Tíminn - 08.03.1951, Qupperneq 7
56. blað.
TÍMINN, fimmtudaginn 8. marz 1951.
7,
Varð að sleppa höfn-
um austan Langan.
Frá fréttaritara Tímans
á Vopnafirði.
Esja fór frá Seyðisfirði á
mánudagsmorguninn áleiðis
norður um land. Var þá svo
illt veður, að ekki þóttu til-
tök að aígreiða skipið á Borg
arfirði, Vopnafirði og Bakka-.
firði og fór það því fram hjá
öllum þessum höfnum. Mun
Esja hafa legið síðari hluta1
mánudags og mestan hluta
þriðjudagsnætur í vari und-!
an Langanesi og á Þórshöfn
en þaðan hélt hún áfram í
fyrradag vestur.
Enginn fiskur í
soðið á Hofsósi
Frá fréttaritara Tímans
á Hofsósi.
Nýr fiskur hefir ekki sézt
hér síðan um áramót, því að
sjaldan hefir verið farið á
sjó, en lítill sem enginn afli
fengizt, þótt róið hafi verið,
svo að það hef.'r ekkf verið
meira en í soðið handa þeim,
er reru.
Slíkt fiskileysi er óvenju-
legt, og alla jafna er sjósókn
haf.n á Hofsósi um þetta leyti.
Lélegur afii á
Patreksfirði
Frá fréttaritara Timans
í Patreksfirði.
Afli hefir verið hér ákaf-
lega lélegur, þrjár til fjór-
ar smálestir á bát, þegar bezt j
er, og stundum ekki nema
nokkur hundruð kílógrömm á
bát í róðri.
Atvinnuleysi er gífurlegt,
og hefir ekkert rætzt úr um
atvinnu hér.
Uggvísiilegar Iioríiis’
(Framhald af 1. síðu.)
ná að sjó síðan í nóvember.
Bændur eru að sjálfsögðu
margir heytæpir eftir hið erf,
iða sumar, en verst er þó að
mjög erfiðlega hefir gengið j
að flytja fóðurbæti út umj
sveitirnar. Kom hann svo!
seint í haust, að ekki var bú- I
ið að flytja nema lítið eitt af j
honum út um héraðið, er veg- j
ir urðu ófærir í nóvember. — ’
Síðan hefir hvað eftir annað.
verið reynt ao ryðj a vegi og
hefir tekizt að koma litlu j
einu hverju sinni, því að jafn
harðan hefir fennt aftur. Er
marga bændur nú mjög far-
ið að vanta fóðurbæti og hið
mesta áhyggjuefni hvernig
honum verður komið til
þeirra frá Kópaskeri.
líey bíður fluínings.
Fréttaritari blaðsins á
Vopnafirði segir, að tíð hafi
verið mjög ill undanfarið.
Snjórinn sé afskaplegur og
jarðbönn um allt hérað. Hef-
ir svo verið lengi nema snan-
ir öðru hverju á einstökum
bæjum. en þær hafa aldrei
staðið nema stutt þvi jafnan
hafa ný áhlaup dunið yfir.
Nú er það hið mesta á-
hyggjuefni, hvernig heyforða
þeim, sem nýlega kom til
Vopnafjarðar, verði komið út
um héraðið til þeirra, sem
helzt þurfa hans með. Ófært
er með öllu eins og er jafnt
með bíla og hesta. Von er
líka á meira heyi að sunnan
og gegnir sama máli um flutn
ing þess. Heybirgðir manna
eru misjafnar, en sumir eru
orðnir afar tæpir.
Hvanneyrarveiki
í Hvammssveit
Frá fréttaritara Tímans
í Búðardal.
Hvanneyrarve ki hefir kom
ið fram í sauðfé að Ketils-
stöðum í Hvammssveit hjá
Magnúsi Halldórssyni, bónda
þar. Munu tvær kindur hafa
drep'zt úr veikinni, en 8—10
vera veikar. Er nú verið að
reyna lækningu.
