Tíminn - 01.09.1951, Síða 5

Tíminn - 01.09.1951, Síða 5
196. blað. TÍMÍNN, laugardaginn 1. september 1951. Laugard. 1. sepí. Ottinn við sarastarf alþýðustéttanna Grein um stjórnarskrár- máljð, er nýlega birtist hér í blaðinu, hefir komið illa við taugar Stefáns Péturssonar og ef til vill fleiri ráðamanna Alþýðuflokksins. Stefán hefir birt um hana langa forustu- grein í blaði sínu og mun vera von á fleirum frá hans hendi. í umræddri grein, sem birt ist hér í Tímanum, var hald- ið fram þeirri stefnu að að skilj a ætti framkvæmdavald og löggjafarvald. Alþingi ætti að fara meö löggjafarvaldið, eins og hingað til, en þjóðkjör inn forseti ætti að fara með framkvæmdavaldið. Ýms rök voru færð þessari tilhögun til stuðnings. Hér verða þau ekki rifjuö upp né það, sem fund- ’er tilhögun þessari til foráttu, því aö grein Stefáns gefur ekki tilefni til þess. í grein Stefáns er undantekningar- .laust gengið fram hjá þvý að ræða nokkuð kostj og galla þessarar ti]högunar,heldur er þar lýst ótta, sem viröist nú þjá hann og ýmsa aðra leið- toga Alþýðuflokksins í sam- bandi við umrædda uppá- stungu. Ótti Stefáns og sálufélaga hans er í stuttu máli á þessa leið: Ef umrædd tilhögun kæm- ist á, mypdi það að öllum lík- indum leiða til þeirrar breyt- ingar á fiokkaskipun landsins, að hér mynduðust tvær aðalfylkingar, íhalds- samir mehn' ahnars vegar og framsæknir o.g róttækir menn hins vegar. Slik þreyting myndi geta haft það í för með sér, að Alþýðuflokkurinn hyrfi úr sögunni í þeirri mynd, sem hann er nú. Þessi ótti er vissulega ekki með öliu ástæöulaus. Þeir kjósendur, er nú skipa hina þrjá svonefndu vinstri flokka landsins og samleið geta átt, yrði þá að taka upp nýja starfshætti. Þeir kjósendur yrðu þá annað tveggja að þoka Sér saman í einn flokk eða eina fylkingu ellegar að horfa upp á það, að íhalds- öflunum yrði látið eftir að ráða lögum og lofum í land- ,iru. Ótrúlegt væri, að sundrung vinstri aflanna myndi þá haldast lengi. Þau yröu þá neydd til þess að finna leið til samstarfs. En vitanlega gæti það haft í för með sér gerbreytingu á starfshá.ttum þeirra flokka, sem nú eru, og leitt til þess að ýmsir upp- gefnir foringjar yrðu að þoka um set. Frá þessu sjónarmiði getur ótti manna eins og Stefáns Féturssonar verið vel skilj- anlegur. Frjálslyndir og framsækn- ir menn ættu hins vegar ekki að þurfa óttast það, þótt til siíks kæmi, Það óheillaástand, sem ríkt hefir hérlendis á annan áratug, stafar framar öðru af því, að hin svonefndu vinstri öfl hafa skipzt í ósam- stæða og fjandsamlega flokka meöan íhaldsöflin liafa staðið sameinuð í einum vel skipu- lögðum fiokki, þar sem Sjálf- stæðisflokkurinn er. Afleið- 'ingar þessarar óheillaþróunar íslendingar eiga marga beztu frfáis- iþróttamenn í Evrópu Skí’á mn beztu íþróttaafrek Evrójmmauiiia á þessu ávl. Tíminn birtir hér í dag afrekaskrá Evrópu í frjálsum íþrótt um eins og skráin var um 30. ágúst. Er hér að nokkru stuözt við skrá, sem birtist í norska íþróttablaðinu nýlega, en afrek, sem unnin hafa verið síðan, er bætt inn í. Eins og sjá má af skránni, skipa íslendingar bar mörg sæti. Torfi Bryngeirs- son er beztur í stangarstökkinu, og Gunnar Huseby annar í kúluvarpi og framarlega í kringlukasti. Þá er Örn Clausen þriöji í 110 m. grjndahlaupi, en röðin í tugþrautinnj er ekki birt hér, en þar er Örn annar. Þá skipa sprctthlauparar okk- ar sér einnig í fremstu röð, en þess ber að geta, að Haukur Clausen nnði árangri sínum í 100 m. hiaupinu í nokkrum meðvindi. á dag 100 m. hlaup: McDonald Baily, England 10,2 Heinz Fútterer, Þýzkalandi 10,4 Vladimir Sucharev, Rússl. 