Tíminn - 09.01.1952, Qupperneq 2
2.
TIMINN, miðvikudaginn 9. janúar 1952.
6. blað.
Þat* sem Stephan G. bjó:
Sjö bústaðir
allir komnir I eyði
Klettafjallaskáldið Stephan
G. Stephansson dvaldi um æv-
ina á sjö stöðum, fjórum á ís-
landi og þremur í Vesturheimi.
Það er einkennileg tilviljun ,að
allir þessir staðir eru í eyði falln
ir, og sumir fyrir langa-löngu.
Heimilin á íslandi. ■'
Stephan G. Stephansson fædd
ist á Kirkjubóli í Seyluhreppi,
koti hjá Víðimýri, 3. október
1853. Þar er nú engin byggð.
Foreldrar hans fluttust með
hann ungan að Syðri-Mælifells
á, þar sem ekki er heldur byggð
lengur, og unglingsár sín var
hann með foreldrum sínum í
Víð'imýrarseli, sem einhig er
komið í eyði. |
Er hann var sextán ára, flutt
ust foreldrar hans austur í Bárð
ardal, og sjálfur gerðist hann [
vinnumaður í Mjóadal, býli
langt suður í heiðum, nú löngu
fallið í auðn.
Bústaðir í Vesturheimi.
Frá Mjóadal fór hann vestur
um haf 1873 og ætlaði aftur að
vitja fósturjarðar sinnar að
nokkrum árum liðnum, þótt
allt færi á aðra leið. Hann gerð
ist landnámsmaður í Wisconsin,
en allt er þar komið í eyði. 1880
gerðist hann á ný landnámsmað
ur, að þessu sinni í Garðar-
byggð í Norður-Dakóta. Ekki er
byggð þar heldur. í þriðja sinn
nam hann land í Markerville í
Albertafylki, og þar dó hann 10.
ágúst 1927.
Síðasti bústaðurinn.
Húsið, sem skáldið bjó síðast
í, stendur enn — autt og mann-
laust'. En þó ekki autt með öllu.
Eitthvað mun enn í því af mun
um, sem skáldið átti, og mundi
hér heima áreiðanlega þykja að
því mikill fengur, ef þessum
munum yrði bjargað og þeir varð
veittir á ættjörðinni, sem skáld
ið ætlaði í rauninni aldrei að
yfirgefa — yfirgaf heldur aldrei,
er öllu er á botninn hvolft.
Landnám á fornum rústum.
Þessi misseri hefir landnám
ríkisins í undirbúningi að stofna
til nýrra býla að Víðimýri í
Skagafirði. Kannske mun eitt-
hvert þeirra rísa á rústum hinna
gömlu bæja, Kirkjubóls og Víði
mýrarsels, þar sem Stephan G.
fæddist og dvaldi uppvaxtar-
árin. Það væri nýr kapítuli þess
arar sögu, sem hér hefir verið
sögð, og ætti betur við stórskáld
ið, sem orti í fjarlægri heims-
álfu um lyngið frá æskustöðv-
unum.
Ungfrú ísland
Qtvarpíh
Útvarpið í dag:
Kl. 8,00 Morgunútvarp. — 9,10
Veðurfregnir. 12,10—13,15 Hádeg
isútvarp. 15,30—16,30 Miðdegis-
útvarp. 18,00 FFrönskukennsla.
18,25 Veðurfregnir. 18,30 ís-
lenzkukennsla; I. fl. 19,00 Þýzku
kennsla; II. fl. 19,25 Þingfréttir.
Tónleikar. 20,00 Fréttir. 20,30 Út
varpssagan: „Morgunn lífsins“
eftir Kristmann Guðmundsson
(höf. les). — VII. 21,00 Sinfóníu
hljómsveitin; dr. Victor Urban-
cic stjórnar. 21,20 Erindi: Hætt
an á eftir fengnum sigri (Pétur
Sigurðsson erindreki). 21,40 Tón
leikar (plötur). 22,00 Fréttir og
veðurfregnir. 22,10 Úpplestur:
Sólveig Guðmundsdóttir les smá
sögu. 22,30 Svavar Gests kynnir
jazzmúsík. 23,00 Dagskrárlok.
