Tíminn - 17.03.1951, Page 8
35. árgangur.
Reykjavík
„A FÖRVI W VEGI“ í DAG:
Marfiir um boðið
17. marz 1951. 64. blað.
Göngukeppni skíða-
móts Vestfjarða
Fréttaskeyt: frá ísafirði.
Göngukeppni skíðamóts
Vestfjarða fór fram á fimmtu
daginn var. Braut karla var
22 km. Fyrstur í A-flokki
varð Sigurður Jónsson, Skíða
félagi ísafjarðar á 1. klst.
48 mínútum. Braut drengja
17—19 ára var 14 km. löng.
Fyrstur varð Ebenezer Þór-
arinsson úr Ármann' í Skut-
ulsfirði á 1. klst. 43 sek.
Braut drengja 15—17 ára var
7 km. löng. Fyrstur varð Guð
mundur Finnbogason úr Ár-
manni á 32 mín. 42 sek. Braut
drengja 13—15 ára var 4 km.
á lengd. Fyrstur varð Jóhann
Bergmann úr Skíðafélagi ísa
fjarðar á 23 mín. Færi var
ágætt.
Engin athugun á
vinnumögnleikum
Á bæjarstjórnarfundi í
Reykjavík í fyrrakvöld urðu
miklar umræður um atvinnu
ástandið í bænum. Þrjátíu
mönnum hefir ver ð bætt í
bæjarvinnuna, en borgár-
stjóri tók þvert fyrir, að
lengra yrði gengið.
Fulltrúar jafnaðarmanna
kommúnistar báru fram til-
lögu um það, að hundrað
mönnum yrði bætt í vinnu.
Þórður Björnsson bar hins
vegar fram þá tillögu, að
þrjátíu mönnum yrði bætt
við, en athugaðir möguleikar
á því að finna verkefni handa
eitt hundrað. Sagðist hann
bera fram þessa tillögu í
þeirri von, aö meirihlutinn
gæti fremur á hana fallizt.
Báðum þessum tillögum
var þó vísað frá af Sjálfstæð-
ismeirihlutanum í bæj,ar-
stjórninni.
Mynd þessi er af einu málverki Valtýs
Pétursosnar á sýningu hans í Listamanna
skálanum. Nefnir hann myndina Uppstill
ing 1950 (Ljósm. Marc Vaux París)
Valtýr Pétursson opn-
ar málverkasýningu
Ilefir lilotið afburða dóma hjá erlendmii
gagnrýnendum á svningnm í París og Osló
í gærkvöldi opnaði Valtýr Pétursson listmálari sýningu
í Listamannaskálanum. Sýnir hann þar 62 olíumálverk og
56 vatnslitamynd r, auk teikninga og krítarmynda. Valtýr
hélt í haust sjálfstæða sýningu, sem honum var boðið að
efna til í kunnum sýningarsal í París, og fékk hann mjög
góða dóma fyrir myndir sínar við það tæk færi, og eins á
sýningu fimmmenninganna íslenzku í París í vor og í maí-
sýningunni þar í borg siðar.
Afrekaskrá f jögurra drengja:
5 innbrot, 4 bílastuld-
ir, stoliö úr 10 bílum
Rannsóknarlögreglan -í Reykjavík hefir haft hendur í
hári fjögurra pilta, fimmtán til nítján ára gamalla, er á
skömmum tima hafa stolið fjórum bifreiðum, stolið úr tíu
bifreiðum, er þeir brutust inn í, og leitað í fjölmörgum
óðrum að einhverju, er þeir gætu stolið og loks framið fimm
innbrot í búðir.
Piltar þessir hafa allir kom
ið fyrr við sögu hjá lögregl-
unni, en afreksverk þau, sem
nú hafa komizt upp, hafa
þeir þó framið á tiltölulega
skömmum tíma.
Innbrotin
Fjögur innbrotanna frömdu
piltar þessir í Reykjavík.
Hvergi fénaðist þeim veru-
lega, en mest báru þeir úr
býtum, er þeir brutust inn í
verzlunina Kjöt & grænmeti
og stálu þar tvö hundruð
krónum, auk matvæla og á-
vaxta.
Fimmta innbrot sitt
frömdu þeir í Matarbúðinni
í Keflavík, þar sem þeir stálu
hundrað krónum í peningum
og dálitlu af tóbaki.
Bílaþjófnaður
Til þess að komast suður í
Keflavík þurftu víkingar þess
ir auðvitað farartæki, enda
stálu þeir bíl til fararinnar.
Það var fjórði bíllinn, sem
þeir höfðu stolið.
Alls hafa þeir brotizt inn í
tíu bíla til þess að stela úr
þeim, en leitað hafa þeir í
fjölmörgum öðrum. í bílun-
um hafa þeir einkum náð á-
fengi, en auk þess hirt ýmis-
legt smálegt, er þeir fundu.
Ólíkt því, sem v ð eigum
að venjast.
Myndirnar, sem Valtýr sýn
ir að þessu sinni, eru allný-
stárlegar fyrir fólk hér og all
mjög ólíkar því, sem v ð eig-
um að venjast. Kemur þar
fram djörf meðferð lita og
myndgerðar, og hugarflug
hins unga og duglega málara
leynir sér ekki. List Valtýs
er sjálfstæð og persónuleg, og
það er gaman að henni líka
fyrir þá, sem aðhyllast aðr-
ar meg nstefnur í málaralist
inni en málarinn sjálfur.