Hvanneyrarveiki hefir ann
ars ekki orð ð vart á þessum
slóðum, svo að kunnugt sé.
\ inir Tíijiníts!
Kynnið Tímann kunningj-
um ykkar og nágrönnum, ef ■
þeir eru ekki lesendur hans.
Út.vevið nvja áskrifendur
að TÍMANUM.
tfughjAið í Tímaitutn
Slarka til sumarmála.
Fréttaritari Tímans í Tré
kyllisvík segir innistöðu á J
fénaði í Árneshreppi orðna
sextán vikur, nema hvað sum
ir hafa fjörubeit, þegar veð-
ur leyfir. Flestir munu þó
þrátt fyrir allt slarka með j
hey til sumarmála, en ekki1
lengur, og er voði vís, ef vor- j
harðindi fylgja fimbulvetri. |
Eldborgin kom nýlega með
15—20 smálestir af heyi til
Djúpuvíkur, en það, sem á að.
fara í norðurhluta hreþpsins,'
bíður flutnings til Norður-
fjarðar með strandferðaskip-
um ríkisins.
5800 hestburðir farnir.
Tíðindamaður frá Tíman-
um átti í gær tal við Svein
Tryggvason, framkvæmdastj.
framleiðsluráðs og Pál Zóp-
hóníasson búnaðarmálast.j.,
og sögðu þeir, að alls væri
búið að senda 5800 hestburði
af heyi á óþurrkasvæðin, og
enn væru ófarnir allt að 800
hestburðir. Var sumt af því
heyi pantað nýlega, eftir að
fóðurbirgðakönnun hafði far
ið fram, þar af nokkuð í
Hjaltastaðarþinghá, Eiða-
þinghá, Jökulsárhlið og Hró-
arstungu.
Hægt að láía í té meira hey.
Öllum heypöntunum, sem
borizt hafa, hefir verið full-
nægt, og enn myndi vera
hægt að útvega meira af heyi
hér suðvestan lands. En hins
vegar blasa við erfiðleikarnir
á því að koma heyi frá höfn-
I unum út um byggðarlögin.
Þjúigcyingafélagið
(Framhald af 8. síðu.) j I
verið rituð að nokkru leyti i
af Birni G uðmundssyni í
Lóni cn sökum veikinda hans
mun þurfa að ráða annan;
mann til að ljúka verkinu. —|
Væntir nefndin þess að það
bindi geti komið út haustið.
1952.
Eins O't kunnngt er eru kom
!n út tvö bindi af ritsafni
Þinyeyinga, lándnámssaga
héraðsins eftir dr. B jörn Sig-
fússon og Milli fjalls og fjöru
eftir Indriða Þorkelsson á
FJalli.
í stjó~n félaasins voru kom
ir næsta ár Guðmundur V.
Hjálmarsson. formaður,
Indriði Indriðason, Valde-
mar Helgason, Kristján Frið-
riksson oa Andrés Kristjáns-
son. Sérstök nefnd var kjör-
in til að annast framkvæmd-
ir í skógræktarlandi félagsins
í Heiðmörk og er formaður
hennar Kristján Jakobsson.
Félagið heldur árshátíð
sfna i Tjarnarkaffi föstudag-
inn 9. marz. —
ScycSíirSIIsigiir . . .
(Framhald af 1. síðu.)
Hjörtur var horfinn, og spurð
ist ekki til hans eftir þetta.
Leitað til iögreglunnar.
Skipstjórinn sneri sér þeg-
ar til lögreglunnar í Abertíeen
og var skipið lát.ið bíða í
tvo daga, meðan hún rann-
sakaði málið. En t ekki báru
þessar eftfrgrénnslanir á-
rangur.
Skipverjum í Víkingi þykir
ósennilegt, að Hjörtur hafi
fallið í höfnina og drukknað,
því aö skipið lá fast við
bryggju, svo að maður hefði
varia komizt niður á milli
borðstokks og bryggju, og
borðstokkur skipsins nam
ekki hærra en bryggjupallur-
inn. —
Sýslumaöurinn á Seyðis-
firöi hefir snúið sér til stjórn
arráðsins og óskað þess, að
það hafi meðalaöngu um frek
ari eftirgrennslanir um það,
hvað af Hirti hafi orðið.
