Tíminn - 31.03.1951, Qupperneq 2
2.
TÍMINN, laugardaginn 31. marz 1951.
72. blað.
/}rá hafi til heiía
ÚtvarpÍð
■Útvarpið í dag:
8.30 Morgunútvarp. — 9.10
Veðurfregnir. 12.10—13.15 Há-
degisútvarp. 15.30—16.30 Mið-
degisútvarp. — (15.55 Fréttir og
veðurfregnir). 18.25 Veðurfregn
ir. 18.30 Dönskukennsla; I. fl.
— 19.00 Enskukennsla; II. fl.
19.25 Tónleikar: Samsöngur
(plötur). 19.45 Auglýsingar. 20.
00 Fréttir. 20.30 Útvarpstrióið:
Tríó í Es-dúr eftir Haydn. 20.45
Leikrit: „Monna Vanna“ eftir
Maurice Maetrlinck. — Stein-
gerður Guðmundsdóttir leik-
kona þýðir leikritið og flytur.
— Enfremur tónleikar. 22.00
Fréttir og veðurfregnir. 22.10
Danslög (plötur). 24.00 Dag-
skrárlok.
Hvar eru skipin?
Sambandsskip:
M.s. Hvassafell er í Reykja-
vík. M.s. Arnarfell átti að fara
í dag frá Álaborg áleíðis til
Islands.
Eimskip:
Brúarfoss er í Reykjavík.
Dettifoss er i Vestmannaeyj-.
um. Fjallfoss kom til Freder- (
ikstad 28.3., fer þaðan til Grav- i
arna, Gautaborgar og Kaup-1
mannahafnar. Goðafoss fer frá
Rotterdam 31.3. til Leith og1
:þaðan 2.4. til Reykjavíkur. Lag- .
iarfoss fer frá New York 8.4. til!
'Reykjavíkur. Selfoss fór frá >
Vstmannaeyjum 29.3. til Leith, j
Hamborgar, Antwerpen og
Gautaborgar. Tröllafoss fór frá
Baltimore 26.3. til Reykjavíkur.
Dux fer væntanlega frá Kaup-
mannahöfn 31.3. til Reykjayík-
ur. Skagen fór frá London 28.3.
til Reykjavíkur. Hesnes fermir
í Hamborg um 2.4. til Reykja-
víkur. Tovelil fermir í Rotter-
dam um 10.4. til Reykjavíkur.
Ríkisskip:
Hekla er á Austfjörðum á
norðurleið. Esja er væntanleg
til Reykjavíkur um hádegi í
dag að austan og norðan. Herðu
breið var væntanleg til Isa-
fjarðar í gærkvöldi. Skjaldbreið
var á Húnaflóa í gær á suður-
leið. Þyrill er í Faxafióa. Ár-
mann átti að fara frá Reykja-
vík í gærkvöldi til Vestmanna-
eyja.
Árnað heilla
Hjónaband.
í dag verða gefin saman í
hjónaband af Birni Magnús-
syni, prófessor, ungfrú Elsa
Friðriksdóttir, Bdrgarnesi og
Óskar Jóhannsson, deildar-
stjóri Kron. Heimili þeirra verð
ur fyrst um sinn að Njálsgötu
35.
Úr ýmsum áttum
Sundsamband íslands stofnað
Þann 25. febrúar s. 1. var sund
samband íslands stofnað í
Reykjavík. Á stofnfundinum
voru mættir 20 fulltrúar mð
24 atkvæði frá 9 aðilum. Á
fundinum var gengið frá lög-
um fyrir Sundsambandið og
kosin stjórn. Eftirtaldir menn
voru kosnir í stjórnina: Erling-
ur Pálsson, formaður Rvík,
Logi Einarsson, ritari, Rvík.,
Úlfar Þórðarson, gjaldkeri, Rvík
Meðstjórnendur: Guðjón Ingi-
mundarson, Sauðárkróki og j
Stefán Þorleifsson, Nskaup-
stað. í varastjórn voru þessir'
menn kosnir: Ragnar Ólafsson, j
Reykjavík, Jón M. Guðmunds- j
son, Reykjum og Ingi Rafn Bald
vinsson, Hafnarfirði. Á fundin-
um mættu, auk áðurtalinna
fulltrúa: Forseti í.S.f., Ben. G.
Útvarpið og hlustendurnir.
Mörgum þykir rikisútvarp
ið harla dauft, og talsvert
af því, sem það flytur, þyk-
ir heldur óaðgengilegt og
ekki allt eiga erindi til
margra. Tvær aðfinnslur
heyrast þó oftast: Að tón-
leikarnir séu alltof þunglama
legir og strembnir, en jass-
giamur til uppfyllingar, og
áberandi fátt sé af veiga-
miklum erindum um efni,
sem mörgum leikur hugur á
að fá fræðslu um.
