Tíminn - 12.05.1951, Side 8
„A FÚRNlrn VEGI“ í DAGt
Sorphreinsun
Aurbleyta og verkföll á Suðuriandi:
Bændur óttast, að þeir fái ekki
útlenda áburðinn í tæka tíð
§
flLSstvinasalur, sem op-
! inn verður árið um kring
*k
í rval íslenzkrar myndlistar og’ listmuua
|>ar lil sýnis og sölu
Vegirnir > firleitt orðnir illfa»rir
Frá fréttaritara Tímans á Hvolsvelli.
Bændur I Rangárvallasýslu eru áhyggjufullir um þcssar
rrvundir. og óttast þeir, að þeim takist ekki að fá í tæka tiö
útlendan áburð, sem þeir þurfa að nota í vor.
Strætisvagni stolið
á Lækjartorgi
í fyrrakvölci var strætis-
vagni stolið, þar sem hann
stóð á Lækjartorgi. Gerðist
þetta á milli klukkan ellefu
og tólf um kvöldið. Fannst
hann seinna inn með sjó.
Þetta er í þriðja skipti á
einu misseri, að strætisvagni
er stolið.
Tók bílinn trausta-
taki — ók drukkinn
og réttindalans
í gærmorgun tók drukkinn
maður traustataki bíl, sem
hann hafði stundum haft að-
gang að, og fór á honum inn
í Sætún, þar sem hann ók á
annan bíl. Eigandi þess bíls
var nærstaddur og kom á vett
vang með vinnufélaga sinn.
Fór hann síðan sjálfur að
sækja lögregluna, en fól
vinnufélaga sínum að gæta
hins ölvaða manns.
Þegar lögreglan kom á vett
vang hafði maðurinn, sem
átti að gæta hins drukkna
bílstjóra ekið með hann í
farartæki hans í bifreiðaverk
stæði. Fannst ævintýramað-
urinn seinna mjög drukkinn
í matstofu i bænum, og hafði
hann þá ekið bifreiðinni þang
að frá bifreiðaverkstæðinu.
Maður þessi hafði ekki einu
sinni bílstjóraréttindi.
Attatíu norsk skip
á Grænlandsmiðum
Þorskveiðar Norðmanna
við Vestur-Grænland hafa
færzt mjög í aukana síðan
stöðin í Asgrikohöín, ör-
skammt innan við Færeyinga
höfn, var stofnsett. ,
Á þessu vori munu það vera
um áttatiu fiskiskip frá
Noregi, sem stunda vorfiski á
þessum slóðum. Hefir komið
til orða að veita þeim fiski-
mönnum ívilnun um skatta,
sem Grænlandsveiðar stunda,
þar eð þeir verði að dvelja-
fjarri fósturjörö sinni í nær
hálft á,r við frumstæðustu
skilyrði og lélega aðbúð að
ölu leyti. Þykir þá líklegt, að
fleiri vildu ráða sig á Græn-
landsförin en nú er, svo að
unnt væri að auka verulega
íiskveiðar Norðmanna þar.
Aurbleyta og verkföil.
Vegir austur eru nú illfær
ir sökum aurbleytu og vað-
ast upp uridan umferðinni,
svo að vel getur svo farið, að
ófært verði með öllu. Á hinn
bóginn eru svo verkföll, sem
vandséð er hvenær leysast og
koma í veg fyrir, að vegun-
um sé haldið við og þeir gerð-
ir sæmilega færir bifreiðum.
Flutningar aðeins byrjaðir.
Byrjað er að flytja áburð-
inn austur, en hin vonda færð
tefur fiutningana stórlega, og
geta afleiðingarnar orðið al-
varlegar fyrir fjölda bænda,
enda þðtt reynt verði að
fremsta megni að sigrast á
flutningaerfiðleikunum.
Svipuð vandamál
í Árnessýslu.
