Tíminn - 29.03.1951, Blaðsíða 5

Tíminn - 29.03.1951, Blaðsíða 5
70. blað. TÍMINN, f mmtudaginn 29. marz 1951. imtiro Fhnmtud. 29. nmrz Mál, sem verðlags- yfirvöldin verða að npplýsa Á öðrum stað í blaðinu í dag er birt athugasemd frá H. Benediktsson & Co. og Olíuverzlun íslands h. f. í tilefni af upplýsingum, sem Tíminn hafði birt um verðiag á bifreiðasmurningsolíum hér og í Danmörku. í athuga- semd þessari kemur það rétti lega fram, að upplýsingar þær, sem Tíminn hafði stuðst við, voru ekki allskostar réttar, þar sem í öðru til- fellinu hafði verið miðað við kg. en í hinu við líter. Er Tímanum þökk að því. að umræddar olíuverzlanir hafa leiðrétt þetta, því að skylt er jafnan að hafa það, sem sannara reynist. Hins vegar er það ekki eins lofsvert hjá umræddum' olíuverzlunum að ætla að nota þessa skekkju sem sönn* un þess, að þau hafi hreint' mél í pokahornniu í sam- bandi við smurningsolíuverzl unina. Hinar leiðréttu tölur, sem þær gefa upp, leiöa alveg til sömu niðurstöðu og Tím- inn hafði haldið fram, að- eins örlítið hagstæðari fyrir þær, en þó svo óhagstæðar, að verðlagsyfirvöld og við- skiptamálaráðherra geta ekki leitt það hjá sér lengur. Samkvæmt þeim tölum, sem umræddar olíuverzlanir gefa upp, hefir verðlag á Esso- olíum og Vacuum motoroii- um verið í Danmörku á ár- unum 1947—’50 sem hér seg- ir (Esso-olíur i fremsta dálki, Vacuum motorolíur í öðrum og í þriðja dálki er sýnt hve miklu dýrari Vacuum motor- olíurnar hafa verið, talið er í dönskum krónum pr. 100 ERLENT YEIRLIT: Olíufundurinn í Alberta Hefir laaim tvöfaldað |>að oliiimagn, sem ini er vitað um í iieiminnm? kg): 1947 152 156 2.63% 1948 159 168 5.66% 1949 169 179 10.49% 1950 173 190 9.83% Til samanburðar skal svo tekið verðlag á hliðstæðum smurningsolíum á íslandi á árunum 1947—’50 (Esso-olíur í fremsta dálki, Vacuum mot orolíur í öðrum. verðmunur- inn í þriðja, talið er í íslenzk- um kr. pr. 100 kg.): 1947 190 297 56.3% 1948 216 315 45.83% 1949 228 276 21.05% 1950 316 372 17.72% Þessar tölur sýna það, að á árunum 1947 og 1948 er Vacu- umolíurnar aðeins 2.63% og 5.66% dýrari en Esso-olíurn- ar í Danmörku, en hér á landi eru þær 56.3% og 45.83% dýr- ari. Hér er um næsta ótrúleg- an verðmun að ræða, en hann liggur nú fyrir sem óyggjandi staðreynd,"byggður á uppiýs- ingum, sem verzlanirnar Hailgrímur Benediktsson & Co. og Olíuverzlun íslands hafa sjálfar gefið að því er verðlagið í Danmörku snert- ir. Þær hafa heldur ekki mót mælt því, að verðlagið, sem greint er hér innanlands, sé rétt upp gef ð. í athugasemdum sinum reyna umræddar olíuverzl- anir að læða inn þeim grun, að verðmunur þessi stafi af því, að Olíufélagið hafi ekki notað sér íulla álagningu á Það er skoðun margra sér- fróðra manna, að komi til styrj aldar í náinni framtíð, myndi hún heíjast sem kapphlaup um olíulindir. Sá stríðsaðili, sem hefir meiri olíu, er mun lik- iegri til þess að bera sigur úr býtum. Ósigur Þjóðverja í srin- ustu styrjöld er af mörgum tal- inn rekja rætur sínar að veril- legu leyti til olíuskorts. Á sama hátt er aðstaða Kínverja talin örðug til að halda áfram Kóreu- styrjöldinni vegna þess, að þá skortir olíu. Af framangreindum ástæðum og fleirutó, hefir verið lagt íneira kapp á það á síðari árum en nokkrum einnum fyrr, að finna nýjar olíulindir. Nýlega hefir slík ieit borið árangur í Kanada, sem getur orðið mjög örlagarík- ur. Nánar er frá þeim fundi sagt í eftirfarandi grein sænska blaðamannsins K. G. Bolander, en hún birtist nýlega í Svenska Dagbladét: Stuttorðar fréttatilkynningar hafa sagt, að vísindamönnum hafi nú tekizt að vinna olíu úr svokölluðum tjörusandi í Norð- ur-Alberta í Kanada. Þessi frétt segir raunverulega það, að olíu- magn þa.