Hins vegar er skylt að geta
þess, að í vetur hafa tveir
útvarpsþættir, og þó ólíks
eiifcis, náð vinsældum, og
mun mikill fjöldi útvarps-
hlustenda bakklátur fyrir þá.
Þetta er skemmtiþátturinn
„Sitt af hverju tagi“, og
skólaþátturinn, sem hefir
heppnazt miklu betur en
fólk gerði sér vonir um, og
margt foreldra fylgist með af
vaxandi athygli.
Waage, varaforseti Erlingur
Pálsson og gjaldkeri, Þorgils
Guðmundsson. Ennfre muríþór
Guðmundsson. Ennfremur í-
þróttafulltrúi rikisins, Þorsteinn
Einarsson, sem stjórnaði fund-
inum.
Elliheimilið.
Guðsþjónusta kl. 10 árdegis,
séra Sigurbjörn Á. Gíslason.
Úr Skagafirði.
í fyrradag og daginn þar áð-
ur var unnið að því að ryðja
fl tfcthum Ceqit
snjó af veginum frá Sauðár-
króki og fram að Varmahlíð.
Hagleysi er um mikinn hluta
héraðsins.
Hæfnisglíma íslands
verður haldin fimmtudaginn
12. apríl 195 l.Þátttökutilkynn-
ingar berist til formanns glímu
deildar Ármanns, Sigfúsar Ingi-
mundarsonar, Miklubraut 34,
fyrir 7. apríl.
Laugarneskirkja.
Messa kl. 2 á morgun, séra
Garðar Svavarsson. Barnaguðs
þjónusta kl. 10,15.
Staðfestur íþróttabúningur
Umf. Breiðablik í Kópavogs-
hreppi, hefir fengið staðfest-
ann íþróttabúning: Bolur: Blár
með hvítum langröndum. Félags
merki á brjósti. Buxur: Bláar.
Jéfayáfíf
Skíðaferðir í Hveradali.
Laugardaga kl. 2 og kl. 6.
Sunnudaga kl .9, kl. 10 og kl.
13.30. Fyrir sunnudagaferð kl.
10 verður fólk tekið i úthverf-
unum og við Hlemmtorg, á
sama tíma og áður. Brekkan er
upplýst. Skíðalyftan 3 gangi.
Afgreiðsla Hafnarstræti 21.
Sími 1517.
Skíðadeild K.R.
Skíðafélag Reykjavíkur.
Vegna fjölda áskorana verða
Eldsvoðar og brunavarnir
íslendingur i Kaupmannahöfn, Vilhjálmur Bjarnar-
son, skrifar Tímanum svolátandi bréf um eldsvoða og
brunavarnir:
„í Tímanum 18. febrúar er í grein „Á förnum vegi“
vakin athygli á þeim miklu og tíðu eldsvoðum, sem
orðið hafa á íslandi í vetur og spurt, hvort ekkert sé
hægt að gera til að koma í veg fyrir þá. Spurning
þessi er mjög eðlilega, því að ég er alveg viss um að á
engu landi í Norður- og Vestur-Evrópu valda brunar
tiltölulega eins miklu tjóni og á íslandi, og þar sem
svo að segja allt, sem eldurinn eyðileggur, verður að
flytja inn frá öðrum löndum, eru þessir brunar fjár-
hagslega mjög hættulegir fyrir fámenna íslenzka þjóð-
félagið. Það er heldur ekkert vafamál að því meir sem
vélar og rafmagn ryður sér rúms, bæði i iðnaði og í
daglegu lífi fólks, því meiri verður eldhættan og því
nauðsynlegra er að gera eitthvað til að reyna að koma
í veg íyrir hana.
★ ★ ★
Ég er starfsmaður hjá stóru, dönsku iðnaðarfyrirtæki
og hafði, meðan á stríðinu stóð, töluvert að gera með
brunavarnir hjá því. Ég hafði þá samvinnu við „Dansk
Brandværns Komité,“ sem er félag, er danska rikið,
bæja- og sveitafélög, stærri iðnaöarfyrirtæki, vátrygg-
ingafélög og aðrir stofnuðu fyrir um 30 árum. Félagið
hefir forustu um það, sem nefnt er í greininni ,,Á förn-
um vegi“, — rannsókn á brunum og orsök þeirra, með
hliðsjón af því, hvað hægt sé að gera til að koma í veg
fyrir þá. Á grundvelli þessara rannsókna eru svo byggð-
ar leiðbeiningar, sem séð er um að nái tii fólks. Fé-
lagið hefir mjög góða samvinnu við slökkviliðin og
ásamt þeim kennir það fólki að einangra eld, fara með
slökkvitæki og þ. u. 1.
