Tíminn - 15.06.1951, Page 3

Tíminn - 15.06.1951, Page 3
131. b!aS. TÍMINN, fö&tudaginn 15. júní 1851. 3, :|j IsiendingajDættir Fimmtugur: Gunnar Árnason, gjaídkeri Búnaðarfélags íslands í dag er Gunnar Árnason gjaldkeri Búnaðarfélags ís- lands fimmtugur. Hann er íæddur aö Gunnarsstöðum í feistilfirði 15. júni 1901 og ólst þar upp. Átján ára að aldri gekk Gunnar i bændaskólann á Hólum í Hjaltadal og braut- skráðist þaðan sem búfræð- ingur tvítugur að aldri vorið 1921. Ári síðar sigldi hann til Danmerkur og lagði stund á búfræðinám við landbúnað arháskólann í Kaupmanna- höfn. Kandidatsprófi i bú- vísindum lauk hann þar vorið 1925. Næsta vetur stundaði Gunnar framhaldsnám i naut griparækt og mjólkurfræöi í Noregi. Strax að loknu námi hvarf Gunnar Árnason heim til ís- lands, því þar vildi hann staría. Hann réðist þá þeg- ar til Búnaðarfélags íslands sem ráöunautur í mjólkur- máium. Hann gegndi því staríi ásamt fleiri störfum hjá félaginu um skeiö, unz það hætti að hafa ráðunaut í mjólkurmálum í þjónustu sinni þá um sinn. Þá var Gunnar ráðinn sem aðstoðar ráðúnautur í jarðrækt og vann við það starf þar cil 1940, að hánn var ráðinn gjaldkeri fé lagsins. -Því starfi gegnir hann enn. Gunnar hefir lagt gjörfa hönd á flest störf Bún aðarfélágsihs ínnan skrif- atofunnar og utan á þessum altíarfjórðungi, sem hann hef ir óskiptur unnið Búnðarfé- laginu, því auk þeirra starfa, sem hann hefir verið ráðinn til að vinna, hefir hann þrá- faldlega aðstoðað aðra starfs menn félagsins, einkum naut griparæktar og sauöfjárrækt ari’áðunautana. Hann hefir mætt sem aðaldómari af hálfu Búnaöarfélagsins á fjöl mörgum nautgripa- og hrúta sýningum, einkum á árunum 1930—1940 og síðan hann varð gjaldkeri félagsins, hef- ir hann haft aöalumsjón með skrifstofunni. Gunnar Árnason er öllum hnútum kunnugastur í Bún- aðarfélaginu og kemur það sér vel, því oft þarf hann að svara fyrirspurnum utan sins verkahrings, þegar ráðunaut ar félagsins og búnaðarmála stjon eru á íeróaiogum i sveit um landsins. Gunnar Árnason var náms- maður góður, enda býr hann yfir mik lli og alhliða þekk- ingu á bunaðarmálum. bæði fræðilegri og hagnýtri. Hann er með afbrigðum skylduræk inn, mikilvúkur og samvizku samur scavísmaðar. Slikir menn eiu ómetanlegir fyrir hverja þá stofnun, sem þeir helga starfskrafta sína. Gunnar Árnason er sam- vinnumaður og félagshyggju maður í fyllstu merkingu þess orðs. í þeim féiögum sem hann starfar í, er hann oft- ast kosinn í stjórn, þvi allir, sem hann þekkja, vita að ó- sérplægni hans á sér lítil tak mörk og þau störf, sem hon- um eru falin, verða vel og samvizkusamlega af hendi leyst. Gunnar Árnason er góð- templari og hefir þar sem annarsstaðar unnið af al- huga með óbilandi trú á mál stað reglunnar. Gunnar er kvæntur ágætri konu, norskri, Olgu að nafni Þau hjón eiga 4 mannvæn- leg börn. Um leið og ég árna honum allra heilla á fimmtugsafmæl inu óska ég þess að Búnaðar félag íslands fái sem lengst að njóta starfskrafta hans. Jafnframt þakka ég honum samstarfið, síðan ég kom til