Tíminn - 03.10.1951, Side 2
2.
TÍMINN, miðvikudag:inn 3. október 1951.
223. blaff.
Utvarpið
Útvarpið i kvöld:
Fastir liðir eins og venjulega.
Kl. 20,30 Útvarpssagan: „Upp við
Fossa“ eítir Þorgils gjallanda;
XV. —.sögulok. (Helgi Hjörvar).
21,00 Tónleikar: Lög eftir Svein
björn Sveinbjörnsson (plötur).
21,20 Gangnaþáttur: Á heiða-
löndum Húnvetninga (Björn
Magnússon). 21,50 Tónleikar
(plötur). 22,00 Fréttir og veður-
fregnir. 22,10 Danslög (plötur).
22,30 Dagskrárlok.
Útvarpið á morgun:
Fastir liðir eins og venjulega.
Kl. 20,30 Einsöngur: Joan Ham-
inond syngur (plötur). 20,45 Dag
skrá Kvenfélagasambands ís-
lands. — Upplestur: Úr kistu-
liandraðanum (frú Aðalbjörg
Siguröardóttir). 21,10 Tónlelkar
(plötur). 21,15 Frá útlöndum
lAxel Thorsteinson). 21,30 Sin
fqnískir tónleikar (plötur). 22,00
Fréttir og veðuríregnir. 22,10
Framhald sinfónísku tónleik-
enna. 22,45 Dagskrárlok.
Sambandsskip:
Ms. Hvassafll átti að koma til
Siglufjarðar í dag frá Seyðis-
firði. Ms. Arnarfell fór frá Þor-
lákshöfn 27. f. m. áleiðis til
ítalíu mð saltfisk. Ms. Jökulfell
er á leið til New Orleans frá
Guayaquil.
Hvar eru skipin?
Ríkisskip:
Hekla er í Reykjavík. Esja er
í Reykjavík og fer þaðan næst
komandi föstudag vestur um
land í hringferð. Herðubreið er
á Austfjörðum á suðurleið.
Skjaldbreið fór frá Reykjavík
í gærkvöld til Húnaflóahafna.
Þyrill er í Reykjavík. Ármann
var í Vestmannaeyjum í gær.
Eimskip:
Brúarfoss er á Breiðafirði, og
fer þaðan til Vestfejarða að lesta
frosinn fisk. Dettifoss fór frá
Antverpen 1. 10. til Hamborgar,
Rotterdam, Hull og Leith. Goða
foss fór frá Reykjavík 1. 10. til
New York. Gullfoss fór kl. 15,00
í gærdag 2. 10. frá Leith til
Kaupmannahafnar. Lagarfoss
fór frá New York 26. 9., væntan
legur til Reykjavíkur 4. 10.
Reykjafoss fór frá Dordrecht í
Hollandi í gærmorgun 2. 10. til
Hamborgar. Selfoss er í Reykja
vík. Tröllafoss fór frá Reykja-
vík 25. 9. til New York. .Röskva
er: í Gautaborg; fer þaðan til
Reykjavíkur. Bravo lestar í
London 5. 10., fer þaðan til Hull
og. Reykjavíkur.
Flugferðir
Loftleiðir.
í dag verður flogið til Akur-
eyrar, Hólmavíkur, ísafjarðar og
Vestmannaeyja. Á morgun er
áætlað að fljúga til Akureyrar
og Vestmannaeyja.
Flugfélag íslands.
Innanlandsflug: f dag er áætl
að að fljúga til Akureyrar (2
ferðir), Vestmannaeyja, Hellis-
sands, ísafjarðar,_ Hólmavíkur
og Siglufjarðar. Á morgun er
ráðgert að fljúga til Akureyrar
(2 ferðir), Vestmannaeyja, Ólafs
fjarðar, Reyðarfjarðar, Fáskrúðs
fjarðar, Blönduóss, Sauðárkróks
og Siglufjarðar. — Millilanda-
flug: Gullfaxi kom frá London
í gærkveldi.
Úr ýmsum áttum
Sendiherra Bandaríkjanna
hér á landi hr. Edward B.
LaWson er nýkominn hingað
heim úr utanför og hefir tekið
við forstöðu sendiráðsins frá 14.
sept. að telja.
ímyndunarveikin
í Þjóðleikhúsinu.
Sýningar á ímyndunarveik-
inni eftir Moliere hefjast i Þjóð
leikhúsinu annað kvöld. Var
þetta bráðskemmtilega leikrit
sýnt í vor sem leið við fádæma
aðsókn og hrifningu áhorfenda.
