Tíminn - 28.11.1951, Síða 3
270. blað.
TÍMININ, miðvikudaginn 28. nóvember 1951.
S.
Odýrir sumargististaðir
Tillag'a frá Kannveiga Þorsteinsdótáir
Rannveig: borsteinsdóttir hef-
ir la.gt fram í sameinuðu þingi
tillögu til þingsályktunar um
ódýra sumargististaði. Tillagan
er svohljóðandi:
Alþingi ályktar að skora á rík
isstjórnina að fela Ferðaskrif-
stofu ríkisins að athuga mögu-
leika til að setja á stofn og starf
rækja ódýra sumargististaði,
þar sem fólk getur fengið að
dveljast í sumarleyfum sínum
með litlum tilkostnaði. Sé starf
rækslan við það miðuð, að gest
irnir spari sér sem mest fjár-
útlát, m.a. með því að leggja sér
sjálfir til fæði að meira eða
minna leyti, meðan á sumar-
dvölinni stendur.
í greinargerð tillögunnar seg-
ir svo:
Svo er til ætlazt samkvæmt
lögum, að þeir, sem starfa í
'þjónustu annarra, hafi orlof
einhvern tíma á tímabilinu 1.
júní til 15. september ár hvert,
og flestir, aðrir en þeir, sem
stunda iandbúnaðarvinnu,
munu reyna að njóta einhverr-
ar hvíldar og útivistar nokkra
daga að sumrinu.
Hér á landi eru ýmsir gisti-
staðir, sem til þess eru falln-
ir, að fólk geti átt þar ánægju-
lega sumardvöl, en gallinn er
sá, að tilkostnaður við rekstur
gistihúsa er svo mikill, að verð-
lag allt verður miklu hærra en
svo, að efnalítið fólk geti átt
þess kost að dveljast á slikum
stöðum og það því síður sem
fjölskyldan er stærri. Reynslan
hefir orðið sú, að ýmsir efnað-
ir borgarar eyða sumarleyfi
sínu erlendis, sem verður þeim
litlu dýrara en ferðalög innan-
lands, efnaminna fólk situr
heima, af því að það hefir ekki
ráð á að búa á gistihúsum, og
gistihúsin eru ekki full, nema
þá einn og einn dag yfir sumar-
mánuðina.
Það er mál út af fyrir sig,
hvort ekki væri nokkru til þess
kostandi, jafnframt því sem
reynt er að fá útlendinga til
þess að ferðast hingað til lands,
að fá landsfólkið sjálft til að
eyða sumarleyfum sínum heima
jafnvel þótt það hafi ráð á
öðru. En þeir, sem ekki hafa
efni á því að dveljast á gisti-
húsum, fara sjaldnast nokkuð
að heiman í sumarleyfi sínu og
missa því af þeirri heilsulind og
hvíld, sem nokkurra daga dvöl
í sveit gæti verið þeim. Áður
fyrr heimsóttu bæjarbúar kunn
ingja sína í sveit í sumarleyfi
sínu og dvöldust hjá þeim
nokkra daga, en nú er víða fok-
ið í það skjól sökum fólksfæöar
og annríkis í sveitunum yfir
sumartímann. Fyrir þá, sem
eiga þess kost, er ef til vill ekk-
ert skemmtilegra en að eyða
orlofi sínu búandi í tjaldi á
fögrum stað, en tjöld og annar
viðleguútbúnaður er nokkuð
dýr og erfitt og óhentugt t.d.
fyrir fólk með börn að búa í
tjaldi, einkum ef eitthvað er
að veðri. Það er því tæplega
hægt að búast við því, að fólk
almennt ráðist í slíkt.
En vel má hugsa sér eittlivert
fyrirkomulag, sem væri ein-
hvers staðar mllli hinna dýru
gististaða og útilegu í tjaldi,
nefnilega staði, þar sem væri
húsaskjól og hitunartæki og
sameiginleg eldamennska um
það allra einfaldasta, en fólk
hjálpaði sér sjálft að öðru leyti,
líkt og þeir gera, sem búa í
tjaldi. Ef slíkir staðir væru til
afnota, þá væri þar með gerð
tilraun til þes að gera efna-
litlu fólki kleift að komast að |
heiman í sumarleyfi sínu.
