Tíminn - 29.10.1950, Qupperneq 4

Tíminn - 29.10.1950, Qupperneq 4
4. TÍMINN, suimudaginn 29. október 1950. 241. blaff. Nafnlausi Heimdallardrengurinn Heimdallardrengurinn nafnlausi, sendir mér nokkr- ar línur í Morgunbl. 20. okt. Enda þótt sá maSur, er ekki þorir að bera ábyrgð orða sinna, heldur skríður á bak við félagsheild, sé ekki svara verður, þá eru málavei'jtir og málfærsla þannig, að rétt virðist að gegnlýsa þann nafnlausa nokkru betur, en þegar hefir verið gert. Þessi nafnlausi Heimdallar drengur hefir sjáanlega til- einkað sér bardagaaðferð áróðursmanna Sjálfstæðis- flokksins í öllum meginat- riðum, að hlaupa frá öllum rökum, hirða ekkert um sann leikann og endurtaka sífellt sömu ósannindin grein eftir grein. Sjálfstæðisflokkurinn lifir á því, að rugla dóm- greind manna, og brengla alla rökrétta hugsun. Bréf Heimdellings er ágætt 'sýnishorn þessarar málfærslu Rökfærslan. Heimdellingur krafðist þess, að ég sannaði, að Sjálf- stæðisflokkurinn vildi lög- bjóða kaupmannaverzlun. Ég sannaði að Sjálfstæð- isflokkurinn hindraði með valdboði, að neytendur fengju að verzla þar sem þeir kysu helzt. Ég sannaði, að 20—40% af öllum neytendum væru þving aðir gegn vilja sinum til þess að verzla við kaupmenn, með alla þá vöru, er mestan arð refur, að verzla með. Heim- dallardrengurinn nafnlausi, sem mun vera sonur eins af stærri heildsölum Reykjavík- ur, reynir ekki að færa nein rök gegn þessu. Hann segir orörétt um þessi mál: „Um hvað eruð þér eiginlega að tala Ég man ekki til, að hafa beð- ið yður um neina sönnun.“ Er hægt að hugsa sér meiri uppgjöf í nokkru máli. Drengauminginn virðist ekkert skilja, og ekkert vita. í einfeldni sinni hefir hann verið svo óheppinn að hefja ritdeilur, sem hljóta að leiða í ljós staðreynd, sem hann kýs að dylja. í fátinu, sem á hann kemur yfir því, að hafa verið svo seinheppinn i málflutningi fyrir Hörmang- ara tuttugustu aldarinnar, lýsir hann því hátíðlega yf- ir, að hann hafi aldrei beðið um neina sönnun fyrir því, að kaupmenn rækju einokunar- verzlun á landi voru. Eigi mun ég hrærast til meðaumkunar með Heim- delling þessum, þótt hann hafi í föðurhúsum fengið bágt fyrir bjánaskapinn. Þeir, sem Heimdellingur þjónar, munu bráðlega fyrir- gefa honum flónsku hans. Þó mun hyggilegra fyrir hann að leggja ekki í bráð út á þær brautir, sem hann hætti sér, er hann vildi sanna eínokun- arstarfsemi á samvinnufélög in. — Ríkið, það er ég. Hinn siðspillti konungur Frakklands, sagði fyrr á öld- um: „Ríkið, það er ég.“ Sami hugsunarháttur ríkir hjá yf- irráðaklíku Sjálfstæðisflokks ins. Þegar hinn miður rök- fimi Heimdellingur sér, að vegna kjósendafylgis Sjálf- stæðisflokksins hefir hann vegið að heldur mörgum, með því að segja, að allir þeir, sem til Reykjavíkur hafa flutzt á síðari árum, hafi flú- ið, og skilið eftir eyðibýli. Þá Eftir Hanncs Páh reynir hann að klóra yfir frumhlaup sitt og segja, að þetta eigi aðeins við menn eins og Hannes Pálsson, og aðra þá, er ekki gerast auð- sveipir