Hjörtur var sérstakt prúð-
menni í allri framgöngu. i
Skrífstofur
vorar verða lokaðar í dag, fimmtudag, kl. 12—4 o. h.
vegna jarðarfarar.
H.f. EÉBTiskipafélag Isiands
EQEáai
‘.V.V.W.'.V.V.V.V.V/.V.V.V.W.V.V.V.'.’AV.V.VASVV
i; Nýti mánadarrit ji
i; kemur út í dag: ;i
l Heima er bezt I
■:
■: flytur að mestu þjóðleg efni, sagnir og viðtöl við fólk
V úr öllum stéttum, greinar um menn og atburði, sögur :■
’í og margvíslegan annan fróðleik. Ritstjóri Vilhjálmur Jj
S. Vilhjálmsson. í;
J; HEIMA ER BEZT verður heimúisblaö fólksins í í;
!; , landinu, fjölbreytt og skemmtilegt. — Afgreiðslu- og ■:
í; áskriftarsími 3987. ;í
HEIMA ER BEZT fæst hjá öllum bóksölum. ;'
!; Bókaútgáfan Norðri ;!
;■ Pósthólf 101. — Sími 3987.
.V
.w.
Hefi ávallt
fyririsggjaiida
hnakka af ýmsum gerðum
og beizli með silfurstöngum.
Bendi sérstaklega á skíða-
virkjahnakka. Þeir eru bæði
sterkari og þægilegri en aðr-
ir hnakkar.
Sendi gegn kröfu.
Gunnar Þorgeirsson,
Óðinsgötu 17. Reykjavik.
Látið mig
gera við úrin
! Vönduð vinna, fljót afgreiðsla
Sendi gegn póstkröfu um
land allt.
CARL BERGMANN
úrsmiður
Njálsgötu 26 — Reykjavík
Rafmagnstakmörkun
Straumlaust verður kl. 11—12.
Fimmtudag 8. marz. 3. hluti.
Hlíðarnar, Norðurmýri, Rauðarárholtið, Túnin,
Teigarnir og svæðið þar norð-austur af.
Föstudag 9. marz. 2. hluli.
Nágrenni Reykjavíkur, umhverfi Elliðaánna,
vestur aö markalínu frá Flugskáiavegi við Við-
eyjarsund, vestur að Hliöaríæti og þaðan til
sjávar við Nauthólsvík í Fossvogi. Laugarnesið
að Sundlaugarvegi.
Mánudag 12. marz. 2. hluti.
Nágrenni Reykjavíkur, umhverfi Elliðaánna,
vestur að markalínu frá Flugskálavegi við Við-
eyjarsund, vestur að Hlíðarfæti og þaðan til sjáv
ar við Nauthólsvík í Fossvogi. Laugarnesið að
Sundlaugarvegi.
Þriðjudag 13. marz. 5. hluti.
Vesturbærinn frá Aðalstræti, Tjarnargötu og
Bjarkargötu, Melarnir, Grímsstaðaholtið með
flugvallarsvæðinu, Vesturhöfnin með Örfirisey,
Kaplaskjól og Seltjarnarnes fram eftir.
Miðvikudag 14. marz. 1. hluti.
Hafnarfjörður og nágrenni, Reykjanes, Árnes-
og Rangárvallasýslur.
Fimmtudag 15. marz. 4. hluti.
Austurbærinn og miðbærinn milli Snorrabraut-
ar og Aðalstrætis, Tjarnargötu, Bjarkargötu að
vestan og Hringbraut að sunnan.
Straumurinn verður rofinn samkvæmt þessu þeg-
ar og að svo miklu leyti, sem þörf krefur.
SOGSVIRKJUNIN.
VIT,LYSLVGASEHI TIMAXS Ell «1300
Aðeins
söludagar eftir
Happdrætti
i 3. flokki
háskólans