Tíminn - 10.01.1952, Page 6

Tíminn - 10.01.1952, Page 6
6. TlMINN. fimmtudajinn 10. janúar 1952. 7. blað. Skýjudísin Övenjulega fögur og íburð 1 armikil, ný, amerísk mynd | í litum. Mynd með undur-1 fögrum dönsum og hljómlist, | og leikandi léttri gamansemi. | Rita Hayworth, Larry Parks. Sýnd kl. 5, 7 og 9. NÝJA BÍOj fítítfí á ég með I böntin tólf! („Cheaper by íhe Dozen“) | Afburðaskemmtileg ný am- 1 erísk gamanmynd, í eðlileg- | um litum. — Aðalhlutverkið = leikur hinn ógleymanlegi Clifton Webb, ásamt I Jeanne Crain og Myrna Loy Sýnd kl. 5, 7 og 9. BÆJARBiO - HAFNARFIRÐl - . Kynslóðir koma Mikilfengleg, ný, amerísk: stórmynd í eðlilegum litum: byggð á samnefndri metsölu | bók eftir James Street. Mynd j in gerist í amerísku borgara ; styrjöldinni. I Susan Hayward, Yan Heflin, Bönnuð innan 14 ára. Sýnd kl. 7 og 9. HAFNARBIOl | Í útlendinya- hersveitinni (In Foreign Legion) Sprenghlægileg ný amerísk 1 skopmynd, leikin af hinum | óviðjafnanlegu gamanleik-1 urum BUD ABBOTT, LOU COSTELLO. Sýnd kl. 5, 7 og 9. ■ ■ uai(iiiiiiiii4iiiiiiii'iiimtiuiiiiuMiiiiuiiiiuiiiiuiiiiiiii' i Austurbæjarbíó | 3 E Belinda (Johnny Belinda) | = [ Hrífandi, ný, amerísk stór- § I mynd. Sagan hefir komið út ] 1 í ísl. þýðingu og seldist bók- f I in upp á skömmum tíma. Ein [ f hver hugnæmasta kvikmynd, f i sem hér hefir verið sýnd. É Jane Wyman, Lew Ayres. Bönnuð innan 12 ára. Sýnd kl. 7 og 9. f Óaldarflokkurinn f (Sunset in the West) | Afar spennandi, ný, amerísk 1 | kvikmynd í litum. Roy Rogers. Sýnd kl. 5. j TJARNARBÍÓ1 \ Jolsoii syngtir á nýf (Jolson sings again) | Aðalhlutverk: Larry Parks Barbara Hale I Nú eru síðustu forvöð að sjá | i þessa afburða skemmtilegu | 1 mynd. Sýnd kl. 5, 7 og 9. r | : Næst síöasta sinn. GAMLA BÍO Lyklarnir sjjö \ (Seven Keyes to Baldpate) j Skemmtilega æsandi, ný, j amerísk leynilögreglumynd j gerð eftir hinni alkunnu j hrollvekju Earl Derr Biggers. Aðalhlutverk: Phillips Terry, Jacquline White, Margaret Lindsay. Sýnd kl. 5, .7 og 9. Bönnuð innan 12 ára. (TRIPOLI-BIO Kap pa k sturs- hetjan (The Big Wheel) \ Afar spennandi og bráðsnjöll I ný, amerísk mynd frá United i Artist, með hinum vinsæla 1 leikara: Mickey Rooney. Thomas Mitchell, Michael O’Shea. » Sýnd kl. 5, 7 og 9. íPvu/An mtu Áej&UO \ Ötvarps viðgerðir1 RatUovinimstofaii LAUGAVFG 16« ELDURINN j gerir ekki boð á undan tér. Þeir, sem eru hyggnlr, tryggja strax hjá j Samvmnutrygglngum Anglýsingasínil TfMANS er 81 308. I BergnrJónsson 't | Málaflutnlngsskriístofa | Laugaveg 65. Slmi 5833 f Helma: Vitastíg 14 Baðstofahjal (Framhald af 4. síðu) Að því búnu er ekki líklegt að vanti kaupendur að ríkis- | skuldabréfum til 15—-20 ára, til, viðreisnar þjóðinni. Á þeim' tíma hafa kaupendur þeirra' líka ofurlítlð tóm til að íhuga1 í samanburð við þróun síðustu 1 ára, hvað þeir verði auðugir af sjóðnum, þegar hann kemur til; útborgunar, og e.t.v. hvort nokk uð muni táknrænt í dæmisög- unni um apann og kettina. Ekki ber þó að skilja orð mín svo, að ég sé raunverulega á móti sparnaði. Það hefi ég aldrei verið. En svo framarlega sem þjóðin ætlar að byggja einhverj ar vonir á sparifjársöfnun ein- staklinga sem veltufé, þá held ég að hún verði að krefjast af sjálfri sér ráðvandlegri skipta við sparifjáreigendur hér eft- ir en undanfarin ár. Annars er sennilegast, að þeir verði eng- ir. Það hefir, sem kunnugt er ekki legið ríkast í mannlegu eðli að hugsa fyrst um alla aðra en sjálfan sig, og fátt bendir til, að sá hugsunarháttur sé að glæðast. A.m.k. finnst mér lé- legra glens en svo að hægt sé að hlægja að því, að bjóða skatt frelsi á smáupphæðum spari- fjár, meðan höfuðstóll þess er meltur upp til agna í gráðugri hít þjóðfélagsins — en verið get ur að einhver gjöri ekki hærri kröfur en svo að þykja það góð fyndni. í alvöru skil ég .varla að það verði tekið.