ð, sem vitað er um í heiminum, hefir tvöfaldazt. Enginn veit með vissu, hve mikil olía fæst' úr tjörusandinum í Alberta, “én vísindamenn segja, að það sé meira en í öllum þeim olíulindum samtals, sem vitað er um. Gripið hefir verið á því við lausiegan útreikning, að olíumagn sandsins væru 250 milljarðar fata eða 35 milljarð- ar smálesta. "Wí Flokkur Aberharts. Saga Alberta síðustu tuttugu ár er æviritýri. Þetta er vestasta fylkið á hinum miklu sléttum Kanada. Kringum 1930 dundu yfir það miklir erfiðleikar. Hveitirækt var bjargræðisveg ur íbúanna, en engisprettur skemmdu akra auk þess, sem uppskera spilltist af þurrkum og hagléijum og verðfall var geysiiegt á heimsmarkaði. Þús- undum saman urðu bændur þá að láta jarðir sínar upp í skuld- ir. Þá var þannig ástatt, að menn hlustuðu á alls konar leiktrúði.í fjárhagsmálum. Aber- hart hét maður, sem prédikaði fyrir baptista eða endurskírend- ur og héít því fram í útvarps- prédikunum sínum, að bæta mætti úr basli og neyð íbúanna með því einu, að ríkið greiddi hverjum manni 25 dollara á mánuði til að koma upp „ný- sköpun kaupgetunnar". Þetta féll í svo góðan jarðveg, að flokkur sá. sem Aberhart mynd aði, Social Kredit, vann glæsi- legan sigur í næstu fylkiskosn- ingum. Stefna, sem ekki var framkvæmd. Allur heimurinn hló að Al- berta og Mönchhausenstjórn fylkisins, en þó er það stað- reynd, að flokkurinn hefir unr. ið allar kosningar síðan og aldr- ei verið fastari í sessi en eininitt nú. Aberhart er nú látinn, en Manning iærisveinn hans hofir tekið við af honum og heldur | fast við kenningar hans um1 opinber framlög. Leyndardóm- urinn við þetta fyrirbæri er sá,1 að flokkurinn hefir aldrei fram- kvæmt stefnu sína svo að reynsl ar^ skæri úr um draumsjónir hans. Þetta bjargaði Aberhart og flokki hans. Jafn fráleitir og þeir voru í kenningum sínum, voru þeir skynsamir í fram- kvæmdinni. Þeir hreinsuðu til í opinberu lífi, bundu enda á margs konar spiilingu og tóku upp heiðarlega, íhaldssama stefnu. Það er nú almennt við- urkennt i Kanada, að Alberta hafi beztu fylkisstjórn í öllu ríkhju, með því skilyrði vitan- legá, að hún fari ekki að fram- kvæma stefnu sína. Fyrstu olíufundirnir í Alberta. Lengi hafa menn vitað, að auðugar olíulindir væru neðan- jarðar í Alberta, en það var erfiðara að finna þær. I suður- hluta fylkisins fundust olíur brunnar við Turner Valley, en þar var þó ekki um mikið magn að ræða og fór ntinnkandi. En gufur úr jörðu víða um fylkið sýndu, að olía var til. í Edmon- ton og Calgary eru slíkar gufur hafðar óbreyttar til eldsneytis. Vorið 1947 fannst svo olíuæð. : Boranir í Leduc, sem er í jaðri Edmontonsfylkis, leiddu í ljós ’ auðugar olíunámur og árið eftir j fundust aðrar enn meiri olíu- lindir við Rauðavatn, norðaust- ur af Edmonton. Á þremur ár- um hundraðfaldaðist olíumagn Kanada og framleiðslan óx úr 18 þúsund fötum á dag 1947 í! 85 þúsund föt í árslok 1950. Gerð ; hefir verið olíuleiðsla 1500 km. \ er olíunni dælt í pramma, sem löng að Lake Superior, en 'þar flytja hana til hreinsunar til Chicago. Alberta er að verða álíka mikið olíuland og Texas, og Kanada verður innan skamms sjálfbjarga með olíu- framleiðslu og sparar þar með 300 milljónir Bandaríkjadollara árlega. Og fylkisstjórn Alberta