Tíminn - 15.12.1951, Page 4

Tíminn - 15.12.1951, Page 4
AR6ARET GOROON MOOftE FURÐLIJEG FYRIRBÆRI (Things I can't explain) eftir frú M. G. Moore þýdd af sr. Sveini Víkingi, ér jólabók allra þeirra, er hafa áhuga fyrir dulrænum efnum. Bókin er einstaklega fróð- leg og skemvntileg aflestrar. Furðuleg fyrirbæri er óskabók alls hugsandi fólks. Svarti presturinn metsölubók , JOHAKNB KOKCH eftir John Buchan, þýdd af Siguðri Björgúlfssyni, skýrir frá sannsögulegum heimildum höfundar af uppreisn Kaffa-blámanna gegn yfirráðum Breta í Suður-Afríku. Lapúta — svarti prest- urinn — er ógleymanleg söguhetja. Svarti presturinn er hrífandi skemmtibók fyr- ir vaska drengi. JOHN BUCHAN INGA BEKK EFTIR J. KORCH, þýdd af Sigurði Helgasyni og Guðnýju E. Sigurðardóttur, er hugljúft ævintýri kaupstaðartelpu, sem fer í sveit. Inga Bekk bjargaði öllu við, hún hjálpaði öllum, gerði alltaí sitt bezta, sigraði alla. Inga Bekk er bók fyrir góðar stúlkur. ATH.: Sérlega vinsælt virðist hið nýja, franska flauelsband á bókunum: Inga Bekk og Furðuleg fyrirbæri mmi\ ^ESTURINN Bókaútgáfan Bókaverzlunm Fróði, Leifsgötu 4, sendir yður jólabækurnar heim, eins og að undanförnu. Hringið í síma 2037. Ræksii* þessar verða seudar til Itéksala úíi á laudi flsm liclgina TIMINNN, laugardaginn 15. desember 1951. 285. blaf (Framhald af 3. siðu. ekki tæmandi upptalning á því, sem gert hefir verið til aukinnar ráðdeildar í ríkis- búskapnum. Beinn sparnaður af þessum og öðrum ráðstöf- unum ríkisstjórnarinnar nemur milli 10 og 20 millj. kr. á ári, en erfitt að áætla þar um nákvæmlega. Fróðlegt er að athuga, Iwernig stjórnarandstæðing- ar hafa tekið sumum af þess- um ráðstöfunum. Þegar vinnutími í opinberri starfrækslu var lengdur um hálfa klukkustund á dag, reyndu kommúnistar af öll- um mætti að koma því til leiðar, að opinberir starfs- menn gerðu ólöglegt verkfall, til þess að mótmæla þessari breytingu, og undir það tóku a. m. k. sumir í Alþýðuflokkn- um. Þótt opinberir starfs- menn hefðu þessar ráðagerð- ir þeirra að engu, þá sýndi þetta glöggt afstöðu núver- andi stjórnarandstæðinga í sparnaðarmálum. Hvað vilja stjórnar- andstæðingar spara? En þegar rætt er um sparnað, þá er rétt að minn- ast á þau mál nokkru nánar, vegna þess að hér er um mik- ið alvörumál að ræða og margir hafa að vonum þung- ar áhyggjur af hinum opin- beru gjöldum. Andstæðingar syórnarinn- ar halda því fram núna, að það sé auðvelt að lækka þessi gjöld stórkostlega. Mig lang- ar að spyrja þá í því sam- bandi nokkurra spurninga, sem þeir hafa áður verið spurðir hér á Alþingi, en gef- ið lítil svör við, en máske þeir standi sig betur, þegar fleiri heyra til. Ræða fjármálaráðherra Hvað er það, sem þeir vilja spara? Vilja þeir ekki lofa hv. þm. og þjóðinni allri að heyra þetta? Þeir hafa ekki flutt neinar sparnaðartillögur hér á Alþingi. Þótt þeir þykist hafa verið að pukrast með eitthvað þesskonar í fjár- veitinganefnd, þá hafa þeir ekki komið fram hér á þingi með þessháttar tillögur. Hvað er það sem á að spara? Hvað er það, sem er svo auðvelt að spara og sem á að vera svo þungvægt, að straumhvörf- um valdi í skattaálögum? JVilja þeir fækka dólnurum og lögreglumönnum? Vilja þeir draga úr landhelgisgæzl- unni eða fækka mönum á varðskipunum? Vilja þeir fækka læknum, spítölum eða fækka starfsfólki á spítölun- um eða draga úr fæðiskostn- aði sjúklinga eða hækka dag- gjöld á spítölunum? Vilja þeir draga úr styrkjum til berkla- sjúklinga eða vilja þeir lækka framlög til þeirra, sem þjást af langvarandi sjúkdómum? Vilja þeir draga úr framlög- um til nýrra vega eða til við- halds vega, framlögum til hafnargerða og vita, framlög- um til flugmála og strand- ferða? Vilja þeir fækka prest- um? Vilja þeir loka skólum eða leggja niður skóla? Vilja þeir lögbjóða lengri vinnu- tíma fyrir kennara og fækka kennurum? Vilja þeir loka söfnunum? Vilja þeir draga úr námsstyrkjunum? Vilja þeir lækka jarðræktarstyrkinn, framlög til Búnaðarbankans, skógræktar og sandgræðslu? Vilja þeir lækka framlög til fjárskiptanna eða hætta við þau í miðju kafi, draga úr framlögum til aflatrygginga- sjóðs