★ ★ ★
„Dansk Brandværns Kornité“ hefir sambönd við
samskonar félög í Noregi, Svíþjóð, Finnlandi og víðar,
og á einum aðalfundi félagsins, sem ég sat fyrir hönd
félags þess, sem ég vinn hjá, spurði ég forstjórann,
hvort þeir hefðu nokkra samvinnu við ísland. For-
stjórinn neitaði þessu, en sagði, að ef íslendingar ósk-
uðu þess, mundu þeir með mikilli ánægju láta þeim
í té allar þær upplýsingar og aðstoð, sem þeir gætu.
Máske yrðu íslendingar að skipuleggja brunavarnir
hjá sér öðruvísi en gert hefir verið í Danmörku, en
hitt er alveg víst, að „Dansk Brandværns Komité“
hefir mjög mikla reynslu í þessu og að það mundi borga
sig að athuga tilboð forstjórans.“
Hér er til umræðu mikið alvörumál, og leyfi ég mér
að vænta þess, að þessu innleggi Vilhjálms Bjarnar-
stíiiár •vérWVauMöí‘géfifch. j. h.
LEIKAR
SINFONIUHLJOMSVEITARINNAR
endurteknir í dag, laugardag kl. 4.30 s.d.
í Þjóðleikhúsinu.
Rússneska óperusöngkonan
NADEZDA KAZANTZEVA
syngur með undirleik hljómsveitarinnar.
ARAM KHATSJATURJAN
flytur 4 hljómsveitarverk eftir sjálfan sig.
Aðeins þetta eina sinn.
Aðgöngumiðar hjá Eymundsson, Lárusi Blöndal og
Bókum og Ritföngum.
::
„ÞESSI VIKUR er óviðjafnanlegt skjól-
efni. Hann svíkur' aldrei, er öruggur gegn
vatni, eldi og áhrifUm lofts. Hið hagkvæm-
asta efni, sem hægt er að liugsa sér til ein-
angrunar í íbúðarhúsum. Plötumar múr-
límast á steypuveggi þannig, að holrúm
myndast milli þeirra og veggjarins, eða að
þær eru negldar á tréundirlög, t. d. í ris-
hæðum. Þá eru skilrúmsveggir fljóthlaðnir
ög góðir úr vikurplötunum.
Vikurinn er mulinn og þveginn, aðgreindur
í mismunandi kornastærðir og blandaður í
vissum hlutföllum. Með því móti þarf
minna af sementi, sem bindiefni, en samt
verður steypan mjög sterk og einangrar að
sama skapi betur. Að því styður einnig
verulega hin fullkomna „vibration" aðferð,-
sem nctuð er við steypuna. Múrhúðun helzt
eins vel á þessum vikri og bezt verður á kos-
ið. Hægt er að saga, höggva og negla liann
sem tré.
Til mikilla þæginda er það, hvað veggir,"
einangraðir með vikrinum, hafa gott nagl-
hald fyrir myndir o. fl„ einnig hve múrhúð-
m un springur lítið, ef hún er vel sett á.
Mjög fer í vöxt að hlaða íbúðarhús og aðrar
byggingar úr vikurholsteininum. Reynist
það góður og fljótvirkur byggingarmáti.
Jafnframt því sem veggir úr honum eru
ágætlega hlýir án nokkurs sérstaks skjól-
Iags, eru þeir traustir og þola samkvæmfc
hérlendri reynslu og erlendum tilraunum
betur jarðskjálfta en steinsteypuveggir.“
Um heim allan vekur vikurinn sivaxandi athygli sem úrvals
byggingarefni.
Framleiðsla Vikurfélagsins h.f. (mölun, þvottur, kornablönd-
un, steypa, vélþurrkun) er samkvæmt nýjustu vísindalegum
tilraunum og tækni.
VIKXRFÉLAGIÐ II.F.
Hringbraut 121. Sími 80600.
/.VA^^V.VV.V.V.V.V.V.V.Y.V.V.V.V.V.VV.V.V.V.V.
AÐALFUNDUR |
Fæðiskanpcndafélags Rcyk|avíkux* !;
verður haldin í mötuneyti F. R. sunnudaginn 1. apríl
n. k. kl. 2 síðdegis. I*
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin
í
=:
W.V.V.V.V.V.V.’.V.V.V.'.V.V.V.V.^W.VAWV.V.V.V
Frestið ekki lengur, að gerast
áskrifendur TÍMANS