hefir olían orðið gullnáma. Fylk ið á allar námur og fær gjald af hverju olíufati, sem fram- leitt er. Velmegun í fylkinu hef- ir aukizt svo, að nú þarf ekki lengur að tala um það að auka kaupgetu almennings með op- inberum framlögum. MANNING Olítisandurinn miki. Og nú bætist olian úr tjöru- sandinum við þetta. Lengi hafa menn vitað, að sandurinn við Athabaskabotn er blandaður olíu, en enginn hefir hingað til kunnað ráð til að leysa olíuna úr sandinum á þann hátt, að það borgaði sig. Þessi olíusand- ur er geysi mfkill. Rannsakaðir hafa verið 4000 ferkílómetrar, en vel má vera, að svæðið sé 10 sinnum stærra. Undir 10 m. þykku hellulagi er 40—70 metra þykkt sandlag, sem er svo mett- að olíu, að það er dökk og hvoðukennd leðja. Þennan tjörusand hefir mátt rekja hundruð km. meðfram Atha- baskafljótinu norður að ósum þess í samnefndu vatni. Skýrsla Blairs. Stjórnin í Alberta setti olíu- verkfræðing til að rannsaka vinnsluskilyrði úr sandinum. Sá maður hét S. M. Blair frá Tor- onto. Það er skýrsla hans, sem nú liggur fyrir. Þar leggur hann á ráð að vinna olíu við Athabaska og flytja hana á markað með þeim tilkostnaði, sem núverandi markaðsverð á oliu þolir. Blair reiknar með þvi, að fá megi eitt olíufat eða um (Framhald á 6. síðu.) árunum 1947 og 1948. For- stjóri þess hefir gefið Tim- anum þær upplýsingar, að jafnan hafi verið fylgt leyfi- legri hámarksálagningu við verðlagningu umræddra olía. Hér er því ekki um nein und- irboð að ræða. Skýring þessa fyrirbrigðis getur því ekki verið önnur en sú, að umræddar olíuverzlan- ir hafi selt Vacuum motor- olíurnar óeðlilega dýrt á þess um árum, hvert sem hagn- aðurinn hefir runnið. Sam- keppnin við Olíufélagið hefir hins vegar nejdt þær til að lækka verðið. Samt eru þær ekki komnar lengra en það að meðan verðmunurinn á seinasta ári er 9,8% i Dan- mörku, er hann 17.7% hér. Hvar er þessi óeðlilegi verð munur á smurningsolíum hér og í Danmörku fólginn? — Hvers vegna er Vacuumolíurn ar svona miklu ódýrari þar en hér? Það er ótvíræð skylda verð- lagsyfirvaldanna að afla sér fullra upplýsinga um, hvað þessum mikla verðmun hefir valdið og veldur. Hefir hann st.afað af óhagstæðum inh- kaupum Hallgrims & Co. og Olíuverzlunarinnar eða hef- ir hér falist „faktura í tunnu“? Eða er hér um bein verðlagsbrot að ræða? Þetta ætti að upplýsast til hlítar, ef verðlagsyfirvöldin gerðu full- kominn samanburð á verð- laginu hér og 1 nágranna- löndunum og gengu hæfilega ríkt eftir því, að umræddar olíuverzlanir gæfu fullnægj- andi skýringu á verðmunin- um. •— Verðgæzlustjóri, verð- gæzlunefnd og viðskiptaráð- herra vanrækja skyldu sína við almennnig, ef þetta verð- ur látið ógert. Raddir nábúanna Vísir ræðir í forustugrein í fyrradag um hina nýju kaup hækkunarbaráttu Alþýðu- flokks ns og segir m. a.: „Meðan Alþýðuflokkurinn tók þátt í starfi ásamt lýðræðis flokkunum, var hann vel við- mælandi, þótt óttinn við kom múnista teygði hann tíðum af- vega. Meðan Alþýðuflokkurinn hafði svo sjálfur stjórnarfor- ystu á hendi, sýndi hann var- úð í stjórn efnahagsmálanna og lagði kapp á að tryggja at- vinnulifið í landinu. Þá var talið að miklar fórnir væru færandi til þess að vinnufrið- ur yrði tryggður og vísitalan bundin við 300 stig. Kommún- istar reyndu að efna til æsinga innan verkalýðsfélaganna, vegna slíkra ráðstafana, en í öllum kaupstöðum landsins börðust fulltrúar Alþýðuflokks ins gegn kommúnistum og fengu því áorkað, að ekki kom til stöðvunar á atvinnurekstri, enda