Útvarpið á morgun:
Kl. 8,00 Morgunútvarp. — 9,10
Veðurfregnir. 12,10—13,15 Hádeg
isútvarp. 15,3,0—16,30 Miðdegis
útvarp. P8,25 Veðurfregnir. 18,30
Dönskukennsla; II. fl. 19,00
Enskukennsla; I. fl. 19,25 Þing
fréttir. Tónleikar. 19,40 Lesin
dagskrá næstu viku. 20,00 Frétt
ir. 20,20 íslenzkt mál (Bjarni
Vilhjálmsson cand. mag.). 20,35
Tónleikar (plötur). 21,00 Skóla-
þátturinn (Helgi Þorláksson
kennari). 21,25 Einsöngur:
Victoria de los Angeles syngur
spænsk þjóðlög; Renata Tarrago
le’ikur með á gítar (plötur).
21,45 Upplestur: Þorsteinn Ö.
Stephensen les kvæði eftir Heið
rek Guðmundsson. 22,00 Fréttir
og veðurfregnir. 22,10 Sinfónísk
ir tónleikar (plötur). 23,00 Dag-
skrárlok.
A gamlaárskvöld var sam-
kvæmi mikið í Cumberland
Hotel í Lundúnum, og komu
þar fram ungar stúlkur frá
ýmsum löndum sem tákn
þeirra þjóða, er þær voru
frá. Þar á meðal var ein ís-
lenzk stúlka — fegurðardís,
sem ekki gerði landi sínu
skömm. Allar voru stúlkurnar
léttklæddar, svo að líkams-
fegurð þeirra nyti sín til fulls
í augum gestanna, er vonandi
hafa látið „vínið andann
| hressa,“ áður en dísirnar
gengu í salinn. Hér birtist
rnyjid af íslenzku stúlkunni.
þW miður veit blaðið ekki
1 nafn hennar, en ekki væri
\ ólíklegt, að sumir lesendanna
þekktu hana. Fari svo, er
sími blaðsins 81 300.
Sársaukalausar
tannviðgerðir
innan skararas?
Um þessar mundir er verið
að reyna í tannlækningaskóla
vestan hafs nýja aðferð við
tannaðgerðir, og er það von
manna, að senn verði hægt að
gera við tennur, án þess að
því fylgi neinn sársauki. Það er
hitinn, sem myndast við borun
ina, er veldur sársaukanum, og
nú er reynt að nota aðferð, sem
ekki veldur hita, til þess að
vinna tönnina, áður en fyllt
er í hana.
Kolsýru, blandaðri örsmáum
ögnum af alúmíníum-ildi, er
dælt á, hinn skemmda hluta
tannarinnar, til þess að eyða
honum og búa tönnina undir
fyllinguna.
Birt án ábyrgðar
fslenzk flugvél hafði sótt
austur í Miðjarðarhafslönd
flóttafólk, sem ættað var úr
eyðimerkurlöndunum fyrir
botni Miðjarðarhafsins, en
fengið Iandvistarleyfi í Vest-
urheimi. Það var komið við
hér heima, og Iangferðafólkið
gisti eina nótt í braggagisti-
húsi á flugvellinum.
Þar sá fólkið ýmislegt, sem
varla hafði fyrr borið fyrir
augu þess en í þessari lang-
ferð á leið til fy'rirheitna
landsins, og ekki mun það
hafa kunnað full skil á því,
til hvers hver hlutur var ætl
aður. Um nóttina þurfti ein-
hver af fólkinu að ganga
þarfinda sinna, en nú var
úr vöndu að ráða á gerókunn
ugum stað. f stórri setustofu
sá hið aðþrengda barn eyði-
merkurinnar skrítinn hlut, er
stóð á gildum fæti, um það
bil hnéháan, og víð skál
ofan, en fóturinn fylltur
sandi. Segir sagan, að svo
hafi virzt sem barn eyðimerk
urinnar hafi talið, að hér
hefði það fundið það, er það
leitaði að, enda sandurinn
þess rétta eliment*
Spæjarahæfileikar
Marðar Valgarðs-
sonar
Nú á dögum er það orðin heil
vísindagrein, hvernig vinna þarf
að því að koma upp um af-
brotamenn, og margbrotin tæki
notuð við rannsóknir af slíku
tagi. Þótt svo væri ekki fyrr-
um, sanna sögur, að uppi hafa
verið menn, sem vel hafa kunn-
að til slíkra starfa af hyggju-
viti sínu.
í Njálu er eftirtektarverð frá
sögn um það, hvernig Mörður
Valgarðsson sannaði þjófnaðinn
í Kirkjubæ á Rangárvöllum á
heimili Gunnars á Hlíðarenda,
en áður höfðu fundizt gripir,
belti og hnífur, sem bentu til
grunsamlegra ferða Melkólfs
þræls.