eða til Fiskifélagsins eða til raforkumála? Vilja þeir lækka framlög til Tryggingar- stofnunar ríkisins, til sjúkra- samlaganna, framlög til bygg inga i kaupstöðum og kaup- túnum? Vilja þeir láta hætta að greiða eftirlaun eða draga úr eftirlaunum? Vilja þeir láta lækka laun opinberra starfsmanna? Þannig mætti halda áfram að spyrja og þannig spurði ég hv. landk. Hannibal Valdimarsson við 2. umr. fjárlaganna, þegar hann talaði sem fjálglegast um sparnað, en hverju svaraði hann? Hann svaraði, að hann hefði verið spurður um þá liði fjárlaganna, sem sízt mætti lækka. Það ætti að spara á kostnaði við ríkisstjórnina og utanríkismálin, segja stjórn- arandstæðingar. En þegar þess er nú gætt, að liðirnir, sem ekki má spyrja um í sam- bandi við sparnað, nema meg- in hlutanum af öllum útgjöld um fjárlaganna, þá fer að verða þrautin þyngri fyrir menn að gera grein fyrir því, hvað þeir meina með fjasi sínu um að auðvelt væri að valda straumhvörfum í fjár- málum ríkisins með sparnaði. Hvaða þjónustu vilja menn sleppa? Þetta sparnaðartal stjórn- arandstæðinga hér hefur ekki mikið gildi. Helzt þá það, að tækifæri gefst til þess að benda mönnum á það einu sinni enn, að eigi að íram- kvæma lækkun á ríkisútgjöld unum, þannig að verulegu muni eða stefnuhvörfum valdi, þá er það ekki hægt, nema með því að gerbreyta um afskipti rikisins af málefn um landsmanna. Það er ekki mögulegt nema með því að Jeggja niður margskonar þjón ustu, sem menn hafa á undan förnum árum gert kröfur um að ríkið tæki að sér. Það er sjálfsagt að halda áfram allri viðleitni til sparnaðar og það þárí sífellt að gera nýjar og nýjar sóknarlotur, til þess að reyna að finna leiðir til að draga úr þeim beina kostnaði og kcma í veg fyrir útþenslu. Það er líka geysilegt verk, sem í því liggur að koma í veg fyr- ir slíkt. En þesskonar ráðstaf- anir, þótt góðar séu, leysa ekki þennan vanda. Það er ekkert annað en gaspur eitt, að hægt sé með sparnaði á beinum rekstrarkostnaði ríkisins að lækka rikisútgjöldin þannig, að á því verði byggðar skatta- og tollalækkanir, nema menn eigi þá við stórfellda launa- lækkun opinberra starfs- manna, en hvernig ætti það að standast, að setja þeim laun í algeru ósamræmi við önnur laun í landinu? Það er íullkomið ábyrgðarleysi að halda því fram, að mögulegt sé að halda uppi svipaðri þjón ustu í dóms- og lögreglumál- um, kirkju- og kennslumál- um, samgöngumálum, trygg- ingamálum, hcilbrigðismál- um, málefnum atvinnuveg- anna, ásamt stórfelldum yerk legum framkvæmdum. eins og nú er gert, og lækka um leið verulega skattabyröina á þjóðinni. Slíkt er ekki frain- kvæmanlegt. Furðulegar ályktanir. Ég get ekki stiilt mig um að minnast á það í þessu sam- bandi, hve furðulegt er að heyra og sjá ýmsar sárhþykkt ir um þessi málefni, sem gerð ar eru. Það er erfitt að sjá, að það geti haft góðan endi, ef hver stétt og hver hópur, sem saman kemur til funda, lætur það verða sitt höfuð- verkefni að krefjast fram- laga af ríkinu fyrir sig og handa sér og álykta um leið með hörðum orðum gegn skatta- og tollaálögum og heimta á þeim stórfelldar lækkanir. \7erði þeim leik haldið áfram mjög almennt og það virt til íjandskapar, ef ekki er hægt að fara eftir slík um samþykktum, þá geta menn búizt við því,að sá þing meirihluti verði vandfundinn, sem hefir nógu sterk bein til þess að halda þannig á mál- efnum landsins, að ekki hljót ist stórslys af. Þannig hlýtur ábyrgðarleysi eins og það, sem fram kemur í tali og tillögum stjórnarand stæðinga hér á Alþingi að verða til þess að liða þjóðfé- lagið í sundur, ef menn ekki láta víti þeirra verða sér til varnaðar. Það þjóðfélag fær ekki stað izt, sem saman er sett af hóp- um óbilgjarnra manna og þröngsýnna, sem hver um sig krefst fríðinda handa sér og sinni stétt, alveg án tillits til annarra, og sem haldi uppi sífelldum mótmælum út í blá- ínn gegn óhjákvæmilegum op inberum gjöldum, án þess að gera nokkra tilraun til að líta á samhengi mála og gefa því gaum, til hvers með sanngirni er hægt að ætlast. (Framhald á 5. síðu)

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.