Tíminn - 06.03.1952, Blaðsíða 4

Tíminn - 06.03.1952, Blaðsíða 4
4. TÍMJNN, fimmtuðaginn 6. marz 1952. 54. bla». n I slendingaþættir Sjötug: Kristrún Einarsdóttir Hinn 6. marz 1882 fæddist hjónunum, sem þá bjuggu í Þistilfirði dóttir. Þau hétu Járnbrá Einarsdóttir og Ein- ar Kristjánsson. Voru þau bæði komin af bændaættiim hér í héraði. Dótturinni var nafn gefið, og hlaut hún nafn ið Kristrún. Það þykir ekki stórtíðind- um sæta þó barn fæðist, en eftir sjötíu ár er gaman að athuga hve merkur sá at- burður getur orðið. Kristrún ólst upp í foreldrahúsum við þá uppfræðslu og menntun, sem heimilið gat veitt. Þá var ekki skylda eða tíska að sitja á skólabekk árum saman. Móðir Kristrúnar var ljósmóö ir, hún varð því að vera oft frá heimili sínu. Kom það því snemma í hlut dótturinnar að annast heimilið með bræðr- um sínum er voru 4, 2 yngri og 2 eldri. Garður stendur undir Axar fjarðarheiði að austan og og er heiðin 40 kílómetrar milli bæja. Um Axarfjarðar- heiði hefir til skamms tíma legið fjölfarin vetrarleið milli Þistilfjaðar og Axarfjarðar t. d. leið landpósts. Komu því oft gestir að Garði langlúnir eða að leggja í langferð og voru því þurfandi fyrir að- hlynningu og ætíð fengu þeir hlýju og hjúkrun, sem bezt varð á kosið. 1898 missti Kristrún föður sinn. Móðir hennar hélt á- fram búskap þar til einn Jsona hennar tók við búinu, en þá fóru hin systkinin í vistir hér og þar. Veturinn 1903-4 lærði Krist rún ljósmóðurfræði og tók við ljósmóðurstörfum hér í sveit er móðir hennar dó 1905. Síð- an hefir Kristrún gegnt Ijós- • móðurstörfunum hér í sveit |að undanteknum 5 árum. 11908 giftist Kristrún Jóni Guð myndssyni frá Kollavík og hafa þau búið í Garði síðan 1910. Kristrún er nú búin að taka á móti nær 600 börnum. Það hefir oft kostað hana erfið ferðalög um þessa veg- litlu og strjálbyggðu sveit. En erfiðinu hefir hún gleymt um leið og á áfangastað er komið. Hæglát, örugg og mild, gengur hún að starfi sínu, hún hlúir með mjúkum höndum að hinu nývaknaöa, viðkvæma lífi og veitir með gleði alla þá hjálp, sem þarf. Oft hefir Kristrúnar verið vitjað þegar einhver er að ikveðja þetta líf eða þegar slys ber að höndum. Hún kem ur þar örugg og fónfús, það stafar frá henni traust og styrkur, sem hefir góð áhrif á alla viðstadda. Þrátt fyrir þetta hefir hún stundað heimili sitt með prýði, verið góð eiginkona og góð móðir. Við hinar kon- urnar horfum með aðdáun til Kristrúnar, og finnum að hún hefir skilað meiru en meðal dagsverki. Nú þökkum við henni starf ið, þökkum henni að hafa gefið sveitinni sinni krafta sína, og óskum henni allar blessunar í komandi framtíð. Þ. Á. Sextugur: Indriði Guðmundsson í dag er Indriði Guðmunds- son bóndi á Gilá í Vatnsdal 60 ára. Indriði hefir alið nær all- ann aldur sinn á Gilá. Ólst hann upp hjá móðurbröður sínum hinum kunna fræði- manni Daöa Daviðssyni, er lengi bjó á Gilá. Indriði mun hafa tekið við búsforráðum á Gilá rétt eftir 1920 og hefir búið þar síðan. Indriði hefir um langt skeiö haft sveitaforráð í Áshreppi. (Framhald á 5. síðu) Gamall Rangæingur ræðir um ferð til Reykjavíkur, er hann fór til að ná í átjurð: ' Það var fimmtudagsmorgun- inn 10. maí síðastliðinn, að ég bjó mig að heiman, í för til Reykjavíkur. Farartækið var | bíll, sem sækja skyldi áburð. Lagt var af stað kl. 6 árdegis. Þar sem ráðgerðar voru tvær ferðir þennan dag, ef veður og , færð leyfði. Nú verður að hafa hraðan á með áburðarflutning- , ana eins og mögulegt