Tíminn - 14.06.1951, Síða 1

Tíminn - 14.06.1951, Síða 1
/X*x - 1 Sr Ritstjórl: Þórarinn Þórarinsson Préttaritstjóri: Jón Helgason . Útgefandi: Framsóknarílokkurinn --------------------■— Skrifstofur í Edduhúsi Fréttasímar: 81302 og 81303 Afgreiðslusími 2323 Auglýsingasími 81300 Prentsmiðjan Edda -----------------------— 35. árgangur. Reykjavík, fimmtudaginn 14. júní 1951. 130. blað. Landssveitin hæst á bridgemótinu Þriðja umferð var spiluð í fyrrakvöld og fóru leikar þannig, að sveit Lárusar Karls sonar vann Agnar Jörgensen með 81 stigi gegn 15, "Róbert Sigmundsson vann Sigurð Kristjánsson með 44:26, Ragn ar Jóhannesson vann Friðrik Hjaltason með 55:33, Egill Sig urðsson vann Guðlaug Gísla- son með 48:34, Stefán Stefáns son vann Árna Þorvaldsson með 46:30, Ásbjörn Jónsson vann Gunngeir Pétursson með 52:27 og Grímur Thorarensen vann Helga Benónýsson með 53:40. í gærkvöldi fór fjórða umferð fram og spiluðu þess ar sveitir þá saman: Lárus við Róbert, Ragnar við Egil, Stefán við Agnar, Sigurður við Ásbjörn, Friðrik við Grím, Guðlaugur við Gunngeir og Árni við Helga. Eftir þrjár umferðir var staðan sú, að sveit Lárusar Karlssonar, landssveitin, hafði unnið alla sína leiki og hlotið 6 stig. Róbert Sigmunds son 5 stig og sveitir Stefáns Stefánssonar, Egils Sigurðs- sonar og Ragnars Jóhannes- sonar 4 stig hver. Rafskinna komin í skemmugluggann HAPPDRÆTTI L.B.K. Landssamband blandaðra kóra efnir til happdrættis um flugvél þá, sem mynd þessi er af. Þetta er 3ja manna Piper Cub vél. Flugvélar af þessari gerð eru traustar, öruggar og endingargóðar. Því til sönnunar má geta þess, að 1947 var tveim vélum af þessari gerð flogíð umhverfis jörðina, 36 þús. km. leið, og höfðu þær meðal annars viðkomu hér á íslandi. Aðrir vinningar í happdrætti þessu eru. Flugferð til Norður- landa, málverk eftir Kristinn Pétursson og ferð til Akureyr- ar. Eins og sjá má eru þetta allt glæsilegir vinningar og þeír, sem gaman hafa að því að freista gæfunnar, ættu ekki að Iáta þetta tækifæri ónotað. Dregið verður 20. júní. Miðar fást í flestum bókaverzlunum bæjarins. Ný fiskimjölsverk- smiðja á Dalvík Reyml í fyrra. vlnnsla hófst í vor I vor hófst vinnsla í nýrri fiskimjölsverksmiðju, sem Kaup- félag Eyfirðinga lét reisa á Dalvík síðastliðið ár. Hefir hún þýðingarmiklu hlutverki að gegna til hagsbóta fyrir útgerð Dalvíkinga. Tvö skip með brota- járn dregin til Englands Panamuskip, seni strandaði við \jarðvik o«' g'amall línuveiðari í síðnstn sjóferð í gær veittu margir bæjarbúar athygli einkennilegum skipaferðum á ytri höfninni. Gamall og illa farinn skipskláf- ur var þar á ferð í fylgd með síldarleitarskipinu Fanney og dráttarbát frá höfninni. Panamaskip, af pólskum uppruna. Þarna var komið skip nokk- urt, er strandaði fyrir þremur árum undan Njarðvíkum. — Náði Magni skipinu á flot og dró það inn í Elliðaárvog, þar sem það hefir verið síðan, þar sem ekki þótti tiltækilegt að gera það út til sjóferða að nýju. Þegar skipið strandaði, var það í flutningaferð til landsins og sigldi undir fána Panama, en áhöfnin var pólsk og svo hafði skipið einnig ver- ið. — Brotajárn til Englands. Orsök þess, að skip þetta er dregið á flot að nýju og fært inn á Reykjavíkurhöfn er sú, að því er nú ætlað að leggja upp í eina sjóferð, sem vænt- anlega verður sú síðasta. Á að fylla skipið með brotajárni og draga það síðan með farminn til Englands, þar sem það, að því hlutverki loknu, verður sjálft höggvið upp í brotajárn. (Framhald á 2. síðu.) Brú á Kerlingar- dalsá hjá Fagradal Á aðalíundi Kaupfélags Skaftfellinga var samþykkt áskorun til rikisstjórnar og vegamálastjóra að sjá svo um að Kerlingardalsá verði brúuð hjá Fagradal þegar á næsta ári, og fól fundurinn þing- manni kjördæmisins að fylgja þessu fast eftir. Ennfremur var samþykkt eftirfarandi tillaga varðandi varahluti í vöruflutningabif- reiðar: „Aðalfundurinn mótmælir kröftuglega þeim ráðstöfun- um ríkisstjórnarinnar, að varahlutir til vöruflutninga- bifreiða séu fluttir inn fyrir ,,bátagjaldeyri“. Þar sem flutn ingar að og frá félagssvæðinu fara allir fram með bifreiðum, segir það sig sjálft, hversu slikar ráðstafanir stórauka (Framhald á 2. siðu.) Rafskinna er enn einu sinni komin í skemmuglugga Har- aldar, vegfarendum til augna yndis. Margir þurfa að staldra við til þess að