Viða um landið eru bygging- j
ar, sem ekki eru notaðar að
sumrinu. í sumum þessum bygg 1
ingum er allt, sem til þess þarf
að létta undir með fjölskylöu- '
fólki í sumardvöl: Eldavélar,1
mataráhöld, dýnur o.þ.h. Ef ráðn ’
ar væru að sumrinu ein til tvær
manneskjur til þess að sjá um
hús, sem gæti veitt viðtöku 30— j
50 manns í einu, væri hægt með ;
þegnskylduvinnu gestanna
sjálfra að reka þar ódýran sum
argististað. Sameiginlegur kostn
aður, sem gestirnir greiddu,
væri laun fyrir umsjónina, ef
til vill einhver leiga fyrir hús-
næðið og svo einhver hluti hins
daglega fæðis, t.d. kartöflur,
grautur o.þ.h. Annan mat hefði
fólk með sér sjálft og fengi af-
not af hitunartækjum eftir sam
komulagi til þess að matreiða.
Fyrirkomulag líkt þessu hefir
um margra ára skeið verið haft
í skíðaskálum í nágrenni Reykja
víkur í páskavikunni og gefizt
ágætlega. Að vísu er ekki hægt
að segja, að þetta yrði neitt
,,luKus“-sumarleyfi, en þaö gæti
gefið möguleika fyrir fólk, sem
annars gæti ekki komizt að
heiman í sumarferðalag og vildi
gjarnan kosta því til að elda
matinn sinn sjálft að nokkru
leyti til þess að geta átt fáeinna
daga dvöl úti í sveit um hásum
arið.
í þingsályktunartillögunni er
ekki nákvæmlega tiltekið á
hvern hátt hinir ódýru gisti-
staðir skuli starfræktir, og það,
sem hér hefir verið sagt, er ein
ungis ábending um það. Hms
vegar verður að teljast eðlilegt,
að það sé Ferðaskrifstofa ríkis-
ins, sem heföi skipulagningar-
starfið með höndum, þar sem
enginn annar aðili mun hafa
til þess betri aöstöðu en hún og
starf sem þetta beinlínis heyrir
til hlutverki hennar. Er bví gert
ráð fyrir, að athugun málsins
verði falin henni.
England og Aastur-
ríki keppa í dag
í dag fer fram landsleikur í
knattspyrnu milli Englands og
Austurríkis, sem vekja mun
mikla athygli, og er mikið rætt
um hann í blöðum vxða um
heim. Englendingum hefir enn
tekizt, þrátt fyrir að oft hafi
verið hart að þeim höggvið, að
vera ósigraðir á heimavelii í
knattspyrnulandsleikjum. Þetta
hafði Skotum einnig tekizt, þar
til að Austurríkismenn komu
þangað á þessu ári og „sáu og
sigruðu". Það er því ekki að á-
stæðulausu, að Englendingar
óttast, að þessi leikur í dag,
kunni að verða fyrsti tapleikur !
þeirra heima, enda má segja,'
að enska landsliðið hafi verið
frekar . lélegt og ósamstætt í
leikjum sínum í haust. En nú
bar út af þeirri venju, að velja
liðið með tveggja daga fyrir-
vara eins og oftast áður, en í
þess staö voru 20 leikmenn vaid
ir fyrir 10 dögum síðan, og hafð
ir í sérstölcum æfingum í Man- j
chester. Síðan var landsliðið
valið í miðri síðustu viku. Þetta
bar þó ekki tilætlaðan árangur,
þxjí á mánudag voru geröar
fimm breytingar á liðinu, mest
vegna.þess, að menn, sem höfðu
verið valdir, meiddust í leikj-
unum s.l. laugai-dag. Upphaf-1
lega var liðið valið þannig:
Merrich (Birmingham) — Ram- 1
HEILLAKORT
BLSNDRAVÍNAFÉLAGS ÍSLANDS
Heillakortin eru send í stað jóla- eða afmælisgjafa.
Á þeim stendur:
Ég hef í tilefni dagsins afhent Blindrafélagi ís-
lands fjárhæð á þitt nafn til hjálpar blindum
og er það.... gjöf til þín.
Hugheilar kveðjur
Helllakortin fást í skrifstofu félagsins Ingólfsstræti
16. Körfugerðinni. Laugaveg 16, og Silkibúðinni Lauf-
ásveg 1.
Hjálpið blindum, kaupið heillakort Blindravina-
félags íslands.
t
V
l
*
♦
I
■:
> ■ B ■ ■ ■ |
>■■■■■■■
:« Verzlunarmannafélag Reykjavíkur
l AÐALFUNDUR
í;
félagsins verður haldinn mánudaginn 3. desember n.
JÍ k. í Sjálfstæðishúsinu og hefst kl. 8,30 siðd. stundvíslega
:■
■■ Dagskrá: Aðalfundarstörf skv. lögum félagsins.