þjónar reykvíska auðvaldsins. Þeir, sem eru kjósendur Sjálfstæðisflokksins hafa, að dómi Heimdellings flutzt til Reykjavíkur „í von um líf- vænlegri atvinnu og betri menntunarskilyrði." Það eru hinir réttu menn. Framsókn- arhyskið hefir ekkert að gera með lífvænlegri atvinnu og betri menntunarskilyrði. Framsóknarmenn eiga bara að framleiða mjólk, kjöt og garðávexti fyrir ihaldið. Þeir mega ekki afla sér aukinnar menntunar, allra sízt mega þeir draga úr verzlunargróða heildsalanna, með því að taka verzlunina í sinar hend ur. — Kaupmennirnir eiga óá- reittir að taka toll af öllu þvi, sem neytendurnir þurfa að kaupa. Framsóknarmennirn- ir eru samkvæmt dómi Heim dellings, aðeins latir, öfund- sjúkir og illgjarnir. Sönnunin fyrir þvi, að þeir séu latir, öfundsjúkir og ill- gjarnir er sú, að þeir gera sig ekki ánægða með það, að vera þrælkaðir af kaupmöng urum og fjárplógsmönnum. Heimdellingurinn, sem i fá- fræði sinni heldur að skrif sín séu rök, er bara svo heimskur að opinbera sinn innri mann með vaðli sínum. Þessi drengur hefir aldrei unnið ærlegt handtak, og .veit ekkert hvað það er, að vinna fyrir brauði sínu. Hann hefir æft sig í þv einu, að halda ræður á Heim dallarfundum, og eyða því fé, sem faðir hans hefir skaffað honum. Honum finnst í hroka sínum og einfeldni: „Ríkið, það er ég.“ Aff forffast sannleikann. Svo virðist; sem mörgum þeim, er rita í Mbl., sé það áskapað að segja aldrei satt. Heimdellingur virðist hafa tileinkað sér þá aðferð. Eitt af því, sem Heimdellingi virð- ist hvað þýðingarmest í þjóð- lífi íslendinga, er hvaða störf Hannes Pálsson hafi með höndum. Mér virðist slíkt Erlcnt yfirlit (Framhald, at 5. slBu.) að gera nokkuð, sem þeim er á móti skapi. Einkum ber hann mikla virðingu fyrir Ashraf, sem ekki er óeðlilegt, því að hún er tvíburinn frá honum. Það var Cham konungssystir, sem brá sér til Parísar, til að skoða Saroyu, og athuga hvort vert væri að lyfta henni á drottn ingarstól. Saroya hlýtur að hafa unnið hjarta mágkonu sinnar tilvon- andi, því að nýlega fór hún frá París í flugvél, sem líka flutti brúðarskart drottningarefnis, en það var keypt í tízkuhúsunum miklu í París. Og Ashraf tvíbura systir virðist líka vera yfirunn- in. Og nú er gleðistundin fram- undan. Fjölgað á norskiim ski|iuni Með tilliti til styttri vinnu- tíma og meira öryggis en áður hefir verið fjölgað í skipshöfn- um á norska verxlunarflotanum nú í haust. sou frá ITndirfelli engu máli skipta í rökræðum um verzlunarmál. Það eitt ætti að nægja, að þjóðin vissi, að Hannes er hvorki kaupmaður né kaupfélags- stjóri, heldur aðeins einn af mörgum neytendum þjóðfé- lagsins, sem vill fá að verzla við þá verzlun, sem býður bezt kjör, og hefir heilbrigð- astan starfsgrundvöll. Heimdellingur sagði í næst síðasta bréfi sínu, að ég væri blaðamaður, nú segir hann, að ég hafi „ekki einn ærleg- an starfa á hendi“ heldur lifi á nefndarstörfum og bitl- ingum. Engan ósóma teldi ég það, þó ég lifði á nefndarstörfum, því til slíks eru að