sjá, hverju Raf- skinna býr yfir þessu sinni, því að alltaf hefir hún eitt- hvað nýtt að flytja, og um- búnaður hennar er að vanda skemmtilegur og smekklegur. Jón Kristinsson hefir teikn- að auglýsingarnar af hug- kvæmni og vandvirkni. t Það væri sjónarsviptir að því, ef Rafskinna kæmi eitt- hvert árið ekki i skemmu- gluggann, en pem betur fer virðist hún vera orðin hér um bil jafn óskeikul og himin- tunglin. Innbrot í veit- ingastofu í fyrrinótt var innbrot fram ið í veitingastofuna Skeifuna við Tryggvagötu, og var stolið þar sígarettum, neftóbaki, vindlum, teskeiðum og áíeggi. Rannsóknarlögreglan hand tók í gær mann, sem grunaður var um innbrotið, og meðgekk hann síðar í gær. Hins vegar telur hann sig ekki muna, hvað hann hafi gert við þýfið. Rannsóknarlögreglan biður þvi þá, sem einhverjar bend ingar kynnu að geta gefið, að láta vita um það. Verksmiðjuhúsið er skemma mikil, en vinnsluvélarnar eru brezkar. Var hún reynd í fyrra, en tók að fullu til starfs í vor, og hefir vinnslan geng- ið vel. Getur verksmiðjan unn ið 24 smálestir af fiskúrgangi eða 250—300 mál síldar á sól- arhring. Verksmiðjan stendur sjávar meginNvið frystihús kaupfé- lagsins á Dalvík og fylgir henni hentugt athafnasvæði. Verksmiðjustjóri er Tryggvi Jónsson frystihússtjóri á Dal- vík. Flugferðir norður fyrir heimskauts- baug Ferðaskrifstofan efnir nú umjsólstöðurnar til flugferða norður yfir heimsskautsbaug. Voru slíkar flugferðir á veg- um hennar í fyrrasumar og þóttu mjög skemmtilegar. Fei’ðir þessár verða nú tekn ar upp aftur 21. og 22. júní. Á aö fljúga norður yfir há- lendið og út til hafs, noröur fyrir heimsskautsbauginn. — Verður lagt af stað úr Reykja- vík klukkan hálf-ellefu að kvöldi, og verið yfir heims- skautsbaugnum um miðnætt- ið, er sólin er við hafsbrún í hánorðri. Komið verður aftur á Reykjavikurflugvöll klukk- an eitt til hálf-tvö að nóttu. Nýalssinnar safna fé til bygg- ingar stjörnusambandsstöðvar Yerður rannsóknarstöð «j»' miðstöð þeirra, or aðhvllast koniiing.tr dr. Holg'a Pjoinrss Félag Nýalssinna, er stofnað var I vetur til þess að kynna kenningar dr. Helga Pjeturss um þróun lífsins, framhaldslíf á öðrum jarðstjörnum og samband hnatta á milli, hefir mik- ið í huga. Félagið hefir ákveðið að hefja fjársöfnun til stjörnusambandsstöðvar, sem mun eiga að verða eins konar musteri og miðstöð Nýalssinna. Stjórnendur félagsins, Svein björn Þorsteinsson, Þorsteinn Guðjónsson og Sigurður F. Ólafsson, hafa beðið Tímann fyrir svolátandi ávarp: „Góðir samlandar! Félag Nýalssinna hefur á- kveðið áð efna til fjársöfnun- ar í því skyni að byggja stjörnusambandsstöð í Reykja vík. Stjörnusambandsstöð er hús, sem er sérstaklega ætlað . tll þess að leita sambands við íbúa annarra hnatta. Verður þetta fyrsta hús þeirrar teg- undar á þessum hnetti. Kunn ugt er mönnum af ritum dr. Helga Pjeturss, með hvaða aðferðum hægt er að ná sam- bandi við aðra hnetti. Verður við stjörnusambandsstöðina, þegar liún kemst upp, að sjálf sögðu byggt á uppgötvunum dr. Hélga um þessi efni. Ekki þarf að taka fram við þá, sem lesið hafa Nýala dr. Helga, hvílík nauðsyn það er að byggja stjörnusambands- stöð, og komast þannig i full- komnara samband en verið hefir við lífið á öðrum hnött- um. — Heitum vér svo á alla þá, sém styðja vilja stærsta framfaramál vorrar aldar, að leggja fram nokkurt fé til byggingar stjörnusambands- stöðvarinnar, hver eftir sín- um efnum. Sigurður Ólafsson, Skafta- hlíð 5 (eða c.o. Fálkinn Lauga vegi 24), Reykjavík tekur við framlögum manna." Vísindalegar rannsóknir fyrirhugaðax. í þeseari íyrirhuguðu stjörnusambandsstöð Nýalas- sinna mun eiga að fram- kvæma sérstakar rannsókn- ir á ýmsum fyrirbærum, sem þeir telja, að stafi frá íbúum (Framhald á 2. síðu.) Rifsnesið aflar enn vel við Grænland Síðan Rifsnesið kom til Grænlands hefir það mokað upp aflanum látlaust. í síð- asta símskeyti frá Rifsnesinu hermir, að veiðihorfurnar séu enn góðar. Skipstjóri á Rifsnesinu er hinn kunni aflamaður, Val- garður Jóhannsson. Skips- höfnin eru 16 samvaldir menn og vanir útilegu. Víkingur sig'raði Fjórði leikur íslandsmóts- ins í knattspyrnu var háður á íþróttavellinum í gærkveldi, og sigraði Vikingur Fram með fjórum mörkum gegn engu. í kvöld keppa K.R. og Val- ur. - /

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.