Tíminn - 08.03.1951, Page 8
„ERLEJIT YFIRLIT“ í DAG:
Vítfbúnuðuv ÞýzkaUntds
35. árgangrur.
Reykjavík
„A FÖRYim YEG1“ I DAG:
Dranyur ofi hrckka
E. mar/. 1951.
56. blað.
Bezti afiadegurinn ?
hjá Akranesbátum
Frá fréttaritara Tímans á Akranesi.
Dagurinn í gær var bezti afladagur vertíðarinnar hjá
Akranesbátum. Voru fimm bátar á sjó, og fengu þeir, sem
beittu loðnu góðah afla.
Miklir kvillar í
sauðfé á Héraði
Frá fréttaritara Tímans
á Egilsstöðum.
Mikið hefir borið á garna-
veiki í sauðfé á Héraði í vetur,
og fleiri kvilla, sem sennilega
stafa meðfram af hinú lélega
fóðri, hef ,r orðið vart. Garna
veikin er nú á mörgum bæj-
um á milli Lagarfljóts og Jök
ulsár á Dal, og er orðin út-
breidd i Fellum og Hróars-
tungu, en hefir þó verið skæð
ust á 3—4 bæjum. Einnig er
hún mögnuð á Völlum og í
Skriðdal. Á því svæði hefir
hún verið að undanförnu, en
vestur yfir Lagarfljót er hún
nýkomin.
Snjóléttur vetur
í Borgarfirði
Traustur bóndi, sem býr
skammt fyrir ofan Borgar-
nes, skrifar blaðinu í marz-
byrjun:
Hér hefir tíðarfar verið ó-
venjulega stillt og gott í vet-
ur. Getur varla heitið að snjór
hafi sézt, nema aðeins föl.
Borgfirðingar hafa því minna
af snjó að segja í þetta sinn,
heldur en íbúar flestra ann-
arra héraða.
Já, það má segja að mun-
urinn sé mikill á ekki stærra
landi en ísland er, þar sem
víða er nú með allra verstu
snjóavetrum.
Þeir bátanna, sem loðnuna
höfðu, fengu 10—13 smálest-
ir í róðrinum, og er það á-
gætur afli. Hinir, sem ekki
höfðu fengið loðnu til þess að
beita lóðir sínar, öfluðu miklu
miður, cg voru þeir yfirleitt
með 4—6 smálestir.
Að öliu samanlögöu var
þetta bezti afladagur vertíð-
arinnar, og vænta menn góðs
afla um skeið.
Aðalfundur Þing-
eyingafélagsins
Félag Þingeyinga í Reykja-
vík hélt aðalfund sinn 19.
febrúar s. 1. Fráfarandi for-
maður féiagsins, Borgþór
Björnsson skýrði frá störf-
um þess á síðasta ári. Hafa
þau verið með líkum hætti
og undanfarin ár. Auk
skemmtistarfsemi hefir fé-
lagið einkum unnið að út-
gáfustarfsemi og skógrækt í
landi sínu i Heiðmörk.
í landsvæði sitt 1 Heiðmörk
gróðursettu félagsmenn s. 1.
vor um 2000 trjáplöntur, og
verður því starfi haldið á-
fram.
Sögunefnd félagsins starf-
aði að útgáfu sem fyrr. Und-
anfarin tvö ár hefir verið
unnið að því að semja sveita
lýsingar héraðanna og standa
vonir til að út komi á næsta
hausti héraðslýsing Suður-
Þingeyjarsýslu eftir Jón Sig-
urðsson í Yztafelli. Lýsing
Norður-Þingeyjarsýslu hefir
. (Framhald á 7. síðu.)
Framsóknarvist
á Akrancsi
Framsóknaríélag Akra-'
ness heldtir skemmíun í
Tempiarahöllinni á Akra-
nesi á laugardagskvöldið,
og hefst hún með Framsókn
arvist klukkan níu.
Að vistinni lokinni verð-
ur dansað.
Stytzta þingi síðustu
ára lauk í gær
Afjgreiddi 77 Ittg, 135 frumv. ern óútrædtl
Alþingi var slitið í gær. í veikindaforföllum forseta íslands
sleit Steingrímur Steinþórsson, forsætisráðherra þinginu.
Flutti hann þ nginu árnaðaróskir og kveðjur forsetans. Bað
hann þingmenn síðan að rísa úr sætum og minnast forseta
Jslands og fósturjarðarinnar.