Þá lék frú Anna Borg hlutverk
Toinette, en nú hefir ungfrú
Sigrún Magnúsdóttir tekið við
hlutverkinu. Leikstjóri er hinn
' sami og áður, Óskar Borg, og
leikendur allir hinir sömu nema
Bjarni Bjarnason, sem leikur
og syngur hlutverk Glantes,
sem Birgir Halldórsson fór með
áður, en hann varð fyrir því
! slysi að fótbrotna, þegar nokk-
, uð var liðið á æfingartímann.
ímyndunarveikin var sýnd 14
sinnum í vor. — Frumsýningar
gestir, sem vilja sjá sýninguna
annað kvöld, verða að gera að-
vart í aðgöngumiðasölunni fyrir
kl. 4 í dag, því að engir að-
göngumiðar verða fráteknir áð-
ur en sala hefst.
Myndin er af Elínu Ingvars-
dóttur í hlutverki Angelique.
Heilbrigðismálaráðuneytið
hefir gefið út leyfisbréf handa
Elíasi Eyvindssyni til að starfa
sem sérfræðingur í svæfingum
og deyfingum, og mun hann
vera fyrsti læknir, sem gerir
slíkt að sérgrein, enda er hann
sérmenntaður erlendis á þessu
sviði.
Landskeppni í skák.
Síðasta umferð landskeppn-
innar verður tefld í kvöld. Efst
ir eru nú Friðrik og Lárus með
3y2 vinning hvor.
Sýning Barböru og Magnúsar.
Málverkasýning þeirra hjón-
anna Barböru og Magnúsar
Árnasonar er opin í Listvinna-
salnum við Freyjugötu alla daga
frá kl. 1 til 10 síðdegis. Aðsókn
hefir verið mjög góð og hafa
þegar selzt tíu myndir. Mál-
verkin eru öll landslagsmálverk,
mest úr Borgarfirði og af Snæ-
fellsnesi.
Vestur-Húnvetningar
voru ranglega taídir á eftir
Snæfeliingum, er skýrt var frá
þátttöku héraðanna í samnor-
rænu sundkeppninni. Hlutfalls-
tölurnar eru hins vegar réttar.
Hraðamet.
S. 1. mánudag setti Douglas-
flugvélin „Gunnfaxi" frá Flug-
félagi íslands nýtt hraðamet á
leiðinni Reykjavík—Akureyri.
Flaug hún vegalengdina á 44
mínútum eða þremur mínútum
skemur en þessi leið liafði verið
farin áður á stytztum tima.
Flugstjóri á „Gunnfaxa" í
þessari ferð var Anton Axelsson.
Elzti Akurnesingurinn Iátinn.
Kristján Daníelsson, Kirkju-
völlum á Akranesi, lézt í fyrri-
nótt 93 ára að aldri. Kristján
var elztur manna á Akranesi.
Til safnaðarfóiks í Nessókn.
Ég vil fyrir hönd Kvenfélags
Neskirkju, minna sóknarfólk
vinsamlega á það, að happdrætt
isnefr.d félagsins biður fólk að
gera svo vel að taka höndum
saman og greiöa fyrir því eins
og hægt er, að happdrættismið
arnir seljist nú scm örast og
sem víðast, því sá tími er að
koma að gera þarf nefndinni
skil núna um mánaðamótin á
andvirði miðanna, eða þá þeim
sjálfum. Jafnframt skal það
þakkað, hve margir hafa gert
góð skil nú þegar, og hve ágæt
þcssu, eins og endranær, þegar
félagskonur hafa leitað til safn
aðarfólksins. Drátturinn í happ
drættinu fer frarn 15. nóvember,
og eru þar margir ágætir og
dýrmætir munir, eins og talið
er upp á happdrættismiðunum.
Kvenfélagið þakkar öllum, sem
stutt hafa og eflt þetta happ-
drætti í orði og í verki.
Jón Thorarensen.
Óháði fríkirkjusöfnuðurinn
gjafir og áheit:
Kirkjubyggingarsjóður: Áheit
frá G.J. 100, kona í Meðallandi
50, E.E. 1100, A.A. 500, S.J. 100.
Gjafir: Minningargjöf um móð
ur frá M.B. 100, Jón í Brún 20,
S.J. 100, Þ. Jónsson 1.000,00. Af-
hent af presti safnaðarins frá
utansafnaðarkonu K.E. 1.000,00.
Saínaðarsjóður: Áheit frá Sig-
urði 50, E. Jóhannsdóttir 100.
Gjafir: Steindór 80, Kona 10,
Kona 5, Sigurður og Ólafía 50,
H. ísleifsson 100, N.N. 100, V.
100, Þ.L. Jónsson og frú 200, A.A.