jafnaði valdið glöggskyggnir menn. Bitlingastarf er lítt skil- greint, en er mjög þekkt starf hjá ýmsum gæðingum Sjálf- stæðisflokksins. Gallinn er bara sá, að mér er ekki kunn ugt um að ég starfi nú í nokk urri launaðri nefnd eða hafi nokkurn bitling. Starf mitt hin síðari ár er venjulegt skrifstofumanns- starf. Það eru margir íbúar Reykjavíkur, sem lifa á slík- um störfum. Ég get engan veginn verið sammála hin- um hrokafulla Heimdelling, sem ekki telur slík störf ær- lega vinnu. Öll sú vinna, sem þjóðfélagið þarfnast, er ær- leg vinna, þó störfin geti ver ið mismunandi þýðingarmik- il fyrir þjóðfélagið. Heimdellingur hefir ein- hversstaðar heyrt, að til að skrifa góða grein þurfi að fylgja þremur reglum. „Hugsa skýrt, forðast endurtekningar og reyna að þræða brautir sannleikans." Það mun ekki i bráð verða hægt fyrir þann nafnlausa, að fylgja þessum boðorðum, og má það teljast glettni örlaganna, að þessi málsvari Heimdallaræskunn- ar skuli vera að flagga með slíkum boðoröum, í smágrein, þar sem hann verður ber að því að þverbrjóta þau öll. Flestir dómbærir menn, er nenna að lesa bréf hans, munu sjá, að hugsun hans er þokukennd, sannleiksvið- leitnin engin, en þrástagast á marghröktum fullyrðing- um. Enn nin Stcfán . .. (Framhald af 5. siOu.) Enn á ný skal þaff sagt, að sá, sem þetta ritar, óskar ekki eftir slíkum mannaskipt um og hann telur þaff jafn vítavert, hvort heldur sem það eru kommúnistar eða andstæffingar þeirra, sem þess óska, að fréttir séu um- skrifaffar, ekki til aff verffa sannar og réttar, heldur til þess að hafa áróðursgildi fyr ir ákveðnar stefnur og skoð- anir. X+Y. Dnfiir í lier|ij«nn.«itu Bandaríkjaher hefir 1300 bréf dúfur í sinni þjónustu og er ætl unin að grípa til þeirra ef á liggur og tæknin bregzt. 800 af dúfunum eru fullnuma en 500 eru enn að stunda skólanám, en engin dúfa hefir lokið námi fyrr en hún hefir farið mjög langa sendiferð, — allt að þúsund km. Nokkrar dúfur, sem voru í fyrri heimstyrjöldinni, njóta nú eftirlauna sinna í sérstökum dúfnagarði. Nokkurt umtal hefir verið í blöðum og manna á milli um flutning erlendra frétta í út- varpinu, eins og lesendur Tím- ans hafa orðið varir við. Vísir hefir þar haft forgöngu, en Alþ.bl. stutt hann fast og Mbl. líka. Vísir er almennt talinn blað menntamálaráðherrans. Til dæmis um hörkuna í þessari sókn Vísis er það, að blaðið hefir látið sér sæma að segja, að flestir starfsmenn fréttastofu útvarpsins hafi skrifað undir Stokkhólmsávarpið. Hitt mun þó sannast, að einungis einn af starfsmönnum hennar hefir lát ið nafn sitt þar undir, hversu mikið sem það kemur nú frétta flutningi við. Alþbl. segir í gær, að það þurfi að skipta um menn í fréttastofu útvarpsins. Það hefir líka geng- ið sá orðrómur í Reykjavík und anfarna daga, að Jóhann Haf- stein ætli að verða útvarpsstjóri en Ivar Guðmundsson frétta- stjóri útvarpsins. Ég segi frá þessu, svona sem hverri annarri skrítlu, en ekki af því, að ég haldi að þetta sé réttara en hvert annað slúður, sem