Tíminn - 09.01.1952, Side 8

Tíminn - 09.01.1952, Side 8
Það er nú orðið algengt að flytja veðhlaupahesta í flug'V'élum landa í milli. Þykir það einkar hentugt, því að hestar eru við- kvæm dýr, sem illa þola hnjask lan'grar og erfiðrar ferðar, svo sem á skipum eða í járnbrautum. Þegar um mik'a gæðinga er að ræða, þykir varla á slíkt hættandi. Hins vegar tekur flugferðin svo stuttan tima, að hestunum verður sjaldan meint af henni. Hér sést einn brezkur gæðingur, sem verið er að flytja á veð- reiðar á meginlandinu, og er vel að honum búið, svo sem mynd- in sýnir. Tveir trillubátar á Hofsósi löskuðust Einkafrétt til Tímans frá Hofsósi. Tveir trillubátar á Hofsósi löskuðust af sjógangi í stórviðrinu a laugardaginn, og minni háttar skemmdir urðu á húsum, svo sem að rúður brotnuðu og pappa reif af. Fjárhagsáætíun Ak- ureyrarbæjar end- ailega samþykkt Frá fréttaritara Tímans á Akureyri. Fjárhagsáætlun Akureyrar- bæjar var til endanlegrar af- greiðslu á bæjarstjórnarfundi í gær. Eru niöurstöðutölur henn- ar 10,785 þúsund, en 7,2 milljónir í fyrra. Útsvörin eru áætluð 8,705,600 krónur, og hafa hækk að frá fyrri umræðu um 400 þúsund krónur vegna hækkunar á kostnaöi við almannatrygg- ingarnar. Fulltrúar Framsóknarmanna í bæjarstjórninni báru fram til lögu, þar sem skorað var á ríkisstjórnina að afla heimildar til þess, að innheimta mætti fasteignagjöld öll, sem miðuð eru við fasteignamat, nema vatnsskatt, með 400% álagi, þar | eð fasteignagjöld hafa ekki hækkað ^íðan fyrir stríð. Fáist heimild til þessarar hækkunar, væri hægt að lækka útsvör um 1,5 milljónir króna, og yrði sú breyting hinu efna- minna fólki tvímælalaust til hagsbóta. Jólagetraun íslend- ingasagnaut- gáfimnar Dregið var í jólagetraun ís- lendingasagnaútgáfunnar þ. 6. janúar og hlutu þessir verðlaun: 1. verðlaun kr. 300,00, Jón Þorsteinsson, Barónsstíg 12, Reykjavík. 2. verðlaun, Þið- reks saga af Bern, Óskar Jóns son, Vík í Mýrdal. 3. veröl. Þiðreks saga af Bern, Oddný Kristjánsdóttir, Snorrabraut 42, Reykjavík. 4. verðl. Þiðreks saga af Bern. Dagur Tryggva- son, Laugabóli, Reykjadal, .S.- Þing. 5. verðl. Þiðreks saga af Bern, Friðrik Hjartar, Akra- nesi. Alls sendu 107 rétta úrlausn, þar af úr Reykjavík og ná- grenni 48 úrlausnir, og utan af landi 57 úrlausnir. Kelduhverfi. Heyskaðarnir urðu einkum í Kelduhverfi, og munu þar hafa fokið um 350 hestburðir af heyi. Mest varð heytjón Jóns bónda Ólasonar í Garði, sem missti 100 hestburöi, og Þórarins Jó- hannessonar í Krossdal, sem missti 75 hestburði. Uppskipunarbátar sukku. Á Kópaskeri sukku tveir upp- skipunarbátar í hinu mikla öldu róti, sem fylgdi þessu veðri. í Öxarfirði og Presthólahreppi uröu hvergi stórskaðar af völd- úih véðursins. Trillubátarnir tveir stóðu uppi á plani fast við bryggj- una, en sjógangur var svo mikill, að aldan reið látlaust yfir bryggjuna. Brotnaði ann- ar kinnungurinn úr trilluþát, sem Ágúst Jóhannsson á, en hinn, eign Sveins Jóhanns- sonar, laskaðist einnig. Aðr- ir bátar voru ofar. Ljóskersstólpi á bryggjunni kubbaðist sundur. Tjón á Skeiðum í ofviðrinu á dögunum fuku fjárhúshlöður að Efri-Brúna völlum og Löngumýri á Skeið um. Að Húsatóftum á Skeið- um fauk þak af hesthúsi og vindmyllur fuku að Andrés- fjósum og Brautarholti, skóla húsi Skeiðamanna. Víða á Skeiðum voru mannvirki hætt komin. Að Galtafelli í Hrunamanna hreppi fauk að nokkru leyti þak af fjósi. Engar fréttir úr Málmey. Engar fréttir hafa borizt utan úr Málmey eftir óveðr- ið, en þar eru tveir menn, eins og kunnugt er af fyrri frá- sögnum, annar bóndinn, Þor- móður Guðlaugsson, og Guð- mundur Guömundsson. Búið var að reisa þar bráðabirgða- skýli, og er ekki annað vitað en það hafi staðizt storminn. Ekki hefir enn verið fært út í eyna eftir veðrið. Truman flytur ársskýrslu sína Truman Bandaríkjaforseti mun flytja þjóðþinginu hina ár legu skýrslu sína um efna'nags- ástandið í landinu. Er búizfc við, að forsetinn muni fara fram á aukna skatta til að standa und ir landvarnaframkvæmdunum og efnahagshjálpinni til annarra ríkja. Her og lögregla leyst upp í Tíbet Hin kínverska stjórn í Tíbet hefir nú leyst upp hinn gamla fastaher landsins, sem var 9 þúsund manns og stofnað nýjar hersveitir fylgismanna sinna. Fasta lögreglan í Laza hefir einnig verið leyst upp og ný skip uð í staðinn. Tjón af völdum veöurs- ins í N.