Eyrarbakkabátar
rca allir me5 net
Frá fréttaritara Tímans
á Eyrarbakka.
Afli hefir verið fremur
tregur undanfarna daga hjá
Eyrarbakkabátum. En þó er
róið daglega. Eyrarbakkabát-
ar voru allir í róðri, er garð-
inn gerði á mánudaginn, en
þeir náðu aílir heimahöfn. —
Allir bátarnir róa nú með net.
Vestmanneyingar !
heiðra minningu
Brynjólfs Sig-
fússonar
í dag er til moldar borinn í
Vestmannaeyjum Brynjólfur
Sigfússon tónskáld, og söng-
jstjóri. Bæjarstjórn Vest-
mannaeyja heiðrar minningu
hins látna með því að annast
útförina, sem fara á fram
með viðhöfn í dag.
Brynjólfur hefir komið mik
íð við sögu tónlistarinnar í
Vestmannaeyjum og verið
merkur brautryðjandi í kaup
staðnum á þvi sviði.
Hann gekkst fyrir stofnun
lúðrasveitar og stjórnaði
henni framan af. Hann stofn
aði karlakór og síðar bland-
' aðan kór, Vestmannakórinn,
1 sem varð landsfrægur undir
stjórn hans. Jafnframt var
Brynjólfur afkastamikið tón-
skáld. Áður var Brynjólfur
söngstjóri og kennari við mikl
ar vinsældir í íslendinga-
byggðum Vestanhafs.
Brynjólfur var í áratugi org
anleikari við Landakirkju og
tók við því starfi af föður sín-
um. —
Víl! taka Trieste-deiiiina
á dagskrá fjórvefdafundar
Gromrko sakar vesíiii'veldin nm að noía
Trieste sem brezk-ameríska flotasíöð
Aðstoðarutanrík sráðherrar fjórveldanna héldu þriðja fund
sinn í París í gær um tilhögun dagskrár fjórveldaráðstefnu.
Eftir umræðurnar í gær eru taldar minni líkur til samkomu-
lags um dagskrána, þar sem Gromyko fulltrúi Rússa hafi
farið út ívrir þann ramma, sem fundínum er markaður.
Deilir á vesturveldin.
í umræðunum um það,
hvort taka skyldí friðarsamn
inga við Austurríki á dagskrá
fjórveldafundarins, sagði Gro
myko að rúsneska stjórnin
væri fús 11 þess, en kreíðist
þá ennfremur að Trieste-mál
ið yrði einnig tekið á dagskrá.
Sagði hann, að vesturveldin
byggju nú um sig í Trieste
með þeim hætti að þar skyldi
vera brezk-amerísk flotastöð
og öflug herstöð fyrir land-
her.
.Tessup mótmælir.
Jessup fulltrúi Bandaríkj-
anna mótmælti því harðlega
að vesturveldin ynnu að því
að koma upp varanlegri her-
stöð í Trieste og allar ásakan
ir Rússa um það hefðu ekki
við ne'n rök að styðjast. Hins
vegar mundu vesturveldin
ekkert hafa á móti því að Tri-
este yrði á dagskránni. En
með ásökunum sínum um
Trieste hefði Gromyko farið
út fyrir þá umgerð, sem París
arfundinum væri ætluð, sem
sé að ræða um það eitt, hvaða
mál yrðu tekin á dagskrá en
geyma sjálfri fjórveldaráð-
stefnunnj að kryfja deilumál
in til mergjar. Ef fulltrúi
Rússa héldi áfram slíkum á-
sökunum • væri lítil von um
samkomulag um dagskrá og
Rússar sýndu þar þann raun-
verulega vilja sinn að engin
fjórveldaráðstefna kæmist á.
StjórniháÍDMamband
vlð Þýzkalaml
Indverska st j órnin hefir
veitt Vestur-Þýzkalandi við-
urkenningu og ákveðið að
senda sendiherra til Bonn. Er
Indland þar með fyrsta rik-
ið, sem skiptist á sendiherr-
um við Þýzkaland eftir þær
breytingar, sem gerðar hafa
verið á hernámssamningnum.
Forseti sameinað þings á-
varpaði þingmenn einnig,
þakkaði þeim störfin og góða
samvinnu og óskaði þeim góðr
ar heimferðar.
Stutt þing.
