Tíminn - 03.11.1951, Qupperneq 2
2.
TÍMINN, Iaugardaginn 3. nóvember 1951.
249. blað.
'Jtá hafi tií
DíVflfpíð
Útvarpið í dag:
Kl. 8,00 Morgunútvarp. — 9,10
Veðurfregnir. 12,10—13,15 Hádeg
isútvarp. 15,30—16,30 Miðdegis-
útvarp. 18,00 Útvarpssaga barn
anna: „Hjalti kemur heim" eft
ir Stefán Jónsson kennara (höf
undur les). I. 18,25 Veðuríregnir.
18,30 Dönskukennsla; II. fl. —
19,00 Enskukennsla; I. fl. 19,25
Tónleikar: Samsöngur (piötur).
19,45 Auglýsingar. 20,00 Fréttir
ög veðurfregnir. 20,20 Leikrit*:
„Jeppi á Fjalli“ eftir Ludvig.Hol
berg, í þýðingu Lárusar Sigur-
björnssonar. Leikstjóri: Þcr-
steinn Ö. Stephensen. Leikend
ur: Þorsteinn Ö. Stephensen,
Gunnþórunn Halitíórsdóttir,
Brynjólfur Jóhannesson, Indriði
Waage, Gestur Pálsson og Al-
freð Andrésson. 22,05 Fréttir og
veðurfregnir. 22,10 Danslög (plöt
ur). — 24,00 Dagskrárlok.
Útvarpið á morgun:
Kl. 11,00 Messa í Aöventkirkj
unni. Óháði fríkirkjusöfnuður-
inn í Reykjavík. Séra Emil
Björnsson. 15,30 Miödegistónleik
ar. 18,30 Barnatími (Baldur
Pálmason). 20,30 Einsöngur:
Guðrún Á. Símonar syngur; við
liljóðfærið: Fritz Weisshappel.
21,00 Óskastund (Benedikt
Gröndal ritstjóri). 22,05 Dans-
lög. 23,30 Dagskrárlok. |
Hjónaband.
i dag verða gefin saman í
hjcnaband ungírú Þórunn Jóna
Þórðardóttir, Þingholtsstræti 1,
og Sigmundur Guðnason múr-
ari, Hrísateig 5. Heimili þeirra
verður að Hrísateig 5. Séra Emil
Björnsson gefur brúðhjónin
saman.
Brúðkaup:
í dag verða gefin saman á
Blönduósi ungfrú Ingi'ojörg
Ko’ka'og- Zóphónías Ásgeirsson
á Blönduósi og ungfrú Halldóra
Kolka og Kans Júlíusson. bif-
yélavirki. — Þessi dagur er brúð
kaupsaímæli foreldra þeirra
systra, frú Bjargar og Páls
Kolka héraðslæknis.
t
Þurrmjólk
FYRIRLIGG JANÐI:
/Messiír
Hvar eru skipin ? '
Sambandsskip:
Ms. Hvassafell losar kol á
Skagaströnd. Ms. Arnarfell er
væntanlegt til Reykjavíkur í
kvöld frá Malaga. Ms. Jökulfell
er í New York.
Ríkisskip:
Hekla fer frá Reykjavík kl.
24 annað kvöld vestur um land
í hringferð. Esja er væntanleg
til Reykjavíkur í dag að austan
úr hringferð. Herðubreið fór frá
Reykjavík í gærkveldi austur
um land til Siglufjarðar. Skjald
breið er á Skagafirði á norður- ]
ieið. Þyrill er § leiö til Hollands.
Ármann fer frá Reykjavík í
kvöld til Vestmannaeyja. ;
Eimskip:
Brúarfoss fór frá Gautaborg
29. 10. til Reykjavikur. Dettifoss
er í Reykjavík. Goðafoss kom til
Reykjavíkur 28. 10. frá New
York. Gullfoss fer frá Reykja-
vík á liádegi í dag 3. 11. til Leith
og Kaupmannahafnar. Lagar-
foss fór frá Reykjavík 31. 10. til
New York. Reykjafoss er i Ham
borg. Selfoss fór frá Húsavík 26.
10. til Delfzyl í Hollandi. Trölla
foss kom til Reykjavikur 27. 10.
frá Halifax og New York. Bravo
kom til Reykjavíkur 29. 10. frá
Hull. ,
Ftugferdir
Loftleiðir.
í dag er áætlað að fljúga til
Akureyrar, tsafjarðar og Vest-
mannaeyja.
Árnað heiila
Hjónaband.
í dag verða gefin saman í
hjónaband ungfrú Jónína Árna
dóttir frá Ártúnum í Rangár-
vallasýslu og Hermann Þorberg-
ur Guðmundsson, Bergsstöðum,
Bíldudal.
