Tíminn - 29.02.1952, Blaðsíða 2
2.
TIMINN, föstudagmn 29. febrúar 1952.
49. blað.
Verzlun flutt
Verzlunin ULTÍMA H.F. verður flutt frá Bergstaða-
stræti 28 að Laugaveg 20 (þar sem áður var Raftækja
verzlun Eiríks Hjartasonar).
Viðskiptavinir verið velkomnir í hin nýju húsakynni
Laugaveg 20
Reykvíkingar, sem aðeins eiga af-
mælisdag á fjögurra ára fresti
í dag eiga afmæli á milli
tuttugu og þrjátíu Reykvíking-
ar, sem farið hafa á mis við af-
mælisdaginn sinn í fjögur ár.
Meðal þeirra eru tveir ungir
'oorgarar, sem aldrei hafa fyrr
átt afmælisdag, enda þótt þeir
séu orðnir fjögurra ára.
★
Blaðinu þykir hlýða að gefa
iérstakan gaum afmælum fólks,
sem ekki á afmælisdag nema
fjórða hvert ár. Því miður hefir
oað ekki getað kannað, hverjir
if þeim, sem utan Reykjavíkur
oúa, eiga afmæli á hlaupárs-
iaginn, vegna þess að það skort
r gögn til þess. En við nákvæma
•annsókn á manntali í Reykja-
/ík haustið 1950 komu í leitirn-
ir 25 menn, sem afmæli eiga
19. febrúar, og eru þá undan
elldir þeir, sem blaðinu er kunn
ígt um, að látizt hafa síðan.
á hinn bóginn er ekki loku
:yrir það skotið, að einhverjir,
sr afmæli eiga á hlaupársdag,
nafi flutt til Reykjavíkur síðan
.950, og eins verður ekki fyrir
pað svarið, að eitthvað kunni að
/era misritað í manntalinu.
Loks er enn hugsanlegt, að ein-
íverjir, sem raunverulega eru
íæddir 29. febrúar, láti skrá af-
nælisdaginn sinn til dæmis 28.
iebrúar. Að minnsta kosti skort
r ofurlítið á, að svo margir, sem
rlutfallslega ætti að vera, séu
sKráðir íæddir 29. febrúar. En
par munar þó ekki meira en
svo, að um tilviljun getur verið
ið ræða.
★
tíamkvæmt þessari athugun
blaðsins virðist elzta fólkið í
rteykjavik, sem á afmæli á
nlaupársdaginn, vera fætt 1892,
og þess vegna eiga sextugsaf-
næli í dag. Það eru Ingvar Lofts
ion, skipstjóri á Vesturgötu 32,
jg frú Hallfríður’Brynjólfsdótt-
r, Nökkvavogi 56.
Enginn hefir fundizt, er fædd
ar sé á hlaupársdag árin 1896,
i900 né 1904.
1908 eru fædd Sigurður Ein-
irsson pípulagningamaður, Brá
/allagötu 44, og Þórlaug G. Guð
lónsdóttir, Hverfisgötu 119.
1912: Einar B. Pálsson verk-
íræðingur, Hringbraut 83, sem
/era mun í Noregi eða á leið
ál Islands á Gullfossi, og frú
Þórhildur Jakobsdóttir, Njáls-
götu 36.
1916 virðist enginn Reykvík-
mga hafa fæðzt á hlaupársdag.
1920: Finnur S. Richter, bruna
/örður, Hjallavegi 40, Laufey
■áigurðardóttir, starfsstúlka í
Landsspítalanum, Klemenz Jóns
son, leikari, Lindargötu 20, Ad-
jlf Wendel, húsgagnasmiður,
áörlaskjóli 26, og frú Bertha H.
Kristinsdóttir, Unnarstíg 2.
Rússasag'n
Rússi hafði flúið til Vestur-
Bvrópu, og lögreglan þar tók
aann fastan og yfirheyrði hann.
— Hvað ertu með hér spurði
lögreglumaðurinn, er hann fann
iskju með töflum í á Rússanum.
— O, þetta er nú við höfuð-
/erki, svaraði maðurinn.
— Og þetta hér? spurði lög-
reglumaðurinn, er hann fann
aðra öskju með töflum.
— Þetta er við tannpínu.
Svo fannst í bakpokanum
mynd af Stalín.
— Hvað gerirðu nú við þetta?
spurði lögreglumaðurinn for-
viða.
— Þetta, sagði Rússinn lágt
—ja, þetta nota’ég við heim-
þránni.
1924: Haukur Þ. Benedikts-
son, skrifari, Fjölnisvegi 3, frú
Sigrún Júlíusdóttir, Kvisthaga
11, og Þorsteinn Þ. Bjarnar,
verkamaður, Laugabrekku við
Suðurlandsbraut.
