Tíminn - 10.08.1951, Qupperneq 2
V'>vw
2.
TÍMINN. föstudaginn 10. ágúst 1951.
178. blað.
UtvarpÍð
Fastir liðir eins og venjulega.
19.30 Tónleikar: Harmonikulög
(pl.). 19,45 Augl. 20,00 Fréttir.
20.30 Útvarpssagan: „Upp við
fossa“ eftir Þorgils gjallanda;
I. (Helgi Hjörvar). 21,00 Tón-
ieikar (pl.). 21,20 Dagskrá Kven
réttindafél. Islands. 21,45 Tón-
leíkar: Harry Parry sextettinn
leikur (pl.). 22,00 Fréttir og veð-
urfr. 22,10 Vinsæl lög (pl.). 22,30
Dagskrárlok.
Útvarpað á morgun.
Fastir liðir eins og venjulega.
19.30 Tónleikar: Samsöngur
(pl.). 19,45 Augl. 20,00 Fréttir.
20.30 Útvarpstrióið: Tríó i C-
dúr eftir Haydn. 20,45 Leikrit
„Haustblíða" eftir B. B. Bucher.
Leikstjóri: Þorst. Ö. Stephen-
sen. 21,30 Tónleikar: Lög úr
óperunni „Carmen" o. fl. lög eft
ir Bizet (pl.). 22,00 Fréttir og
veðurfr. 22,10 Danslög (pl.).
24,00 Dagskrárlok.
Hvar eru skipin?
Sambandsskip:
Hvassafell losar timbur í
Stykkishólmi. Arnarfell fór frá
Elbu 6. þ. m., áleiðis til Bremen.
Jökulfell er væntanlegt til Val-
paraiso á morgun, frá Guaya-
quil í Ecuador.
Ríkisskip:
Hekla er í Reykjavík og fer
þaðan næstkomandi sunnudags
kvöld kl. 8 til Glasgow. Esja fer
frá Reykjavík í kvöld til Bíldu-
dals. Herðubreið er væntanleg
til Reykjavíkur í dag að aust-
an og norðan. Skjaldbreið er
í Reykjavík og fer þaðan á morg
un til Breiðafjarðar. Þyrill er
norðanlands.
Eimskip:
Brúarfoss fór frá Reykjavík
3. þ. m. til Grikklands. Dettifoss
íór frá Reykjavík í fyrradag til
New York. Goðafoss er í Reykja
vík. Gullfoss kom til Kaup-
mannahafnar í gær frá Leith.
Lagarfoss fór i gær frá Rotter-
dam til Antwerpen, Hamborgar
og Hull. Selfoss er í Reykjavík.
Tröllafoss er í Reykjavík. Nes-
nes fór frá Hull í gær til Reykja
víkur.
hafi til
Fjallkonan á Gimli
6. ágúst
Flugferðir
Flugfélag íslands:
Innanlandsflug: í dag er á-
ætlað að fljúga til Akureyrar (2
ferðir), Vestmannaeyja, Kirkju
bæjarklausturs, Fagurhólsmýr-
ar, Hornafjarðar og Siglufjarð-
ar. Frá Akureyri verður flugferð
til Austfjarða. Á morgun eru
ráðgerðar flugferðir til Akur-
eyrar (2 ferðir), Vestmanna-
eyja, Blönduóss, Sauðárkróks,
Isafjarðar, Egilsstaða og Siglu-
fjarðar.
Millilandaflug: „Gullfaxi" fór
í morgun til Osló og er væntan-
legur aftur til Reykjavíkur kl.
10 í kvöld. Flugvélin fer til Kaup
mannahafnar kl. 8 í fyrramálið.
Loftleiðir h.f.:
í dag er ráðgert að fljúga til
Vestmannaeyja, ísafjarðar, Ak-
ureyrar, Siglufjarðar, Sauðár-
króks, Hólmavíkur, Búðardals,
Hellissands, Patreksfjarðar,
Bíldudals, Þingeyrar, Flateyrar,
og Keflavíkur (2 ferðir). Frá
Vestmannaeyjum verður farið
til Hellu og Skógasands.