I; Félagar sýni skírteini við innganginn.
H STJÓRNIN
A í
’AV.VAV.V.V.V.V.VAW.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V
Áskriftarsími Tímans er 2323
sey (Tottenham) — Smith (Ar-
senal) — Nicholson (Totten-;
ham) — Froggat (Portsm.) —1
Dickinson (Portsm.) — Finney1
(Preston) — Mortensen (Black-
pool) — Lofthouse (Bolton) —
Wright (Wolves) — og Medley
(Tottenham).
Á pappírnum leit þetta lið
mjög vel út að minnsta kosti.
Ástæðan til að Wright var val-
jnn íinnhefrji mun fyrst og
fremst hafa verið sú, að bezti
og hættulegasti maðurinn í liði
Austurríkis, er einmitt varnar-
leikmaöur, þ.e. miðframvörður-
inn Ernst Ocwirk, en hann, á-
samt framveröinum Hanappi,
er aöál skorari liðsins, en leik-
aðferð liðsins er eins og Fram
notaði hér í sumar og menn
minnast. Hefir því miðfram-
vörðuiánn óbundnar hendur og
tekixr jafnt þátt í sókn og vörn.
Ocwirk leikur með Austria, og
þegar það lið lék við Tottenham
í I ondon í sumar, skoraði hann
einmitt sigurmarkið. En Bret-
ar urðu sem sagt að hverfa írá
þcssari hugmynd vegna pess, að
líguleikirnir á laugardaginn
urðu nokkuð afdrifaríkir fyrir
landsliðið. Liðið, sem valið var á
mánudag lítur þannig út:
Merrich — Ramsey — Eck-
ersley (Blackburn) — Wright
— Frogatt — Dickinson — Milt-
on (Arsenal) — Broadis (Manch
City) — Lofthouse — Bailey
(Tottenham) og Medley.
Breytingar eru litlar á vörn-
inni, en í framlínuna koma
þrír nýir menn. Sumum kann að
finnast, að þetta lið sc ekki
eins sterkt og það, sem fyrst
var valið, og kann það rétt að
vera. En þess má geta að Milt-
on og Broadis léku mjög vel á
laugai-daginn, og réði það úr-
slitum, að þeir eru nú i fyrsta
skipti valdir til að leika í lands
liðinu, en Bailey og Eckersley
eru gamlir í hettunni þar. Sér-
staklega er rétt að veita Miltoix
athygli, en hann er ungur leik-
maður, íxijög fljótur, og álit-
inn einn efnilegasti knattspyrnu
maðurinn, sem fram hefir kom
ið í Englandi eftir stx-íðið.
Útvarpað verður frá lelknum,
sern hefst uppúr hádeginu.
Ií.S.
.V.V/.VV.V.V.V.V.V.V.V.V.V.WAV.'.V.V.V.V.V/.V.
Dagrenning
5
Októberheftið er nýkomið út og flytur meðal annars *.
þessar greinar: *■
Spádómar um Egyptaland og Framtíðarstefnan í l*
stjórnarskrármálinu, báðar eftir ritstjórann. I;
Örlagasteinninn og ártalið 945, eftir Rutherford, íj
Fánadagsræöa Mac Arthurs, hershöfðingja o. fl. athygl "J
isverðar greinar. «J
DAGRENNING fæst hjá bóksölum
Tímaritið Dagrenning,-
Reynimel 28, — Sími: 1196. í«
Reykjavík. 5;
v.v/.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.vv.v.v.v.v.v.v.v.vl
Veitið athygli
Gerum upplitaða poplin og bómullar regnfrakka
(cotton gaberdine) sem nýja aftur
Ný áður óþekkt kemisk efni notuð
Öll vinna framkvæmd af erlendum sérfræðingi
Þess skal getið að við höfum þegar náð undravcrðum
árangri í þessum efnum
C^nalau^in Íin4in Ltf.
Hafnarstræti 18, sími 2063
Skúlagötu 51, sími 81825
\
t
LEIRMUNIR
Þér þurfið ekki að leita að jólagjöfinni, ef þér vitið
hvar Roði er.
ROÐI
Laugavegr 74 — Sími 81808
vv.vvvv.v.v.v.v.v.v.v.vv.v.v.v.v^v.v.vv.vv.v.v.v
l MYSUOSTUR l
Rjómaostur
30% ostur
40% ostur
Heildsölubirgðir hjá
HERÐUBREIÐ
Simi 2678
v.vvvvvvvvvvvvvvvvvv.vvvvvvvvv.vvvv.vvvvvvvvvvvv