Tíminn - 28.11.1951, Síða 2

Tíminn - 28.11.1951, Síða 2
 TÍMININ, miðvikudaginn 28. nóvember 1951. 2'ÍO. blið. Eigum nú fyrirliggj andi eftirtaldar tegundir af NIÐURSOÐNUM ÁVÖXTUM, allt velþekktar tegundir. ANANAS, margar tegundir APRICOSUR BLANDAÐIR AVEXTIR FERSKJUR IIINDBER JARÐARBER PERUR Þyrrkaðir ávextir væntanlegir á næstunni. SVESKJUR — RUSINUR — APRICOSUR GRAFIKJUR DÖÐLUR í POKKUM OG LAUSU. Spánskar appelsínur, citrónur og ítölsk epli. Heilsuhælissjóðs NLFI, Austurstræi 6. Allt glæsileg og vönduð ensk barnaleikföng. — Um leið og miðinn er keyptur sést, hvort vinningur hefir fallið á númerið. Miðinn kost ar 3 krónur. Vinningarnir verða afhentir fyrir jól. < AI33r krakkar verða að k@sna í Aiisturstræti 6 og sjá dýrðina. Opið alla daga kl. 10—9 o gsunnud. 3—9 e. h. nefnist á íslenzku hin fræga og skemmtilega bók DALE CARNEGIE um hvernig komast eigi hjá eða draga úr áhyggjum. Biblían ein hefir selst í stærra upplagi en BÆKUS DALE CARNEGIE. ThvarpÍB Útvarpið í dag: Kl. 8,00 Morgunútvarp. — 9,10 Veðurfregnir. 12,10—13,15 Hádeg isútvarp. 15,30—16,30 Miðdegis- útvarp. 18,00 Frönskukennsla. — 18,25 Veðurfregnir. 18,30 ís- lenzkukennsla; I. fl. 19,00 Þýzku kennsla; II. fl. 19,25 Þingfréttir. — Tónleikar. 19,45 Auglýsingar. 20,00 Fréttir. 20,30 Útvarpssag- an: „Morgunn lífsins“ eftirKrist mann Guðmundsson (höfundur les). — III. 21,00 Kirkjutónlist (plötur). 21,20 Erindi: Um gin- og klaufaveiki (Sigurður E. Hlíð ar yfirdýralæknir). 21,35 Vett- vangur kvenna. — Erindi: Um Ingibjörgu Jónsdóttur frá Djúpa dal (frú Guðrún Jóhannsdóttir ' frá Brautarholti). 22,00 Fréttir og veðurfregnir. 22,10 „Fram á elleftu stimd“, saga eftir Agöthu Christie; XIV. (Sverrir Kristjáns son, sagnfræðingur). 22,30 Svavar Gests kynnir jazzmúsík. 23,00 Dagskrárlok. Útvarpið á morgun: Kl. 8,00 Morgunútvarp. — 9,10 Veðurfregnir. 12,10—13,15 Há-, degisútvarp. 15,30—16,30 Miðdeg isútvarp. 18,25 Veðurfregnir. 18,30 Dönskukennsla; II. fl. — 19,00 Enskukennsla; I. fl. 19,25 Þingfréttir. — Tónleikar. 19,401 Lesin dagskrá næstu viku 19,45 ’ Auglýsingar. 20,00 Fréttir. 20,20 íslenzkt mál (Björn Sigfússon háskólabókavörður). 20,35 Tón- leikar (plötur). 21,00 Skólaþátt- urinn (Helgi Þorláksson kenn- ári). 21,25 Einsöngur: Ferruccio Tagliavini syngur (plötur). 21,40 Erindi: Torfi í Ólafsdal og bún aðarfræðsla hans (Matthías Helgason frá Kaldrananesi). 22,00 Fréttir og veðurfregnir. 22,10 Sinfónískir tónleikar (plöt ur). 23,15 Dagskrárlok. Hvar erti skipin? Sambandsskip: Ms. Hvassafell er í Helsing- fors. Ms. Arnarfell fer frá Bilbao í dag áleiðis til Genova. Ms. Jök ulfell lestar freðfisk á Austur- landi. Ríkisskip: Hekla var á ísafirði í gær- kvöld á norðurleið. Esja er í Álaborg. Herðubreið er á Aust- fjörðum á suðurleið. Skjaldbreið er á Húnaflóa á suðurleið. Þyrill er í Reykjavík. Ármann fer frá Reykjavík. síðdegis í dag til Vest mannaeyja. Eimskip: Brúarfoss fór frá Reykjavík 23. 