Tíminn - 13.09.1951, Qupperneq 8
ÆRLEWT YFERl,BT“ t 1*AG:
Nehru otj Konaressfl&hkttrhin
35. árgangur.
Reykjavíli,
13. september 1951.
206. b!að.
Marshall landvarnaráðherra
Bandaríkjanna bjðst lausnar
Ekki fleiri Sigifirðingar
heima en að vetrarlagi
Á 'iniiítft huitðrað maitns fér í atvinuulcit
Lovett áður aðstoðarraSherra hefir verið
skipaður landvarnaráðherra £rá 1. sept.
ÞaS var tílbynnt í Washington í gær, aS Marshall lanð-
varnaráðherra Bandaríkjanna hefði beðizt lausnar frá ráð- j
Joerrastcrfiun og verið veitt hún. Rchert Lovett aðstoðar-
landvnrnaráðherra hefir verið skinaður landvarnaráðherra
í stað Marshalls.
Hið ódýra vinnuafl
í Japan veldnr
erfiðleikum
Kenneth Yonger, innanrík
isráðherra Breta kom heim
til Londo n ígær af ráðstefn
unni i San Prancisco. Hann
rædúi við fréttamenn við
heimkomuna og sagði, að
fjarri færi því, að allur vandi
1 sambúðinni við Japan og
önnur Austur-Asíuríki væri
Ieystur með undirskrift frið-
arsamninganna. Misræmið í
efnahags- og framleiðslumál
um væri enn óleyst vandamál.
Þar ylli mestum vanda hið
mikla og « ódýra vinnuafl
Japana. Þó hefði ekki verið
talið fært að setja um þetta
ákvæði i friðarsamningana
því að það hefði getað leitt
af sér nýjan vanda sem kom-
ið hefði fram i auknum hern-
aðaranda í Japan og tilhneig
ingu til fasisma.
Atvinnuskortur
á Suðureyri
Frá fréttaritara Tfmans
á Suðureyri.
Atvinnulítið hefir verið á
Suðureyri í sumar. Höfðu þó
nokkrir menn vinnu við að full
gera veginn um hlíðina vest-
an fjarðarins, en því verki
var lokið um miðjan ágúst-
mánuð'. Nokkrir ungir menn
hafa farið burtu í atvinnu-
leit nú upp á síðkastið.
Róðrar hafa verið lítið
stundaðir nú seinnipart
sumarsins, enda ekkí hagstæð
veðrátta við handfæraveiðar,
en þær eru aðallega stundað
ar hér á sumrin. Hin ’ versta
tíð -hefir verið norðan til á
Vestfjörðum síðan seinni-
hluta ágústmánaöar, sífelld-
ur norðaustan stormur með
mikilli úrkomu öðru hvoru, og
erfitt hefir verið við heyskap
vegna þessa slæma tíðarfars.
25 farþegar
,strokulestarmnar’
biðjast landvistar
Tuttugu og fimm af farþeg
um lestarinnar sem ók inn i
Vestur-Þýzkaland frá Tékkó-
slóvakiu í fyrradag hafa nú
fengið þar landvistarleyfi, en
áttatíu hafa óskað að hverfa
heim aftur.
Marshall lagði lausnar-
beiðni sína fyrir Truman 1.
sept. sl. Á funai, sem Mars- |
hall átti með blaðamönnum í í
gær, sagði hann, að ástæður j
sínar til lausnarbeiðninnar
væru algerlega persónuleyar
en stöfuðu ekki af neinum á-
greiningi innan stjórnarinn-
ar.
ViMi ekkj hverfa frá i v©r.
Marshall sagði, að þegar
hann hefði fallizt á ao taka
við embættinu eftir Johnson
fyrrv. landvarnaráðherra,
hefði ekki verið gert ráð íyrir
því, að hann gegndi starfinu '
lengur en til júníloka í sum-
ar. Þá heíði hins vegar stað- j
ið svo á í stríðinu í Kóreu og
eins hefði margt verið óráð-
ið í sambandi við varnir Vest
ur Evrópu, svo að ekkj hefði
verið talið ráðlegt að láta ráð
herraskipti eiga sér stað.