100, afhent af frú I. ísaksdótt-
ur frá E.M. 50, N.N. 10, og ó-
nefndri konu 50. Afhent af
presti safnaðarins frá utan-
safnaðarmanni Il.L. 300, vildar-
vin safnaðarins 50, J.J. 100.
Kærar þakkir.
Gjaldkerinn.
KAKTUSBUÐIN
HÖFUSVS OPNAÐ AFTUR
Höfum mikið úrval af pottaplöntum og afskorn-
mn blómum, Tökum að okkur allskonar skreyt-
mgc’r.
Laugaveg 23
KAKÍlSBtðlX.
Tómar t
♦
♦
Höfum fyrirliggjandi áttunga, kvartel og hálftunn-
ur, tilvalin ílát undir slátur, síld og kjöt.
Einnig saltsíldarflök, beinlaus og roðlaus á
áttungum. —
IÐSTÖÐIN H.F.
Vesturgötu 20 — Símar 1067 og 81 438
Fuglafriðiinarlög
(Framhald af 1. síðu.)
fugla eða reka þá saman og
nota vélbáta við fuglaveiðar
á ósöltu vatni eða báta, sem
gímga hraðar en tólf sjómíl-i
ur við fugla á sjó. Net eru
bönnuð við fuglaveiðar á sjó
og landi, nema fyrir lunda,1
þar sem hann stendur æðar-!
varpi fyrir þrifum, og skal þá
hirða fuglinn úr jafnóðum
eða vitja um net eigi sjaldn-
ar en tvisvar á dag. Fleka,
síingi, króka, gogga, öngla,
boga, gildrur og ljósaútbún-
að má ekki nota né aðrar fast
ar veiðivélar, og ekki má
eitra fyrir fugla nema með
sérstakri undanþágu.
Myndataka af örnum, fálk-
um, snæuglum og haftyrðl-
um er bönnuö við hreiður, og
bannað að selja eða gefa frið-
aða fugla og egg þeirra.
Viðurlög.
Viðurlög eru ákveðin 100—
5000 króna sekt fyrir að
skjóta fugla og meiri, ef stór-
fellt brot er, en fyrir eggja-
töku 50—4000 króna sekt. Á
tilraun til brots skal litið sem
fullframið brot, og má enginn
hleypa af skoti á annars
manns landareign, án leyfis
eiganda eða landleigjanda,
og varðar slíkt 50—1000 króna
se.kt. —
TILKYNNING
iim lögtak á |slisgg|öl«lsam át’slass 1951.
Lögtak hefir verið úrskurðar á sköttum og gjöldum
ársins 1951.
Þeir skattgreiðendur í Reykjavík, sem enn hafa ekki
greitt gjöld sín að fullu, verða að Ijúka greiðslu þeirra
hið allra fyrsta, ef þeir ætla að komast hjá lögtaki,
sem framkvæmt verður án frekarj aðvörunar og mega
menn ekki gera ráð fyrir að reikningum þeirra verði
áður framvísað af innheimtumanni.
Reykjavík, 2. október 1951,
Tollstjéraskrifstofan.
Hafnarstræti 5.
i
TILKYNNING
FRÁ KIRKJUGÖRÐUNUM í REYKJAVÍK:
Sigurbjörn Þorkelsson hefir verið ráðinn forstjóri
kirkjugarðanna. Viðtalstími hans er á skrifstofunni
í Fossvogskirkjugarði fyrst um sinn kl. 11—12 f. h.
virka daga og á öðrum tímum eftir samkomulagi. Sími
81 166 og sími heima 4355.
GUÐRUN ÞORLAKSDOTTIR
v,
frá Korpúlfsstöðum, sem lézt 25. sept., verður jarffsett
aff Lágafelli fimmtudaginn 4. okt. og hefst kirkjuat-
höfnin kl. 2 miðdegis. — Blóm og kransar afbiffjast,
en þeir, sem vildu minnast hinnar látnu, eru beðnir að
láta Krabbaminsfélagið njóta þess.
Bílferð verður frá Ferðaskrifstofunni kl. 1,30.
Þorbjörg Guðmundsdóttir, Bjarnveig Guðjónsdóttir,
Guðmundur Þorláksson.
sas
Þökkum innilega sýnda samúð og hluttekningu við
andlát og jarðarför
MARGRÉTAR GEIRSDÓTTUR,
Kárastíg 6.
Börn og tengdabörn.
Alúðar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur sam-
úff og vinátfu við andlát og jarðarför
ÞORSTEINS BJARNASONAR frá Háholti.
Vandamenn.