Bóndi úr Árnessýslu, sem
kom í ritstjórnarskrifstofur
Tímans í fyrradag, sagði, að
við samskonar vanda væri
þar að stríða, þar eð vegir í
margar sveitir Árnessýslu eru
í rauninni ófærir, en lltið af
áburði komið heim til bænda.
Farið í sundæfingu
um hvítasunnuna
Keppni í samnorrænu sund
keppninni hefst hér á landi
20. mai. Eftir að hún er hafin,
má til dæmis búast við þvf,
að sundhöllin í Reykjavík
verði alla jafna upptekin af
fólki, sem tekur þátt í keppn
inni.
Hér í bænum er hins vegar
mikið af fólki, sem á sínum
tíma hefir lært sund í al-
þýðuskólunum og annars stað
ar, en ekki komið í vatn að
kalla árum saman. Þetta fólk
þarf að æfa sig, áður en það
tekur þátt í keppninni. Og
þaö eru síðustu forvöð að
gera það þessa daga fram að
20. maí.
Merkjasala Hallveig
arstaða gekk vel
Merkjasala Hallveiðarstaða
4. maí gekk vel að þessu sinni,
og munu komnar inn um 18
þúsundir króna, en þó hafa
ekki enn borizt full skil utan
af landi. í fyrra gaf merkja
salan af sér um níu þúsund
krónur.
Forgöngukonurnar hafa
beðið Tímann að færa öllum
þakkir, sem seldu og keyptu
merkin.
Enn jarðfaust á bæj-
ím í Vopnafirði
Frá fréttaritara Timans
í Vopnafirði.
Góð þíða hefir verlð hér að
undanförnu, en þó er enn eng
in jörð komin upp á þremur
innstu bæjum í Selárdal, og
hagi enn litill undir Fjalla-
síðunni. En snjóinn leysir nú
óðum, svo að brátt mun
batna um haga.
Jörðin kemur græn undan
eldri snjónum, en næturfrost
hafa verið, svo að gróðurinn
hefir visnað í broddinn.
Síðast var næturírost á
f immtudagsnóttina.
í dag tekur til starfa hér í bæ nýstárleg stofnun, sem vekja
mun ánægju þeirra, sem yndi hafa af myndlist og listmuna-
gerð. Hafa tveir ungir menn tekið sig til og gengizt fyrir því
að stofna „!5stvinasal“, en svo nefnist þetta nýja menninga>
fyrirtæki. Stofnanir sem þessi eru vel þekkt fyrirbrigði í
flestum menningarlöndum, og er ánægjulegt, að þessari starf
semi hefir nú einnig verið komið upp hér fyrtr forgöngu
Gunnars Sigurðssonar og Björns T. Björnssonar listfræðings.
í húsi Ásmundar Svein'ssonar.
Listvinasalurinn er í bygg-
ingu þeirri, er Ásmundui
Sveinsson myndhöggvari
reisti á horni Mímisvegar og
Freyjugötu, og hefir innrétt-
ingu húsnæðisins verið breytt
mjög frá því sem áður var.
Sýningarsalurinn er hinn
skemmtilegasti, og hlutunum
þannig komið fyrir, að lista-
verkin njóta sín vel. Hafa
þeir félagarnir, Gunnar og
Björn, lagt mikla vinnu og
rækt við að gera salinn heim
ilislegan og aðlaðandi.
Ákvæði húsaleigulag-
anna um hámarksleigu
Samkvæmt bráðabirgðalögum þeim, sem sett voru fyrir
skömmu um hámark húsaleigu og fleiri takmarkanir á ráð-
stöfnnarrétti eigenda á húsnæði, er húsnæði skipt í þrjá
flokka, og ákveðin hámarkshúsaleiga á fermetra í hverjum
flokfri.
Sjö, níu og ellefu krónur.