Aðferð Marðar var sú, að
hann sendi konur með smá-
varning í Fljótshlíð, meðal ann
ars að Hlíðarenda, að gefa hús-
freyjum, og hugði sem var, að
þeim mundi launað verða, og
væri þá skaplyndi fólks „að gefa
það fyrst upp, er stolið er, ef
það hafa að varðveita".
Konurnar komu aftur með
ostsneiðar frá Hlíðarenda, og
fór Mörður með þær í Kirkju-
bæ, raðaði saman og lagði í
ostakistu Þorgerðar húsfreyju,
en ostakistan hefir sjálf verið
mót, er notað hefir verið við
ostagerðina. Stóðst á endum,
sneiðarnar og ostakistan. Það
var sönnun þess, hvaðan gjafa-
osturinn frá Hlíðarenda var upp
runninn.
Svipaðar aðferðir eru viðhafð
ar enn í dag við rannsókn af-
brota. Mörðírí Valgarðsson hefir
verið nokkuð skarpskyggn.
yAV.V.V.V.V.V.VAV.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V’AW
L i n o I e u m
í; A, B og C þykkt og í;
F111 p a p p i
:« :■
nykomið
■j Á. Einarsson & Funk \
:; :;
;■ Simi 3982.
ÍVAV.V.VAVAVAVAV.VAV.V.VAVAVAVAVAVAV
.•AV.V.V.V.V.V.V.V.VAV.V.V.V.V.VAV.V.VAVAVV
í
l Innheimtumenn og aðrir l
«; sem hafa innheimtu með höndum, eru beðnir að senda If
í; lokaskilagrein alls eigi síðar en 15. þ.m.
Innheimta Tímans £
’.VAVAV.VAV.V.V.V.VAV.V.V.V.VAV.VAVAVAV.V
V.V.V.V.V.VAV.V.V.V.VAV.V.V.V.V.VAV.V.VAV.V.
:■ Strandamenn í Reykjavík og nágrenni!
Kvötdvaka
!■■_■_■ ■
Forðizt eldinn og
eiguatjón
Framleiðum og seljum
flestar teguntílr handslökkvi
tækja. Önnumst endurhleðslu
& slökkvitækjum. Leitið upp-
lýsinga.
Koisýruhieðslan ».í. Slml 338)
Tryggvagötu 10
Ragnar Jónsson
næstaréttarlöEmaður
Laugaveg 8 — Síml 7752
Lðgrfraeðistörf of elgnaum-
lýila.
Frímerkjaskipti
Sendið mér 100 íslenzk frí
Árnað heitln
Trúlofun.
Á gamlársdag opinberuðu trú
lofun sína ungfrú Steinunn
Anna Guðmundsdóttir, Efri-Brú
í Grímsnesi, og Guðlaugur Torfa
son kennari, Hvammi, Hvítár-
síðu.
Trúlofun.
Opinberað hafa trúlofun sína
ungfrú Þórunn Kérúlf, stud.
phil. , frá Revkholti, og Snæ-
björn Jónssonýstarfsmaður hjá
S.Í.S., Meðalholti 17.
a ynrn y r merki. Ég sendi yður um hæl 200 erlend frímerki.
AMPER H.r. Raftækjavinnustofa JÓN AGNARS Frímerkjaverzlun, P. O. Box 356 .Reykjavík.
Þingholtstræti 21
Sími 81 556. [‘ínnnonmrr
Raflagnir — Viðgerðir rinpusning
Raflagnaefni Skeljasandur
1 **************** Kaupum - Seljum Hvftur sandur Perla f hraun
^ Notuð húsgögn einnig skauta skíði o. fl. Hrafntinna Kvarz o. fl.
Barnaleikföng seljum við með hálfvirði. PAKKHÚSSALAN Ingólfsstræti 11 — Sími 4663 Fínpúsningargerðin Sími 6909
Blikksmiðjan
Annast allar GLÓFAXI Hraunteig 14. — Sími 7236
tegundir raflagna
Viðhald raflagna. Viðgerðir á heimilis- TENGILL H.F.
tækjum og öðrum rafvélum. BeiSI Ti8 Kleppsveg
Raftækjavinnustofa Siguroddur Magnússon Urðarstíg 10. Sími 80729. Slml 80 684 annast hverskonar raflagn- Ir og viðgerðir svo sem: Verk imlðjulagnir, húsalagntr, sklpalagnir ásamt viðgerðum
Dtbreiðið Tímann. Auglýsið i Tímaiiimi og uppsetnlngu á mótorum, röntgentækjuiu og helmill*- vélmn