Búnaðarfélagsihs fyrir 14 ár um, og eínnig margvíslega að stoð, sem liann heíir oft veitt mér beðinn og óbeðinn. Ég veit að-aðrir starfsmenn fé- lagsins taka undir þessar ósk ir til hans með mér. Halldór Pálsson Dánarminning: Ragnheiður Jónasdóttir Íslanúsmótið: Víkingur: Frara 4:0 Fjórði leikur íslandsmóts- ins var milli Fram og Víkings og bar Víkingur sigur úr být- um með fjórum mörkum gegn engu. Það hefir borið mikið á því í sumar, að marga góða leikmenn vantar hjá liðunum, sem aðallega stafar af meisðl um í leikjum að undanförnu. T. d. vantaði Fram nú Sæ- mund Gislason og Hermanr. Guðmundsson, en hjá Víking vantaði Helga Eysteinsson og Reyni Þórðarson. Yfirleitt má segja, að þessi leikur hafi verið allgóður, sér staklega hjá Víking í siðarl hálfleik. Nokkrar breytinga-' voru gerðar á liðinu frá leikr. um við Val, sem gáfu góöa raun. Meginstyrkleiki liðsins lá þó, eins og áður, í fram- vörðunum og „trióinu" Ingv- ari, Bjarna og Gunnlaugi, en þeir réðu yfir miðju vallar- ins og hafði það úrslitaáhrif. Framlína Fram var aftur á móti mjög sundurlaus, fram- verðirnir byggðu illa upp, og það má segja að liðið hafi varla fengið gott tækifæri til að skora. Hjá Víking var öðru máli að gegna. Framlínan fékk afar mörg tækifæri, sem skapaðist mest vegna þess að nákvæmur, stuttur samleikur ,,tríósins“ opnaði vörn Fram mikið. En liðið fór illa með beztu tækfæri t. d. áttu þeir þrjú tækifæri fyrir opnu marki, sem öll misnotuöust. Sá galli fannst mér á leik framherja Vikings, að þeir gáfu knöttinp yfirleitt of seint, sérstaklega Gunnlaug- ur, og treystu kantmönnun- um ekki nógu vel, sem þó var litil ástæða til, því vinstri útherji, Gissur Gissurarson, skoraði tvö af mörkum liðs- ins, og er hann snjall í að skapa sér tækifæri. Víkingur skoraði eitt mark i fyrri hálf leik og skoraði Gissur með föstu skoti. Nokkuð var liðið á seinni hálfleik, er liðjð skor- aði aftur og var Ingvar Páls- son þá að verki, með föstu skoti frá vítateig, óverjandi fyrir Adam. Bjarni Guðnason skoraði þriðja markið aðerns síðar með skalla og síöasta markið skoraði Gissur og var hann þá í „dauðafæri“ á- samt Bjarna, svo opin var vörn Fram. Beztu menn í Víkingsliðinu voru Kristján Ólafsson og Ingvar*3 Pálsson, Bjarni og Gunnlaugur, en yfirleitt má segja að flestir leikmenn liðs- ins hafi átt góðan leik. Hjá Fram var vörnin þrátt íyrir allt betri hluti liðsins, Karl og Haukur voru sterkir, en réðu ekki við framlínu Vik- í dag er til moldar borin Ragnheiður Jónasdóttii frá Borgarnesi. Hún andaðist í Landakotsspítála eftir tæpa tveggja mánaða legu. 9. þ. m. Hún var fædd 25. júní 1887. Ragnheiður var fædd í Bjarnareyjum á Breiðafirði, dóttir Jónasar Sigurðssonar formanns og Helgu Finns- dóttur frá Geirmundarstöðum á Skarðsströnd. Ragnheiður fluttist ung á Skarösströndina og dvaldi lengst af æskuárum sínum á Skarði. Var hún löngum 1 þjónustu ættmenna Skarðs- verja þar til hún giftist árið 1931 eftirlifandj manni sín- um Ágústi Sigurðssyni. Þeim varð ekki barna auðiö, en áö ur en hún giftist eignaðist hún