Tíminn - 05.08.1951, Qupperneq 1
Ritstjórl:
Þórarinn Þórarinsson
Fréttaritstjóri:
Jón Helgason
Útgefandi:
Framsóknarflokkurinn
1
Skrifstofur í Edduhúsi
Fréttð.símar:
81302 og 81303
Afgreiðslusími 2323
Auglýsingasími 81300
Prentsmiðjan Edda
'7
35. árgangur.
Reykjavík, sunnudaginn 5. ágúst 1951
175. blað
Góð síldveiði í fyrrinótt og
gær út af Digranesi og Kollumúla
Italir kæra sig ekki um að blotna í regni fremur en kett-
irnir — eða annað fólk. Hér sést ölekill undir regnhlifinni
sinni, og hann er meira að segja svo hugulsamur að kiæða
hestinn sinn i „kápu“ sem er haganlega gerð og sniðin á
hestinn. Það er meira en allir ökumenn gera
Sílíl veiðist iitsii á Vopnafirði. Mwrg skip á
leið til Sislnf jarðar I g'ser. þar sem löndnn-
arstöðvun er á Raufarhöfn nsestn dasjsi
Frá fréttaritara Tímans á Raufarhöfn
Sæm legt veiðiveður var á sildarmiðunum sunnan I.anga-
ness í fyrrinótt og gær, en þoka tafði veiðar nokkuð, svo að
ekki komust öll skip í síld. En meirihluti flotans, sem úti
var, kastaði og fengu flest þau skip góða eða ágæta veiði.
Nokkur fylltu sig meira að segja.
íslenzkir togarar
sækja á Grænlandsmið
Pétur Halltlórsson við Grsenland og' liefir
fengið góðan aflsi þesssi dagsi
Bæjartogarinn Pétur Halldórsson hefir síðustu daga verið
að veiðum við Grænland, á Fyllugrunni út af Færeyinga-
liöfn, og fengið þar góðan afla. Þykja aflafréttirnar svo
álitlegar, að fleiri íslenzkir togarar munu leita fyrir sér við
Grænland.
Pétur Halldórsson fór héð-
an 27. júlí, en vestur á miðin
við Færeyingahöfn eru nm það
bil fimm sólarhringa sigling
héðan. Hefir skipið því aðeins
verið fáa daga að veiðum á
hinum nýju miðum, en sýni-
lega fljótt fundið góðar fiski-
slóðir. — Skipstjóri á Pétri
Halldórssyni er Einar Thorodd
sen.
Ágætur fiskafli
kominn á Vopnafirði
Frá fréttaritara Tím-
ans á Vopnafirði.
Ágætur afli er kominn hér
hjá línubátum, en hefir verið
mjög tregur að undanförnu.
Langt er þó að sækja fiskinn
því að hann veiðist norðaust
ur af Bakkafirði. Fiskurinn er
frystur og saltaður.
Heyskapur gengur allvel,
búið að hirða tún að miklu
leyti. Spretta er þó léleg víð-
ast hvar.
Byrjað að flytja
brott mjöl og lýsi
frá Raufarhöfn
Eins cg skýrt var frá hér í
blaðinu í gær, hafði verksmiðj
an á Raufarhöfn þá fengið
rúmlega 100 þús. mál en 90
þús. mál á allrí síldarvertíð-
inni í fyrra. Verksmiðjan hef
ir að vísu allmikið geymarúm
fyrir lýsi, en þó er nauðsyn-
legt að íara að flytja það burt.
Von er á lýsisskipi bráðlega til
Raufarhafnar. Þá er einnig
að verða þröngt í mjölskemm
unum, og verða þær orðnar
fullar, þegar verksmiðjan er
búin að fá 150 þús mál. Brott
flutningur mjölsins þæði á
skipum og bifreiðum er í
þann veginn að hefjast.
