Tíminn - 10.04.1951, Blaðsíða 2
2.
TÍMINN> þriðjudaginn 10. apríl 1951.
80. blað,
J- ~jjTii_~i_fTijj_-'i_n.j~n ur.j-iuu-.-.. ' sfl)
hap tii keiía |
Útvarpið
Útvarplð í dag:
Morgunútvarp. — 9.00 Hús-
mæðraþáttur. — 10.10 Veður-
fregnir. 12.10—13.15 Hádegis-
útvarp. 15.30 Miðdegisútvarp. —
16.25 Veðurfregnir. 18.30 Dönsku
kennsla; I. fl. — 19.00 Ensku-
kennsla; II. fl. 19..25 Veður-
fregnir. 19.30 Tónleikar: Óper-
ettulög (plötur). 19.45 Auglýs-
ingar. 20.00 Fréttir. 20.20 Tón-
leikar (plötur). 20.50 Erindi:
Bismarck og verkalýðshreyfing
in í Þýzkalandi; síðara erindi
(Sverrir Kristjánsson sagnfræð-
ingur). 21.20 Einsöngur: Ger-
hard Husch syngur (plötur).
21.35 Lausavísnaþátturinn (Vil-
hjálmur Þ. Gíslason). 22.00 Frétt
ir og veðurfregnir. 22.10 Vin-
sæl lög (plötur). 22.30 Dagskrár-
lok.
Hvar eru skipin?
Ríkisskip:
Hekla fer frá Reykjavík í
kvöld vestur um land til Kópa-
skers. Esja er í Reykjavík.
Herðubreið er á Austfjörðum á
suðurleið. Skjaldbreið fer frá
Reykjavík í kvöld til Húnaflóa
hafna. Þyril er í Reykjavík. Ár-
mann fer frá Reykjavík í kvöld
til Vestmannaeyja.
Eimskip:
Brúarfoss fer frá Akranesi um
hádegi í dag 9.4. til Keflavíkur
j)g Reykjavikur og frá Reykja-
^ík annað kvöld 10.4. til Lond-
on og Grimsby. Dettifoss fór
frá Reykjavík 6.4. til ítalíu og
Palestínu. Fjallfoss fór frá Kaup
mannahöfn 7.4. til Leith og
Reykjavíkur. Goðafoss er í
Reykjavík. Lagarfoss fer frá
New York 10.4. til Reykjavík-
ur. Selfoss fór frá Hamborg 7.4.
til Antwerpen og Gautaborgar.
Tröllafoss er í Reykjavík. Dux
fór frá Kaupmannahöfn 3.4. til
Reykjavíkur. Hesnes fór frá
Hamborg 5.4. til Reykjavíkur.
Tovelil fermir í Rotterdam um
10.4. til Reykjavíkur.
Blöð og tímarit
Heilsuvernd,
tímarit N.L.F.Í., 1. hefti 1951,
er nýkomið út. Úr efni þess er
þetta helzt: Merkilegar mann-
eldistilraunir, eftir ritstjórann,
Jónas Kristjánsson lækni.
Hvernig ísland kom mér fyrir
sjónir (dr. Kirstine Nolfi). —
Heilbrigðar gulrófur (Jón Arn-
finnsson, garðyrkjumaður). —
Útflutt kjöt og sojabaunir
(Björn . Jónsson). — Húsmæðra
þáttur, bakstur úr heilhveiti
(frú Dagbjört Jónsdóttir). —
Ungbarn læknar sig með hrá-
um kartöflum (B. L. J.). —
Eiturefni í matvælum. — Fóstur
láti afstýrt með hráfæði. —
Læknar skýra orsakir krabba-
meins. — Spurningar og svör. —
Þingsályktunartillaga um út-
vegun heilnæmra fæðutegunda.
Merkileg Indíánaþjóð. — Á víð
og dreif. — Félagsfréttir o. fl.
Nokkrar myndir prýða ritið, sem
er hið vandaðasta að öllum frá-
gangi.
Úr ýmsum áttum
Rithöfundafélag fslands
hélt aðalfund 8. þ. m. Stjórn
félagsins var endurkosin: For-
maður Helgi Hjörvar, ritari frú
Svanhvít Þorsteinsdóttir, gjald
keri Sigurður Róbertsson, með-
stjórnendur Halldór Kiljan
Laxness og Tómas Guðmunds-
son, í stað Sigurðar Þórarins-
sonar, sem nú dvelst ytra. Hinir
sömu menn voru og kosnir full
trúar til Bandalags íslenzkra
listamanna.
