Tíminn - 09.12.1950, Blaðsíða 4

Tíminn - 09.12.1950, Blaðsíða 4
«. TÍMINN, laugardaginn 9. desember 1950, 276. blað Nokkrar barnasögur Eftir Halldór Kristjáusson Eins og vant er hafa kom- ið út allmargar bækur handa börnum og unglingum fyrir þessa jólakauptið og verða nokkrar þeirra taldar hér. Bókaútgáfa Æskunnar hef- ir sent frá sér fjórar nýjar barnabækur. Jólasögur (24.00 kr.) eftir J óhannes Friðlaugsson á Fjalli eru 14 smásögur, sem Norðri gefur út sérprentaðar. Sögur þessar eru margar kunn ar þeim, sem fullorðnir eru, því að þeir hitta hér gjarnan gamla kunningja, — hafa ef til vill munað eftir einhverri þeirra síðan þeir lásu hana ungir 1 Æskunni. Höfundur segir í formála, að hann vilji feginn að sögur sínar geti orðið til að styrkja jólahug- myndina sjálfa og þannig s-tuðla að viðhaldi hinnar sönnu jólagleði. Þetta er ekki sagt út í bláinn, því að þessar sögur eiga að leiða fram þau dýrmætu sannindi, að djúp og sönn gleði og fögnuður býr í öðru en glysi og glingur- krásum, enda þótt gaman þyki að slíkum munaði. Litli dýravinurinn (25.00 kr.) er viðhafnarútgáfa ísa- foldarprentsmiðju á nokkrum kvæðum og frásögnum, sem Þorsteinn Erlingsson átti i Dýravininum hjá Tryggva Gunnarssyni. Steingrímur Arason skrifar formála við bókina og fer þar maklegum orðum um brautryðjenda- starf þeirra Tryggva og Þor- steins á þessu sviði. Mega menn gjarnan hugsa um það, að hinn mikli athafnamaður og áhugamaður um verklegar framkvæmdir, Tryggvi Gunn- arsson, lét Þjóðvinafélagið gefa út Dýravininn. Þetta er þjóðleg bók, þó að frásagn- irnar séu margar af útlendum toga, og falíeg er bókin í bezta lagi. — Nonni (40.00 kr.) eftir Jón Sveinsson er nýkominn út hjá ísafoldarprentsmiðju, IV. bindi i ritsafni Nonna. Þetta má heita ný útgáfa af þýðingu Freysteins Gunnars- sonar, þó að hann segi í for- mála, að smávegis breytingar hafi verið gerðar. Nonni hefir nú komið út á meira en 20 tungumálum. Sagan af Helgu Karlsdóttur (6.00 kr.) hefir komið út hjá Hlaðbúð. Þetta ævintýri er í þjóðsögum Jóns Árnasonar undir nafninu Olnbogabarnið og hafði séra Sveinbjörn Guð mundsson skrásett það. En Lorenz Frölich, sem mörgum er kunnur af teikningum í ævintýri þeirra Grimms- bræðra, teiknaði myndir í þetta íslenzka ævintýri árið 1867 og fylgja þær nú sögunni í þessari útgáfu, og er það makleg ræktarsemi að gefa íslenzku fólki kost á teikning um hins þýzka snillings. Gvendur Jóns stendur í stór- ræðum (35.00 kr.) er ný bók eftir Hendrik Ottósson, fram- hald af fyrri sögum hans um Gvend Jóns og þá strákana í Vesturbænum. Sú bók var sérstæð og merkileg, skemmti lega sagðar strákasögur frá því skeiði í þróunarsögu Reykjavikur, sem aðeins var aði um hríð og aldrei kemur aftur. Hér er nú haldið áfram og hefir þetta nýja kver öll sömu höfuðeinkenni og hið fyrra. Þetta er menningar- saga strákanna í Vesturbæn- um á morgni þessarar aldar, — ef til vill ekki alhliða og tæmandi, en frjálsleg og skemmtileg. Stafa- og myndabókin (15. 