Hann heíði því orðið við þeirri
beiðni forsetans að sitja enn
í tvo mánuði.
I
Enginn nnniff meira fyrir j
lanáiff.
Marshall er nú sjötugur að
aldri. Hann var yfirmaður
bandaríska heríoringjaráðs-
ins í styrjöldinni og á að baki
mikla. sögu i hermálum
Bandaríkjanna. Hann átti
og hugmyndina og drýgstan
þátt í að koma á hinni miklu
efnahagshjálp við ríki Evrópu
og annarra heimsálfa sem við
hann hefir verið kennd.
Truman forseti hefir átið
svo um mælt við brottför
Marshalls, að hann hafi veitt
lausnarbeiðninni móttöku
með hryggð í huga og það
væri sér harla þungbært, að
Marshall skyldi ekki fást til
að gegna embættinu lengur.
Enginn maður heíði þjónað
landi sínu af meiri trú-
mennsku og gagnsemi en
j Marshall, Hann hefði átt
drýgstan þátt í því að sam-
eina simdraffan styrk Evrcpu
ríkjanna, til sameiginlegrar
varnar og einnig orðið áhrifa
drýgstur í þá átt að fá Banda
ríkjaþing til að halda áfram
fjárframlögum til efnahags-
hjálparinnar á sama hátt og
hann hefði átt mestan þátt í
því að hrinda henni af stað.
Engin breyting á utan-
rikisstefmmni.
Þá sagði Truman að engin
breyting mundi verða á utan
ríkisstefnu Bandaríkjanna af
þessum sökum enda væri eft
irmaður Marshalls einhver
handgengnasti og nánasti
samstarfsmaður hans frá
liðnum árum.
Hinn nýi landvarnaráffherra.
Robert Lovett eftirmaður
Marshalls hefir verið aðstoð-
(Framhald á 6. síffu)
Telja Frakka haía
brotið Pottsdam-
samþykktina
Rússneska stjórnin hefir
sent frönsku stjórninni orð-
sendingu þar semFrakkar eru
sakaðir um brot á Potsdam
samþykktinni og sérsamning
um Frakka og Rússa í stríðs-
lo'k. Telja Rússar, að Schum-
anáætlunin um þungaiðnað-
inn og Plevenáætlunin um
þátttöku Þjóðverja i vörnum
Vestur-Evrópu séu brot á
samningum þessum.
.Franska .stj órnin rædrli. orð
sentíinguna i gær en ekkj er
enn víst, hvort henni verður
svarað. Frönsk biöð telja, að
orðsendingin sé send nú til
þess að reyna að skj óta Frökk
um skelk í bringu um þær
mundir sem þessi mál eru
rædd vestan hafs á fundum
utanríkisr^ðherranna og
koma í veg fyrir samlyndi
vesturveldanna um varnir
Vestur-Evrópu.
Robert Lovett hinn nýi land-
varnaráðherra
Marshall fráfarandi land-
varnaráðherra (til hægri á
taii viff gríska stjórnmáia-
manninn Tsaldaris
á SnðnrEes, og bíðar þar cnn átckía
Frá fréttaritara Tímans i Siglufirði.
Hér á Sighifirði er nú ekki fleira fólk heima en venjulega
er eftir árarnótin, er þeir, sem sækja brott á vertíff, eru farn-
ir að heiinan. Fóru á annaff hundraff Siglfirffinga suffur á
Suðurnes í von um vinnu við síldarsöltun.
Sumarvinna fólks • í Siglu-
firði varð næsta rýr, og hugs-
uðu því margir að bæta sér
hana upp meö' síldaryinnu á
Suðurnesjum, Þvi miður varð
sú vinna endaslepp, ög enda
þótt Siglfirðingarnir séu ekki
komnir heim aftur, eru þeir
flestir atvinnulitlir syðra. Er
þess beðið hverju fram vind
ur í von um það, að síldar-
söltun hefjist aftur við Faxa-
flóa.
SáralítiJ atvinna fram-
undan heima fyrir.