é Félagið og stjórn þess beitiy
sér nú fastlega fyrir því að koma
á fullnaðarsamningum um rit-
höfundarétt í landinu, sam-
kvæmt hinum nýju höfundar-
lögum og reglum Bernarsam-
bandsins. Skýrði formaður frá
því á fundinum, hvar þeim mál
um væri nú komið og að rík-
isstjórnin mundi nú veita aðild
til samninga um þessi mál og
styðja að því að samningar kom
ist á og lögfest skipulag, en
þeta hefir dregizt lengur en
vera átti. Mörg önnur mál voru
rædd á fundinum.
Félagsmenn eru nú um 50.
»
Trúlofun.
Síðastliðinn laugardag opin-
beruðu trúlofun sína í Reykja-
vík ungfrú Halla Freysteins-
dóttir frá Akureyri og Örn
Eiðsson verzlunarnemi frá Búð
um í Fáskrúðsfirði.
Telja söluskatt toll-
vernd á erl. vörum
Á ársþingi iðnrekenda var
eftirfarandi ályktun sam-
, þykkt:
I „Ársþing iðnrekenda 1951 j
I telur að óhæfa sé að inn-
heimta söluskatt af heild-1
sölu innlendra iðnaðarvara
frá verksmiðjum, þar eð lög
nr. 100/1948, 21. gr., mæla svo
fyrir, að heildsala sé undan-
þegin söluskatti, og mótmæl-
ir þingið slíkri skattheimtu,
sem * kemur fram sem
tollvernd fyrir erlendar iðnað
arvörur."
Htkfeiiii ~Tímtmn
Fyrirætlun ungs manns.
Ungur maður í kaupstaðar-
ferð hitti einn af góðvinum
Tímans að máli um helgina.
Hann er ekki nema fjórtán
ára, en kominn í kaupstaðinn
til þess að útvega sér gaddavír
og girðingarstaura. Við tún-
jaJarinn heima hjá honum
rennur bæjarlækurinn undir
brekkuhalli, er veit mót suðri,
og eru þar litlir og skjólgóðir
hvammar og stórir stakir stein
ar á víð og dreif. Þarna hugs-
ar ungi maðurinn sér að girða
um það bil dagsláttu lands,
þegar klaki-fer úr jörðu, og
koma sér upp fallegum reit
með trjágróðri og blómskrúði.
Hann hefir þegar ekið þang-
að húsdýraáburði og látið
hann frjósa í vetur, og í vor
ætlar hann að gTÓðursetja
skjólbelti úr birki meðft-am
girðingunni, eitthvað af ösp
og víði við lækinn og fáeinar
reyniplöntur við fallegasta
livamminn, auk þess sem hann
er í útvegunum um fjölærar
blómjurtir. Þessu til viðbótar
ætlar hann að safna þarna
saman íslenzkum blómjurtum
eftir því, sem til hrekkur.
Flugferðir
Flugfélag Islands:
í dag eru ráðgerðar flugferð-
ir til Akureyrar, Vestmanna-
eyja, Blönduóss og Sauðár-
króks. Á morgun er áætlað að
fljúga til Akureyrar, Vestmanna
eyja, Hellissands og Sauðár-
króks.
Árnab heilla
Trúlofun.
Síðastliðinn laugardag opin-
beruðu trúlofun sína ungfrú
Benedikta Guðnadóttir og Páll
Árnason iðnnemi, bæði til heim
ilis á Selfossi.
|AUGLÝSING|
!; nm sölnskatt ;>
I; Athygli söluskattskyldra aðilja í Reykjavík skal vak-
I; in á því, að frestur til að skila framtali til skattstof-
•; unnar um söluskatt fyrir fyrsta ársfjórðung 1951, !;
•I rennur út 15. þ. m. I'
í !;
V Fyrir sama tíma ber gjaldendum að skila skattin-
I; um fyrir ársfjórðunginn til tollstjóraskrifstofunnar og i*
í afhenda henni afrit af framtali. ■!
!; Reykjavík, 9. apríl 1951, !■
;! Skattstjórinn í Reykjavík. ■!
!■ Tollstjórinn i Reykjavík. ;!
