Tíminn - 24.01.1951, Síða 7
19. blað.
TÍMINN, miðvikudaginn 24. janúar 1951.
7
Verksmiðja er ftillvinni
erlendan spunavarning
Fyrirtœkf, sera getnr veitt f jölda iiiaims
viimn og aflað |ij»ðhmi g'jalcleyris
Það getur svo farið, að íslendingar fái verulegar gjald-
eyristekjur af því að fullvinna erlendan spunavarning. Hef- |
ir í þessu skvni verið stofnað hér fyrirtæki, sem nefnist
hlutafélagið Ingarno, og framkvæmdastjóri þess og for-
maður félagsstjórnar Ingólfur Árnason.
Hugmyndin er sú, að þetta
fyrirtæki flytji inn erlend-
án spunavarning og vinni hér
úr honum dúka og annist lit-
un, prentun og bleikingu á
ýmsum hrávefnaði, sem svo
er nefndur. Verður þessi varn
ingur síðan fluttur úr landi
aftur til sölu erlendis, og því
er í rauninni um það að ræða,
að afla þjóðinni gjaldeyris
sem svarar vinnulaunum og
reksturskostnaði fyrirtækis-
ins. —
Erlendir iðjuhöldar
leggja til vélar.
Stofnkostnaður í erlend-
um gjaldeyri er ekki um að
ræða, því að erlendir iöju-
höldar, sem fyrirtækið mun
síðar hafa viðskiptasamband
við, munu leggja til vélar
handa því. Eru vélar þessar
tilbúnar til flutnings hingað.
Starfræksla slíks fyrirtæk-
is sem þessa er talin hag-
kvæm hér, meðal annars
vegna heita vatnsins.
200—300 manns fengu vinnu.
Fyrirtækið mun þegar hafa
tryggt sér húsnæði í ná-
munda við Reykjavíkurhöfn.
En þörf er á miklu húsnæði,
því að gert er ráð fyrir, að
þetta verði umsvifamikil verk
smiðja, sem háfi allt að 200—
300 manns í vinnu.
Matreiðslunáraskeið
vegna fiskiflotans
Skólanefnd Matsveina- og
veitingaþjónaskólans hefir á-
kveðið að fengnu leyfi sam-
göngumálaráðuneytisins, að
haldið skuli námskeið i mat-
reiðslu fyrir matreiðslumenn
á fiskiflotanum. Hefir verið
erfitt fyrir menn að geta
komist í slík námskeið, enda
hefir lengi staðið til, að Mat-
sveina- og veitingaþjónaskól
inn tæki til starfa, en því mið
ur hefir í því efni dregist.
Námskeið þetta verður haldið
í húsakynnum Matsveina- og
veitingaþjónaskólans i Sjó-
mannaskólahúsinu. Er það
fyrirhugað að standa yfir í
31/2 mánuð eða frá 15. febrúar
til 31. maí.
Kenndar verða fimm náms
greinar, þ.e. almenn mat-
reiðsla, bakstur og hvernig
eigi að geyma og hagnýta mat
væli, ennfremur reikningur,
bókfærsla og undirstöðuat-
riði í framreiðslu.
Skólanefnd skólans telur
nauðsyn að skólinn taki til
starfa í haust að fullu leyti,
en þó er óvíst, hvort úr því
getur orðið.
Skólanefnd Matsveina- og
veitingaþjónaskólans er skip
uð Sigurði B. Gröndal fram-
reiðslumanni, sem er formað
ur, Tryggva G. Þorfinnssyni,
varagjaldkera Sambands mat
reiðslu- og framreiðslumanna
og Valdimar Gíslasyni, vara-
gjaldkera Sjómannafélags
Reykjavíkur. —
Kóreu-tillögurnar
ræddar í brezka
þinginu
Stjórnmálanefndin hélt
engan fund í gær, en fulltrú-
ar ræddu óformlega um til-
lögur Indlands og Peking-
stjórnarinnar í Kóreu-deil-
unni. Brezka stjórnin hélt
ráðuneytisfund um hinar
nýju tillögur í gær, og að hon
um loknum ræddi Attlee for-
sætisráðherra málið í neðri
deildinni. — Sagði hann, að
hinar nýju tillögur væru
miklu aðgengilegri en fyrri
afstaða Peking-stjórnarinn-
ar og betri vonir væru um’
lausn málsins eftir framkomu j
þeirra. Bretar gætu fallizt á'
þær í höfuðatriðum, og fylgdi'
nú friðarhugur máli, gætu
þöer orðið grundvöllur vopna
hlés og friðarsamninga. —
Hann kvað Asíuríki og Araba
ríkin hafa unnið gott starf í
þágu friðarins með meðal-
göngu sinni.
