Tíminn - 15.06.1951, Síða 2

Tíminn - 15.06.1951, Síða 2
2. TÍMINN, föstudaginn 15. júní 1951. 131. falaff. Hðfum flutt fatahreinsun okkar og afgreiðslu úr Borgartúni 3 í Höfðatún 2 NÝJA EFNALAUGIN Höfðatúni 2, Laugavegi 20B, — Sími 7264 ■•.w.v ti L-_^TiL-uwn.jn_iuTiar^Tj,n_^iTLj^.-ruL-r“—_-r- Orá hafi til heila j ÚtvarpLb íftvarpið í kvöld: Fastir liðir eins og venjulega. Kl. 20,30 Útvarpssagan: „Faðir Goriot“ eftir Honoré de Balzac; 111.. (Guðmundur Daníelsson rit höfundurt. 21,00 Tónleikar (plöt nr). 21,15 Erindi: Frá Hjaltlandi og Orkneyjum; síðara erindi (Einar Ól. Sveinsson prófessor). 21,40 Tónleikar (plötur). 21,45 íþróttaþáttur (((Sigurður Sig- urðsson). 22,00 Fréttir og veður- fregnir. 22,10 Vinsæi lög (plöt- tir). 22,30 Dagskrárlok. Hvar eru skipin? Sambanðsskip: Ms. Hvassafell er í Ibiza. Ms. Arnarfell fer frá Ibiza í dag til Valencia. Ms. Jökulfell er á leið frá Ecuador til New Orleans. Eimskip. Brúarfoss er í Hamborg. Detti foss er í Reykjavik. Goðafoss kom til Keflavíkur í morgun 14. 6., fer þaðan til Akraness og Reykjavikur. Gullfoss fór frá Leith 12. 6. kom til Kaupmanna hafnar i morgun 14. 6. Lagar- foss íór frá Antverpen í morgun 14. 6. til Hull og Reykjavíkur. Selfoss er í Reykjavik. Trölla- foss fór frá Halifax 11. 6. til Reykjavíkur. Katla kom til Húsa víkur 13. 6. frá Gautaborg. Ríkisskip: Hekia fór frá Glasgow í gær kveldi áleiðis til Reykjavíkur. Esja er á Austfjörðum á norður leið. Herðubreið fór frá Rvík kl. 21 í gærkvöld tii Vestfjarða- hafna. Skjaldbreið fór frá Rvík kl. 21 í gærkvöld til Húnaflóa. Þyrill er Norðanlands. Ármann fer frá Reykjavík í kvöld til Vestmannaeyja. Stokkhólmi og háskólanna í Stokkhólmi, að fallið verður frá skólagjöldum fyrir íslenzka stúdenta í Stokkhólmsháskóla (voru s. kr. 250.00 á ári) og við dýralæknaháskólann. I verk- fræðiháskólanum njóta Islend- ingar sömu kjara og Svíar, greiöa fjórðung hins opinbera skólagj alds. Frá Rauða Krossi Islands. Aðalfundur var haldinn í Rvík hinn 1. júní s. 1. og voru mættir fulltrúar frá 6 deildum. Scheving Thorsteinsson var endurkjörinn formaður Rauða Kross Islands, en formaður framkvæmdaráðs var kjörinn Kristlnn Stefánsson læknir. Fulltrúi i stjórn alþjóða Rauða Krossins var endurkjör inn, Scheving Thorsteinsson. — Ákveðið var að næsti aðalfund ur skyldi haldinn í Hafnarfirði. Þennan sama dag hélt stjórn R.K.l. einntg fund. Þar var Ólaf ur Ó. Lárusson, fyrrv. héraðs- læknir í Vestmannaeyjum kjör- inn heiðursfélagi R.K.Í. En Ólaf ur hefir verið formaður Rauða Krossdeildar Vestmannaeyja frá stofnun hennar eða í tíu ár. Jarðvogs- rannsóknir (Framhald af 1. síðu.) að rannsóknum í tilrauna- stofu deildarinnar og semja tillögur um flokkun og nýt- ingu á íslenzkum jarðvegi. ITnðirstöðuatriði. | Slíkt starf er mikilsverður þáttur til undirbúnings rækt- unarframkvæmdum, þar sem það miðar að því að ákvarða, hvaða landsvæði henti bezt til ræktunar. A þennan hátt á ^einnig að