Tíminn - 08.03.1951, Síða 2
TÍMINN, íimmtudaginn 8. marz 1951.
56. blað.
t.
ytmmnmj::::
»4
kafi til keiía
Útvarpih
Útvarpið í kvöld:
Fastir liðir eins og venjulega.
Kl. 20,30 Einsöngur: Benjamino
Gigli syngur (plötur). 20,45 Lest
ur fornrita: Saga Haralds harð-
ráða (Einar Ól. Sveinsson pró-
fessor). 21,10 Tónleikar (plötur).
21.15 Dagskrá Kvenréttihdafé-
lags íslands. — Æviminningar
áttræðrar konu — kafli úr ó-
prentuðu handriti eftir Hugrúnu
(höfundur flytur). 21,40 Tónleik
ar (plötur). 21,45 Frá útlöndum
(Jón Magnússon fréttastjóri).
22,00 Fréttir og veðurfregnir. —
22,10 Passíusálmur nr. 38. 22,20
Sinfóniskir tónleikar (plötur).
23.15 Dagskrárlok.
Hvar eru. skipin?
Eimskip.
Brúarfoss kemur til Reykja-
víkur frá Kaupmannahöfn kl.
11,30 í dag 7. 3. Dettifoss kom til
New York 6. 3. frá Reykjavík.
Fjallfoss kemur til Reykjavíkur
um kl. 13,00 í dag 7. 3. frá Hull.
Goðafoss fer frá Reykjavík ann
að kvöld 8. 3. til Akureyrar, Dal-
vikur og Húsavíkur. Lagarfoss
er í Keflavík, fer þaðan 8. 3. til
Akraness og Reykjavíkur. Sel-
foss fer frá Leith í dag 7. 3. til
Djúpavogs. Tröllafoss fór frá
Patreksfirði 6. 3. til New York.
Auðumla er í Hamborg.
Ríkisskip:
Hekla er í Reykjavík. Esja var
á Akureyri síðdegis í gær. Herðu
breið er á Vestfjörðum á norð-
urleið. Skjaldbreið er í Reykja-
vík. Þyrill var væntanlegur til
Siglufjarðar seint í gærkveldi
eða nótt. Ármann var í Vest-
mannaeyjum í gær.
Flugferðir
Flugfélag Islands h.f.
1 dag eru áætlaðar flugferðir
til Akureyrar, Vestmannaeyja
og Sauðárkróks. Á morgun er
ráðgert að fljúga til Akureyrar,
Vestmannaeyja, Kirkjubæjar-
klausturs, Fagurhólsmýrar og
Hornafjarðar.
Úr ýmsum áttum
Happdrætti háskóla íslands.
Dregið verður í 3. flokki happ
drættisins á laugardag. í dag
og á morgun eru því síðustu for-
vöð að kaupa miða og endur-
nýja. Vinningar eru 400, sam-
tals 212400 kr., en eftir eru til
ársloka vinningar samtals 3.811.
800 krónur.
Bjarni Benediktsson
utanríkisráðherra hélt í gær-
morgun af stað flugleiðis til
Oslóar til þess að sitja þar utan
ríkisráðherrafund Norðurlantía,
sem haldinn verður dagana 9.
og 10. marz n. k.
í Seyðisfirði
er nú komið geysilega mikil
fönn, og var í gær þriðji dagur-
inn í röð mmikil fannkoma.
Sjónleikurinn „Pabbi“
verður sýndur 1 þjóðleikhús-
inu í kvöld í næstsíðasta sinn.
Þetta er 35. sýningin. Alls hafa
nú 18500 menn séð þennan ieik
í þjóðleikhúsinu.
Frölund
heitir formaður danska biblíu
félagsins, og Frimodt gjaldkeri
þess, en nöfn þeirra misprent-
uðust í grein séra Sigurbjörns
Ástvaldar Gíslasonar í Tíman-
um.
Salt til Akraness.
Hvassafell losaði salt á Akra-
nesi í gær — alls 541 smálest.
Fiskveiðar við Grænland.
Lúðvík Kristjánsson, rit-
stjóri Ægis, flutti mjög at-
hygiisvert erindi í útvarpið í
fyrrakvöld um fiskveiðar við
Græniand. Skýrði hann frá
hinni hraðvaxandi útgerð
ýmsra þjóða við strendur Græn
lands á síðari árum, einkum
Norðmanna og Færeyinga.
Einnig hve afiamagn þeirra,
einkum Norðmanna, hefði
verið mikið og hve sjómenn
hefðu borið góðan hlut frá
fcorði.