10,4 Haukur Clausen, ísiand 10,5 Hans Geister, Þýzkaland 10,5 Evald Kiszka, Pólland 10,5 Levan Sanadze, Rússland 10,5 Lev Kaljajev, Rússland 10,5 Werner Zandt, Þýzkaland 10,5 Aldo Penna, ítalía 10,5 200 m. hlaup: McDonald Baiiy, England 20,9 Peter Kraus, Þýzkaland 21,1 John C. M. Wilkinson, Engl. 21,2 Vladimir Sucharev, Rússl. 21,2 Brian Shenton, England 21,4 Werner Zandt, Þýzkaland 21,4 Karl-Friedrich Haas, Þýzkal. 21,5 Hans Geister, Þýzkaiand 21,6 Hörður Haraldsson, Island 21,6 Haukur Clausen, ísland 21,6 400 m. lilaup: Hans Geister, Þýzkaland 47,2 Karl-Friedrich Haas, Þýzkal 47,3 Derek C. Pugh, Engfand 47,6 Josef Steger, Sviss 47,9 H. Wudtke, Þýzkaland 47,9 Degats, Frakkland 48,0 Harry de Kroon, Holiand 48,1 Rolf Back, Finniand 48,2 Jean-Paul Martin du Gard, Frakkland 48,2 Riou, Frakklandi 48,2 800 m. hlaup: Urban Cleve, Þýzkaland 1:50,0 Patrick el Mabrouk, F. 1:50,1 Heinz Ulzheimer, Þýzkal. 1:50,1 Pyetr Tjevgun, Rússland 1:51,0 Georgiy Modoj, Rússland 1:51,4 E. Viebahn, Þýzkaland 1:51,4 Portzebowski, Pólland 1:51,5 Hans Ring, Svíþjóð 1:51,6 Audun Boysen, Noreg 1:51,6 Tore Sten, Svíþjóð 1:51,7 1500 m. hlaup: S. Lundquist, Svíþjóð 3:44,8 O. Áberg, Svíþjóð 3:45,4 A. Otenhamjer, Júgóslavía 3:47,0 R. Bannister, England 3:43,4 Partick el Mabrouk, F. 3:48.6 Gaston Reiff, Belgía 3:49,0 Alf Holmberg, Svíþjáð 3:49,2 Werner Lueg, Þýzkaland 3:49,4 Iimari Taipala, Tékkóslóv. 3:49,8 Vaclav Cevona, Tékkóslóv. 3:50,0 Rune Person, Svíþjóð 3:50,0 Karl Kluge, Þýzkaland 3:50,2 3000 m. lilaup: Herbert Schade, Þýzkal. 8:15,8 Váino Koskela, Finnland 8:16,2 Hannu Posti, Finnland 8:17,0 Emil Zatopek, Tékkóslóv. 8:17,6 Gaston Reiff, Belgía 8:19,0 Nikifor Popov, Rússland 8:19,2 Bertil Albertsson, Svíþjóð 8:20,8 Zdravko Ceraj, Júgóslavía 8:21,8 Pentti Salonen, Finnland 8:22,0 B. Duraskovic, Júgóslavía 8:22,4 5000 m. hlaup: Gaston Reiff, Belgía 14:10,8 Emil Zatopek, Tékkóslóv. 14:11,6 Herbert Schade, Þýzkal. 14:16,6 Nikifor Popov, Rússland 14:20,8 Bertil Albertsson, Svíþjóð 14:20,8 Váino Koskela, Finnland 14:21,6 Hannu Posti, Finnland 14:22,6 Alain Mimoun, Frakkl. 14:23,0 Martin Stokken, Noregur 14:23,8 Ake Andersson, Svíþjóð 14:27,2 10000 m. hlaup: Martin Stokken, Noregur 29:55,0 Herbert Schade, Þýzkal. 29:55,4 Alain Mimoun, Frakkl. 30:01,4 Váino Koskela, Finnland 30:10,0 Bertil Andersson, Svíþjóð 30:10,0 Valter Nyström, Svíþjóð 30:14,4 Gaston Reiff, Belgía 30:18,8 Pentti Salonen, Finnl. 30:22,6 Hannu Posti, Finnland 30:25,2 Gustaf Jansson, Svíþjóð 30:41,2 110 m. grindahlaup: Jevgeni Bulatjik, Rússland 14,3 André-Jacuques M., Frakkl. 