“ Margt er rétt í þessu hjá Guð mundi, þótt mér finnist hann gera oflítið úr umræddu frv. Á það vil ég líka benda, að hefði fjárhagsráð ekki starfað á und anförnum árum, hefðu miklu færri getað byggt í sveitunum en ella, því að þá hefðu bygg- ingar í kaupstöðum alveg geng ið fyrir og þó einkum lúxus- byggingar. Þangað hefði bygg- ingarefnið farið og sveit- irnar orðið útundan. Starkaður. KJELD VAAG: HETJAN ÓSIGRANDI 27. DAGUR Erlcnt yfirllí (Framhald af 5. síðu) ekki náð þeirri nákvæmni, sem æskileg væri. Eigi að síður sanna þessar tölur þegar það, að framleiðsla og notkun mjög margra nauðsynja, stendur langt að baki því, sem gerist með vestrænum þjóðum. Neyzlan á mann. Vefnaðariðnaður alls konar hefir t.d. lengi verið óskabarn stjórnarherranna. Á árinu 1950 stóðst áætlunin um ullarfram- leiðslu, en ekki um baðmullar- framleiðslu, en áætlunin fyrir þetta ár var þó lægri en árin á undan. Þess ber að gæta í sam- anburði hér á eftir, að í Rúss- landi er miklu minna um nylon og rayon en á Vesturlöndum og þessi efni lækka töluna um notk un lýðræðisþjóðanna af-ull og baðmull. Samanb. er því hag- stæðari Rússum, en sýnir samt, að þeir eru óralangt á eftir. Sambærileg notkun 1950: USSR USA Bretl. Frakkl. Baðmull, yd. 23 65 42 .. Ull, yards ..1 3 7i/2 Skór, pör .. 1 3^3 2y2 Smjör, pund 8*/2 11 16% 14 Jurtafeiti pd. 13 23 28 í kjötframleiðslu búa Rússar enn við skort, sem skapast af niöurskurði Þjóðverja á kvik- fénaði í S.-Rússlandi í stríðinu og eru enn lakar staddir en þeir voru fyrir stríð. Sykurneyzla er aftur á móti meiri en nokkvu sinni fyrr, eða um 900 gr. á mán- uði pr. íbúa. Sápuframleiðslan hefir aukizt og nálgast % punds á mánuöi. Skóframleiðslan nálg ast á ný fyrirstríðsframleiðsl- una, og enda þótt hver Rússi eignist nýja skó þrisvar sinn- um sjaldnar en Breti eða Banda ríkjamaður, kaupir hann samt helmingi fleiri en Spánverji eða ítali. Samanburður við lífsstig þessara þjóða er hagstæðari fyr ir Rússa en samanburður við engilsaxnesku þjóðirnar, svo að ekki sé talað um Norðurlanda- þjóðirnar o.fl. smáþjóðir Norð- ur-Evrópu. ATTUNDI KAFLI. Stóri riddarasalurinn í Kaupmánnahafnarsloti var fagurlega skreyttur, en þó höfðu konur þær, sem verk' önnuðust, aðeins haft einn dag til stefnu. Tveim dögum áður hafði kóngleg mekt komið heim úr veiðiför í mjög vondu skapi, og þar eð honum datt ekki annað skárra í hug, hafði hann siglt yfir til eyjarinnar Amakurs með allt sitt fylgdarlið, þar sem konungur og hirð háns hafði farið um skógana í miklum vígahug, en ekki borið annað úr býtum en fáeina héra, sem reknir höfðu verið í dauð- 1 ann af ríðandi mönnum og geltandi og glepsandi hundum. Skaps- munirnir höfðu því ekki stórum batnað, er konungurinn sneri heim til hailarinnar. Enginn hafði orð á því, en engum duldist , það: Kónglegri mekt sárleiddist. Um kvöldið gerðist óvæntur atburður: Eiríkur Hardenberg kom frá Sviþjóð og færði konunginum mikil tíðindi: Daníel Rantzan hafði unnið frægan sigur. Hann hafði gersigrað sænsk- j an her á neiðinni við Svartá. Friðrik varð mjög feginn þessari , frétt og skipaði þegar svo fyrir, að sigrinum skyldi fagnað i kvöldið eftir með miklu og viröulegu samkvæmi í slotinu. Það , var skammur fyrirvari, sem þeir fengu, hirðstjórinn og vesalings kökumeistarinn, en þegar samkvæmið hófst, gat hvorki kóngleg mekt né hirðin að neinu fundið. Naktir bjálkarnir og þiljurnar í riddarasalnum voru ekki verð- ug sjón fyrir kóngleg augu, en nú voru allir veggir huldir dýr- um dúkum, sem hrundu í þungum fellingum allt að gólfi. Hæg- indin voru lögð vínrauffu flauelsklæði. Hið langa veizluborð var fagurlega skreytt ljósum, svo að fáir höfðu séð dýrðlegri sýn. Vitaskuld var ófriður kostnaðarsamur, og mikið af silfurbúnaði krúnunnar hafði farið í deigluna, en