Tíminn - 06.06.1951, Síða 2
2.
TÍIVIINN, miðvikudag'mn 6. júní 1951.
—
123. blaff.
ÚtVOfplb
Útvarpið í dág:
8.00—9.00 Morgunútvarp. —
10.10 Veðurfregnir. 12.10—13.15
Hádegisútvarp. 15.30 Miðdegis-
útvarp. — 16.25 Veðurfregnir.
19.25 Veðurfregnir. 19.30 Tón-
leikar: Óperulög (plötur. 19.45
Auglýsingar. 20.00 Fréttir. 20.30
Erindi: Þættir úr sögu Barna-
skóla Akureyrar (Snorri Sigfús-
son námsstjóri. 21.00 Tónleikar
úr afmælisdagsskrá Mannrétt-
indaskrár Sameinuðu þjóðanna
(teknir á plötur í Metropolitan-
óperunni í New York 10. des.
s. l.j. 22.00 Fréttir og veður-
fregnir. 22.10 Framhald sömu
tónleika. 22.30 Dagskrárlok. ,
Hvar eru skipin?
Sambandsskip:
Hvassafell er í Patras. Arnar-
fell fór frá Napólí í gærkvöldi
til ibiza. Jökulfell fór frá N.Y.
31. f.m., áleiðis til Ecuador.
Eimskip:
Brúarfoss er í Hamborg. Detti
foss fer væntanlega frá Leith
í kvöld 5.6. til Reykjavíkur. Goða
foss er í Reykjavík. Gullfoss er
í Reykjavík. Lagarfoss fór frá
Reykjavík 2.6. til Dublin og
Hamborgar. Selfoss kom til
Reykjavíkur í morgun 5.6. frá
ísafirði. Tröllafoss er í New
York. Katla kom til Gautaborg
ar 30.5. frá Reykjavík. Hans
Boye fór frá Odda í Noregi 1.6.
til Reykjavíkur.
Ríkisskip:
Hekla er í Reykjavík og fer
þaðan á föstudagskvöld til
Glasgow. Esja var á ísafirði í
gærkvöld á norðurleið. Herðu-
breið fór frá Reykjavík í gær-
kvöld austur um land til Bakka
fjarðar. Skjaldbreið var vænt-
anleg til Reýkjavíkur í nótt að
vestan og norðan. Þyrill er norð
anlands. Ármann fer frá Reykja
vík í dag til Vestmannaeyja.
Flugferðir
Fiugfélag íslands:
Innanlandsflug: í dag er á-
ætlað að fljúga til Akureyrar,
Vestmannaeyja, Saúðárkróks,
Hellissands, Siglufjarðar, Isa-
fjarðar og Hólmavíkur. Á morg
un eru ráðgérðar flugferðir til
Akureyrar, Vestmannaeyja,
Seyðlsfjarðar, Neskaupstaðar,
Reyðarfjarðar, Fáskrúðsfjarðar,
Sauðárkróks, Blönduóss, Siglu-
fjarðar og Kópaskers.
Millilandaflug: Gullfaxi kom
frá London í gærkveldi.
Loftleiðir:
í dag er áætlað að fljúga til
Akureyrar, Vestmannaeyja, Isa
fjarðar, Patreksfjarðar, Hólma-
víkur og Sauðárkróks. Á morg-
un er ráðgert að fljúga til Ak-
ureyrar og Vestmannaeyja. :
Árnað heilto
Hjónaband.
26. f. m. vorú gefin saman
í hjónaband af séra Sigurjóni
Þ. Árnasyni ungfrú Hrafnhild-
ur Helgadóttir, Heiðavegi 40
í Vestmannaeyjum, og Guðbjörn
Guðjónsson bryti á Vatna-
jökli, til heimilis að Hamrahlíð
Úr ýmsum áttum
Eiðaskóli.
Prófum í landsprófsdeild Eiða
skóla lauk 31. maí. Miðskólapróf
þreyttu 32 og stóðust það 27.
Frdmhaldseinkunn hlutu 19.
Hæstu einkunnir hiutu Bragi
Gunnlaugsson á Setbcrgi í Fell
ka/ji til keiía j
um, 8,43, og Helgi Hallgrímsson
á Droplaugarstöðum í Fljóts- _ '”<•
um, 8,43, og Helgi Hallgrímsson
á Droplaugarstöðum í Fljóts-
dal, 8,22. Prófdómari var Þór-
hallur Guttormsson stud. mag.