14,5 Örn Clausen, ísland 14,7 Popov, Rússland 14,7 sjást glöggt hér í Reykjavik. Vegna ósamkomulags vinstri aflanna hefir íhaldið getaö tryggt sér langvarandi yfir- ráð í bænum óg' notað þau vægðarlaust til þess aö láta gjaldþegna bæjarins standa undir herkostnaði sínum. Á- lagning aukaútsvaranna er nýjasta sönnun þess. Kosningaskipulagið á ekki minnstan þátt í því að halda við sundurlyndi vinstri afl- anna. Hlutfallskosningar skapa möguleika fyrir smá- flokka. Þær halda við glund- roðanum. Þeir foringjar, sem ekki hafa trú á mikilli alþýðu- hylli, kjósa heldur að halda í þennan glundroða en að stuðla að skipan, er knýr al- þýðuna til samstarfs. Þeir meta meira hm litlu flokks- völd sín, er geta fært þeim bein og utanfarir öðru hvoru, en að vinna gegn upplausn, glundroða og íhaldsyfirráð- um. Þess vegna heimta Ste- fán Pétursson og sálufélagar hans, að landiö verði gert að einu kjördæmi með hlutfalls- kosningum, svo að glupdroð- inn verði fullkomnaður. En þótt Stefán og félagar hans óttist slíkt, er áreiðan- lega meginþorri hinna ó- breyttu Alþýðuflokksmanna á öðru máli. Þeir vilja samstarf alþýðunnar til sjávar og sveita. Öruggasta leiöin til slíkrar samvinnu er breytt stjórnarskipan, sem vinnur gegn glundroðanum, en eyk- ur hann ekki. Þessi sameign- aralda á eftir að vaxa, þótt Stefáni og félögum hans tak- ist kannske að hamla gegn henni um stund. Óþarft er svo að svara þeim gorgeir Stefáns, að ritstjóri Tímans óttist vöxt Alþýðu- flokksins og vilji því fá stjórnarskrárbreytingu. Rit- stj óri Tímans myndi þvert á móti telja vel farið, að Alþýðu flokkurinn gæti unnið aftur það verkamannafylgi, er hann hefir misst til kommúnista og íhaldsins. Því miður þurfa hinsvegar ekki óvildarmenn Alþýðuflokksins að óttast slíkt meöan stefánskan ræð- ur ríkjum í flokknum. Meðan svo háttar mun Alþýðuflokk- urinn því mlður halda áfram að verða minnkandi flokkur. McDonald Baily Hippolyte Braekman, Belgía 14,8 , Ragnar Lundberg, Svíþjóð 14,8 | Kenneth Johansson, Svíþj. 14,8 ! Peter B. Hildreth, England 14,8 F. J. Parker, England 14,8 Hans Zepernick, Þýzkaland 14,8 i 400 m. grindahlaup : Jurlj Litujev, Rússland 52,2 Rune Larsson, Svíþjóð 52,6 I. Iljin, Rússland 53,3 K. Gösta Johansson, Svíþj. 53,3 Karl Kohlhoff, Þýzkaland 53,4 | Georg Sallen, Þýzkaland 53,4 Georges Elloy, Frakkland 53,5 Lars Ylander, Svíþjóð 53,6 Scharr, Þýzkaland 53,6 Armando Filiput, ítalía 53,7 3000 m. liindrunarhlaup: V. Kazantsev, Rússl. 8:49,8 Mihail Saltykov, Rússl. 8:57,6 Helmut Gude, Þýzkaland 9:02,4 Peter Segedin, Júgóslavía 9:06,2 A. Savenko, Rússland 9:07,2 Gunnar Karlsson, Svíþjóð 9:08,0 B. Duraskovic, Júgóslavía 9:08,2 Erik Blomster, Finnland 9:08,2 Curt Södeberg, Svípjóð 9:10,2 Lecat, Frakkland 9:11,0 Hástökk: Georges Damitio, Frakkl. 2,00 Gösta Svensson, Svípjóð 2,00 Arne Áhman, Svipjóð 1,99 AÍan Patterson, England 1,98 Göran Widenfelt, Svipjóð 1,98 J. Lansky, Tékkóslóvakia 1,97 Soeter, Rúmenía 1,97 Arne Ljungquist, Svípjóð 1,96 Walter Herssens, Belgia 1,95 Hermann Ndcke, Þýzkaland 1,95 ■’ S®' Stangarstökk: Torfi Bryngeirsson, ísland 4,32 Ragnar Lundberg, Svípjóð 4,30 Victor Sillon, Frakkland 4,29 Jukka Piironen, Finnland 4,20 Julius Schneider, Þýzkaland 4,20 Eeles Landström, Finnland 4,20 Antoni Saxa, Tékkóslóvakía 4,18 Erkki Kataja, Finnland 4,15 Boris Sueharev, Rússland 4,15 Langstökk: H. Visser, Holland 7,35 Ian G. H. Walker, England 7,32 Paul Faucher, Frakkland 7,30 Herbert Göbel, Þýzkaland 7,30 F. Wúrth, Austurríki 7,28 Emil Steger, Þýzkaland 7,27 Galavielle, Frakkland 7,23 Karl-Erik Israelsson, Svípj. 