Tíminn - 13.09.1951, Blaðsíða 7
206. blað.
TTMINN, fimnitudaginn 13. september 1951.
7.
Gctum nú útvcgað meS stnttmn fyrirvara
fyrir sveitaheimili.
Dæla allt a'ð 1100 lítrum á klukkustund.
Rafknúin, 220 volt, J/2 ha.
Þrýstiloft stjórnar dælunni og heldur hæfiiegum vatns-
þrýstingi á kerfinu á algjörlega sjálfvirkan hátt.
EINFÖLD — ÓDÝR.
STuarT
PRESSURE
PUMP S
Gerið pantanir yðar sem fyrst,
Klapparstíg 26
Fjárbúskapur að nýju
í uppsveitum Börgarfj.
Bændur i Borgarfirði hugsa gott til aukinnar sauðfjár-
ræktar, sagöi Haukur Jörundsson á Hvanneyri, er blaða-
maður frá Tímanum spurði hann frétta- úr Borgarfirði. Þó
eru ekki líkur til, að sauðfjárræktin verði á næstunni í lík-
ingu við það, sem hún var fyrr á árum er bezt lét.
Bændur skortir rekstursfé.
Það er ekki rétt annað en
horfast í augu við þá stað-
reynd, segir Haukur, að marg
ir bændur hafa alltof lítil fjár
ráð til að kaupa þann fjár-
stofn nú í haust, sem þeir
vildu helzt fá. Útgjöld-
in vegna fjárskiptanna eru
mikil, og það þarf mikil fjár-
ráð til að kaupa stóran lamba
hóp í haust til að byggja upp
í skyndi nýjan sauðfjárstofn.
Ræktunarframkvæmdir
hafa verið með minnsta móti
í sumar í Borgarfirði og kem-
ur aðallega tvennt til: Fyrst
og fremst rekstrarfjárleysi
bændanna, sem márgir hverj
ir verða að nota allt, sem þeir
eiga handbært og meira til,
vegna fjárkaupanna.
Klakinn tafði líka.
Önnur meginást'æðan fyrir
minnkandi ræktunarfram-
kvæmdum er sú, að ekki var
hægt að hefjast handa um
þær fyrr en um það bil mán-
uði seinna en venjulega. En
sá mánuður vortímans er ein
mitt sá tími, sem menn ætla
til þeirra framkvæmda og að
honum liðnum er minna um
frjálsar stundir.
Breyttir búskaparhættir.
Á síðustu árum, meðan sauð
fjársjúkdómarnir drógu úr
mönnum allan kjark við sauö
fjárræktina, hafa menn í
auknum mæli k-omið sér upp
kúabúum og treyst á mjólk-
ursöluna. Við fjárskiptin verð
ur á þessu nokkur breyting en
þó ekki jafn mikil og ætla
mætti í fyrstu.
Þeir, sem hafa komið sér
upp góðum fjósbyggingum og
eiga sæmilegan gripastofn og
hafa viðunandi aðstööu við
mjólkurflutninga, leggja ekki
nautgriparæktina á hilluna.
Öðru máli gegnir um bænd
ur í uppsveitunum á fremstu
bæjunum, þar sem mjólkur-
I flutningar eru erfiðir og tor-
’ sóttir, einkum að vetrinum.
! Þeir munu margir hverjir
1 hverfa aftur til sauðfjárrækt
1 arinnar eingöngu og ýmsir
; þegar hættir að selja mjólk.
j Ýtir það undir þá þróun, að
á liðnu vori var það skipulag
j tekið upp að skylda er að
flytja mjólk daglega frá fram
^leiðendum til mjólkurbúanna.
Góð heyskapartíð.
Sumarið hefir verið ein-
staklega gott í Borgarfirði,
hvgð hej^skapartið snertir.
Hey hafa verið hirt eftir hend
inni jafnóðum og aldrei þurft
að taka saman heytuggu und
] an rigningu fram að höfuð-
degi að kalla.
J Af þessu leiðir, að heyfeng
ur bænda er óvenjulega góö-
ur. Taðan vel verkuö og kjarn
mikil. Aftur á mcti er heyfeng
ur í minna lagi að vöxtum.
Þurrkarnir ollu minni sprettu
en oft hefir verið, en þó ekki
svo, að til neinna vandræða
horfi neins staðar í héraðinu.
Fckkst ckki sam-
þykkt í tveim til-
raiinum
Mossadeq forsætisráöherra
Persíu hefir nú sent brezku
stjórninni úrslitakosti sína í
olíudeilunni. Tillaga hans var
samþykkt einróma í öldunga-
deildiimi fyrir rúmri viku, en
samþykkt neðri deildarinnar
hefir ekki fengizt enn. Hefir
ekki orðið fundarfært sökum
fámennis þrátt fyrir tvær
fundarboðanir forsætisráö-
herrans.