Á morgun verður flogið til
Vestmannaeyja, Isafjarðar, Ak-
ureyrar og Keflavíkur (2 ferð-
ír).
Íslendingahátíð var að venju
haldin :t Gimli í Nýja-íslandi
síðastlið'nn sunnudag, og
kom Ingibjörg Jónsson, kona
Einars Páls Jónssonar, rit-
stjóra Lögbergs, þar fram sem
fjallkonan og flutti snjallt á-
varp, þar sem hún einkum
minntist afreka íslenzku þjóð
arinnar á sviði bókmennt-
anna, og norrænnar tungu,
„sem er gerð af þeirri iþrótt,
sem flytur fullt mál í fáyrð-
um, og kveður heilt kvæði í
einu orði.“
vélinni námu nú 44,443 kg., og
er það rösklega fjórfalt meira
magn en flutt hefir verið með
„Gullfaxa" áður á einum mán-
uði. Þá voru flutt 1697 kg. af
pósti í mánuðinum, en á sama
tíma í fyrra námu póstflutning
ar 739 kg. „Gullfaxi“ flaug
samtals 265 klst. í júlí eða sem
svarar rúmlega 8l/2 tíma á dag
að jafnaði. Áður hafði hann
flogið mest 175 klst. á einum
mánuði.
Birgðaflutningum „Gullfaxa'
inn yfir Grænlandsjökul er nú
að mestu lokið að sinni. Farnar
hafa verið 12 ferðir í sumar, en
væntanlega mun „Gullfaxi“
fara 2 eða 3 ferðir til viðbótar í
haust. Flutningar þessir til leið
angurs Paul Emil Victor hafa
yfirleitt gengið vel, og hefir ekk
art sérstakt óhapp komið fyrir
í ferðunum.
Ferðafélag Islands
ráðgerir 2 skemmtiferðir um
næstu helgi. Önnur ferðin er
um sögustaði Njálu. Lagt af
stað frá Austurvelli kl. 2 á
laugardag og ekið austur í
Fljótshlíð og gist þar. Farmið
ar séu teknir fyrir kl. 6 á föstu
dag.
Hin ferðin er gönguferð á
Esju. Lagt af stað frá Austur-
velli kl. 9 á sunnudagsmorgun
inn og ekið að Mógilsá. Far-
miðar séu teknir fyrir kl. 12
á laugardag. Allar upplýsingar
á skrifstofunni í Túngötu 5.
ttbrelðið Tímaim
Snyrtimennska.
Það er ánægjulegt að litast
um inni við rafstöðina við Ell-
iðaár, því að þar blasir alls
staðar við óvenjuleg snyrti-
mennska úti við. Brúnir á veg-
skurðunum hafa til dæmis ver
ið hlaðnar upp á snotran hátt
og frá hverju einu gengið svo,
að vel fer.
Nú ætlar rafveitan að græða
skóg á hólmunum í Elliðaán-
um, svo lægðin fyllist birki-
angan og fuglaklið, og upp-
moksturinn úr grunninum, þar |
þar sem byggja á spennistöð
vegna viðbótarvirkjunarinnar
í Soginu, er notaður til þess að
mynda jarðveg á grýttum ber-
angri á landi stöðvarinnar.
Það gætu margir lært ýmis-
legt af umgengninni við Elliða
stöðina.
Ámað heulo
Opinberun.
4. ágúst opinberuðu trúlof-
un sína ungfr. Halla S. Hjálms
dóttir, Grenimel 2 og hr. Torfi
L. Torfason, Brekastíg 31, Vest
mannaeyjum.
75 ára.
75 ára er í dag Guðmundur
Vigfússon, trésmiður, Laugavegi
42, góður og gegn borgari og
mörgum Reykvíkingum kunnur
eftir langa starfsævi.
Úr ýmsum -áttum
„Gulifaxi“,
millilandaflugvél Flugfélags
íslands, hefir aldrei flogið jafn
mikið í einum mánuði og í júlí
s. L, en flugdagar hans voru þá
alls 26. Fór flugvélin 14 ferðir
með farþega frá Reykjavík til
útlanda, og auk þess voru farn
ar 10 ferðir til Grænlands með
vistir handa leiðangri Paul
Emil Victors.