7,23 Breder, Saar 7,21 Jorma Valkama, Finnland 7,21 Þrístökk: Reino Hiltunen, Finnland 15,24 Lenoid Stjerbakov, Rússl. 15,21 Pentti Uusihauta, Finnland 15,13 Roger Norman, Svípjóð 14,90 Arne Áhman, Svípjóð 14,87 Lennart Moberg, Svipjóð 14,82 Y. Áhopalo, Finnland 14,80 Valdemar Rautio, Finnland 14,78 Sydney E. Cross, England 14,69 W. Bodenhagen, Þýzkaland 14,63 Kúluvarp: Heino Lipp, Eistland 16,95 Gunnar Huseby, ísland 16,69 (Framhald á 7. siðu) Það virðist ekki gert af mikilli alvöru hjá Alþýðubla® inu að átclja kostnað ríkis- ins við meira og minna ónauð synlegar utanfarir. í gær ræðst það harkalega á Tím- ann og telur það mestu ósvinnu, að hann skyldi segja fgrá utanfara,rstyrknum, er ríkisstjórnin veitti Alþýðu- sambandsforingjunum. Hver og einn getur getið sér þess til, hvers vegna Alþýðublaðið hefir kosið, að ekki fréttist um styrk þennan. í árás sinni á Tímann í þessu tilefni, reynir Alþýðu- blaðið að glefsa í Hermann Jónasson og er það að vanda. Það segir, að ríkissjóður hafi kostað ónauðsynlegar utanfar ir hans. Það væri æskilegt, að Alþýðublaðið talaði ljósar um þetta mál, því að ekki er Tímanum kunnugt um þessar utanfarir H. J. Þögn Alþýðublaðsins mun vissulega eiga eftir að sanna það, að þessi fullyrðing þess er til- hæfulaust fleipur eins og önn ur skrif þess um H. J. Hér skal svo ekki nieira rætt um hin geðillskufullu skrif Alþýðublaðsins í tilefni ax umræddum upplýsingum Tímans. Það skal hins vegar enn áréttað, að það er fyllsta þörf aö taka utanferðarkostn að ríkisins til fyllstu íhugun- ar. Opinberar utanferðir vegna viðskiptaei'inda eða þátttöku í áhrifamiklum sam tökum (t. d. Atlantshafsbanda laginu, Marshallendurreisn- inni og Sameinuðu þjóðun- um) eru vitanlega óhjákvæmi legar og mun enginn telja þær eftir. Hins vegar ernni við til viðbótar orðin þátttak endur í mörgum fullkomlega gagnslausum stofnunum, eins og t. d. vinnumálastofnuninni og Alþjóðlega þingmannasam bandinu, þótt því fylgi hins vegar verulegur kostnaður. Úr öllum slíkum stofnuniun eða samtökum þurfum við a® Iosa okkur, ef utanfararkostn aðurinn, er af þessu leiðir, á ekki að vaxa okkur yfir höf- uö. Það er svo kapituli út af fyr ir sig, að greiðslur til þeirra ferðalanga, er sitja fundi um i ræddra samtaka, er oftast ! fram úr hófi. Samkvæmt upp I Iýsingum, er Tíminn hefir i fengið, fá slíkir opinherir • sendimenn átta sterlingspund | í dagpeninga eða 365 kr. á i dag meðan utanförin stend j ur og svo ókeypis allan ferða. kostnað. Verður ekki aiuiað sagt en að ætlazt sé til að þeir haldi sig ríkmannlega. Geta ríkisins og gjaldþegn- anna er annað mál. Það mun hafa vei'ið í tíð nýsköpunar st j ór narinnar svonefndu, að utanferðir á ríkiskostnað hófust í stórum stíl. M. a. var þá svo langt gengið, að tveir kommúnistar fengu 14 þús. kr. styrk til að sækja verkalýðsráðstefnu í París. Sést á þessu, að ekki eru kommúnistar barnanna beztir í þessum efnum frem ur en öðrum, þar sem þeir hafa aðstöðu til. Síðan ný- sköpunarstjórnin innjeiddi umræddan sið, hefir honurn verið haldið áfram og er nú kominn úr hófi fram. Ríkis- stjórn og Alþingi verða nú að hefjast lianda um siðabót í þessum efnum. Almenningur krefst þess vissulega, að hér verði gerð endurbót svo um muni. X+Y.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.