stund- um læðist manna á milli. En svo vildi ég minnast á hina al- varlegri hlið þessa fréttamáls. Það er alvarlegur hlutur hvern ig fréttir eru fluttar. Það hefir verið svo síðustu árin, að Mbl. Þjóðv., Alþbl. og Vísir hafa mið- að flutning útlendra frétta við áróður en ekki fræðslu. Þessi blöð segja yfirleitt ekki fréttir frá útlöndum til þess, að láta lesendur sína vita hvað er að gerast í heiminum, heldur til þess að hafa áhrif á afstöðu þeirra með eða móti Rússum. Fréttastarfið svokallaða er æs- ingastarf en ekki upplýsingar. Það er þáttur í hinni pólitísku baráttu. Og þeir, sem hafa brjál ast af þessum áróðri, segja stund um, að Tíminn sé ónýtur póli- tískt í fréttastarfi. Hvað hafið þið lesið í öðrum íslenzkum blöðum en Tímanum um það, að Truman forseti sé ' á móti kommúnistalögum Banda ríkjaþings og telji þau hættu- leg eða um gagnrýni og ádeilur þær, sem Kardelj utanríkisráð- herra Júgóslavíu flutti á Rússa á þingi Sameinuðu þjóðanna? Það eru til einstakir merkisvið- burðir, sem á hvorugan veg falla inn í trylltan áróður um Rúss- land og komast því hvergi að hjá íslenzkum dagblöðum nema Tímanum. Og þó er hitt miklu meira vert, að öllum heimsfrétt- um er þannig hagað í meðferð þessara málgagna, að úr því verði áróður. Það væri sannarlega ekki gott, ef einhver af þessum blöðum væru fyllilega ánægð með frétta þjónustu ríkisútvarpsins. Það vona ég, að komi aldrei fyrir. Ef það yrði, væri fréttastofan farin að miða störf sín við það sama og þau. Þá væri hún orðin áróðursstofnun eins og frétta- stofur einræðisríkjanna. Þess er ekki langt að minnast að kommúnistar fluttu harðar ádeilur á fréttastofu útvarps- ins enda er meginhlutinn af er- lendum i fréttumÞjóðviljans, Banaríkjarógur, sem ekki kem- ur í útvarpið. En þjóðin mun óska þess, að fréttastofan verði fræðslustofnun en ekki áróðurs tæki ríkisstjórnar á hverjum tíma. Alþbl., Mbl. og Vísir skyldu minnast þess, að þau og þeirra flokkar studdu einu sinni Brynj- ólf Bjarnason í menntamálaráð- herrastól. Það er staðreynd, hvort sem heppilegt þykir eða ekki að segja þær fréttir nú. Það sé fjarri mér að halda því fram, að fréttaþjónusta út- varpsins sé alfullkomin og ekk- ert megi að henni finna, enda mun seint verða þannig að henni unnið, að ekkert mætti betur fara. Hitt er mest um vert, að í meginatriðum virðist hún vera á réttri leið og miða starf sitt við frjálsan fréttaflutning, einns og verður að vera, ef þjóð in vill ekki láta draga belg of- stækis og einræðis á höfuð sér. Starkaður gamli. ÞAD BEZTA í sinni röð er spaðkjöt frá okkur. Höfum fyrirliggj- andi í heilum, hálfum og kvarttunum úrvals dilkakjöt frá Barðaströnd og Breiðafjarðardölum. Samband ísl. samvinnufélaga Sími 2678 :::::::::::::::::::::::::::::::::: :::::::::::::: Dugleg stúlka óskast strax. Góð laun. Nýtt hús, rafmagnsþægindi. í Reykjavík upplýsingar í síma 81029. Tilraunastööin Reykhólum A.-Barðarstrandars. Sími Króksfjaröarnes

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.