„Gullfaxi“ flutti 84 farþega á
millilanda í s.l. mánuði borið
saman við 417 í sama mánuði
í fyrra. Vöruflutningar með flug
Síldin
(Framhald af T. síðu.)
fengið afla, en ekki vitað um
nöfn þeirra i gærkvöldi.
Gott veiðiveður.
Veiðiveður á síldarslóðun-
um norðaustan lands er nú
gott og gera menn sér vonir
um, að nokkur aflahrota
verði nú, hvernig sem end-
ingin verður.
Hvalvolðin
(Framhald af 1. síðu.)
ist þó allþung í drætti, er
taka átti hana upp í hval-
stöðina. Slitnaði keðjan, sem
notuð var við dráttinn, svo
að hvalurinn rann aftur í
sjóinn, en í næstu atrennu
tókst að draga hann upp
þangað, sem skurðartæki og
suðupottar biðu ferlíkisins.
Berja.spretta
(Framhald af 8. síðu.)
Vafalaust verður mikil
stund lögð á berjatekju að
þessu sinni, er saft og sulta
e- í mjög háu verði, enda hef
ir fólk í vaxandi mæli lagt
sig fram um að nýta þennan
holla jarðargróða til búsilags
ur danfarin ár.
Fínpúsning
Skeljasandur
Hvítur sandur
Perla í hraun
Ilrafntinna
Kvarz o. fl.
Fínpúsningargerðin
Sími 6909
• TILKYNNING •
Nr. 35/1951.
Fjárhagsráð iiefir ákveðið að vörur þær, sem falla
undir liðinn „vélar og verkfæri" í tilkynningu ráðsins
nr. 31/1951, sé heimilt að verðleggja eftir þeim reglum,
sem giltu fyrir 10. júlí, 1951.
Reykjavik, 9. ágúst, 1951.
VERÐLAGSSKRIFSTOFAN.
Fyrirliggjandi efnivörur til
SKÚSMÍÐA OB BQKBANDS
Sólaleður, Bindsólaleður, Gúmmíhælar verk kr. 23,60
pr. dúsín, Gúmmíplötur, Fóðurskinn, Spaltskinn, Rand
saumagarn, Leðurlím (60% Latex), Gúmmílím, Skó-
saumur, Botnfylling, Randblek, Sandpappír (Bimsar),
Fræsarar, Leður- og Hárburstar, Skóreimar, Skæri,
Vax og fleirj vörur fyrir skósmiði.
Bókbandsskinn í mörgum litum. Verð kr. 8,80, 9,45 og
9,85 pr. ferfet. — Geitarskinn á kr. 12,95 pr. ferfet. —
Klofið bókbandsskinn (Skiver). Verð kr. 4,85 og kr.
5.20 pr. ferfet.
Bókbandshirtingur væntanlegur bráðlega.
Leðnrvcrzlun
Tlag'm'isar Viglundssonar h.f.,
Sími 5668
MJDLKURBRÚSAR
Dönsku mj ólkurbrúsarnir margeftir-
spurðu 2. og 5 lítar komnir aftur. —
30 og 50 lítar brúsar væntanlegir.
LLIDVIG STORR & Co.
Vestur-Húnvetningar
Aðalfundur Framsóknarfélags Vestur-Húnvetninga
verður að Ásbyrgi í Miðfirði sunnudaginn 2. sept. n. k.
kl. 3,30 e. h.
Eysteinn Jónson fjármálaráðherra flytur ræðu á
fundinum.
Allir Framsóknarmenn og stuðningsmenn flokksins
velkomnir á íundinn.
Félagsstjórnin
Hjartans þakkir færum við öllum þeim, er sýndu okk-
ur hluttekningu og samúð við hið sviplega fráfall fóst-
ursonar míns, bróður og frænda
JÓNBJÖRNS SIGIJRGEIRSSONAR,
Njarðargötu 39.
María Jónsson, systkini og frændfólk.
Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð og veitta hjálp
við andlát og útför
ÖNNU ÞORSTEINSDÓTTUR,
Neðra-Seli.
Loftur Jakobsson og börn.
GERIST ASKRIFEIVBIJR AB
TIMAIVIJM. - ASKRIFTASIMI 2323.