Hjónaband:
1 dag verða gefin saman í
hjónaband af séra Þorsteini L.
Jónssyni ungfrú Guðríður Þórð
ardóttir, Borgarholti, Miklaholts
hreppi, og Njáll Þorgeirsson írá
Helgafelli. — Brúðkaupið fer
íram á heimili brúðarinnar.
Dómkirkian.
Messa kl. 11 f. h. Séra Óskar
Þorláksson. Messa kl. 5 e. h.
(allra sálna messa). Séra Jón
Auðuns. Barnasamkoma verður
í Tjarnarbíói sunnudag kl. 11
f. h. Séra Jón Auðuns.
Oháði fríkirkjusöfnuðurinn.
Messa í Aðventkirkjunni kl.
2 e. li. Séra Emil Björnsson.
Laugarneskirkja.
Ferming kl. 11 f. h. Séra Garð
ar Svavarsson. Barnaguðsþjón-
usta fellur niður vegna ferming
arinnar.
Messa á sunnudagrinn.
Reynivellir í Kjós, guðsþjón- 1
usta klukkan tvö. Sóknarprestur
inn.
Hallgrímskirkja.
Messa á morgun kl. 11 árdegis,
séra Jakob Jónsson (allra heil-
agra messa). Klukkan 1,30 barna
guðsþjónusta, séra Jakob Jóns-
son. Klukkan 5 messa, séra Sig-
urjón Þ. Árnason.
Nesprestakall.
Messa í kapellu háskólans kl.
2 e. h. Séra Jón Thorarensen.
Ferming
í Laugarneskirkju kl. 11 f. h.
(Séra Garðar Svavarsson).
Drengir: Ágúst Guðmundsson,
Laugarneskampi 16, Ásgeir Frið
jónsson, Sigtún 59, Árni Heiðar
Óskarsson, Selás 2, Gestur Sig
urgeirsson, Langholtsveg 58,
Guðjón Ragnar Sigurðsson, Soga
veg 116, Guðmundur Stefánsson,
Sigtún 59, Hafsteinn Ólafsson,
Drápuhlíð 38, Halldór Einar Hall
dórsson, Drápuhlíð 33 (áður að
Hömrum, Suðurlandsbraut),
Hallgrímur Birgir Þorsteinsson,
Laugaveg 128, Hörður Alberts
Guðmundsson, hjúkrunarbústöð
um Kleppi, Kári Eiríksson, Vest
urási við Kleppsveg, Finnur
Kári Sigurðsson, Suðurlands-
braut 93, Magnús Tórnas Sigur
jónsson, Seljalandi, Ólafur Ás-
berg Þórhallsson, Hofteig 6, Pét
ur Ragnar Enoksson, Melstað
við Kleppsveg, Sveinbjörn Helga
son, Selás 3, Torfi Hafsteinn
Baldursson, Efstasundi 20, og
Þorsteinn Þorsteinsson, Skipa-
sundi 54.
Stúlkur: Brynhildur Ingjalds
dóttir, Fífuhvammi, Guðrún
Ingólfsdóttír, Silfurteig 2, Guð-
rún Jónsdóttir, Skúlagötu 61,
Hanna Bárðardóttir, Nökkva-
vog 11, Inga Edith Karlsdóttir,
Ferjuvog 15, Karolína Hulda
Þorvaldsdóttir, Borgarholtsbr.
44, Ólöf Erla Jónsdóttir, Álfhóls
veg 58, Rósa Jónsdóttir, Skúla
götu 73, Sigríður Erla Ólafsdótt-
ir, Skipaspndi 54, Sigríður Sól-
veig Ágústsdóttir, Efstasundi 38,
Sólveig Björg Halldórsdóttir,
Drápuhlíð 33 (áður að Hömrum
við Suðurlandsbraut), Unnur
Sigurgeirsdóttir, Langholtsveg
58, og Þuríður Sveinbjörg Vil-
helmsdóttir, Hjarðarholti við
Langholtsveg.
Úr ýmsum áttum
Sæmdur heiðursmerki.
Sænski sendifulltrúinn af-
henti á heimili sínu í gær, fyrir
hönd konungs Svíþjóðar, herra
stórkaupmanni Gísla J. John-
sen riddarakross 1. gráðu hinn
ar konunglegu Vásáorðu.
Illa fjarverandi.