1928: Guðmundur H. Norð-
dahf, hljóðfæraleikapi, Bergs-
staðastræti 66, Hákon ,Bjarnar
son, loftskeytamaður, Efsta-
sundi 74, frú Hulda Arnórsdótt-
ir, Reynimel 23, Einar Sigurðs-
son, sjómaður, Vesturgötu 46, og
Unnur Ó. Jónsdóttir, starfs-
stúlka, Öldugötu 17.
Árin 1932 og 1936 virðast eng
ir Reykvíkingar fæddir á hlaup-
ársdaginn.
1940: Björk Guðmundsdóttir,
Hjallavegi 22, og Guðrún E. Guð
mundsdóttir, Hringbraut 103.
1944: Björg H. Björgvinsdótt-
ir, Hringbraut 107, og Björn Guð
mundsson, Seljavegi 33.
1948: Kristín Þórðardóttir,
Bergstaðastræti 60, og Kristinn
Halldórsson, Eskihlíð 7.
★
Það má ekki minna vera en
ÞRUMA tíR HEIÐ-
SKÍRU LOFTI.
Hann kom í kaupstaðinn og
ætlaði að birgja sig dálítið
upp að vörum, því að færðin
var orðin skárri, en enginn
vissi nema hún spilltist aftur.
Hann hafði hugsað sér að
kaupa meðal annars einn sekk
af strásykri, en þegar hann
heyrði, að þeir hefðu ekki leng
ur nema pólska sykurinn,
hætti hann við það.
Ilann vildi ekki kaupa kött-
inn í sekknum.
blaðið óski þessu fólki, sem, lít-
ur foks afmælisdag eftir fjög-
ur ár, til hamingju, og að næsta
fjögurra ára skeið verði því far-
sælt.
Mikil leikstarfsemi
víða um land
Óvenju mikið hefir verið
um leikstarfsemi í byggðarlög
um landsins í vetur. Það, sem
af er vetrinum, hafa verið
sýnd 29 stór leikrit, þar af
eru 14 innlend eða staðfærð,
en 15 erlend. í æfingu eða
undirbúningi eru nú 26 leik-
rit, sem skrifstofu okkar er
kunriugt um. Af þeir eru 11
innlend eða staðfært en 15
erlend.
Auk þessara leikrita kem-
ur svo mikill fjöldi smærri
leikrita og leikþátta og er ó-
hætt að fullyrða að tala
þeirra sé almiklu hærri. Af
innlendum leikritum hefir
Skugga-Sveinn verið tekinn
til meðferðar á fjórum stöð-
um.
Tíu leiðbeinendur hafa
starfað í vetur að uppsetningu
leikrita hjá ýmsum félögum
innan Bandalagsins.
Hörgull á góðum viöfangs-
efnum hefir háð mjög starf
inu á undanförnum árum, en
nú hefir Bandalagið' látið
þýða og fjölrita nokkur ný
erlend leikrit og fjölrita að
nýju eldri þýðingar, sem
erfitt var að útvega, svo að
væntanlega stendur þetta til
mikilla bóta.
Dýrgripir þjóðar eiga
heima í heimalandinu
„Dagur“ á Akureyri birti ný-
lega þessa frásögn:
„í danska blaðinu „Informa-
tion“ er eftirfarandi klausa 7.
þ.m.: „Eruð þér orðinn þreytt-
ur að heyra um íslenzku hand-
ritin? Ef svo er, skulum við
segja yður enska sögu:
f hinum enskumælandi
heimi er „Alice in Wonderland“
ein hin ástsælasta, mest lesna
og oftast tilvitnaða bók. Hún
er fjársjóður, helgur dómur, nær
því þjóðleg stofnun. Bókin er
skrifuð af enskum prófessor og
kom fyrst út árið 1865. Frum-
handritið var selt á uppboði í
London 1928 fyrir 15.400 sterl-
ingspund, til amerísks safnara,
sem yfirbauð British Museum.
Þegar safnarinn dó 1946 var
handritið selt í New York fyrir
50 þús. dollara. Kaupandinn var
yfirbókavörðurinn við þingbóka
safnið — Library of Congress
— í Washington, sem er lands-
bókasafn Bandaríkjanna. En
hann keypti ekki í embættis-
nafni, heldur var hann um-
boðsmaður fámenns hóps am-
erískra safnara, sem vildu að
Bandaríkin gæfu Englandi hand
ritið á þeim forsendum „that a
nation’s treasures belong at
home if the nation is able and
willing to care for them“ — að
dýrgripir þjóðar eiga heima í
heimalandinu ef þjóðin vill og
j er fær nm að gæta þeirra. —
Iíinn 18. nóvember 1948 af-
henti yfirbókavörðurinn amer-
íski British Museum handritið.