í einum flokknum eru hús,
sem tekin voru til afnota fyr
ir 1. janúar 1942, og má leiga
vera þar hæst sjö krónur á
mánuði fyrir hvern fermetra
gólfflatar íbúðarhúsnæðis,
miðað við utanmál. í hús-
um, sem tekin voru til afnota
árin 1942—1945,. að báðum
meðtöldum, sé hámarksleigan
niu krónur, en í húsum, sem
farið er aðnota eftir 1. janú-
ar 1946 sé hún hæst ellefu
krónur.
Húsaleigunefndir eiga að
I hlutast til um, að þessu sé
framfylgt.
Bannað að leigja
aðkomumönnum.
Þá er einnig bann lagt við
því að leigja aðkomumönn-
um íbúðarhúsnæði, nema það
séu opinberir starfsmenn rík-
is eða bæja, þingmenn eða
nemendur í skólum rikisins
eða ríkisstyrktum skólum. Þó
má húsaleigunefnd veita und
anþágu frá þessu ákvæði, ef
sérstaklega stendur á.
Utanhéraðsmönnum er ó-
heimilt að flytja í hús, sem
þeir kunna að kaupa í kaup-
túni eða kaupstað eftir gildis-
töku þessara nýju húsaleigu-
laga.
',7T V
I Grikklandi var fyrir nokkru fagnað 130 ára sjálfstæði
Grikkja. Fór þá meðal annars fram hersýning í viðurvist
Páls konungs og ráðuneytis hans. Var mikið um að vera á
götum hinnar fornfrægu höfuðborgar Grikkja þennan há-
tíðisdag.
í listvinasalnum á jafnan
að vera til sölu úrval máJ-
verka, höggmynda, svartlist-
ar og annarra listmuna, svo
sem vefnaðar og silfursmíði.
Eingöngu verða þarna munir
eftir íslenzka listamenn, og
verður skipt að nokkru um
listaverk á 10—14 daga fresti.
Salurinn verður opinn dag-
lega frá 1—8 síðdegis og til
hálf-ellefu á fimmtudags- og
sunnudagskvöldum, Aðgang-
ur er ókeypis.
Fyrst um sinn verða uppi
í salnum listaverk sem hér
segir:
Málverk og vatnslitamynd-
ir eftir Ásgrím Jónsson,
Barböru Árnason, Gunnlaug
Scheving, Hrólf Sigurðsson,
Jóhannes Jóhannesson, Jó-
hannes S. Kjarval, Júlíönu
Sveinsdóttur, Karl Kvaran,
Kjartan Guðjónsson, Krist-
ján Davíðsson, Magnús Árna
son, Sigurð Sigurðsson,
Snorra Arinbjarnar, Skarp-
héðin Haraldsson, Sverri Har
aldsson, Valtý Pétursson, Vig
dísi Einarsdóttur, Þorvald
Skúlason, Örlyg Sigurðsson.
Myndvefnaður eftir Ásgeröi
Ester.
Höggmyndir eftir Ásmund
Sveinsson, Gerði Helgadóttur,
Sigurjón Ólafsson,
Grafik eftir Ásgerði Ester,
Jón Engilberts.
Silfur eftir Björn Halldórs-
son.
Keramik frá Laugarnes-
leir.
(Framnald á 7. síðu.)
Glímumannafund-
ur í dag
Stjóm glímuráðsins gengst
fyrir almennum glímumanna
fundi í Aðalstræti 12 í dag,
og hefst fundurinn klukkan
þrjú. Á þessum fundi verður
rætt um glímulögin nýju.
Akranesbátar með
yfir 2 jnís. lúður í
síðustn viku
Frá fréttaritara Tímans
á Akranesi.
Fimm bátar, sem stunda
lúðuveiðar frá Akranesi, afla
vel í Jökuldjúpi. í vikunni
komu fjórir þeirra inn með
ágætan afla. Keilir með 738
lúður rösklega 16 smálestir,
Guðmundur Þorlákur 625 lúð
ur 14 smálestir, Böðvar 498
lúður tæplega 11 smálestir og
Njáil úr Reykjavík 315 lúður
um 7 lestir.