-Þingeyjarsýslu Einkaskeyti til Tímans frá .Kópaskeri. Talsverðir heyskaðar urðú hér um slóðir í ofviðrinu síðast- lið'inn laugardag og allviða skemmdust þök á húsum. Hins vegar er snjór ekki mikill, og bílfært er um héraðið. 1 Falmouth úir og grúir af i hlaðám. og Ijósmyndurum Tiirnioil num koma jiangað itteð Fl> iiig lynf- erprlse árla í dag, ferðiinii hefir seiukað För dráttarbátsins Turmoil með Flying Enterprise hefir nokkuð seinkað siðustu dægrin vegna mótvinds og krapprar öldu, svo að ekki náðist til hafnar í gær eins og áður hafði verið ráð- gert. í gærkvcldi áttu skipin eftir 120 km. til Falmout og fórU með 3 hnúta hraða á klukkustund. í i Ferðin gengur þó vel og enginn vafi er nú-talinn á að | skipið komist í höfn, þar sem | þau eru nú komin inn í sund- ið og varla hætta á stór- viöri næstu dægur. ’ Er gert ráð fyrir, að komið verði til Falmouth árdegis í dag. 50 metra Iöng dráttartaug. Taugin milli skipanna er 50 metra löng og eru skip á þessari fjölförnu skipaleið vöruð við að sigla nærri þeim. Fjórir dráttarbátar fylgjast nú með Turmoil. Verður sóttur á vélbát. , Þegar Flying Enterprise er komið í nánd við Falmouth er ‘ ráðgert að sækja Carlsen 'skipstjóra á vélbát, og verða 1 fulltrúar útgerðarinnar þar á ‘ferð. í Falmoutn er fjöldi jvina hans saman kominn til aö fagna honum, þar á meðal foreldrar hans, sem komið hafa flugleiðis frá Kaup- mannahöfn. Riddari af Ðannebrog. Friðrik Danakonungur hef- ir sæmt Carlsen riddárakrossi af Dannebrog og sent honum sérstakt heiðursskjal, sem honum verður afhent þegar Ivið landtökuna. Blaðamenn og Ijósmýndarar. Þá þótti það og sérstökum tíðindum sæta í Falmouth í gærkvöldi, hvílíkur urmull af blaöamönnum og blaðaljós- myndurum er þangað kom- inn, og hefir slíkur sægur þeirra manna ekki sést þar áður, og vafasamt er taliö, að svo mikill fjöldi slíkra manna hafi þyrpzt til nokkurs eins staðar í Bretlandi vegna nokk urs annars atburðar. Aðalfundur Framsóknarfélags Reykjavíkur Aðalfundur Framsóknar- félags Reykjavíkur verður haldinn miðvikudaginn 16. jan. n. k. og hefst hann kl. 8,30 i Edduhúsinu við Lind- argötu. Þess er vænzt, að félagsmenn fjölmenni og taki með sér nýja félaga. Efnahagssamvinna Júgóslava og Banda ríkjamanna Bandaríkin og Júgóslavía hafa nú gert með sér víötæka samninga um efnahagslega sam vinnu, eins og áður hefir verið frá skýrt, og voru þeir undir- ritaðir í gær af fulltrúum Júgó- slavíu og sendiherra Bandaríkj anna. Fjöldi Oiafsfirðinga fer brott í vinnuleit Frá fréttaritara Tímans í Ólafsfirði. Mikill fjöldi fólks héðan úr Ólafsfirði leitar brott til atvinnu i vetur. Het'u' folk farið brott búast til brottfarar í atvinnuleit, lyrir. Fólk það, sem að heiman fer, er bæði konur og karlar, en miklu meira þó af karlmönn- um. Bátarnir eru íarnir á vertíð suður við Faxaflóa, og fór fjöldi fólks með þeim. Kvenfólkiö leitar sér einkum vinnu í frystihúsum, og mun nú ■ sem fyrr margt' Ólafsfirðinga vinna í hraðfrystihúsinu í Kópa voginum. Verður fámennt og dauflegt heima fyrir, þegar ailir eru fai-n ir, sem á brottför hyggja í vetur. Blóðugar óeirðir í Jerúsalem í gær urðu blóðugar óeirðir í Jerúsalem, er þjóðþingið í íSrael ræddi um stríðsskaðabæt ur aí hendi Þjóðverja. Söfnuð- í stórhópum, og fleiri eru að enda er vinna nauðalítil heima Landað fiski í gær Frá fréttaritara Tímans á Akranesi. Dagurinn í gær var notaö- ur til að landa því sem eftir var af afla bæjartogarans Bjarna Ólaí/ssonar og kom hann upp á Akranes til þess. En um helmingur aflans var eftir í skipinu er það varð að fara til Reykjavíkur á laugardagsmorgun. í morgun var svo von á hin- um Akranestogaranum, Akur- ey, með um 250 lestir af fiski, sem unnið veröur í frystihús- um. Vinna hófst í frystihús- unum í gær. ust um 10 þús. manns að þing- húsinu og sló þar í bardaga. Létust allmargir menn, þar á (Framhald á 7. siðu.)

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.