Heima fyrir er lítil sem eng
in atvinna, og virðist svo sem
framunúan sé ekki önnur at-
vinna en sú, sem skapast við
útgerð togaTanna tveggja,
Elliða og Hafliða. Er Elliði á
ísfiskveiðum nú, en Hafliði,
sem var á sildveiðum í sumar,
mun fara á veiðar eftir svo
sem viku, sennilega ísfiskveið
ar.
Tunnuverksmiðjan.
Tunnuverksmiðjan í Siglu-
firði verður starfrækt i vetur,
og er búið að festa kaup á við-
líka miklum efnivið og keypt
ur var í fyrra. Var efniviður-
inn keyptur í NorSur-Svíþjóð.
Hins vegar hefir ekki fengvíi'c
skip t:l þess að flytja efnvio
inn hingað til lands, en
tunnusmíði í verksmiðjunni
verður hafin strax og efnivið
ur kemur.
Námsstyrkir frá
British CoudsíI
British Council hefir ákveð
ið að veita tvo eða þrjá styrki
á háskólaárinu 1952 til 1953
til íslenzkra námsmanna
karla eða kvenna. Aldur þessa
námsfólks á að vera 25 til 35
ár og verður það aö hafa lok-
ið háskólaprófi. Aðeins kandi
datar með góða enskuþekk-
ingu koma til greina.
Umsóknir sendist'' brezka
sendiráðinu Templarasmidi,
Reykjavíkur og verða að haía
borizt fyrir 30. nóv 1951.
Finttska stjórnin
baðst lausnar í gær
Finnska stj órnin baðst
lausnar i gær eftir allharðar
deilur, sem oröið hafa innan
stjórnarinnár. Kekkonen for-
sætisráðherra lagði lausnar-
beiðni sína íyrir Paasikivi for
seta í gær, en forsetinn mun
ræða við formenn þingflokk-
anna um nýja stjórnarmynd-
un í dag.
Næsti togari með
fisksjá verður
Keffvíkingur
Eítir þá reynslu, sem feng-
izt hefir af fisksjánni, bæði á
rekneteveiðunum í vélbátn-
um Hásteini, togaranum Rcðli
frá Hafnarfirði og í fiskirann
sóknarskipinu Fanneyju hef
ir áhugi skipstjóra og útgerð
armanna mjög beinzt að
henni. Allmargir útgerðar-
menn hafa nú pantað fisksjá
í skip sín og munu fá hana
á næstunni. Mun hér vera um
að ræða eina 10 báta og skip.
Næsti togarinn, sem hefir
ákveðið að fá sér fisksjá, er
Keflvikingur, en auk þess
hafa þessi skip pantað hana:
Helga frá Reykjavík, Björn
Jónsson, Reykjavík, Týr frá
Vestmannaeyjum, Bangsi
Bolungavík, Einar Hálfdáns
Bolungavík, Keilir frá Akra-
nesi og Edda í Hafnarfirði.
Lögþing Færeyinga
kvatt saman
Lögþing Færeyja hefir ver-
ið kvatt saman til að ræða
fjárhagsvandræði þau, sem
nú steðja að í eyjunum og
komið hafa meðal annars
fram í fjárþrotfi Sjóvinnu-
bankans. Dönsk nefnd hefir
nýlega lckið athugun sinni á
fjárreiðum. bankans og fjár-
málum Færeyja yfirleitt.
Sameiginlegur innd-
ur ntanríkisráð-
herranna
Fyrsti sameiginlegi fundur
utanríkisráðherra vesturveld
annn í Washington var hald-
inn í gær og var þátttaka V.-
Þýzkalands 1 sameiginlegum
vöynum og efnahagssamstarf
Vestur-Evrópu á dagskrá. í
dag halda þeir annan sameig
inlegan fund, en á morgun
leggja þeir af stað til Ottawa
þar sem ráðstefna utanríkis-
ráðherra Atlantshafsríkj -
anna hefst um helgina.
Á fundinum í dag eru 16
mál á dagskrá þar á meðal
afstaða vesturveldanna til
hugsanlegrar upptöku
Grikkja og Tyrkja í Atlants-
hafsbandalagið. Það mál
verður annars nánar rætt í
Ottawa.