tvo sým7 sem báðir eru nú búsettir í Reykjavík. Ég þekkti Ragnheiði mjög vel, hún var á heimili for- eldra minna í Borgarnesi í mörg ár og vann þeim af mestu dyggð og prýði. ViÖ, sem þekktum hana bezt, viss um. að í brjósti hennar sló viðkvæmt hjarta og órofa tryggð. Við öll, sem þekktum Ragnheiði, söknum hennar sárt, hún var alltaf létt I lund, og hvar sem hún fór var glaöværðin í fylgd með henni. Hún mun lengi hafa kennt meins þess, er að lokum dró hana til dauða, en sjúkdóm sinn bar hún án möglunar og aldrei brást hennj trúin á guð sinn, og síöast sofnaði hún með bæn á vörum til hans, seni allt sér og öllum veitir 'frið éftir langt' lífs- stríð. ings vegna lélegrar aðstoöar framvarðanna. Dómari var Hrólfur Bene- diktsson. Með þessum fátæklegu lin- um viljum við öll hér heima kveðja þig og þakka þér fyr- ir allt á liönum árum. Biðj- um við algóðan guð að leiða þig og styrkja í heimi þeim, er þú nú dvelur í. Blessuð sé minning þín. Camilla Kristjánsdóttir Gjörizt áskrifendnr að ZJímajfium Áskriftarsiml 2323 ÍSÍ viSI sameina útgáfu íþróttablaða Yifl cimiig koma á saiueiglnlegri skrifstoíu fyrir alla íþróftastarfseini í Keykjavík Fertugasta þing íþróttasambands íslands var haldið í Hafn arfirði s. I. laugardag og sunnudag. Þingið sátu fulltrúar frá tólf héraðssamböndum og fimm sérsamböndum, alls 53 full- trúar. Áður hefir verið getið hér í blaðinu um stjórnarkjör, en hcr verður getið helztu tillagna, sem samþykktar voiu á þinginu. íþróttaþing samþykkir að framkvæmdastjórn undirbúj 40 ára afmælismót ÍSÍ 1952 og athugi möguleika á þvi að hér verði haldið það ár iþrótta ráðstefna ríkisíþróttasam- banda Norðurlanda. Þing ÍSÍ haldið dagana 9. til 10. júní 1951, beinir þeim tilmælum til framkvæmdar- stjórnar ÍSÍ að hún láti þeg- ar hefjast handa um undir- búning afmælisrits ÍSÍ, er komi út á 50 ára afmæli þess. íþróttaþing ÍSÍ haldið í Hafnarfirði dagana 9.—10. júní 1951 felur framkvæmdar stjórn ÍSÍ eða þriggja manna neínd, er hún skipar, aö hefja viðræður við Tryggingarstofn un ríkisins um kaup á slysa- tryggingu fyrir félagsskap íþrcttamanna og verði áliti um kostnað og rekstur skilað á næsta reglulegum sam- bandsráðsfundi. Ársþing ÍSÍ 1951 ákveður að sambandið hætti með öllu að veita metmerki. Tillögur varðandi fjárhags mál: 1. Til íþróttakennslu veitist ekki að jafnaði styrkur úr sambandssjóði. Styrkir til hennar greiðist úr íþrótta- sjóði og af væntanlegum tekj um getraunastarfseminnar. 2. Ef styrkja þarf bókaút- gáfu ÍSÍ verði leitað styrks til hennar úr íþróttasjóði. 3. ÍSÍ fái einkaumboð til að láta búa til íþróttamerki ÍSÍ, veggskildi o. fL og hafa til sölu, nema merki íþrótta- og ungmennafélaga. 4. ÍSÍ reyni að fá heimild til þess að gefa út íþróttafrí- merki árlega eða á fárra ára fresti. 5. Unnið verði að því að koma á sameiginlegri skrif- stofu fyrir alla þá íþrótta- starfsemi, sem hefir aðsetur í Reykjavík og þarf á sér- stakri skrifstofu að halda, svo og starfsemi í sambandi við íþróttahreyfinguna, svo sem getraunastarfsemi, 1- þróttablöð o .fl. 6. Reynt verði að tryggja sameiginlega hlutdeild sér- greinanna í greiðslu til kenn- ara, sem kenna fleiri en eina íþróttagrein. 