lögðu flest verkalýðsfé- lögín beinlínis blessun sína yf- ir ráðstafanir ríkisstjórnarinn ar. Þá var það ekki talið aðal- atriðið, að kaupgjald yrði sem hæst og visitala greidd að fullu og útreiknuð mánaðarlega, heldur miklu frekar hitt að atvinna héldist trygg og örugg, þannig að menn þyrftu ekki að búa við atvinnuleysi“. Nú er Alþýðuflokkurinn kominn í stjórnarandstöðu og , þá er allt skyndilega breytt. | Þá er það orðið til hagsbóta og uppbyggingar, sem áður var tl tjóns og niðurrifs. Flokkur, sem þannig hagar stefnu sinni eftir því, hvort hann á menn I ríkisstjórn eða ekki, getur ekki vænzt annars en vaxandi tiltrúarleysis og fylgishruns. Er þetta eina vörnin? Lögreglustjórinn í Reykja- vík hef r ekki enn sýnt neina viðleitni til að verja vínveit- ingaleyfi sín, en á þrðjudag- inn birtir Vísir grein eft r Sigurgeir Sgurjónsson. Þar eru ýms gífuryrði um okkur bindindismenn og mun þe m ekki svarað hér. Á hinu skal vakin athygl’, að þessi há- menntaði lögfræðingur bygg ir vcrn sína fyrir lögreglu- stjórann á því, að reglugerð- in frá 1945 sé markleysa og haf'. alltaf verið. Byggir hann þessa fullyrðingu sína á því, að sumt, sem í reglugerðinni standi, sé ekki tekið fram í lögum. Nú mætt; í fyrsta lagi spyrja þennan lögfræðing, sem þykist vera þess umkom- inn að gera lítið úr lagakunn áttu Péturs heitins Magnús- sonar,, 11 hvers hann haldi, að settár séu reglugerðir um framkvæmd laga, ef það eitt í þeim á yfirleitt að gilda, sem be nlínis og berum orð- um hefir verið tekið fram í lögum? Þessu ætti hinn ofstækis- laus; og gáfaði vísindamaður að svara, því að það eru nýj- ar upplýsingar, ef allar opin- berar reglugerðir eru mark- leysa, svo sem hann kennir. Hins vegar er svo rétt að benda lögfræðingnum á það, að áfengslögin banna al- mennt og yfirleitt vínveit;ng- ar á almennum samkomum. Tvær undanþágur gera lögin frá þeirri reglu. Önnur er sú, að dómsmálaráðherra getur vett einu veitingahúsi í Reykjavík vínveitingaleyfi og þeirrar undanþágu nýtur Hótel Borg. Hin undanþágan er heim ld lögreglustjóra til að veita félögum leyfi til vín- veitinga. Nú sér hver maður, að það væri ekki með eðli, að hafa þetta ákvæði um leyfi lögreglustjóra, ef gert væri ráð fyrir, að hver sem vildi, ætti alltaf að fá þetta leyfi. Ef Sigurgeir hefði borið gæfu til að kynna sér málið áður en hann skr'faði, vissi hann lika það, sem stendur í Al- þingistíðindum 1935 og ég hefi tvívegis birt orðrétt í Tíman- um í vetur og b'rti hér í þriðja skipti, að þessi ákvæði um he mild lögreglustjóra eru „sett til að koma í veg fyrir, að farið verði í kring- um bann við ve tingum á- fengra drykkja með mála- myndafélagsstofnunum, sem auðvelt er að fá aðgang að“.. Það sér því hver dómbær maður, að löggjafarsamkom- an ætlaðist til þess, að und- anþágan gæti gilt fyrir lokuð innanfélagsmót, en ekki al- mennar samkomur, sem hver sem vildi gæti keypt sig inn á. Á þessum grundvelli einum var Pétri Magnússyni heimilt að gera sína reglugerð til að skýra þennan tilgang og eng inn ráðherra hef'r rétt til að gera reglugerð um þetta á I öðrum grundvelli meðan á- | fengislögin eru óbreytt, cnda þótt manninum frá Vetrar- klúbbnum kunni að vera svo ' áfátt andlega, að hann haldi sig vita betur. Ekki ætla ég [ að drótta að honum þeirri , fúlmennsku, að hann mæli gegn betri vitund. Það er miskunnarlaust að [ vera að auglýsa svona aum- an málflutning hjá manni 1 (Framhald á 6. síðu.)

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.