Þing þetta mun vera eitt
hið stytzta sem hefir verið á
síðari árum. V^,rð það 36 dög
um styttra en næsta þing á
undan. Mestur hluti þingtím
ans hefir farið í það að leysa
vandræði atvinnuveganna
vegna óvenjulega örðúgs ár-
ferðis. Þingið hófst 10. okt. i
haust og stóð alls 149 daga.
Þingmál.
Á þessu
þingi voru alls
haldnir 221 þingfundur, 85 í
neðri deild, 86 í efri deild og
50 í sameinuðu þingi. Alls
voru lögð fram 61 stjórnar-
frumvörp og 74 þingínanna
frumvörp eða samtals 135
frumvörp.
Afgreidd lög.
Á þinginu voru alls sam-
þykkt og afgreidd sem lög 77
frumvörp, en felld 2. Þá voru
11 frumvörp afgreidd með rök
studdri dagskrá. 135 mál urðu
ekki útrædd á þinginu.
Þingsályktunartillögur urðu
54 og fyrirspurnir bornar
fram 19. Mál til meðferðar
alls urðu 197. Tala prentaðra
þingskjala var 836.
Her S.Þ. fer yfir
Han-fljót
Hersveitir S. Þ. fóru yfir
Han-fljót um 25. km. austur
af Seoul og tókst að halda
stöðvum sínum norðan fljóts-
ins og sækja fram nokkra km.
Austar á vígstöðvunum voru
harðir bardagar og sótti suð-
urherinn fram 1—2 km. Á
einum stað urðu Suður-Kóreu
menn þó að hörfa fimm km.
fyrir snörpu áhlaupi norður-
hersins.
Mac Arthur hershöfðingi
fór til Kóreu í gær og flaug
yfir vígstöðvarnar. Sagði
hann, að allt benti til þess,
að Kínverjar hefðu í hyggju
að hefja nýja stórsókn á
næstunni, og væru a.m.k. þriú
herfylki þeirra tilbúin til
sóknar skammt norðan víglin
unnar. —
De Gasperi fer
til London
Tilkynnt var í Róm í gær
að de Gasperi, forsætisráö-
herra og Sforcha greifi, utan-
ríkisráðherra, mundu fara til
London 12. marz til viðræðna
við brezk stjórnarvöld.
Forsætisráðherra
Iran myrtur
Snemma í gærmorgun réðst
ofsatrúarmaður úr flokkiN
Múhameðstrúarmanna í Te-
heran á forsætisráðherra ír-
ans með skothríð og myrti
hann.
Ali Razmara forsætisráð-
herra var að fara til guðs-
þjónustu ásamt fylgdarliði
sínu, er maður nokkur brauzt
fram úr mannfjöldanum og
skaut fjófum skotum að for-
sætisráðherranum og varð
honum þegar að bana. Morð-
inginn náðist og kvaðst hann
hafa framið morðið vegna
þess að forsætisráðherrann
hefði selt land sitt í hendur
fjandmönnum.
Razmara foi'sætisráðherra
tók við vöidum í sumar. Hann
var andvígur Rússum í stjórn
arstefnu sinni og hafði leitað
samstarfs við vesturveldin
um efnahagslega uppbygg-
ingu landsins. Hafði verið
samin sjö ára áætlun um við-
reisn landsins.
Þegar eftir morðið fyrir-
skipaði keisarinn að herlög
skyldu ganga í gildi, en síðar
i gær var hernaðarástandinu
aflétt enda hafði ekki kom-
ið til neinna óeirða í sam-
bandi við morðið.
Háseti af Hallveigu
Fróðadóttur drukknar
Ungan mann, háseta á togaranum Hallveigu Fróðadóttur,
tók út aðfaranótt þriðjudagsins, er skipið var statt á Eld-
eyjarbanka, og drukknaði hann.
Maður þessi var Jón Magn-
ús Helgason, til heimilis að
] Grettisgötu 43 í Reykjavík,
22 ára að aldri, ókvæntur.
Ókunnugt er um nánari
[ atvik, en hvassviðri var á og
rysjusjór, er slysið varð, og
engin tök á björgun.
Skipið mun ekki hafa ver-
ið að veiöum, er slysið varð',
enda veður svo vont, að vart
munu hafa verið tök á þvi.
Engispretííír Sicrja
við Jordan
Stjórn Transjordans hefir
boðið út öllum fullvaxta karl
mönnum í héruðunum við Jor
dan til baráttu við engi-
sprettuplágu, sem herjað hef
ir við ána Jordan og sviðið
stór landflæmi og eyðilagt
kornuppskeru sem nemur 10
—15 þúsund lestum.