Tíminn - 21.01.1951, Blaðsíða 2

Tíminn - 21.01.1951, Blaðsíða 2
2 TÍMINN, sunnudaginn 21. janúar 1951. 17. blað. Orá hafi til Útvarpið Útvarpið í dag: 8.30 Morgunútvarp. — 9.10 Veð urfregnir. 11.00 Messa í Dóm- kirkjunni (séra Jón Auðuns). 12.15 Hádegisútvarp. 13.00 Er- indi eftir Fred Hoyle prófessor í Cambridge: Sköpun og eðli alheimsins; III.: Uppruni og þróun starnanna (Hjörtur Hall- dórsson menntaskólakennari þýðir og flytur. 15.15 Útvarp til íslendinga erlendis: Fréttir. 15.30 Miðdegistónleikar (plötur) 16.25 Veðurfregnir. 18.25 Veður fregnir. 18.30 Barnatími (Þor- steinn Ö. Stephensen). 19.30 Tónleikar: Píanólög eftir Rach- maninoff (plötur). 19.45 Auglýs ingar. 20.00 Fréttir. 20.20 Tón- leikar (plötur). 20.25 Erindi: Úr sögu íslenzkrar biblíu (Magnús Már Lárusson prófessor). 20.45 Kvöld Góðtemplarareglunnar (útvarpað frá Dómkirkjunni). 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.05 Danslög (plötur). 23.30 Dagsskrárlok. Útvarpið á morgun: 8.30 Morgunútvarp. — 9.10 Veðurfregnir. 12.10—13.15 Há- degisútvarp. 15.30—16.30 Miðdeg isútvarp. — (15.55 Fréttir og veðurfregnir). 18.15 Framburðar kennsla í esperanto. — 18.25 Veð urfregnir. 18.30 Islenzkukennsla II. fl. — 19.00 Þýzkukennsla I. fl. 19.25 Þingfréttir. — Tónleikar. 19.45 Auglýsingar. 20.00 Fréttir. 20.20 Útvarpshljómsveitin; Þór- arinn Guðmundsson stjómar. 220.45 Um daginn og veginn (Sigurður Magnússon kennari). 21.05 Einsöngur: Anna Þórhalls dóttir syngur; við orgelið Páll íslólfsson (útvarpað frá Dóm- kikjunni). 21.25 Búnaðarþáttur: Inni og úti við (Ragnar Ás- geirsson ráðunautur). 21.45 Tón leikar (plötur). 21.50 Frá hæsta rétti (Hákon Guðmundsson hæstaréttarritari). 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.10 Lestur Passíusálma hefst (séra Krist- inn Stefánsson frikirkjuprestur í Hafnarfirði les). 22,20 Létt lög (plötur). 22.45 Dagskrárlok. Hvar eru skipin? Ríkisskip: Hekla var á Akureyri síðdeg- is i gæK Esja fór frá Reykja- vík í gær austur um land til Siglufjarðar. Herðubreið er á leið frá Austfjörðum til Siglu- fjarðar. Skjaldbreið fór frá Ak- ureyri í gær. Þyrill er í Faxa- flóa. Ármann átti að fara frá Reykjavík síðdegis í gær til Vestmannaeyja. Flugferðir ■ Loftleiðir: í dag er áætlað að fljúga til: Vestmannaeyja kl. 13.30. Á morgun er áætlað að fljúga til: Akureyrar, ísafjarðar, Pat- reksfjarðar, Flateyrar, Þingeyr- ar, Bíldudals og Hólmavíkur fyrir hádegi og til Vestmanna- eyja kl. 13.30. Úr ýmsum áttum Blaðamannafélag Islands heldur aðalfund sinn næstkom- andi sunnudag 28. þ. m. kl. 2 e. h. að Hótel Borg. Þorrablót á Flateyri í gærkveldi var á Flateyri í Önundarfirði árshátíð hjóna, sem jafnan er haldin fyrsta laugardag í þorra á ári hverju — öðru nafni „stútungur“. Var hún vel sótt og mikill gleð- skapur að vanda. Sækja jafnan flest hjón í kautúninu þessa samkomu. Framsóknarvistin var fjöl- sótt os skemmtileg. Framsóknarvist Framsóknar- félags Reykjavíkur, sem fram fór í Listamannaskálanum í fyrrakvöld var mjög fjölsótt. Spilað var á milli 60—70 borð- um, eða á hverju