vera hægt að á- kveða, hve mikið þarf af á- burði og hvaða áburðarteg- ! unda sé þörf og hvaða teg- 'undir nytjajurta þrífist bezt í jarðveginum. Flugferðir Flugfélag Islands: Innanlandsflug: I dag eru ráðgerðar flugferðir til Akureyr ar, Vestmannayja, Hornafjarð- ar. Fagurhólsmýrar, Kirkjubæj- arkiausturs og Siglufjarðar. Frá Akureyri verður flogið til Aust- fjarða. Á morgun er áætlað að fijúga til Akureyrar, Vestmanna eyja, Blönduóss, Sauðárkróks, Siglufjarðar og ísafjarðar. — Millilandallug: „Gullfaxi“ fór til Osló í morgun og er væntanlegur aftur til Reykjavíkur ki. 22,00 í kvöld. Kl. 8.30 í fyrramálið fer „Gullfaxi" til Kaupmannahafn ar. Loftleiðir h.f. í dag er ráðgert að fijúga til Akureyrar og Vestmannaeyja. Á morgun er áætlað að fljúga til Vestmannaeyja, Akureyrar, ísa fjarðar, Patreksfjarðar og Hólmavíkur. 8/öð og tlmarit lTtvarpsblaðið, 8. tölublað er komið út og flyt ur margskonar efni varðandi óperuna Rígólettó. Viðtal er þar við Stefán Islandi, efnlsúrdrátt ur úr óperunni og fjöldi mynda frá sýningu hennar í þjóðleik- húsinu. Grein um fasta dagskrár þætti. útvarpserindi dr. Björns Bigfússonar um erlend borga- nöfn í íslenzkum staðaheitum, dagskráin og margt fleira. Ur 'ýmsum áttum Skólagjöld í Svíþjóð. Svo sem vitað er hafa skóla- gjöld verið talsverður liður í námskostnaði íslenzkra stúd- enta i Svíþjóð. Nú heíir tekizt svo til, að samkomuiag hefir orð ið milli sendiherra íslands í Sjómannadagsráð græðir skóg. 1 byrjun árs 1950 afhenti Guð , mundur Marteinsson, formaður j Skógræktarfélags Reykjavikur, : Sjómannadagsráði afgirt og fall ' egt svæði hjá Suðurá austan við , Heiðmerkurgirðinguna, til þess að koma þar upp skógrækt og hvíldarrjóðrum fyrir vistmenn væntanlegs dvalarheimilis aldr aðra sjómanna, til að heimsækja og dvelja i á góðviðrisdögum á sumrin. Sjómannadagsráð hefir ákveð ið að fara n. k. laugardag til að gróðursetja trt á iandi þessu. Fara fulltrúar ráðsins kl. 1 eftir hádegi frá Ferðaskrifstofunni. Þeir, sem vildu vera með í för þessari, geta gefið sig fram við Böðvar Steinþórsson í síma 80788, sem veitir allar nánari upplýsingar. — Ættu sjómenn að fjölmenna í þessa för. Komið verður aftur í bæinn mtlll kl. 7—8 um kvöldið. l\orðisi vli ngar (Framhald af 8. síðu.) lands og vestan, Stéttarsam- bands bænda og Guðmundar Jónassonar bifreiðarstjóra fyr ir veitta hjálp í vetur. Jafnframt var því beint til landbúnaðarráðherra, — að hann gengist fyrir nýjum bjargráðum vegna harðind- anna, þar sem fjöldi bænda á Norðausturlandi hefði orðið svo hart úti vegna hins gífur- lega tilkostnaðar, að þeir fengju ekki undir því risið. Væri ekki annað sýnt, en þeir hlytu að gefast upp, hætta búskap og flytjast brott, ef ekki kæmu til ný bjargráð, sem gerðu mönnum kleift að rétta við eftir það áfall, sem vetrarharðindin hefðu haft í för með sér. & úeqi: Fólkið og landið í fyrradag sviðnaði allstórt svæði í Þingvallahrauni af eldi. Prímus valt í