VðW.WAV.V.V.V.VAV.V.V.V.V.'.V.V.V.V.V.V.V.V
V.'AV.W.V.V.'AV.VAV.’.W.V.V.W.'.W.VW.'.W.V.V
S Skritstotn harnnrstiárnns í
4 tfcrHum Defit
JÖKLAFERÐIRNAR
íslendingar eru að gerast miklir jöklafarar. Fjórði
jökulleiðangurinn, sem fer á Vatnajökul á þessum
vetri, er í þann veginn að leggja af stað. Þrir þessara
leiðangra eru i sambandi við Geysisslysið og afleiðing-
ar þess. Hinn fjórði er svo rannsóknarleiðangur Jóns
Eyþórssonar.
Svona tíðar jökulferðir upp á hæstu bungur Vatna-
jökuls eru nýjung i öræfaferðum íslendinga, og þær
munu hafa fært þeim, sem tekið hafa þátt í þeim,
mikla reynslu um það, hvað hægt er í þessu efni og
hvað ber að varast. íslendingar verða betur undir
slíkar jökulferðir búnir en áður, þegar til þeirra þarf
að taka, hvort heldur er í rannsóknarskyni eða af
öðrum ástæðum. Þeir eiga orðið á að skipa allmörg-
um mönnum með reynslu og þjálfun og kunnáttu í
jökulferðum.
★ ★ ★
Til forna lágu leiðir manna landsfjórðunga á milli
yfir öræfin, og sagnir og örnefni, sem benda til þess,
að yfir Vatnajökul hafi verið farið. Þingreiðir kröfð-
ust þekkingar á hinum stytztu leiðum um landið þvert
og endilangt og einnig ferðir manna í ver og úr.
★ ★ ★
Seinna brá þoku hindurvitna og þjóðtrúar á öræf-
in. Fólk tók að óttast þau, og sú skoðun myndaðist,
að þær væru byggðir útilegumanna, sem væru fjand-
samlegir fólki niðri á láglendinu. Ferðir um öræfin
féllu niður, og það mun á sínum tíma hafa þurft eigi
litinn kjark til þess að hefja að nýju ferðir um þau.
Af þeim mönnum eru að vísu ekki miklar sögur, en
nóg er þó vitað til þess, að tiltæki þeirra hefir í margra
augum verið fífldirfska.
★ ★ ★
Nú um skeið hafa öræfaferðir verið svo margar, að
þær sæta ekki lengur tíðindum, nema til dæmis þegar
skíðamenn ganga um hávetur þvert yfir hálendið. Nú
eru tímar jökulferðanna í krafti nýrrar tækni og nýrr-
ar kunnáttu í ferðalögum vi§ þa.p.§kilyrði, seni. þar eru.
ám:*/ vwéiív*V;1 * * 1 J * '
Skrifstofa borgarstjórans.
RO N DO-þ votta vélar
Tekur 100 lítra.
i. !
Hefir 370 Watta mótor.
Vönduð. Sterk.
20 ára reynsla.
Talið við oss sem fyrst.
Verðið hagstætt.
I
STURLAUGUR JÓNSSON & CO.,
■! Hafnarstræti 15 — Simi 4680
/.■.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v
iVV.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.W
Séra Pétur Magnússon l
handtúkumálið)
fæst í bókabúðum !
í
V.’.
■ ■ ■■■■■•
.■.V/AV.V.V.V.V.V.'.V.V.V.V.V.V.V.V.V/.V.V.V.'AW
H Rauði Kross Islands ij
Aðalfundur verður haldinn í skrifstofu félagsins •!
!■ föstudaginn 18. maí 1951, og hefst kl. 14.
Dagskrá samkvæmt félagslögum.
I; Reykjavík, 7. apríl 1951.
;I " Framkvæmdaráðið. I;
avav.v.v.'.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.'.v.v.’.v.v.v.vJ
V.V.V.V.V.’.V.V.V.'.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.I
l| Kvenréttindafélags íslands heldur ■!
umr æðuf iind
um skólamál n. k. föstudag 13. þ. m. kl. 8,30 í Aðal- !■
i stræti 12. Frummælandi: Svava Þorleifsdóttir. Einn- «■
• «■
,■ ig verða framhaldsumræður um 19. júní. Félagskonur ■;
^ mega hafa með sér gesti. — Stjórnin. ■!
í ’ f
■.V.V.V.V.V.V.v.V.V.V.V.V.V.V.'.V.V.V.VV.V.V.V.V.V