Tíminn - 04.12.1951, Síða 2
2.
TÍMINN, þriffjudaginn 4. desember 1951.
275. blaff.
♦
Útvarpið í dag:
Fastir liðir eins og venjulega.
Kl. 18,15 Framburðarkennsla í
esperantó. 18,30 Dönskukennsla;
II. fl. 19,00 Enskukennsla; I. fl.
20,30 Minnzt níræðisafmælis
Hannesar Hafstein: a) Erindi:
Bernharð Stefánsson alþm. b)
Sönglög við ljóð eftir Hannes
Hafstein. c) Upplestur: Vilhjálm
ur Þ. Gíslason skólastjóri. 21,35
Erindi: Uppruni og innflutning
ur íslenzku flórunnar; II. ísald
argróður á íslandi (Steindór
Steindórsson menntaskólakenn-
ari). 22,00 Fréttir og veðurfregn
ir. 22,10 Upplestur: „Skýjafar",
smásaga eftir Pál H. Jónsson
kennara að Laugum (höfundur
les). 22,30 Kammermúsík (plöt
ur). 23,00 Dagskrárlok.
Útvarpið á morgun:
Fastir liði reins og venjulega.
Kl. 18,00 Frönskukennsla. 18,30
Islenzkukennsla; I. fl. 19,00
Þýzkukennsla; II. fl. 20,30 Út-
varpssagan: „Morgunn lífsins‘
eftir Kristmann Guðmundsson
(höfundur les). — IV. 21,00 „Sitt
af hverju tagi“ (Pétur Péturs-
son). 22,00 Fréttir og veðurfregn
ir. 22,10 „Fram á elleftu stund“
saga eftir Agöthu Christie;
XVII. (Sverrir Kristjánsson
sagnfræðingur). 22,30 Danslög
(plötur). 23,00 Dagskrárlok.
Hvar eru skipinP
Sambandsskip:
Ms. Hvassafell átti að fara frá
Stokkhólmi í gærkveldi ^leiðis
til Póllands. Ms. Arnarfeil er
væntanlegt til Genova i dag
frá Bilbao. Ms. Jökulfell fór frá
Rvík 1. þ. m. áleiðis til New
Yorksc
Ríkisskip:
Hekla er í Reykjavík og fer
þaðan á fimmtudag austur um
land í hringferð. Esja er í Ála-
borg. Herðubreið fór frá Rvík
kl. 21 í gærkveldi austur um
land til Reyðarfjarðar. Skjald-
breið fór frá Reykjavík kl. 21
í gærkveldi til Breiðafjarðar og
Vestfjarða. Þyrill var á Vest-
fjörðum í gær á norðurleið. Ár-
mann átti að fara frá Reykja-
vík i gærkveldi til Vestmanna-
eyja.
Eimskip:
Brúarfoss kom til Amsterdam
2. 12. og fer þaðan til Hamborg
ar. Dettifoss fer frá Rvík annaö
kvöld 4. 12. til Vestmannaeyja
og Akureyrar. Goðafoss fór frá
Antverpen 2. 12. til Huil og
Reykjavíkim Gullfoss fer frá
Kaupmannahöfn 4. 12. til Leith
og Reykjavíkur. Lagarfoss fór
frá Davisville 28. 11. til Rvíkur.
Reykjafoss fer frá Hamborg í
dag 3. 12. til Gdynia, Gautaborg
ar, Sarpsborg, Osló og Rvíkur.
Selfoss fer frá Dalvik 1. 12 til
Rotterdam. Tröllafoss kom til
New York 19. 11., fer þaðan vænt
anlega 6. 12. til Davisville og
Reykjavíkur. Vatnajökull kom
til Reykjavíkur 2. 12. frá New
York.
Bansk Kvindeklub
afholder et möde í Vonar-
stræti 4 í aften kl. 8,30. Hr.
minister Bolt Jörgensen taler
om kvindelig arvefölge í Dan-
mark.
UM EYRERL!
| BIKKI, af ýmsum þykktum, húsþurt og fullþurkað.
$ Seljum ennfremur eftir pöntunum birki-parkett á
samkomuhús og forstofur o. fl.
Byggir h.f.
Sími 6C69
Flugferðir
Loftleiðir.
í dag verður flogið til Akur-
eyrar og Vestmannaeyja. Á morg
un er áætlað að fljúga til Akur
eyrar, I-Iólmavíkur, ísafjaröar og
Vestmannaeyja.
Árnað heilin
Áfcngisvarnarnefnd Rvíkur.