Þessi vinarvottur vakti mikla1
athygli og gagnkvæman góð-,
vilja í milli þjóðanna." — Þann
ig segir Information frá og er
þetta gott „innlegg" hjá blað-
inu.“
r jr
UtvarpLð
Alúðar þakkir til allra þeirra, nær og fjær, er auðsýndu
okkur samúð og hluttekningu við andlát og jarðarför
JÓNS HELGASONAR
frá Stóru-Hildisey.
Sérstaklega þökkum við þeim, er réttu okkur hjálpar-
hönd og aðstoðuðu okkur við útför hans.
— Guð blessi ykkur öll.
Fyrir mína hönd og barna minna
Ingigerður Jónsdóttir
Útvarpið í dag:
Fastir liðir eins og venjulega.
20.30 Kvöldvaka: a) Þórarinn
Grímsson Víkingur flytur síð-
ari hluta erindis síns: Ferð til
Alaska og laxveiðar þar. b)
Kantötukór Akureyrar syngur;
Áskell Jónsson stjórnar (plöt-
ur). c) Hallgrímur Jónasson
kennari flytur öræfaþátt: Norð
ur Eyfirðingaveg. d) Sigvaldi
Indriðason kveður stökur. 22,00
Fréttir og veðurfregnir. — 22.10
Passíusálmur (17). 22.20 „Ferð
in til Eldorado", saga eftir Earl
Derr Biggers (Andrés Krist-
jánsson blaðamaður) — XVII.
22.40 Tónleikar. 23.10 Dagskrár-
lok.
Útvarpið á morgun:
8,00 Morgunútvarp. — 9.10
Veðurfregnir. 12.10 Hádegisút-
varp. 12.50—13.35 Óskalög sjúk-
linga (Björn R. Einarsson). 15.
30—16.30 Miðdegisútvarp. —
(15.55 Fréttir og veðurfregnir).
18.00 Útvarpssaga barnanna. |
18.25 Veðurfregnir. 18.30 Dönsku
kennsla; II. fl. — 19.00 Ensku- !
kennsla; I. fl. 19.25 Tónleikar:
Samsöngur (plötur). 19.45 Aug-
lýsingar. 20.00 Fréttir. 20.30 Út- '
varpstríóið. 20.45 Leikrit: ,Lif- ■,
andi og dauðir“ eftir Helge
ICrogl|. LeiMstjó:fi|: Þorstðirin
Ö. Stephensen. 22.00 Fréttir og
veðurfregnir. — 22:10 Passíu- :
sálmur (18). 22.20 Danslög (plöt- j
ur). — 24.00 Dagskrárlok. I
Frá biinaðarþingi
(Framhald af 1. síðu.)
kosta 170—200 millj. kr., ef allt
er talið með, en nokkuð af því
geta bændur að sjálfsögðu lagt
fram í eigin vinnu. Á s.l. ári
munu hafa verið ræktaðir um
2000 ha. og er það mikil við-
bót, en allt benir til, að bændur
hafi lagt svo hart að sér við
þær ræktunarframkvæmdir, að
þeir geti ekki haldið svo áfram
mörg ár.
Lánsfjárþörf ræktunarinnar.
Halldór kvaðst telja ræktunar
framkvæmdirnar flestu eða öllu
mikilsverðari til tryggingar heil
brigðri þróun lanbúnaðarins og
lífsnauðsynlegri stækkun bú-
anna. Þess yrðu bændur og ráða
menn þjóðfélagsins að gæta, að
láta hana sitja fyrir öðru. Til
þess að ráðast í þessar brýnu
ræktunarframkvæmdir hefðu
bændur ekki fé og ekki aðgang
að lánsfé, en úr þeirri lánsfjár-
þörf yrði að bæta fyrst af öllu
að sínum dómi.
Blaðið mun bráðlega segja
nánar frá búfjárræktartilraun-
um þeim, sem Halldór ræddi um
í erindi sínu.
til Húnaflóa eftír næstu
helgi. Tekið á móti flutningi
til hafna milli Ingólfsfjaröar
og Skagastrandar í dag og á
morgun. Farseðlar seldir ár-
degis á mánudag.
Ármann
til Vestmannaeyja í kvöld.
Vörumóttaka í dag.
Auglýsið i Timuunm
ÍJtbreiðl? Timann
■Jiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimimiiii
- m
| Ragnar Jónsson )
hæstaréttarlögmaður
| Laugaveg 8 — Sími 7752 |
| Lögfræðistörf og eignaum- =
É sýsla. |
Tiiiiiimiiiiimiiiiiiiiiiiiiimmiiiiiiiiimimmimimiiiii
fluylijAii í Tmamtn