11. til Boulogne og Amster- dam. Dettifoss fór frá Hull 24. 11., væntanlegur til Reykjavík- ur í nótt eða fyrramálið 28. 11. Goðafoss kom til Rotterdam 24. 11., fer þaðan 27. 11. til Ham- borgar, Antverpen og Hull. Gull foss kom til Leith 26. 11., fer þaðan í dag 27. 11. til Kaup- mannahafnar. Lagarfoss fór frá New York 25. 11. til Davis- ville og Reykjavíkur. Reykja- foss er í Hamborg. Selfoss er á Sauðárkróki og fer þaðan vænt anlega í kvöld 27. 11. til Djúpa- víkur, Skagastrandar og Dal- víkur. Tröllafoss kom til New York 19. 11. frá Reykjavík. .Vatnajökull fór frá New York 22. 11. til Reykjavíkur. heiía Flugferðir Loftleiðir. í dag verður flogið til Akur eyrar, Hólmavíkur, ísafjarðar og Vestmannaeyja. Á morgun er á ætlað að fljúga til Akureyrar og Vestmannaeyja. Landsýn. Sýning Gunnfríðar. Sýning Gunnfríðar Jónsdóttur er opin um þessar mundir í vinnustofu listakonunnar að Freyjugötu 41. Þar er sýnd 21 höggmynd eða allar helztu mynd ir, sem Gunnfríður liefir gert. Ber þar mest á hinum kirkju- 1 legu verkum tveim, Klerkur á bæn og Landsýn, sem er kunn asta verk listakonunnar auk myndarinnar af móður hennar.1 Af nýjustu verkum hennar má sjá þar Fiskistúlkur, sem er fall | egt verk. Annars ber mest á höfuð-1 myndum, enda er það sterkasta hlið Gunnfríðar. Er þar fremst myndin af móður hennar, sem hlotið hefir góða dóma á nor- rænum sýningum, einkum í Stokkhólmi. Tekst Gunnfriði j vel að draga fram sterk skap-, gerðareinkenni í andlitsmynd-; um. Sýningin verður opin næstu 1 daga frá kl. 1 til 10 síðdegis og. það er vel þess vert að líta þar i inn, enda er Gunnfríður með) vissum hætti brautryðjandi í: höggmyndalist hér á landi að því er varðar konur, og þar eru raunar einu kirkjulegu verkin, sem til eru hér á landi í þeirri1 listgrein. 1 gær barst Gunnfríði nafn- ’ laust bréf, sem í voru 500 kr. í peningum, og á litlu korti stóð aðeins: „Þökk fyrir Landsýn". gert að fljúga til Akureyrar, Vestmannaeyja, Hellissands, ísafjarðar og Hólmavíkur. Á morgun eru áætlaðar flugferðir til Akureyrar, Vestmannaeyja, Reyðarfj arðar, Fáskrúðsfj arðar, Blönduóss og Sauðárkróks. — Miililandaflug: Gullfaxi er vænt anlegur til Reykjavíkur kl. 17,00 í dag frá Prestvik og Kaup- mannahöfn. Blöð og tímarit Menntamál. Menntamál, sept.—okt. hefti 1951, e rkomið út. Efni þess er m. a. Sýsluskóli Mýramanna eft ir Stefán Jónsson námsstjóra, Mat skólans á manngildinu eft ir Guðmund M. Þorláksson, Frá kennurum og nemendum eftir Guðjón Jónsson, Kennari hálfa öld, Steingrimur Arason látinn, Sjöunda uppeldismálaþingið o. fl. Gerpir. Gerpir, tímarit Fjórðungs- þings Austfirðinga okt.