7. Félög og sambönd leggi aukna áherslu á að fá áhuga- leiðbeinendur til kennslu. 8. Sérsamböndin hafi sam- vinnu um sendingu fulltrúa á íþróttaþing erlendis, þar sem því verður við komið. 9. Unnið verði að því, að fá ríkisstjórn og Alþingi til þess að fella niður skemmtana- skatt af skemmtunum íþrótta félaga. 10. ÍSÍ láti útbúa muni og beiðursskjöl til verðlaunaveit inga og hafi það til sölu og vinni að því að þetta verði almennt notað af héraðssam böndum, sérsamböndum og íþróttafélögum. 11. Að reynt verði að gera haganlegan samning ferða- og dvalarkostnað í- þróttamanna sem fara á íþróttamót erlendis og koma á íþróttamót frá útlöndum, auk þess sem leitað verði op- inbers styrks til sltkra ferða. 12. Að reynt verði að fá erlendar íþróttamyndir til sýninga hér á landi. 13. Að sem flestir íþrótta- aðilar sameinist um útgáfu íþróttablaðs eða blaða svo að’ útgáfa þeirra verði ekki fjár- hagslegur baggi á íþrótta- hreyfingunni. Ársþing ÍSÍ 1951 kýs þriggja manna nefnd til þess að vinna með framkvæmda- stjórninni og íþróttanefnd ríkisins (ef hún samþykkir), um aukinn styrk til sam- bandsins, eða fastan styrk er tryggi rekstur ÍSÍ, frá Al- þingi eða ríkisstjórn. Skattur sambandsfélaga til ÍSÍ skal vera 2 kr. á ári. Ársþing ÍSÍ skorar á ríkis- stjórnina að veita ÍSÍ heimild til þess að selja merki þann 17. júní ár hvert til ágóða fyrir íþróttastarfsemina í landinu, þar sem íþróttahreyf ingin hefir um langt skeið' tileinkað sér þann dag og haldið hann hátíðlegan. íþróttaþing ÍSÍ samþykkir að unglingaráð starfi innan íþróttasambands íslands og (Frambald á 7. síðu.) Fridrik vann fyrstu skákína Heimsmeistaramót drengja i skák hófst i Birmingham i Englandi á miðvikudag. Eins og kunnugt er tekur Friðrik Ólafsson þátt í mótinu og i fyrstu umferð tefldi hann við Joyner frá Kanada og bar sig ur úr býtum. Fyrir mótið voru þeir Ikov frá Júgóslavíu og Bhen, ásamt Friðrik, álitnir liklegastir til sigurs. Ikov og Bhen tefldu saman í fyrstu umíerð og sigraði Júgóslavinn. Þá má geta þess, að í annarii umferð vann Joyner Svíarm Asker. Friðrik fór héðan 5. júní og kom samdægurs til Birming- ham. Þar stendur nú einnig yfir alþjóðlegt skákmót, sem margir heimsfrægir skák- menn eru þátttakendur i. í bréfi, sem Friðrik hefir skrif að heim, segir, að hann hafi haft tækifæri til að fylgjast með mótinu, sér til mikillar ánægju. Var hann kynntur fyrir skákmönnunum, en með al þátttakenda þar, er Rosso- limo, sá er tefldi hér á afmæl- ísmóti Taflfélagsins I vetur. Þegar Friðrik sendi bréfið var staðan í mótinu þannig, að ungur Júgóslavi, Matanovic, sem er ekki nema 19 ára, var efstur með 5 vinninga. Næstur var Bretinn Alexander með 4j/2 vinning. Aftur á móti var Svíinn Stálhberg, sem er þekktasti skákmaðurinn, sem tekur þátt í mótinu, aðeins með 3 vinninga og Rossblimo og Júgóslavinn Gligoric með um i 2 y2 vinning.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.