Hjónaband.
S. 1. laugardag voru gefin sam
an af séra Sigurjóni Árnasyni
ungfrú Erla Þórhallsdóttir, Mið
túni 18, Selfossi, og Ástráður
Ólafsson, Snælandi, Selfossi. —
Heimili þeirra verður að Miðtúni
18, Selfossi.
Trúlofun.
S. 1. laugardag opinberuðu trú
lofun sína ungfrú Þorbjörg Jóns
Magnús Jónsson, bifreiðarstjóri,
dóttir, Hótel Stokkseyri, og
Selfossi.
Btöð og tímarit
Húsfrcyjan,
tímarit Kvenfélagasambands
íslands 3. tölublað er nýkomið
út. Flytur það jólahugleiðingu
eftir Jakob Kristinsson, grein-
ina Paradís á jörð eftir Guðrúnu
Sveinsdóttur, Við ætlum að reisa
byggðir og bú, Við og aðrir eftir
Guðrúnu Sveinsdóttur, Jólagest
ir, þýdd saga Búreikningar og
sparsemi, Hvað kostar miðdegis
verður yfir hátíðarnar eftir
Önnu Gísladóttur, húsmæðra-
kennara o. fl.
Ur ýmsum áttum
Gesíir í bænum.
Sæmundur Guðjónsson, bóndi
á Borðeyri, Guðmundur Þor-
steinsson, bóndi á Klafastöðum,
Jónas Benónýsson, kaupfélags-
stjóri í Búðardal.
*
Stjórnarskrármálið
er mál æskunnar og framtíðar
innar. Mætið á fundi F. U. F. í
kvöld.
Ðorothy í 10. sinn.
Leikfélag Reykjavíkur sýnir
gamanleikinn „Dorothy eignast
son“ í 10. sinn annað kvöld og
verður það næst síðasta sýning
á þessum skemmtilega lcik fyrir
jól. Hefir félagið í undirbúningi
viðamikið og sérkennilegt leik-
rit, sem veröur jólasýning félags
ins, og krefst það svo mikils æf
ingatíma, að félagið verður að
byrja „jólafríiö“ nokkru fyrr en
vant er. Leikstjóri er Gunnar j
Hansen. Nafn hefir leikritinu
ekki verið gefið í íslenzku þýð-
ingunni, en hana gerði Tómas
Guömundsson skáld. — Gestur
Leikfélagsins í gamanleiknum
„Dorothy eignast son“, frú
Minna Breiðfjörð Thorberg, fer
til Vestmannaeyja í næstu viku
og dvelur heima hjá sér fram
yfir jól. Frúin á þökk fyrir kom
una, með röddinni einni hefir (
hún kynnt hina elskulegu I
Dorothy fyrir reykvískum áhorf
endum, og er það eitt út af fyrir '
sig minnisstætt leikafrek. Von1
andi tekst Leikfélaginu að fá
leikkonuna til að leika hlutverk
ið áfram eftir jólin.
: Bólusetning gegn barnaveiki.
j Pöntunum veitt móttaka á
Hjónaband. ! þriðjudag 4. des. n. k. kl. 10—12
S. 1. miðvikudag voru gefin f. h. í síma 2781.
saman í hjónaband hjá borgar |
dómara ungfrú Guðbjörg Helga Munið fund F. U. F. j
dóttir og Páll Beek, blaðamaður , um stjórnarskrármálið í Eddu-
hjá Alþýðublaðinu.
! sal kl. 8,30 í kvöld.
Leiðrétting.
í dánarminningu um Arin- j
björn Bardal í síðasta blaði urðu í
nokkrar prentvillumisfellur. 1,
fremsta dálki neðst höfðu j
brenglazt nokkrar setningar, og I
eru þær teknar hér upp aftur:
Enn eru á lífi af systkinum j
Sveinbjarnar, Ásdís, er dvelur
að elliheimilinu á Gimli, 93 ára
að aldri, Karl fyrrum bóndi að
Bjargi í Miðíirði, 88 ára að aldri,
dvelur þar hjá börnum sínum,
Ingunn kona séra Runólfs Mar-
teinssonar í Winnipeg og Vigdís,
hálfsystir, samfeðra, gift í Vest
urheimi.
Þá hafði nafn höfundar grein
arinnar misritazt, var Indriði
Einarsson en átti að vera
Indriði Indriðason.
Happdrætti Mána.
Nýlega var dregið í happ-
drætti Ungmennafélagsins Máni
í Nesjahreppi. Upp komu nr.
