Tíminn - 06.01.1951, Side 1
Itttitjóri:
Þðrmrinn Þórarinttom
rtéttaritstjórii
J6m Belgason
Útgefaruli:
rrmwu6k*arflok1curin*
<------------------------------- i
Skrifitofur l Kdduhútinn
Frétiastmar:
f1302 og S1303
AfgreiSslusimi 2323
Auglýsingasími 3130$
PrentsmiSjan Edda
35. árgangur.
Reykjavík, laugardaginn 6. janúar 1951.
4 blað.
Fimmtugnr í dag':
TómasGuðmundssori|
skáld
Tómas Guðmundsson skáld
er fimmtugur 1 dag. Hann ,er
eitt af ástsælustu slcáldum,
sem þjóðin hefir eignazt og
hefir skapað margar dýr-
mætar bókmenntaperlur,
sem seint mun falla á og
geymast munu í huga fyrst
og fremst æskunnar, kynslóð
fram af kynslóð meöan fög-
ur ljóð eru dáð á þessu landi.
Tómas er sem sagt ekki
nema fimmtugur í dag og
nýja Ijóðabókin hans, sem
kom út í vetur, sýnir það, að
hann á margt fallegt ógert
ennþá og það er lika von
allra ljóðelskra íslendinga.
Lítil síldveiði
Tveir báíar fens'u 25
■ tnnnur í fyrrinótt
Frá fréttaritara Timans
á Akranesi.
Tveir Akranesbátar Keilir
og Sveinn Guðmundsson
komu heim af síldveiðum í
gærdag. Voru þeir með lít-
inn afla eftir nóttina, annar
20, en hinn 5 tunnur. |
Keilir tók upp net sín og
og er hættur síldveiðum í bili,
en Sveínn Guðmundsson og|
annar bátur til munu halda
áfram veiðum eithvað enn. J
Eru menn ekki með öllu;
vonlausir um frekari síld- j
veiði. Sáu bátarnir í fyrra- j
kvöld mikla síld á dýptar-1
mæla og einnig urðu þeir var (
ir við stórfisk innan um slld
ina. En margir eru hins veg-
ar hræddir um að síldin!
á þeim slóðum, sem bátarnir
hafa látið reka, kunni að vera
aðallega smásíld, svipuð
þeirri sem verið hefir I sund- ,
um.
Skugga-Sveisin á Akranesi
SViyndarBeg starfsemi
hjá Leikféi. Akraness
Skugga-Sveiim sýndus* í Bíóliölliimi |sar í
fjérSa siim anuaókvölfl
Leikfélag Akraness sýnir um þessar mundir leikritið
Skugga-Svein eftir Matíhías Jochumsson. Hefir leikritið
verið sýnt þrisvar á Akranesi við ágæta aðsókn og mikla
hrifningu áhorfenda. Næst verður það sýnt í Ríóhöllinni
annað kvöld.
Stórbruni aö Ketilsstöö-
um á Völium i gærdag
Slóri íhóðar- og gistiliíís braim og engu af
innanstokksmunum varð hjargað
Frá fréttaritara Tímans á Egilsstöðum.
Um miðjan dag í gær varð stórbruni að Ketilsstöðum á
Völlum. Brann þar til kaldra kola á skammri stundu tví-
lyft stórhýsi, ein mesta bygging I sveit á Austurlandi. Engu
af innanstokksmunum varð bjargað.
Brann á þrem síundum.
Eldsins varð vart um klukk
an tvö í gær, en magnaðist
skjótt og va»ð engu bjargað
úr hósinu.
Fólk kom af öðrum bæjum
á Völlum, er vitnaðist um
eldinn. en til Egllsstaða náð-
ist ekki með beiðni um mann
hjálp við slökkvi- og björgun
arstarf fyrr en eftir háltan
annan tima, því að símastöð-
in þar er lokuð á timanum
frá tvö til hálf-fjögur. Um
fimmleytið var allt brunnið
er brunnið gat. — Eldsupp-
tök eru ókunn.
Stórhýsi.
Húsið á Ketilsstöðum var
stórt steinhús, tvílyft með
timburinnréttingú. Það var
notað sem gistihús á sumrin,
og voru ekki annars staðar
meiri byggingar á Fljótsdals-
héraði, nema á skólasetrum
og Egilsstöðum og ef til vill
að Skriðuklaustri.
Að Ketilsstöðum búa Berg-
ur Jónsson frá Egilsstöðum og
Sigríður Hallgrímsdóttir,
kona hans. Er tjón þeirra
geysilega mikið, því að allt
var lágt vátryggt.
í fyrrinótt var brotizt inn
í vöruskemmu Eimskipafé-
lags íslands í Haga. Var þar
geymt all mikið af hjólbörð-
um, og mun ellefu þeirra haía
verið stolið.
Verstu jarðbönn
í tugi ára
Frá fréttaritara Tímans
á Sauðárkrók.
Jafn alger jarðbönn og nú
eru hér í héraðinu hafa varla
komið í 20—30 ár. Var jafna
snjór yfir allt, er blota gerði,
en síðan fraus, og hljóp þá
allt í storku.
Byrja að slátra folöldum
og tryppum.