Lúðvík kvað alla aðstöðu
fara batnandi þar vestra með
ári hverju. Bryggjur væru reist
ar, fiskhús, olíugeymar o. s. frv.
Taldi ræðumaður illa farið
að Islendingar drægjust aftur
lir iim veiðar við Grænland.
Vildi hann að ríkið stuðiaði að
frekari veiðitilraunum þar
vestra, þótt ekki væri í stórum
stíl.
Næst flytur Lúðvík erindi í
útvarpið n. k. briðjudagskvöld
og mun þá ræða um undir-
búning að síldveiðum á kom-
andi sumri.
Tryggvi gamli býst á veiðar.
Einn gömlu togaranna í
Reykjavík, Tryggvi gamli, eign
Alliance, er nú að búast á veiðar,
og er verið að ráða á hann á-
höfnina. Útgerð hans er hafin
með það fyrir augum að bæta
úr atvinnuástandinu í bænum,
og leggur bærinn fram nokkurt
fé til þess að standast halla, sem
fyrirsjáanlegt þykir, að verði á
útgerð hans. Tryggvi gamli á
að leggja afla sinn upp til
vinnslu hér.
Líklegt er, að annar af hin-
um gömlu Reykjavíkurtogurum
byrji innan skamms veiðar á
svipuðum grundvelli.
Innbrot
var framið eina nóttina í þess
ari viku í sælgætisverksmiðj-
una Nóa, og var stolið þar dálitlu
af sælgæti og ávöxtum.
4 fomutn Fegi:
Árshátíð
Ungmennafélag Reykjavíkur
efnir til árshátíðar félagsins í
Listamannaskálanum n. k. laug
ardagskvöld. Má búast við fjöl-
menni, þar sem stöðugt er að
fjölga í félaginu og ungmenna-
félagar utan af landi eru boðnir
velkomnir á samkomuna.
Er sennilegt að ýmsa þeirra
fýsi að koma á árshátíð ung-
mennafélagsins í höfuðstaðnum,
sem margt af heilbrigðari æsk-
unni í Reykjavík fyikir sér nú
um á allra síðustu tímum.
ByggingaNjéður
(Framhald af 1. síðu.)
hvernig, hvenær eða hvort
lán fæst yfirleitt- En þótt svo
væri, má ekki draga úr fyr-
nefndum tekjum sjóðsins.
Það, sem bjargaði starfsemi
sjóðsins á síðasta ári, var ekk
ert annað en ágóði sá, sem
féll í hlut hans af gengisgróð
anum, sem varð með lögum
um gengisskráninguna. Nam
það fé, sem sjóðnum áskotn-
aðist þá, 7—7i/2 milljón kr.
Ef svo fer, sem vonir standa
til, að fólk taki vel undir það
að kaupa lánabréf bygginga-
sjóðsins,' geta þær fimm mill-
jónir, sem þannig bætast við
starfsfé sjóðsins, orðið til ó-
metanlegs gagns við að byggja
úpp landið. Og áreiðanlega
þarf enginn að sjá eftir því
að ávaxta peninga sína á
þann hátt með háum vöxtum
og öruggri tryggingu.
Vtbreitil Tímahh
Drangur og brekka
Víða um land er margt sérkennilegra staða eða fag-
urra að einhverju leyti. Kannske er þetta sérkennilegur
klettur eða hamar eða höfði, ef til vill formfagrar
hraunmyndanir eða kulnaður gígur eða hellir, máske
er það tjörn, hvammur með fágætum gróðri eða fögur
skógarbrekka. Eða þá eitthvað enn annað.
Svo kemur það til sögunnar, að einhverjar fram-
kvæmdir eru á næsta leyti. Það er verið að gera höfn
eða kannske bara byggja hús. Það er verið að leggja
veg eða það er verið að gera fyrirhleðslu. Það er hand-
hægt að brjóta niður hamarinn eða gera gíginn að
malarnámu til þess að fá efni í uppfyllingu eða ofaní-
burð eða eitthvað annað. Það er hendi nærri að rifa
sundur brekkuna eða hvamminn í þágu vegagerðar-
innar. Þið skiljið hvað ég er að fara.
★ ★ ★
En þá er stundum saknað vinar í stað. Fögrum stað
hefir verið splllt eða jafnvel afmáð. Umhverfið er öm-
urlegra eftir en áður, landið fátælcara að fegurð. Að
vísu viðurkennt, að stundum verður ekki hjá því kom-
izt, að nema brott af ásjónu landsins einhvern slikan
drátt, sem saknað verður. En menn verða að kunna
sér hóf og gera ekki landspjöll af slíku tagi, nema brýna
þörf beri til. Þetta er ekki mælt að tilefnislausu, þótt ég
hirði ekki um að nefna dæmi.