-hefti, er nýkomið út. Efni þess er m. a. Austfirðingur, kvæði eftir Skúla Þorsteinsson, Ófriðarþankar og sáttaspjall eftir Björn Þorkels- son, Um strönd og dal, Kynnis- för til Noregs eftir Árna Vil- hjálmsson, fundargerð fjórðungs þingsins o. fl. Ur ýmsum áttum Glímuæfingar Ungmennafélags Reykjavíkur eru á þriðjudags- og föstudags- Svöldum klukkan átta í Mið- bæj arskólanum. Skotfclag Reykjavíkur. Fundur í kvöld klukkan 8,30 í verzlunarmannaheimilinu. Rætt um vetrarstarfsemina. Atvinna skósmiða. Formaður skósmiðafélagsins hefir látið þess getið, að það sé síður en svo, að hörgull sé á lærðum skósmiðum til starfa. Þegar bezt var í sumar mátti heita að allir iðnlærðir skósmið ir hefðu vinnu, en nú er nokk urt atvinnuleysi í stéttinni. Fyr ir skömrnu urðu til dæmis tveir skósmíðameistarar að loka verk stæðum sínum vegna atvinnu- leysis. Afhendir trúnaðarbréf. Dr. Sigurður Nordal afhenti í dag konungi Danmerkur trún- aðarbréf sitt sem sendiherra ís lands í Kaupmannahöfn. Flugfélag fslands. Innanlandsflug: í dag er ráð- Auíílýsið í Tíiuannm. lÁommgslsikariim (Framhald af 1. síðu.) væri þar kominn með hinn dýrmæta verðlaunagrip, bik- arinn konungsnaut. Fékk Erlingur sér læsta Irirzlu til aö varðveita í gripinn í eitt skipti, er hann skildi hann við sig, áður en hann fékk hann innsiglaðan í sendiráð- inu i ábyrgðarsendingu, sem hann síðan sjálfur kom með til íslands. Ekkj ákveöið um geymslustað. • Ekki mun ákveðið ennþá, hvar bikarinn verður geymd- ur og hafa margar tillögur komið fram. Ein er sú, að hafa hann í glerskáp í Sund- höll Reykjavíkur, önnur að hafa bikarinn að Bessastöð- um og hin þriðja að varðveita hann í þjóðminjasafninu. En fyrst mun þó áformað að sundbikarinn fari um land ið og verði til sýnis á sem flestum stöðum. Sjóvinnuiiámskeið á Yopnafirði Frá fréttaritara Tímans á Vopnafirði. Hér stendur nú yfir sjó- vinnunámskeið og eru þátt- takendur um 30. Er þeim' skipt i tvo hópa til kennslu,; er annar síðdegis en hinn ár- | degis. Námskeiðið er haldið á vegum Fiskideildar Aust- j fjarða og er forstööumaður j þess-ívar Höskuldsson. Jökulfell kom hingað í fyrra' dag og tók 1000 kassa af fryst um fiski á Ameríkumarkað. Brúarfoss er og nýbúinn að taka hér 2280 kassa af fryst- um fiski á Evrópumarkað. Þá eru eftir 1500 kassar af fryst- um skarkola. Afbragðstíð hefir verið hér í allt haust og það sem af er vetri. Fé er ekki komið á gjöf. Jörð hefir verið þýð fram á síðustu daga og jarðýta hef- ir unnið að landbroti í allt haust, var síðast að störfum í fyrradag. IWWW.W.VAV.V.W.’.VV.V.V.V.Y.V.V.VA.VW.V/.V í Þakka öllum nær og fjær, sem sendu mér kveðjur og í hlýhug á sextugsafmæli mínu. !■ Elínborg Lárusdóttir.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.