3655 brúnn hestur og nr. 1214
rauður hestur. Happdrætti þetta
var til ágóða fyrir félagsheimili,
sem verið er að ljúka við í
Nesjahreppi.
Ungmennasambandið Úlfljót-
ur í Austur-Skaftafellssýslu hélt
nýlega aðalfund sinn. Á fund
inum var ákveðið að sambandið
gengist fyrir stofnun skógrækt
arfélags í héraðinu, en hér er
ekkert slíkt félag starfandi.
Stjórn sambandsins var öll
endurkosin en hana skipa Aðal
steinn Aðalsteinsson formaður,
Torfi Steinþórsson ritari og
Rafn Eiríksson féhirðir.
Bátur sekkasr
(rramhald af 1. síðu.)
Eigendur eru Herbert Þórðar-
son, Þórður Bjarnason og
Gunnar Bjarnason.
Óráðiff um björgunar-
tilraunir.
Óráðið mun enn um björg- (
unartilraunir. í gær var stór- |
viðri í Neskaupstað, og' ekk-
ert hægt að aðhafast. Mun
þurfa að fá kafara og björg-
unarskip, ef takast á að ná
bátnum upp og koma honurn j
1 dráttarbraut. En hætt er j
við að báturinn liðist sundur, j
ef hann liggur þarna lengi á
botninum, ekkj sízt, ef veöur
verða ókyrr með .sjógahgi.
Þjéfimðui* á ísafirði
(Framhald af 1. slðu.)
innar. Ekki var enn fullrann
sakað í gærkvöldi, hvort
fieiri kynnu að hafa verið að
þessu verlii eða vitað um það,
eða hvort þessir sömu menn
kynnu að vera sekir um inn-
brotið í sundhöllina, en á
því lék nokkur grunur .
Harriraan ræðir
við Churchill
Harriman hélt í gær flugleiðis
frá París til London, þar sem
hann mun dvelja tvo eða þrjá
daga og ræða við Churchill for
sætisráðherra. Viðræður þeirra
munu aðallega snúast um leiðir
til að gera samstarf Atlantshafs
rikjanna auðveldara í ýmsum
framkvæmdaatriðum.
TILKYNNING
frá Sjiikrasamlagi Beyhjavíkiir
Samkvæmt samningu við Læknafélag Reykjavíkur,
skulu þeir samlagsmenn, sem skulda meira en 6 mán-
aða iðgjöld við áramót, strikaöir út af skrá hjá þeim
læknum, sem þeir hafa valið.
Þeii, sem í slíkum vanskilum eru, mega því búast
viff því að missa lækna sína og fá ekki að kjósa hina
sömu aftur, nema með sérstöku leyfi þeirra.
SjiEkrasamlag Reykjavíkur
o
o
O
O
o
< I
o
o
O
o
o
o
O
o
o
o
o
O
o
■.v.v-v
ij Vegna geymsEuörðugleika
eru háttvirtir viðskiptavinur okkar vinsamlegast beðn
ir að sækja hjólbarða þá og slöngur, er þeir eiga hjá
■I okkur sem fyrst.
HJOLBARÐINN H.F. :j
í* Hverfisgötu 89 I*
*• *■
VAV.V.W.V.V.V.V.V.W.V.VV.V.V.V.V.V.VV.VAV.VJ
GERUM VIÐ ALLAR STÆRÐIR
"HJÓLBARÐA
fljctt og vel. Endurbyggjum (sólum) flestar stærðir {
f ólksbílahj ólbarða.
Sendum gegn póstkröfu um allt land.
HJOLBARÐÍNN H.F.
Hverfisgötu 89
if
I
Ungraennaféíög! ij
Vinsamlegást sendiff sem fyrst V
áskriftagjöld
/ árið 1951 og e!dri, ef þau eru ógreidd U. M. F. I.
y'
Aminning
o
o
o
o
til kaupenda utan Reykjavíkur er skulda enn blað-J |
gjald ársins 1951: o
o
Greiðið blaðgjaldið til næsta innheimtu-J|
manns eða beint til innheimtunnar fyriru
lok þessa mánaðar. — Þeir kaupendur, ero
sendar hafa verið póstkröfur til lúkningarjj
á blaðgjaldi ársins 1951, eru mjög alvarlegao
áminntir um að innleysa þær þegar. J J
ATHUGIÐ! filaðið verður ekki sent þeim kaupendum(|
á næsta ári, er eigi hafa lokið að greiða blaðgjaldiðo
fyrir áramót. J [
o
o
o