★ ★ ★
Nú er vetur, og fátt um framkvæmdir. Þetta er
ekki mál, sem neinn þarf að útkljá í dag eða morgun.
En þegar vorar verður farið af stað með margskonar stór
virkar vélar, sem vinna eiga að margháttuðum nyt-
sömum verkum í þágu lands og þjóðar. Ég er ekki að
draga úr því, að í slíkt sé ráðizt. En gerið ekki að nauð-
synjalausu nein spell. Beitið vélunum af nærgætni við
landið og fegurð þess, og seilist ekki til þess að sækja
það, sem framkvæmdanna þarf, á staði, sem sérstök
eftirsjón er að. Verið tiliitssamir við hraundrangann,
hamarinn og hvamminn, sem átt hafa sérkennilega
fegurð frá örófi alda og geta glatt næmt auga um
margar aldir erm. j. H.
nzku ostarnir
frá Sauðárkróki, Akureyri og Húsavík fást í
heildsölu hjá:
Frystihúsinu Herðubreið
Sími 2678
----------♦♦♦•44 »44»♦»»»♦♦♦««♦«• «»«»♦♦♦♦♦♦«♦♦♦« »♦♦«♦*.
BÆNDUR
Húðir og skinn eru nú í háu verði. Vandið því sem
bezt alla verkun þeirra. Umfram allt verður að vanda
vel fláninguna. Hver hnífrispa eða skurður í húðina
gerir hana verðminni. Farið hreinlega með húðirnar,
þegar slátrað er og látið þær kólna sem fyrst, án þess
að holdrosinn skurni. Saltið húðirnar strax eftir að þær
eru orðnar kaldar og áður en holdrosinn byrjar að
þorna. Sé dregið að salta, gengur saltið ekki eins vel
inn í húðina, en það er skilyrði fyrir góðri geymslu
að húðin gegnumsaltist á sem skemmstum tíma. Þegar
saltað er, verður vandlega að breiða úr öilum skækl-
um og jöðrum og dreifa saltinu vel yfir alla húðina. —
Eftir því sem skinnið er þykkra þarf meira salt. Fyrir
hver 3 kg. af hráhúðarvigt þarf sem næst 1 kg. af salti.
Mikið salt gerir aidrei skaða og er því betra að salta of
mikið en of lítið. Notið ávallt hreint salt.
Nýsaltaðar húðir má ekki brjóta saman í búnt til að
geyma þannig. Þær eiga að liggja flatar, lítið eitt hall-
andi, svo að hið blóði blandaða vatn, sem saltið dregur
úr húðinni, geti runnið burt. Má salta þannig hverja
húðina oían á aðra í stafla og snúa holdrosanum upp
á hverri húð. Húðirnar verða að liggja þannig í stafla
þar til þær eru gegnsaltaðar, en það tekur venjulega
1—2 vikur. Þá má, þegar hentugt þykir, taka þær upp
og búnta til flutnings eða geymslu.
Athugið leiðbeiningar þessar nákvæmlega hver og
einn og leitist við að fara eftir þeim í öllum greinum.
Það tryggir yður hæst verð fyrir húðirnar.
♦■
Samband ísl.samvinnufélaga j
♦♦?♦»♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦»♦♦♦♦♦♦»♦♦♦4♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦»♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦.
♦♦♦♦♦♦»♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦»♦♦♦♦♦♦♦»♦♦♦»♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦»♦♦
Gistihús
Sumargistihús Barðstrendingafélagsins „Bjarkar-
lundur“ er til leigu á næsta-sumri, með áhöldum og hús
|| búnaði. — Tilboðum sé skilað fyrir 25. marz til undir- |
ritaðra, er gefa frekari upplýsingar.
Guðm. Jóhanncsson, sími 7993.
Guðbjartur Egilsson, sími 7938.
!t»»»tt:::tt:ttttn:::tt::ttm»tttttttttttmntmtmtttttmtt«mtm»Ktmnmnni
Félag Þingeyinga, Reykjavík, heldur
Árshátíð
sína í Tjarnarkaffi, föstudaginn 9. marz kl. 6,30
Ræður flytja alþingismennirnir Gísli Guðmundsson og
Karl Kristjánsson.
Soffía Karlsdóttir syngur gamanvísur.
•I Aðgöngumiðar seldir í Kápubúðinni, Laugaveg 35 og
Última, Bergstaðastræti 28. Miða að borðhaldinu þarf
að sækja fyrir kl. 6 í kvöld. —
Stjórnin .