einasta borði, sem til er í skálanum. Samt urðu allmargir frá að hverfa. Eins og venjulega á skemmt- unum Framsóknarmanna sást ekki ölvaður maður. En sam- koman öll þótti með afbrigðum | fjörug og skemmtileg. Er strax , talsvert farið að spyrja um hve ! nær næsta Framsóknarvist j verði. Ármenningar. fþróttaæfingar mánudag: íþróttahúsið, minni salurinn: Kl. 8—9 Glímuæfing. Drengir. — 9.10 Hnefaleikar. Stóri salurinn: Kl. 7—8 Úr- valsflokkur kvenna. kl. 8—9 II. fl. kvenna, fimleikar. kl. 9—10 Glímuæfing. Hálogaland: Kl. 7—8 Hand- knattleikur karla I.—II. fl. 8—9 Handknattleikur kvenna. Leikfimishús Laugarnesskól- ans: Kl. 6—9 Námskeið Erikki Johannsson í frjálsri glímu. Skemmtifund heldur glímu- félagið Ármann í samkomusal Mjólkurstöðvarinnar miðviku- daginn 24. jan. kl. 9. Skemmti- atriði — Dans — Erikki Johannsson fagnað. Aðgangur 10.00 kr. Mætið öll. Nánar aug- lýst síðar. 4 tfcrHum tieyh Sa !£■ Xa Tannskemmdir og mataræði. Baldur Johnsen læknir hef ir flutt tvö merkileg útvarps crindi um tannskemmdir og mataræði. 1 þeim hefir hann sannað með skírskotun til sögulegra heimilda og rann- 1 sókna á gömlum höfuðkúp- um, að tannskemmdir voru óþekktar hér á landi fram á nítjándu öld. Þeirra gætti ekki þrátt fyrir vaneldis- sjúkdóma og hungursóttir, I meðan mjólkurmatur og fisk æti, aðallega harðfiskur, var aðalfæða þjóðarinnar. Breyt- ingin verður þegar fínmalað mjöl, sykur og fágaðar korn- j tegundir koma til sögunnar, og tannskemmdirnar aukast í samræmi við aukna notkun á þessum matartegundum. Þetta er niðurstaðan, þótt nú mætti virðast, að fyrir hendi væru öll skilyrði til hins fullkomnasta fæðis. Reynsla annarra þjóða sannar þetta og. Gyðingar, Grikkir, Rómverjar og Egipt- ar voru kornætur og þjáð- ust af tannskemmdum. Svert ingjar, Indíánar, Eskimóar og Suðurhafseyjamenn voru lausir við þær. 1 Indlandi eru tannskemmdir fátíðar. Þar er trúaratriði að skola og hreinsa munninn, er ein 1 hvers hefir verið neytt. Nýju og gömlu dansamir I 3. T,- húsinu sunnudagskvöld kl. J — Húsinu lokað kl. 10.30. Aðgöngumiðar seldir frá kl. 6.30. Hin vinsæla hlj ómsveit Jan Morávek leikur fyrir dansinum .V.V.’.VAV.'.V.V.V.V.V.V.V.V.V.'.V.V.V.V.V.V.'.V.V I HANGIKJÖT í — l*að bezta fáanleqa — selur Samband ísl. samvinnufélaga símar 4241 og 2678. ;.v. V.'.V Er stjarnan að lækka? Átjáanda öldin er merkileg öld í sögu íslendinga. Á aðra hlið er hin armasta fátækt þjóðarinnar í landi, sem harka, drepssóttir og hallæri gengu sífellt yfir Á hinn bóginn undraverð trú á ný úrræði og nýjar leiðir í búskap og starfsháttum, og margs konar til- raunir og viðleitni, þeirra manna, sem þessi viðhorf höfðu tileinkað sér. ★ ★ ★ Öllum er kunnugt um áhuga Magnúsar amtmanns Gíslasonar um ullravinnsluna og fleiri umbótatilraun- ir hans. Nafn Skúla fógeta er á hvers manns vörum vegna baráttu hans við kaupmannavaldið, innrétting- arnar og stórhug hans um allar framfarir. Jón Eiríks- son hélt uppi Lærdómslistafélaginu. Magnús sýslu- maður Ketilsson hóf útgáfu fyrsta tímarits á íslandi og beitti sér fyrir margs konar