tjaldi, eldur læsti sig í tjaldið og siðan í mosann umhverfis það og fallegur blettur við vatnið brann, svo að óvíst er, hve lengi hann verður að ná sér. ★ ★ ★ Svipaðir atburðir hafa gerzt. Fólk er í ferðalagi eða dvelur í tjaldi. Einhver hendir til dæmis í ógáti logandi sígarettustubb frá sér og heldur áfram, án þess að ugga að sér. Að lítiili stundu liðinni gýs upp reykur. Eidur- ínn úr sígarettunni hefir læst sig í mosann, og það er ekkert vatn í námunda. Eldurinn breiðist út, fjöldi manns hefir komið á vettvang til þess að hefta út- breiðslu hans, en samt hefir stórt svæði orðið að svörtu flagi, áður en kvöldið er komið. Atburðir af þessu tagi gerast oft og iðulega, endurtaka sig sí og æ. Sögur eru uppi um stórfellda bruna, sem hér hafa orðið af manna völdum á skógum og gróðursvæðum, meðal annars í Þingvallahrauni, og ýms örnefni benda til hins sama. í gamla daga hlutust slíkir atburðir oftast af gálausri meðferð elds við kolagerð — nú eru orsakirnar af dá- lítið öðrum rótum runnar. En afleiðingarnar svipaðar. ★ ★ ★ Um þessar mundir aukast með hverri viku ferðalög fólks út í náttúruna. í þá ferð ættu allir að hafa þessa hugsun í veganesti: Farið varlega með eld, svo að ekki hljótist tjón af. Og sú hugsun, að verða aldrei til þess að spilia í gróðri eða sérkennileika íslenzkrar náttúru, mætti gjarna verða svo rótgróin, að hún fæddi af sér sívaxandi virðingu fyrir hverjum kvisti og steini, sem á vegi manna verður, að þau önnur spellvirki af öðru tagi, sem því miður eru tíð í okkar landi, hyrfu alger- lega úr sögunní, og hver sá, sem ekki gætir fyllstu snyrtimennsku í umgengni sinni í Þingvallahrauni og alls staðar annars staðar, væri dæmdur vargur í véum. J. H. TILKYNNING um bann við auglýsingu sætaferða á sérlevfisleiðum. Með tilvísun til 8. gr. laga nr. 22, 30. janúar 1945 um skipulag á fólksfiutningum með bifreiðum, tilkynnist hér með, að eftirleiðis verður litiö svo á, að þeir aorir en sérleyfishafar, sem án heimildar póst- og símamála- stjórnarinnar auglýsa sætferoir eoa laus sæti með bif- reiðum á sérleyfisieiðum, brjóti í bága við greind lög og veröa látnir sceta ábyrgð samkvæmt þeim. Pósí* og símamálastjórnin. 28. maí 1951. Kvenféiag óháða fríkirkjusafnaðarins f liefir efnt til Happdrættis fyrir Skrúðasjóð safnaðarins með 2S vinningum að verðmæti kr. 18 þústind. — Heitum vi* á alla velunnara safnaðarins að styrkja okkur í þessu Máli. — Happ- drættismiðarnir, sem kosta kr. 5.00, eru seldir hjá Maríu Maack, Þingholtsstrseti 25, Guðrúnu Árnadóttur, Berg- staðastíg 6C, Sigrúnu'Benediktsdóttur, Klapparstíg 27, Helgu Sveinsdóttur, Vesturvallagötu 2, Hólmfríði Hall- dórsdóttur, Laugavegi 158, Áslaugu Jónsdóttur, Hring- braut 76, Margréti Halldórsdóttur, Þjórsárgötu 5, Skerjafirði, Sigríði Guðmundsdóttur, Þórsgötu 10, Jó- hönnu Eiríksdóttur, Framnesvegi 57, Guðrúnu Sigur- jónsdóttur, Njarðargötu 27. NEFNDIN.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.