í málverkaskránni er for-
máli eftir Gurinlaug Schev-
ing listmálara. Seg r þar, að
þó að margir listamenn tutt
ugustu aldarinnar hafi horf-
ið frá nákvæmum eft rlík-
ingum, hafi fæstir þeirra
reynt að gera náttúruna út-
læga úr verkum sínum.
*
Viðurkenning erlendra
listdómara.
Valtýr Pétursson hefir átt
þvi láni að fagna að fá m kla
viðurkenningu á list sinni
hjá þeim að lum erlendis, sem
bezt er trúandi til sann-
gjarnra og réttlátra dóma.
Verður það væntanlega til
breyting margra um bæna-
dagana að skoða málverk
Valtýs.
Sendinefnd frá Sauð-
árkróki í Reykjavík
Ra‘ðir við stjiVrnarvöIdin um þáittöku í íoíí-
arakaupum, liafnarbætur o«' liifaveitu
Sendinefnd frá Sauðárkróki er í þann veginn að hefja
viðræður við stjórnarvöid landsins um ýms nauðsynjamál
kaupstaðarins. Komu þeir Björgvin Bjarnason bæjarstjóri
og Magnús Bjarnason suður í fyrradag, en Friðrik Hansen
er væntanlegur til Reykjavíkur í dag til þess að taka þátt
í störfum nefndar þessarar.
Tíðindamaður frá blaðinu
átti í gær stutt tal við Björg
vin Bjarnason bæjarstjóra
og spurði um erindi þeirra fé
laga til Reykjavíkur.
— Það er aðallega þrennt,
sem við ætlum að' leita fyrir
okkur um, sagð hann: mögu
leika til þátttöku í togara-
kaupum, auknar hafnarfram
kvæmdir og fjáröfluri til hita
veitu.
Samlög um togarakaup.
— Við höfum hug á því,
sagði bæjarstjórinn ennfrem
ur, að geta átt hlutdeild í tog
arakaupum. Hugsum við þá
helzt að hafa samflot við
Ólafsfirðinga og Dalvíkinga,
og hefir litillega verið um það
rætt af forsjármönnum hlut
aðeigandi byggðarlagá. Hvaða
undirtektir við fáum hér
syðra, er enn ekki vitað.
Höfnin
— Hafnarmál okkar Sauð-
árkróksbúa eru ekki í góðu
lagi, og það er mjög brýn
nauðsyn, að bót verði ráðin
á þvi ásigkomulagi, sem þau
eru í. Það berst sifellt mikill
sandur í Sauðárkrókshöfn, og
þótt mokað væri upp úr
henni í fyrrasumar, hefir
mjög sótt í sama horfið. í
briminu mikla í haust
skemmdist einnig stein-
nökkvi, er notaður var til
hafnargerðarinnar, og er ó-
hjákvæmilegt að fá járnþil
innan á hann. Er nú beðið
eftir tillögum vitamálastjóra
um umbætur á höfninni.
Hitaveitan
í þriðja lagi er svo erindi
okkar að leita hófaná um út
vegun fjár til hitaveitu á Sauð
árkróki. Nægilegt heitt vatn
er nærtækt, en fé vantar til
framkvæmdanna. Fer hér sam
an mikið framfara- og hags-
munamál fyrir Sauðárkrók,
og framkvæmd, sem yrði til
mikils gjaldeyr:ssparnaðar.
Næsta allsherjar-
þing háð í París
Stjórn Frakklands sendi
framkvæmdastjóra S. Þ.
skeyti urn það í gær, að hún
biði að næsta allsherjarþing
samtakanna yrði háð í París
í haust að því tilskildu að
það hæfist ekki síðar en 6.
nóv. Er beð ð um skjót svör
við því hvort þetta verði þeg
ið.
Bretar mótmæla
þjóðnýtingu olíu-
vinnslu í íram
Þjóðþingið i íran sam-
þykkt. í gær í einu hljóði
frumvarp stjórnarinnar um
þjóðnýtingu olíulindanna og
oliuvinnslunnar í landinu.
Brezka stjórnin hefir sent ír
ansstjórn mótmæli gegn
þessu, byggða á samn ngi, er
brezk olíufélög hafa við ír-
an til ársins 1955 um vinnslu.
Segir í orðsendingunni, að
Bretar hafi lagt í geys legan
kostnað í því trausti að samn
ingur þessi verði haldinn.
Vestur-lslendingar
leggja fé til skóg-
ræktar á íslandi
Frá fréttaritara Tímans í Winnipeg
Ársþing Þjóðræknisfélags íslendinga í Vesíurheimi, sem
haldið var hér í borginni, samþykkti fyrir atbeina Marju
og Sveins Björnssonar læknis, sem gistu ísland síðastliðið
i sumar, að leggja heima-íslendingum lið í skógræktarmálum
Samþykkt var að verja nú
5000 krónum í þessu skyni til
að byrja með, og var um það
rætt að fara fram á, að blett
ur á Þingvöllum yrði helgað-
ur Vestur-íslendingum, þar
sem skógrækt þeirra yrði has
laður völlur.
Nefnd manna á að fjalla
um þetta mál, og er Richard
Beck formaður hennar, en
auk annarra er Marja Björns
son í henni. — Sennilega
verður hafizt handa um fram
kvæmdir þegar í vor.
Attlee leggst
á sjúkrahús
Attlee forsætisráðherra
Breta fer í sjúkrahús í Lond
on á miðv kudaginn kemur
og dveist þar um óákveðiivn
tíma til rannsóknar og lækn-
inga. Morrison gegnir störí-
um forsætisráðherra i fjar-
veru hans.