Fleiri togarar á
Grænlandsmið
Bæjarútgerð Reykjavikur
hefir ákveðið að senda annan
togara, Þorsteinn Ingólfsson,
á Grænlandsmið, og var jafn
vel gert ráð fyr;r, að hann
legði af stað í gærkvöldi.
Bæjarútgerð Hafnarfjarð-
ar hefir einnig til athugunar,
að senda Júni á Grænlands-
mið, og afráðið verður eftir
helgina, hvað gert verður, og
til mála kemur einnig, að
Austfirðingur, togari Eskfirð-
inga, Reyðfirðinga og Fá-
skrúðsfirðinga, fari þangað.
Snýr heim frá Al-
aska yfir norðurpól
Brezka Lincoln-sprengju-
flugvélin, sem hér kom við
fyrir nokkru á flugi sínu yfir
norðurpólinn til Alaska, hef-
ir tafizt í Alaska til þessa
vegna vélarbilunar, svo að
bíða varð eftir nýjum hreyfli
frá Bretlandi. í dag leggur
hún heimleiðis og ætlar að
fljúga í einum áfanga til
Bretlands yfir norðurpólinn.
Þrær verksmiðjunnar á
á Raufarhöfn voru fullar í
fyrrakvöld eins og áður var
sagt frá, og í gær var aðeins
hægt að taka við síld úr nokkr
um skipum. Klukkan átti í
gærmorgun var gefin út til-
kynning til skipanna þess
efnis, að Raufarhafnarverk-
smiðjan tæki ekki síld til
bræðslu framvegis af öðrum
skipum en þeim, sem hefðu
áður farið eina ferð með farm
vestur á Siglufjörð eða til ann
arra verksmiðja vestar. Þá
biðu á Raufarhöfn nokkur
skip með samtals um 3000 mál
og örfá voru á leið til lands
og höfðu tilkynnt komu sína
áður en stöðvunartilkynning
in var gefin út. Skip munu
ekki geta landað á Raufar-
höfn á ný fyrr en á mánu-
dag.
Skip til Raufarhafnar.
Þessi skip losuðu í fyrrinótt
og i gær á Raufarhöfn: Stíg-
andi, ólafsfirði 800 mál,
Sveinn Guðmundsson Akra-
nesi 750 mál, Þráinn Neskaup
stað 850 mál. Hrafnkell Nes-
kaupstað 700 mál, Ásbjörn
550 mál, Andvari Reykjavík
500 mál, Ásgeir Reykjavík 500
mál og Fram Akranesi 600
mál. Nokkur önnur skip komu
með minni afla. Á Raufarhöfn
var milt; veður í gær, en rign
ing og þoka.
Síld veiðist inni
á Vopnafirði.
Fréttaritari Tímans á
Vopnafirðj sagði að um liá
degi í gær hefðj Snæfugl
frá Neskaupstað komið til
Vopnafjarðar með á ann-
að hundrað tunnur síldar,
sem hann veiddi í gær-
morgun í einu kasti inrii á
Vopnafirðj á móts við bæ-
inn Fagradal, sem er að
sunnan verðu við fjörðin
utarlega. Fleiri skip munu
hafa fengið köst inni í
Vopnafirði, svo að öruggt
má kalla, að sild sé gengin
í fjörðinn. Annar bátur
var að landa þar 200 nrál-
um í gærmorgun. Búið er
nú að salta unr 1309 tunn-
ur á Vopnafirði.
Missti nótabát
við Bjarnarey.
Allmikill kaldi var á miðun
um surinan til í nótt, og
(Framhald á 2. siðu.)
Fiskafli glæðist á
Seyðisfirði
Fiskafli hjá Seyðisfjarðar-
bátum hefir mjög glæðzt sið
an síldin tók að ganga suður
um, og hefir svo verið ann- j
ars staðar norðaustan lands.
Áður var afli afar rýr.
Virðist samband vera á
milli fiskigengdarinnar og
aflabragðanna. Hefir þetta
aukið á annríkið við nýtingu
síldarinnar, sem berst á land
þessa dagana, svo að hver
maður, sem vettlingi getur
valdið vinnur nú eins og hon-
um endist þrek til.