sýnilega var taisvert eftir: diskar, bikarar, vínkönnur og sælgætisskálar, er allt var merkt með stöfunum F. S. — Fredericus Secundus. Á miðju borðinu voru hinir dýrðlegu veizluréttir, listilega framreiddir og mjög litskreyttir. í öðrum enda salarins lék hljómsveit Fransiskusar Amsfortíusar, hljómsveitarstjóra kónglegrar mektar. Við og við sungu hinir tólf söngmenn konungsins, en hinir tignu gestir sungu aðeins viðlagið tveggja eða þriggja laga. Það var siðvenja. Umræðuefnið var sigurinn frægi við Svartá. Fyrir miðju langborðinu sat sjálfur konungurinn, rjóður af víndrykkju og gleöi. Það var ekki aöeins búnaðurinn, sem sýndi, að þarna sat tignasti maður samkvæmisins. Þunnt höfuðið með snöggklippt, jarpt hár, var fagurlega skapað, drættirnir að vísu nokkuö skarpir, en lítið eitt bogið nefið gaf andliti hans tignarsvip. Gisið yfirskeggið og þverskorinn hökutoppurinn huldu þunnar varirnar að nokkru. Helzt var kannske að setja það út á andlit hans mektar, að augun væru of lítil. Athugull áhorf- andi og góður mannþekkjari hefði þó vafalaust fljótlega séð, að kóngleg mekt var ekki laus við mannlega bresti — að hann var skapbráður, þótt hann á hinn bóginn væri ekki langrækinm og smámunasamur, en átti samt til að vera allt að því þrár. Góð- vilji hans leyndi sér ekki, þrátt fyrir allt, enda var hann virtur og elskaður af flestum. Hitt var almannarómur, að áhugamál hans væru íremur vín, veiðiferðir og gleðskapur í hópi hirð- manna en alvarlegar stjórnarathafnir og ákvarðanir, sem vörð- uðu heill ríkisins, og sumir þóttust ekki í vafa um, að hann ætti sök á stríðinu, enda var hann ófús að hlusta á rán annarra. En óbreyttir þegnar hans lögðu honum þetta ekki til lasts og embættismenn hans sjaldan, enda þótt þeir hristu stundum gráhærð höfuð sín, áhyggjufullir á svip. Gegnt konunginum sat ljóshærður, hávaxinn aðalsmaður, djarf- legur og þóttafullur. Það var Eiríkur Hardenberg frá Mattrup, frændi hinnar ungu jómfrúar, sem átti ást kónglegrar mektar. Fyrir fáum mánuðum hafði faðir Eiríks, ríkishirðmeistarinn, ver- ið sviptur embætti og léni að skipun kónglegrar mektar. En soninn lét hann ekki gjalda þess. Friðrik konungur drakk bikar sinn í botn. Svo strauk hann skeggið með handarbakinu og mælti: „Of sjaldan sjáum vér þig í salarkynnum vorum, Eiríkur. Þótt þú getir ekki ætíð flutt oss gleðitíðindi, ertu jafnan velkominn á vorn fund“. „Ég þakka yður, kóngleg náð og mekt“, svaraði Hardenberg og laut konunginum. Svo renndi hann augunum þangað, sem hinir tignustu gestir sátu og bætti við: „Um skeið hefir ófriður- inn við Svía bannað mér að þjóna yðar mekt“. | „Það er oss kunnugt, Eiríkur", svaraði konungurinn náðar- samlegast, „en þegar faðir vor, háloflegrar minningar, skipaði oss til forráða í Málmeyjarhúsi, var ávallt tími til að drekka saman nokkur staup. Nú hugsar þú um þaö eitt að halda ferð þinni áfram". i „Ef það er vilji yðar náðar", svaraði Hardenberg tómlátlega, jafnvel kuldalega. „Daginn áður en orrustan við Svartá var háð, barst mér bréf, þar sem mér var tjáð, að hinn elskaði faðir minn myndi vart stíga á fætur aftur.... “ ! ..Það myndi hryggja oss innilega", sagli konungurinn, en þó var lítill sorgarhreimur í röddinni. „Vér vorum ekki alls kostar 1 ánægðir með birgðaflutninga til herliðs vors frá Skáni....En segðu föður þínum, að vér höfum gleymt þeim yfirsjónum, og vér óskum þess, að hann verði aftur heill heilsu“. „Ég leyfi mér að þakka kónglegri mekt“, svaraði Eiríkur Hard- enberg, en það var ekki laust við háðsbros á vörum hans. „Hinn kæri faðir minn mun vafalaust gleðjast innilega, er ég færi hon- um þá kveðju". Friðrik konungur lét svo lítið að kinka kolli, um leið og hann tæmdi bikar sinn í annað sinn. Síðan sneri hann sér brosandi

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.