búnaðarframförum. Stefán amtmaður Þórarinsson barðist fyrir fram- ræslu lands og fóðurtryggingum. Ólafur stiftamtmað- ur beitti sér fyrir ýmsum nýjungum. Séra Björn í Sauðlauksdal hóf kartöflurækt árið 1759 og beitti sér fyrir jarðabótum og sandgræðslu. Hannes biskup Finnsson var mikill áhugamaður um búnaðarfram- farir og stóð í miklum bréfaskriftum um slíkt. Helztu embættismenn landsins stofnuðu Akuryrkjufélagið svonefnda 1770, Thodal stiftamtmaður, danskur mað- ur, beitti sér fyrir ýmsum nýjungum í jarðyrkju. ★ ★ ★ Langflestir þeir, sem beittu sér fyrir hinum merki- legu umbrotum á átjándu öld, voru embættismenn landsins — landsfógeti, amtmenn, sýslumenn og nokkr ir prestar. Björn Markússon tók við Skagafjarðar- sýslu af Skúla Magnússyni. Hann skrifaði dönsku stjórninni og sagði, að sig langaði til þess að gera eitt- hvað föðurlandi sinu til gagns og viðreisnar. Hann hafði hug á kornyrkju og gerði tilraunir í þvi efni. 1725 komu erlendar fjölskyldur á heimili sex sýslu- manna, og auk þess eins lögmanns og landfógeta og dvöldu þar 2—6 ár til þess að kenna útlendar vinnu- aðferðir og ræktun, meðal annars kornrækt, þótt til lítils kæmi aö sinni. Séra Jón Stefánsson i Nesi í Aðal- dal fékk 1790 verðlaun fyrir hör- og hampyrkju. Fyrstu kálgarðarnir, sem viðhaldið var, voru á Þingeyrum, Búðardal, Sauðlauksdal, Leirá, Viðey og Bessastöðum. ★ ★ ★ Svo mætti lengi telja, en það yrði of langt mál. En við skulum að lokum spyrja okkur sjálf: Hve margir af tíinum æðstu embættismönnum landsins í dag, verð ur að tvö hundruð árum liðnum getið vegna forustu þeirra um nýmæli landsfólkinu til heilla? Hvar er nú forusta þeirra um hugsjónamál og framfaramál þjóð- arinnar?Er stjarna embættismannastéttarinnar lækk- andi? j. h. Kvöld Góðtemplarareglunnarj <» i Dómkirkjunni í dag, sunnudaginn 21. jan. kl. 20,45 e.h. Ingangsorð: Einar Björnsson, I. O. G. T.-kórinn syng ur undir stjórn Jóns ísleifssonar. Ávarp: Bjarni Bene- diktsson dóms- og utanríkismálaráðherra. Einleikur á orgel: Dr. Páll ísólfsson. Erindi: Brynleifur Tobíasson yfirkennari. I. O. G. T.-kórinn syngur undir stjórn Jóns ísleifssonar. Aðgangur ókeypis og öllum heimill Stórstúka ísland, Þingstúka Reykjavíkur o o o o J Tökum að okkur nýsmíði og aðgerðir á öllum tegundum báta allt frá skektum til stærstu herpinótabáta. Höfum sambönd við beztu bátavéla- umboðin. Leitið tilboða hjá oss áður en þér snúið yður annað. llatastöðiii Akranesi Ingi Guðmonsson Sími 224 o o o o o o O < I < < O O O O O TILKYNNING Út af sifelldum fyr'rspurnum skal það tekið fram, að afgreiðslu- og heimkeyrslugjald á hráolíu til húsa og annarrar notkunar í landi hefir á undanförnum árum verið IV2 eyrir pr. lítra og er það gjald óbreytt. Þannig verður hámarksútsöluverð 64)/2 eyrir pr. lítra til húsa- kynd'.nga. Reykjavík, 19. 1. 1951. V er ðgæzlust jór inn. Almennur dansleikur < 1 í Vetrargarðinum í kvöld kl. 9. Eldri sem yngri skemmta *1 sér í Vetrargarðinum. Borð og miðapantanir frá kl.8. < 1 1 Sími 6710. t B. K.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.