Einn af þeim, sem sitja flokks
þing Sjálfstæðisflokksins, hefir
haft orð á því við starfsmann
Tímans, að bæjarverkfræðingur
inn í Reykjavík sé illa fjarstadd
ur um þessar mundir. Fannst
manni þessum, að honum hefði
verið nær að vera á flokksþing
inu og gera grein fyrir nýjung
um og sparnaði við opinberar
framkvæmdir í þágu Reykjavík
urbæjar en fara til Rússlands
til þess að taka þátt í byltingar
hátíðinni þar í landi.'
Franskur fyrirlestur.
Franski sendikennarinn, hr.
Schydlowski, heldur fyrirlestur
í I. kennslustofu háskólans föstu
daginn 2. nóvember kl. 6 e. h.
Efni fyrirlestursins er ,,Le
théatre de Jean Giraudoux" —
Öllum er heimill aðgangur.
Aflasalan
(Framhald af 1. síðu.)
láksson fyrir 10508 pund. —
Fimm eru á leiðinni til Bret-
lands, en enginn þeirra sel-
ur þó fyrr en eftir helgina.
Þessir togarar eru: Keflvík-
ingur, Hallveig Fróðadóttir,
Surprise, Hafliði og Neptúnus.
Búast má við því, að fyrstu
þýzku togararnir verði byrj-
aðir að landa í Bretlandi, er
þeir siðustu af þessum fimm
togurum okkar koma þangað
með afla sinn, þótt ólíklegt
sé, að þýzki fiskurinn komi
til með að hafa mikil áhrif
á sölur þeirra.
Símaviðgerðir
(Framhald af 1. síðu.)
til þess að okkur hrekti ekki
óraleið. Samt sem áður bar
okkur lengra undan straumn
um en okkur miðaði áfram.
Munum við hafa lent eitt-
hvað 150 metrum neðar en
við lögðum frá landi. Land-
taka var aftur á móti víða
sæmileg í sandvikum.
Símastrengurinn
dreginn yfir.
Yfir álinn drógum við vað
á eftir bátnum, og var það
allþungur dráttur, er vatn-
ið lagðist á. Síðan drógum
við símastrenginn yfir. Staur
ur voru til austan árinnar.
Ekki reistum við þó að stöddu
nema aðra staurasamstæð-
una, og vantar hina því í, en
þetta ætti að duga til bráða-
'oirgða.
Þegar við fórum aftur vest-
ur yfir, urðum við að draga
bátinp alllanga leið upp eft-
ir, svo að við næðum sæmi-
legri landtöku hinum megin.
En allt gekk þetta vel.
Jakar á sandinum.
í hlaupinu barst mikið af
jökum fram á sandinn, en nú
eru þeir mjög að hverfa, sagði
Kjartan að lokum. Þó má þar
enn sjá fimm og sex metra
langa jaka, sem verið hafa
mjög stórir, er þeir bárust
fram, því að mikið hefir bráðn
að af þeim.
Nýmjólkurdiift
Undanrennuduft
HERÐUBREIÐ
Sími 2678.
5 r
::
Seint í sumar tapaðist
frá Siglufirðj rauðblesóttur hestur, 6 vetra, ómarkaður.
Þeir, sem kynnu að verða hestsins varir, eru vinsam-
lega beðnir að láta mig vita.
::
♦♦
♦♦
♦ ♦
::
♦ ♦
♦ ♦
::
1
Inrnnmm
Ingólfur Jónsson, Brúarlandi, Skagafjarðarsýslu.
VERZLUNIN OLYMPIA
OPNAR í DAG
á Laugaveg 26
Mikið lirvai af alls konar vörum.
'Wdqjmmm
Laugaveg 26. — Sími 5186
nanaaumui
Áætlunarferðir
frá Kaupfélagi Árnesinga
Frá og með 1. nóvember 1951
Eieigkjjtivík
Stokksetiri
Etgrarbukki
Selfoss
Hveragerði
Frá Stokkseyri kl. 9,45 f. h.
Frá Eyrarbakka kl. 10 f. h.
Frá Selfossi kl. 10,30 f. h. og kl. 3,30 e. h.
Frá Hveragerði kl. 11 f. h. og kl. 4 e. h.
Frá Reykjavík kl. 9 f. h. og kl. 5,30 e. h.
Fljótar ferðir — Trausíir og góðir bílar tj
Afgreiðsla í Reykjavík hjá Frímanni, Hafnarhúsinu. t|
— Afgreiðsla austan fjalls í útibúum vorum, og á Sel-
fossi í Ferðaskrifstofu K. Á.
Kaupfélag Árnesinga
Hjartans þakkir færum við öllum þeim, er sýndu okk-
ur hlýhug við fráfall og jarðarför mannsins míns og
föður
séra HERMANNS GUNNARSSONAR.
Sigurlaug Johnson,
Ragnheiður Hermannsdóttir.