00 kr.) er nýstárleg bók, ætl- uð ungum börnum, sem ekki eru komin langt í lestrarlist- inni. í henni eru myndir, sem Atli Már hefir gert og vísur eftir Stefán Jónsson. Tvær myndir eru á síðu hverri, eitt hvert dýr, sem á upphafsstaf síðunnar og leggur eitthvað gott til mála á dýraþingi og svo er neðanmálssaga af þeim Gunnu og Jóni. Þetta er falleg bók og merkileg eins og sagt er, girnileg til fróð- leiks og fögur á að líta. Sögurnar hennar ömmu (28.00 kr.), er fjórða kverið með smásögum og ævintýrum eftir Hannes J. Magnússon skólastjóra. Þessi bók er í sama formi og hinar fyrri, pappír ágætur, prentið stórt og teikningar eftir Þórdísi Tryggvadóttur prýða hana. Bækur Hannesar eru löngu orðnar kunnar og vinsælar svo að um þær þarf ekki að fjölyrða þess vegna. Adda í kaupavinnu (18.00) eftir Jennu og Hreiðar Stefánsson er eflaust kær- komin bók fyrir vinina henn ar Öddu, en þeir munu vera orðnir margir, því að Öddu- bækurnar hafa notið furðu- legra vinsælda. Veldur því sjálfsagt léttur og látlaus stíll, lipur og flækjulaus frásögn og sönn lýsing. Öddubækurnar eru alveg lausar við alla heim speki, sem börn skilja ekki. En nú er Adda orðin fermd og þá eru Vandamálin orðin önn ur, þvl að hennar hugsun er alltaf fylgt, bók úr bók. Frá- sögnin er stuttorð, rekur hvert atriðið af öðru króka- laust, og það á sjálfsagt sinn þátt í vinsældunum. Teikningar eftir Þórdísi Tryggvadóttur eru i kverinu. Hörður og Helga (26.00 kr.) eftir Ragnheiði Jónsdóttur er þriðja íslenzka barnabókin frá Æskunni. Ragnheiður er vinsæll höfundur, sem ekki þarf að kynna. Helga er ung telpa, sem fer til afa og ömmu austur yfir fjall á Eyrarbakka eða Stokkseyri en annars eru persónur sögunnar mis- 'jafnar, einkum er móðir Harð ar ómerkileg drusla. Þó er lýsing hennar ekki út í blá- inn. Stella (25.00 kr.) eftir Gun vor Fossum er norsk telpna- saga, sem Æskan gefur út. Sigurður Gunnarsson skóla- stjóri hefir þýtt söguna. Stella er að komast á gelgjuskeiðið, og sagan segir frá ýmsum áhyggjuefnum, sem kvenfólk á þeim aldri kannast eflaust við, og sumt vex reyndar seint frá. Þessi saga á að hjálpa ungum stúlkum til að sigr- ast á hégómanum og áhyggj- um hans. Kunnur skólamaður átti tal við mig. Hann vakti máls á því, að það værl nokkuð á reiki fyrir hvaða lögum menn teldu að þeir ættu að standa upp. Það þætti sjálfsagt hér eins og með öðr- um þjóðum, að hlusta stand- andi á þjóðsönginn. En auk þess risu ýmsir á fætur þegar þeir heyrðu önnur lög, svo sem ýms sálmalög og ættjarðarlög. Af þessu stafaði bæði nokkurt festu leysi og ósamræmi, sem væri til leiðinda, auk þess, sem sérstaða og tign þjóðsöngvsins minnkar við þetta. En hver er hér siða- meistari og getur sagt til um það, hvað við eigum að gera okkur að reglu? Svo vék skólamaðurinn tal- inu að máli á bókum, einkum barnabókum og námsbókum. Hann benti mér líka á það, að í skólaljóðum, sem nú eru notuð, stendur: „blessast íslands byggð“ í staðinn fyrir: „blessast Ingólfs byggð frá þeirri stundu“ í minni Ingólfs Arnarsonar eftir Matthías. Þetta taldi hann að vonum til lýta. Að þessu sinni skal ég ekkl fjölyrða um málfar bóka, en ég við aðeins geta þess, að þjóð- kunnur menntamaður, sem er viðurkenndur fyrir að skrifa gott mál og fagurt hvort sem hann semur eða þýðir, sagði mér, að sér dytti aldrei í hug að láta frá sér fara handrit af þýðingu til prentunar, fyrr en hann hefði fengið einhvern mál glöggvan mann til að lesa það yfir. Þetta er ekki af því, að hann telji þá endilega sér fremri, heldur af því, að hann veit,-að blindur er hver í sjálfs sök og betur sjá augu en auga og vandgert við íslenzkuna, svo að henni sé fullkosta. Enginn sæmilegur útgefandi ætti að láta bjóða sér það að gefa út bók án þess, að hleypi- dómalaus maður, sem kann