Ráðgert er að skipta þriðja
bekk næsta vetur í landsprófs-
deild og gagnfræðadeild með
mjög aukinni kennslu i verk-
legum gréinum.
1 trúlofunarfrétt
hér í blaðinu 3. þ. m. hafa
misritast heimilisföng þeirra
Arnhildar Jónsdóttur, Berg-
staðastræti 50B, ekki 12B og
Sigurðar Kjartanssonar, Berg-
staðastræti 50A, ekki 40A. Hlut-
aðeigendur eru beðnir velvirð-
ingar á þessum mistökum.
Heiðursmerki.
Fyrir hönd könungs Svíþjóð-
ar hefir sænski sendiherrann
afhent sænska ræðismannin-
um á Akureyri, Jakob Frimanns
syni, riddarakross Konunglegu
Vasaorðunnar.
Ráðagóð stúlka.
Tímanum heiir borizt svo-
látandi bréf frá þýzkri stúíku,
Elfriede Sútterlin, Wollbach b.
Lörrach-Baden, sent til „ein-
hvers dagblaðs í Reykjavík“:
„í þýzku vikuriti hefi ég les-
ið, að margar þýzkar stúlkur
hafi farið til vinnu á íslandi.
Eg er 27 ára gömul, hraust og
lagleg og bý hrjá foreldrum mín
um. Eg er vön matreiðslu og
hefi yndi af heimilisstörfum.
Væri kostur á því fyrir mig
að fá stöðu, til dæmis á heimili,
þar sem húsmóður vantar? —
Virðingarfyllst, Elfriede Sútter-
lin.“
Þetta er sem sagt bréf hinnar
ráðagóðu stúlku í Lörrach.
Bæjartogarinn Elliði
kom heim til Siglufjarðar í
gærmorgun með um 420 lestir
af fiski, aðallega karfa eftir 10
daga útivi.st. 1 kringum >00 smá
*
A tfcfHUfll l&W/V
lestir af karfanum verður unn-
ið í hraðfrystihúsunum, en hitt
brætt í síldarverksmiðju bæj-
arins, Rauðku. *
Gagnfrseðaskólinn
(Framhald af 8. síðu.)
endur tekið allmikinn þátt í at-
vinnulífi bæjarins samtímis
náminu, því að oft hefir heil-
um bekkjum verið gefið frí til
að fara í vinnu, þegar mikil
þörf hefir verið á vittnuafli við
höfnina og í frystihúsunum.
Hæsta einkunn í skólanum
hlaut Halldóra Árnadóttir 1.
bekk D, verknámsdeild. Gagn-
fræðaprófi luku 22 nemendur,
þar af 4 landsprófi miðskóla.
Hæsta einkunn í gagnfræða-
prófi hlaut Guðjónína Sigurðar
dóttir, I. 8,56. Gagnfræðingar
og kennarar eru nú í fræðslu-
og skemmtiferð um Vestfirði.
ngninatuBninnnnunu
TILKYNNING
frá Skógrækt ríki.sliis «u
Skó^ræktariólagi Koykjavíkiir.
um afhendingu pantaðra tr jáplantna
Afhending pantaðra trjáplantna hefs tþriðjudaginn
5. júní á Sölvhólsgötu 9, klukkan 1 eftir hádegi. Af-
hendingin heldui- síðan áfram næstu daga frá klukk-
an 9—6.
Sala á runnum og plöntum, sem afgangs verða, hefst
síðar á sama stað.
mrmimnmnunnnmnn:::::::;::::
WWV.W.V.V.V.V.W.’.V.V.V.V.V.V.V.W.V.V.V.'AV
|j Strætisvagnar Reykjavíkur {
tilkynna
SKIPAÚTG6KÐ
RIKISINS
„ESJA“
austur um land til Siglufjarð
ar hinn 12. þ. m.
Tekið á móti flutningi til
Fáskrúðsfjarðar, Reyðarfjarð
ar, Eskifjarðar, Norðfjarðar, |
Seyðisfjarðar, Þórshafnar, j
Raufarhafnar, Kópaskers og
Húsavíkur í dag pg á morgun. j
Farseðlar seldir árdegis á
laugardaginn.