6 volta
12 volta
32 volta
15, 25, 40, 60 og 100 watta
nýkomnar.
Sendum gegn póstkröfu.
Véla- og raftækjaverzlunin
Tryggvagötu 23. — Sírni 81 279
Snemmbær
kýr
til sölu í Króki í Grafningi.
Sími um Ásgarð. .
Fiskaflinn 50 þúsund
lestum meiri en í fyrra
Fiskaflinn í júlí 1951 varð
64.632 smálestir, þar af síld
33.418 smálestir en til saman
burðar má geta þess, að í júlí
1950 var fiskaflinn 33.462 smá
lestir, þar af síld 15.475 smá-
lestir.
Fiskaflinn frá 1. janúar til
31. júlí 1951 varð alls 251.710
smálestir þar af síld 34.125
smálestir, en á sama tíma
1950 var fiskaflinn 199.567 smá
lestir, þar af síld 15.647 smá-
lestir og 1949 var aflinn
187.733 smálestir, þar af síld
6.341 smálestir.
Hagnýting þessa afla var
sem hér segir (til samanburð
ar eru settar í sviga tölur frá
sama tíma 1950):
Isvarinn fiskur 26.830
(26.802) smálestir, til frysting
pr 74.752 (44.940) smálestir,
til söltunar 51.120 (87.669)
smálestir, til herzlu 6.204
(475) smálestir, í fiskimjöls-
verksmiðjur 56.564 (22.608)
smálestir, annað 2.115 (1.426)
smálestir, síld til söltunar
6.440 (1.012) smálestir, sild til
frystingar 235 (478) smálest-
ir, sild til bræðslu 27.450
(14.157) smálestir.
Þungi fisksins er miðaður
við slægðan fisk með haus að
undanskilinni síld ,og þeim
fiski, sem íór til fiskimjöls-
vinnslu en hann er óslægður.
Ráðlten'askipíi
(Framhald af 8. síðu.)
arlandvarnaráöherra um
skeið. Hann er 56 ára að aldri
og-var áður hermálaráðherra
á fyrri árum síðari heimsstyrj
aldarinnar og er talinn hinn
traustasti maður. Við embætti
aðstoðarlandvarnaráðherra
tekur William Foster, sem ver
ið hefir yfirmaður efnahags-
samvinnustofnunarinnar í
Washington.
4000 síldartunnnr
til Hafnarfjarðar
Togarinn Pétur Halldórsson
kom í gærmorgun til Hafnar-
fjarðar meö um 4000 síldar-
tunnur, sem skipaö var þar
á land. Tunnur þessar munu
eiga að vera til taks, ef söltun
reknetasíldar hefst aftur.
H.f. Eimskipafélag íslands
M.s. Gullfoss
fer frá Reykjavík laugardaginn 29.
sept. kl. 12 á hádegi til Leith og Kaup
mannahafnar.
Pantaðir farseölar skulu sóttir eigi
síöar en þriðjudag 18. sept. Það skal
tekið fram, að farþegar verða að sýna
fullgild vegabréf þegar farseðlar eru
sóttir.
Bacho-skiptilyklar
Bacho-rörtengur
Heflar, ýmsar gerðir
Þvingur
HurSar-þvingur
Stangalamir
Smekklásar
Járnborar
Saumborar
Járnsagarblöð
Tommustokkar
Vörugeymsla
Hverfisgötu 52.
Áminnin
til þeirrii kiiupcncla er grciða eiga íslað
gjaldið til innlicimtumaima
Nú fyrir skömmu hafa allir þeir kaupendur
verið aðvaraðir bréflega" um að greiöa blað-
gjaldið er greiða eiga það til innheimtumanna.
Bregðist þegar við og greiðið þegar viðkom-
andi innheimtumanni blaðgjaldið eða sendið
Ú>
innheimtunni greiðslu strax.
Greiðið blaðgjaldið fyrir septemberlok
Snnheimta Tímans
Innleysið póstkröfurnar
Þeim kaupendum utan Reykjavíkursvæðis-
ins er greiða eiga blaðgjaldið beint til inn-
» heimtu blaðsins hafa verið sendar póstkröfur
fyrir ógoldnum blaðgjöldum. Innleysið póst-
kröfuna þegar er yður berst tilkynning um
hana frá næsta pósthúsi.
GreiðiÖ blaðgjaldið fyrir septemberlok
ðnnheimta Tímans