda vinum og kunningjum
erlendis.
Ferðaskrifstofa ríkisins.
Frestið ekki lengur, að gerast
áskrifendur TÍMANS