Illllllllll1111111111111111111191l<IIIIIIIlllllllllllllllIIllllllllllll
| Minkadráp á göt-)
1 unura á Selfossi I
i |
| Skemmtigöngu minka- |
í f jölskyldu um götur Sel- |
I fossbæjar hér á dögunum i
I lyktaði á sviplegan hátt. |
i Börn i húsi við Tryggva- i
1 götu urðu fyrst vör við gest i
Í ina. Sáu þau, að minka- 1
i læða með þrjá unga kom f
\ upp frá árbakkanum og |
Í hélt með hópinn beina |
I leið inn í húsagarð.
Í Börnin urðu hrædd við |
f þessa heimsókn, hlupu inn \
Í til móður sinnar að segja |
i henni tíðindin. Konan sím \
j aðj þá til manns síns, er i
Í sendi á vettvang tvo menn |
I vopnaða keflum. Voru i
Í minkarnir að leik á flötinni |
Í framan við húsið, er sendi i
i menn komu, og urðu þá i
Í snögg umskiptj hjá hinni =
1 ótortryggnu minkafjöl- |
i skyldu, því að þeir rotuðu i
i aila minkana á svipstundu. 1
iiiiiiiiii 11111111111111111 iiiiiiiiihiiiiiii
Steinsteypt fjárhús
mjög víða í smíðum
HlikiH lnigur í bændum að fjölga sauðfé
í þeim héruðum landsins, þar sem fjársk’pti hafa farið
fram, er nú mjög mikill hugur í mönnum að koma upp sauð
fjárstofni eða fjölga því sauðfé, sem menn eiga. Eins og
nú horfir eru því allar líkur til þess, að sauðfé hraðfjölgi
hin næstu ár.
Hermannaslagurinn
í rannsókn
Yfirheyrslur vegna rysk-
inga þeirra, sem urðu í Tjarn
arkaffi í fimmtudagskvöldið
milli br.ndarískra hermanna
og íslertdinga, stóðu enn hjá
sakadómara allan daginn í
gær og varð ekki lokið.
Það munu hafa verið sex
hermenn, sem við sögu
komu, og er verið að
yfirheyia þá, og svo íslend-
inga þá, sem við þessa at-
burði voru riðnir, og aðra, er
nærstaddir voru.
Það mun hafa verið mis-
hermt, að íslenzki pilturinn
hafi hlcitið hnífstungu í lær-
ið, heldur munu föt hans
hafa rifnað þar þar í átökun-
um. Hins vegar skeindist
hann á hendi.
Starfsmenn sakadómara
vildu ekki í gær láta i té nein
ar upplýsingar um málið, en
greinargerðar er að vænta,
er rannsókn er lokiö.
Steinsteypt fjárhús.
Víða á bæjum í fjárskipta-
sveitunum er í sumar verið
að byggja steinsteypt fjárhús
1 stað gömlu fjárhúsanna,
sem gengið hafa úr sér á und
anförnum árum, er þau hafa
verið lítið sem ekki notuð og
menn lagt sem minnst í
kostnað við viðgerðir, meðan
tvísýnt var, hversu af reiddi
um sauðfjárbúskap.
Mjög vlða steypa menn nú
vönduð fjárhús yfir tvö
hundruð fjár í einu, og dæmi
er um það, að verið sé að
byggja steinsteypt fjárhús yf
ir nær fjögur hundruð fjár á
einum og sama bæ.
Erlendir markaðir.
Með því verði, sem nú fæst
fyrir íslenzkt dilkakjöt á er-
lendum markaði, virðist eng-
in hætta á, að ekki sé hægt
að losna við mikið magn af
kjöti með viðunandi verði,
enda þótt það verði ekki selt
á innlendum markaði. En
eins og nú er ástatt, er langt
frá þvi, að íslenzka markaðn
um hafi verið fullnægt.