ís- lenzku, hafi lesið hana yfir. Með þvi einfalda móti mætti losa ís lenzkar bækur við marga háð- ung, sem þar slæðist inn, og verður lesendum til athlægis eða skapraunar eftir gerð þeirra, en höfundum sínum og útgefend- um til minnkunnar og leiðinda. Starkaður gamli Selurlnn Snorri (22.00 kr.) er ævintýri með myndum eft- ir Frithjóf Sælen, norskan mann, en Vilbergur Júlíus- son islenzkaði. Bókaútgáfan Björk gefur bókina út. Tvennt er einkum merkilegt við þessa bók. Annað er það, að á ann- arri hvorri síðu er teiknilit- mynd, sem telja má til und- antekninga og nýjunga að sjá í barnabókum hér. Hitt er það, að nazistar bönnuðu þessa bók í Noregi, þegar hún var nýkomin út þar árið 1941. Er það sannarlega fróðlegt að sjá, hvað lítið hefir þurft til þess, að einvöld ofbeldisstjórn verði spéhrædd, haldi að ver- ið sé að spotta sig eða sví- virða, og noti ritskoðun sína til að banna bækur. Það get- ur verið umhugsunarefrii full orðinna manna, sem lesa þessa bók. TILKYNNING til jeppaeigenda 11 Vegna fyrirspurna um stýrisútbúnað jeppabifreiða ,, viljum við veita eftir farandi upplýsingar um það ' i hvað þarf að athuga til þess að fullvissa sig um að ° stýrisútbúnaðurinn sé í fullkomnu lagi. 1. Ekki má vera los í hjólalegum. < i 2. Ekki má vera los í spindilboltum. ° 3. Ekki má vera los í framfjaðraboltum. ,, 4. Ekki má vera los í framfjaðrahengslum. ° 5. Ekki má vera los í spennum utanum framfjaðrir. , ( 6. Ekki má vera los í stýrisendum. o 7. Öxulhalli á að vera 3°. Ella litla (20.00 kr.) eftir A. C. Westergaard er önnur bók, sem Björk gefur út. Sig- urður Gunnarsson skólastjóri hefir þýtt hana. Westergaard er höfundur, sem nú á all- margar barnabækur á ís- lenzku, og þessi mun ekki draga úr vinsældum hans. Satt að segja, er það helzt að undra, að þessi saga er ekki komin út á íslenzku miklu fyrr. Atli Már hefir gert teikn- ingar í þýðinguna. Ella litla er fimm ára stúlka út í Danmörku, elskulegt og skemmtilegt barn. 8. Rétt endaslag á framöxlinum og kúlur óslitnar. 9. Framfjaðraklemmur vel hertar. 10. Fjaðrastrekkjarar í lagi. 11. Stýris-„gear“ sé rétt stillt og ekki slitið. 12. Rétt millibil á milli hjóla. Þessar upplýsingar eru miðaðar við það að „fram- hausing“ sé rétt. Ef að eitt og sérstaklega ef að fleiri af þessum at- riðum eru ekki höfð í lagi kemur fram slit í stýris- bolta í olnbogaarmi og endar með því að hann brotnar ef að ekki er að gert. Hjalti Björnsson & Co. 99 Gull í lófa framiíðarinnar" segja ritdómarar um dýrasagnaflokkinn Menn og mál- leysingjar I—III. Það er vissulega satt — hér er um að ræða dýrmæta fjársjóði unglingum til handa. 114 sannar íslenzkar dýrasögur, skráðar af bændum, hús- freyjum, læknum og prestum og öðrum er náin kynni hafa haft af íslenzkum dýrum. Það er því þjóðin sjálf sem segir hér sögur. Fyrsta bindið er nú komið aftur á bókamarkaðinn. Getum því afgreitt öll 3 bindin, samtals 426 bls. og kosta þau aðeins kr. 60.00 í góðu bandi. Vekið hlýhug unglinganna til dýranna — það er mikilsvert gæfunnar spor. — Veljið þeim þessar bækur í jólagjöf. — H. f. Stillir Hin glæsilega yfirlitssýning ’ íslenzkrar myndlistar í Þóðminjasafninu nýja 2. hæð opin daglega frá kl. 10— 22. Aðgangseyrir kr. 5. Aðgöngumiði fyrir allan sýning- artímann er hljóðar á nafn kostar kr. 10. Auglýsingasími Tímans 81300

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.