Churchill andmælti Attlee
í sumum atriðum og bað hann
að minnast þess, að Bretar
mættu í engu taka þá afstöðu
i þessu máli sem spillt gæti
sambúð Breta og Bandaríkja-
manna.
Gpngu á fund
Mólótoffs
Sendiherrar Breta, Frakka
og Bandaríkjanna í Moskvu
gengu á fund Mólótoffs i gær
og afhentu honum svar vest-
urveldanna við orðsendingu
Rússa um fjórveldafund. í
svari þessu er fallizt á fjór-
veldafundinn en jafnframt
tekið fram, að þar skuli ræða
I fleiri deilumál í Evrópu. —
Fundurinn skal og haldinn í
París eða London.
Timaritið DVÖL
Allt, sem til er af eldri ár-
göngum Dvalar, en það eru
um 150 arkir eða um 2400
blaðsíður lesmáls, mest úrval
þýddra smásagna, fæst nú
fyrir kr. 50,00, auk burðar-
gjalds, sent gegn póstkröfu
hvert á land sem er. Þetta
er óvenjulegt tækifæri til að
eignast skemmtilegt sögu-
safn.
Ég undirrit.... óska að fá
það, sem til er af Dvöl. .
Nafn ..................
Heimili ...............
Póststöð ..............
Sýsla .................
►♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
fluylijAil í Twahutn
Lítiö um rfúpur
Frá fréttaritara Tímans
á Búðareyri i Reyðarfirði
Rjúpnaveiðar voru tals-
vert reyndar hér fyrir ára-
mótin en báru iitinn árangur.
Hafa rjúpur hald.ð sig á fjöll
um og öræfum í allt haust
og vetur, og ekki hópað sig.
Hefir ekki verið jörð, er dró
niður til byggða, og rjúpan
því ekki le tað niður.
Svo lítið var-: um rjúpuna,
að varla var hægt að afla í
jólamatinn.
►♦♦♦*“•♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦»♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦*♦♦»*♦*■••♦♦<
^♦♦♦~*- •♦♦♦♦•♦♦•♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦» ♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦"^**--'“*.
Tafl- og bridgeklúbburinn
tilkynnir :
Framsóknarvist
og dans í Edduhúsinu, Lindargötu 9A, fimmtudaginn
25. þ.m.. — Hefst kl. 8,30.
Félagar og áhugamenn, látið skrá ykkur og takið
með ykkur gesti.
Tafl- og bridgeklúbburinn.
H
A
Danskur Islands-
vinur 1
Danskur verksm:ðjueigandi
í Ríó de Janeiró. Kaj J. Svan-
holm, hefir boðizt til þess að
gefa hingað til reynslu nokk-
ur þúsund plöntur af júka-
lyptustré, er vex þar syðra
hátt til fjalla á úrkomusvaéð-
um norðarlega í tempraða
beltinu.
Kaj J. Svanholm dvaldi á
Akureyri í æsku s nni, og ber
hann hinn hlýjasta hug til
íslands og íslendinga.
„ áL_
SKIPAUTGCKO
RIKISINSm
Ármann
til Vestmannaeyja í kvöld.
Vörumóttaka í dag.
»♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
í
IVýlr markaðir
Ovenjulegur glæpur.
Rúmlega þrítugur gimsteina
kaupmaöur, Albert Guoy að
nafni, var nýlega tekinn af
lífi í Montreal í Kanada. Hann
hafði orðið 22 mönnum að
bana vegna þes, að hann vildi
fá tryggingarfé konu sinnar.
Að áeggjan hans fór hún í
flugferð í haust og kom hann
fyrir vítisvél í flugvélinni, er
orsakaði það, að hún fórst og
22 farþegar með henni. Rétt
áður hafði hann fengið kon-
una sína til að líftryggja sig
mjög riflega.
Árlegt Þorrablót
Reyðarfjarðarhrepps var hald-
ið í gærkvöldi. Sótti það að
venjri fjöldi fólks, eldri en átján
ára. Á borðum var rammíslenzk
ur matur — hangikjöt, harðfisk
ur, hákarl og laufabrauð. Ræður
voru fluttar, sungiö og spilað.
TENGILL H.F.
Heiði við Kleppsvef
Simi 80 694
annast hverskonar raflagn
tr og viðgerðir svo sem: Verk
smiðjulagnir, húsalagnlr
skipalagnir ásamt viðgerðum
ig uppsetnlngu á mótorum.
röntgentækjum og helmllls-
''élum
(Framhald af 5. slBu.)
verði seldur úr landi. En hver
sú þjóð, sem vill standa á eig-
in fótum og byggja sjálfstæði
sitt á. traustum grundvelli,
má ckki einungis hugsa um
það, hvað lostætast er. Og þó
að Magnúsi Kjartanssyni
j verði gramt í geði yfir fisk-
meti og ærkjöti, þegar hann
minnist þess að Bandaríkja-
menn éta íslenzkt dilkakjöt,
má hann minnast þess, að
þeir hafa borgað fyrir kjötið.