Frá og með mánudeginum 4. júní s.l. hækkuðu far-
gjöld á leiðinni Lækjartorg-Lækjarbotnar sem hér segir
Börn að 12
Fullorffnir ára aldri
Lækjartorg—Lækjarbotnar .... kr. 3,50 kr. 2.00
Lækjartorg—Hólmsárbrú ..... kr. 3.50 kr. 1.75
Lækjartorg—Trippanef ...... kr. 2.50 kr. 1.50
Lækjartorg—Baldurshagi .... kr. 2.00 kr. 1.25
Lækjartorg—Selás .......... kr. 1.50 kr. 1.00
Strsotisvagnar Reykjavíkur.
I
I
Y.VW.W.V.V.V.V.’.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.W.-y
Stækkun landhelginnar
Á sjómannadaginn voru fluttar margar ræður, og í
þeim vikið að mörgum málum, sem sjómannastétt-
ina varða. En kjarni þess, sem þá var sagt, var krafan
um víkkun landhelginnar íslenzku. Með þeim mikla
flota erlendra togara, sem er hér við land að veiðum,
er fiskistofninn á miðunum í voða, ef ekki eru gerðar
ráðstafanir honum til verndar, og fisjiveiðar við ís-
lands strendur dæmdar til þess að verða starf, sem
gefur einstaklingunum lítið fyrir erfiði sitt, og færir
þjóðarbúinu sirýrnandi tekjur.
★ ★ ★
Þaö er því eitt stærsta fjárhagsmál okkar, að fiski-
stofninum verði veitt eðlíleg vernd með stækkun land-
helginnar. Viðurkenning erlendra þjóða á slíkri ný-
skipan væri betri öllum Marshallgjöfum, því að það
væri stuðningur til þess að hjálpa þjóðinni til þess að
bjargast sjálf af islenzkum gæðum í stað þess að vera
snikjudýr og betlilíður meðal þjóðanna. Það værj okk-
ur til handa eins konar líftrygging, sem miðlaði okk-
ur gjöfum, er við getum þegíð kinnroðalaust og með
fgullri sæmd um ókomin ár.
★ ★ ★
Þetta stórmál verður hins vegar ekki leyst, nema
fast sé á knúið af íslenzkum stjórnarvöldum og þeim
erlendum þjóðum, sem finnst sínum hagsmunum
hnekkt með rúmkun íslenzku landhelginnar sé gert
fyllilega ljóst, hvilíkt alvörumál er hér á ferðinni —
mál, sem ekkj hefir minni þýðingu fyrir framtíð og
afkomu íslenzlcu þjóðarinnar en það hefði til dæmis
fyrir Bretland, að brezku kolanámurnar væru upp-
urnar af útlendingum, svo að til fullra þurrðar horfði
og grundvöllurinn undir atvinnulífinu væri að rask-
ast. íslenzka þjóðin hlýtur að líta svo á, að hún eigi
lándgrunn íslands og þær nytjar, sem það gefur, eigi
að koma í hennar hlut. Hún hafi óskertann rétt til
þess að gera þær ráðstafanir, er þarf til þess að gæð-
um þess sé ekki tortímt með rányrkju, þótt hún vilji
gera slíkar breytingar í vinsamlegu samráði við bá,
sem helzt stunda veiðar hér við land, ef slíks er nokk-
ur kostuf. J, H.
AUGLÝSING
um oiulur|£rolðNlii innflutningNgJalds
af bonzíni
Afhending pantaðra trjáplantna hefst þriðjudaginn
af benzíni, notuðu til annars en bifreiða, hafa nú ver-
ið afgreiddar og endurgreiðslur sendar sýslumönnum
og bæjarfógetum.
Fjármálaráffuneytið, 5. júní 1951.
»
.iiiiiiKuinagaiarxag
Þakka hjartanlega alla samúð, blóm og skeyti viff and-
lát og jarffarför móður minnar
GUÐRÚNAR JÓNSDÓTTUR
frá Þúfu
Fyrir mína hönd og annara vandamanna
Stefán Hansson
Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð og vinarhug
við andlát og jarðarför elsku litlu dóttur okkar og systur.
Guð blessi ykkur öll.
Lilja Árnadóttir Guðjón Jónsson
Rúnar Guðjónsson Ingi Guðjónsson
Konan mín
ÞÓRUNN ÞÓRÐARDÓTTIR
frá Meiri-Tungu
verður jarðsett laugardaginn 9. þ. m. Athöfnin hefst
á heimili hennar kl. 11 f. h. Jarðsett veröur að Árbæ.
Þorsteinn Jónsson