Hrossaslátrun er hafin
vegna harðindalegs útlits, og
er sennilegt, að allmargir
taki þann hyggilega kost að
fækka hrossum meðan þau
eru enn í haustholdum. Eink
um eru það folöld, sem menn
eru byrjaðir að slátra, en
(Framhalrt á 7. siðu.)
Lík danska sjó-
raannsins fundiÖ
Lík danska sjómannsins,
Svend Aage Nielsen, er hvarf
af skipi í Reykjavíkurhöfn á
nýársnótt, fannst við bryggj-
urnar framan við kolakran-
ann í gær. Hafði skipið legið
þar. Er sýnilegt, að hann hef-
ir fallið í sjóinn og drukkn-
að.
Það var lögreglan, sem
slæddi líkið upp.
óx um 2 milj. kg. !
t
Fyrstu 11 mánuði s. 1. árs
varð innvegið mjólkurmagn
til mjólkurbúanna . samtals
35,2 millj. kg. á móti 33,2
millj. árið áður. Seld ný-
mjólk varð 17,9 millj. kg. ái
móti 17,1 í fyrra. Seldur
rjómi varð 801 lest en 769,
lestir árið áður. Smjörfram-
leiðsla búanna varð 263 lest- {
ir á móti 235 lestum árið áð-,
ur. Framleiðsla mjólkurosta
varð 346 lestir en 388 lestri
árið áður. Mysuostur varð 66
lestir en 48 lestir árið áður.!
Skyr var 1084 lestir en 10571
lestir árið áður. Framleiðsla'
mjólkurdufts varð 114 lestir
en 109 lestir árið áður. Und-
anrenna, sem fór í Kasein-
vinnslu, var 1274 þús. lítrar,
en aðeins 734 þús. lítrar árið
áður. f niðursuðu fóru 435
lestir mjólkur en 197 lestir í
fyrra.
Athafnasamt
Ieikfélag
Leikfélag Akraness er eitt
með hinum athafnasamari
leikfélögum og hefir hvað
eftir annað tekið stór og viða
mikil verkefni til meðferðar,
en efnt til leiksýninga árlega
síðustu árin.
Er þetta myndarlega fram-
lag til skemmtanalífsins á
Akranesi aðallega að þakka
nokkrum áhugamönnum um
leiklist þar. En þar eins og
víðast annars staðar getur
enginn helgað sig leiklistinni
eingöngu, heldur verður fólk
sem annars er önnum kafið
við sín daglegu störf að veria
til staríseminnar flestum
stundum, sem frjálsar eru
langan tíma að vetrinum.
Mikil hrifning
áhorfenda
Skugga-Sveinn er með vin
sælli leikritum islenzkum og
eiga vinsældir leiksins rætur
langt inn í sál íslenzkrar al-
þýðu. Sýning leiksins á Akra-
nesi varð engin undantekn-
in í þessu efni.
(FranJia-d á 7. síðu.)
Mikið nra leikstarf
í Rangárþingi
Allmikið er um leikstarf-
semi í ungmennafélögunum
, hér í sýslunni um þessar
, mundir. enda starfa félögin
af mikilu fjöri. Ungmenna-
félagið Trausti, Austur-Eyja-
, fjöllum, hefir úndanfarið
; haft þrjár sýningar á leikn-
; um „Græna lyítan við ágæt-
ar viðtökur. Ungmennafélag-
ið í Fljótshlið er að æfa „Orr-
ustuna á Hálogalandi" og
mun hefja sýningar bráðlega.
Ungmennafélagið Dagsbrún í
Austur-Landeyjum hefir haft
tvær sýningar á le'knum
„Frænka Charleys“ við hinar
beztu viðtökur.
Harðindi og innistaöa
á fénaði á Útheraði
Frá fréttaritara Tímans í Jökulsárhlíð
Á Úthéraði liafa nú verið harðindi í margar vikur, og
víða haglaust með öllu. Byrjaði að snjóa þar fyrir miðjan
nóvembermánuð og er nú mikill snjór. í gær bleytti í snjó-
inn, og verða jarðbönn, þar sem áður voru snöp, er aftur
frystir.
Hagbönn hafa að undan-
förnu verið i Úthlíð, Iljalta-
staðaþinghá og viða i Eiða-
þinghá og Tungu. Ofan til á
Völlum er hins vegar lítill
snjór og allgott í Fljótsdal og
uppi á Jökuldal.
Nokkuð af heyi af Suður-
og Vesturlandi er nú komið á
þá bæi, sem hraðast urðu úti
í óþurrkunum í sumar, og
einnig allmikið af fóðurbæti.
En allir aðflutningar hafa ver
ið mjög erfiðir, sökum þess,
hve vetur lagðist snemma að.
Var þó nokkuð hægt að kom-
ast um héraðið kringum jólin.
En þrátt fyrir það er ugg-
ur i mönnum, ef harðindin
haldast óbreytt, og innistaða
verður um langt skeið. Mun
þá fljótt sneyðast um hjá
ýmsum, enda þótt nokkuð sé
til af votheyi á flestum bæj-
um, því að þurrheysfengur-
inn frá sumrinu var bæði lít-
ill og rýr, eins og flestum
mun kunngt af fyrri fréttum.