Það eru engin niðurlægingar-
viðskipti. Þjóðin getur áreið-
anlega lialdið hreysti og söns-
um, þó að hún hafi ekki dilka
kjöt daglega á borðum og það
er heldur ekki skynsamleg
sjálfstæðisbarátta að láta ær
kjötið verða ónýtt.
Hér skal engin tilraun gerð'
til að skýra framkomu Þjóð-
viljans. Engar getsakir skal
hafa um það, hvort hún bygg
ist á fjandskap við skynsam
lega sjálfsbjargarviðleitni ís-
lendinga eða beinni mat-
græðgi vandfýsinna stráka
einungis. Ilitt er nóg að vita,
að þess’.r tilburðir og læti verð
skulda skömm og fyrirlitningu
allra góðra íslendinga.
Ö+Z
itf
ÞJODLEÍKHUSID
Flmmtud. kl. 20.00.
Nýjjársnóttin
eftir Indriða Einarso
★
Aðgöngumiðar seldir frá kL
13,15—20, daginn fyrir sýn-
ingardag og sýningardag. —•
Tekið á móti pöntunum,
Sími: 80 000.
„Marmari”
eftir Guðmund Kamban.
Leikstjóri: Gunnar Hansen
Sýning í Iðnó í kvöld kl. 8. —
Aögöngumiðar seldir frá kL
2 í dag. — Sími 3191.
FRÍMERKI
útlend, til sölu, úrvalshefti
send um allt land, þeim, sem
óska. Sendið burðargjald und
ir svar. Kaupi notuð íslenzk
frímerki.
Verzlunin Straumar
Laugaveg 47. Reykjavík
Forðizt eldinn og
eignatjón
Framleiðum og seljum
flestar tegundir handslökkvl
tækja. Önnumst endurhleðslu
á slökkvitækjum. Leitið upp-
lýsinga.
Koísýruhleðslan s.f. Siml 3381
Tryggvagötu 10
Kvenkápu stolið.
S. 1. föstudag var kvenkápu,
sem talin er ein sinnar tegund-
ar hér á landi, stolið á dansleik
í Tívolí.
Kápa þessi var græn að lit,
víð og með víðum ermum um
olnboga, en þröng við úlnliði,
kragi bogadreginn og perlusaum
aður að neðan allt í kring og
vasar stórir og perlusaumaðir.
Rannsóknarlögreglan í Reykja
vík vill gjarna hafa tal af hverj
um þeim, sem orðið hefir var
við slíka kápu.
Flntningar á sjó
(Framhald af 1. síBu.)
inu, urðu loks að hætta ferð-
unum vegna ófærðarinnar, og
var þá gripið til flutninga á
sjó.
Um Svarfaðardal mun víða
vera erfið færð, en mjólkur-
flutningar þaðan til Dalvík-
ur hafa þó ekki falið niður af
þeim sökum, enda eru Norð-
lendingar ýmsu vanir og láta
ekki hugfallast við að komast
leiðar sinnar, þótt öröugar
séu vetrarferðir, þegar eins
stendur á og nú hefir gert um
sinn.
fíjöf ....
(Framhald af 3. síBu.)
og gerði enn þann dag í dag.
Séra Árni Þorsteinsson
kom að Kálfatjarnarsókn ár
ið 1886 og dvaldi þar þjón-
andi prestur til æfiloka, en
hann dó árði 1919. Heimili
þeirra presthjónanna að
Kálfatjörn var jafnan stórt
og mannmargt, þau áttu 8
börn og af þeim lifa nú 3
dætur. Foreldrar og börn voru
samtaka um að gera, um-
hverfi sitt hlýtt og bjart, þar
var góðvild og gestrisni ríkj-
andi jafnt lágum sem háum.
Enn er fólki er í sókn í minni
hinn glæsilegi prestur og
ræðumaður og kvöldsöngvarn
ir í Kálfatjarnarkirkju hjá
séra Árna sál. Þorsteinssyni
munu lengi í minnum verða.
Nú hafa dætur séra Árna
með þessari stóru gjöf reist
foreldrum sínum óbrotgjarn-
an minnisvarða er mun varpa
birtu og ljóma yfir starf séra
Árna Þorsteinssonar um langa
framtíð.
Færi ég fyrir hönd sóknar
nefndar og safnaðar gefnud-
unum okkar innilegusta þakk
læti fyrir þessa kærkomnu
og höfðinglegu gjöf til Kálfa
tjarnarkirkju, svo og fyrir all
an hlýhug og auðsýnda vel-
vild til kirkju og safnaðar
fyrr og síðar, með hjartan-
legri ósk um gleðilegt ár.
Erlendur Magússon