er, því boðað hefir verið verkfall í Reykjavík og víðar 18. maí, og | ekki þarf að hafa fyrir því að ’ slá túnin í sumar, verði ekki borið á þau. Af ferð okkar til Reykjavíkur er fátt að segja, annað en að hún gekk sæmilega, vorum komnir í áburðarsöluna kl. 9 og fengum samstundis ávísun upp á 40 poka af áburði. Héld- um við þá að vöruskemmunum, þar voru nokkrir bílar aðrir í sömu erindagjörðum. Allt virt- ist vera í bezta lagi, lyftan fór hverja ferðina eftir aðra milli bíls og og bunka. Þegar klukkan er hálftíu er gert kaffihlé. Að sjálfsögðu gerðurn við ekki neina athugasemd við það (og sjálf- um þykir mér kaffisopinn ósköp góður). Kl. 10 fara afgreiðslu- menn að koma aftur og taka til starfa á ný. En nú sést hvorki lyftan né maðurinn, er henni stjórnaði. Við vonuðum, að bið in yrði ekki löng, þar sem ekki voru tök á að afgreiða bílinn á annan hátt, þar sem hann komst ekki inn um dyrnar sök- um yfirbyggingar. Von bráðar kemur annar bíll yfirbyggður í sömu erindagerð- um. Honum ekur einn af æfð- ustu og duglegustu bílstjórum Sunnlendinga. Bílstjórarnir taka tal saman og báðum þyk- ir ástandið slæmt. Það verður að samkomulagi, að nýkomni bíl- stjórinn fari og reyni að komast eftir, hvað valdi lyftuhvarfinu. Eftir stutta stund kemur hann aftur og hefir ekki orðið neins vísari. Nú líður og bíður við ýmis konar heilabrot og hug- leiðingar, m.a. það, að gott hefði verið að hafa sþorhund, en það var nú einmitt það, að maðurinn, er finna þurfti, hvarf á brott í lyftunni, svo að sjálf- sagt voru hans spor órekjandi með öllu. Þegar kl. er ellefu, er þolinmæðin gjörsamlega þrot- in og ekið að skrifstofunni og kvartað um slæma afgreiðslu. Hvernig því var tekið get ég ekki að fullu sagt frá, þar sem heyrn mín er farin að sljóvgast, en mér virtust allir óánægðir yfir þessu ástandi. En einhver ráð varð nú samt áð hafa með að fá áburð á bílinn og varð það að samkomulagi, að fá ávísun á áburð, sem geymdur var suður við flugvöll, þar gat bíllinn líka komizt inn, því þar eru stærstu dyr, sem ég hefi augum litiö. Laust fyrir háflegi gat svo bíll inn lagt af stað, það hafði tek- ið næstum þrjá tíma að fá 40 poka af áburði á bílinn. Dýrmæt ur tími hafði tapazt, hvenær yrði hægt að vinna hann upp aftur eins og allar aðstæður voru? Og er það kannske svo, að þeir, sem vinna að áburðar- (Framhald á 6. síðu) Bækur Fornbókav. Kr. Kristjánssonar Hafnarstr. 19 Reykjavík ÝMSAR FRÆÐIBÆKUR: Dulrúnir, þjóðleg fræði, e. H. Jónasson, ób. 212 bls. 10.00. Frá Danmörku, e. Matth. Joch., ób. 220 bls. 15.00. Frá Japan og Kína, e. Stgr. Matth. ób. 120 bls. 10.00. Skapgerðarlist, e. E. Wood, ób. 90 bls. 5.00. Skólaræður, e. Magnús Helgason ib. 12 bls. 15.00. Lítil varningsbók, e. Jón Sigurðs son, ób. 150 bls. 20.00. Ævi mín, e. Leo Trotzky, ób. 190 bls. 9.00. Saga alþýðufræðslunnar, e. G. M. Magnúss, ób. 320 bls. 15.00. Riddarasögur. Sagan af Ambal- es, Vilhj. sjóð, Hinrik heilráða og Hring og Hringvarði, ób. 318 bls. 10,00. Hestar, e. Dan. Daníelsson, ób. 120 bls. 8.00. Eðlislýsing jarðarinnar, e. A. Giekie, ib. 124 bls. 10.00. Framfarir fslands, e. Einar Ás- mundsson, ób. 82 bls. 10.00. Samræðissjúkdómar, e. G. Hann esson, ib. 66 bls. 5.00. Fyrir opnum dyrum, J. A. Larsen ób. 72 bls. 5.00. Annie Besant, ævisaga, ób. 176 bls. 5.00. Býflugur, e. M. Materlinck, ób 222 bls. 7.00. Tónlistin, e. E. Abrahamsen, ób 190 bls. 10.00. Sumargjöfin, 1.—4., tímarit, ób 20,00. Bragða Mágúsarsaga, ób. 276 bls. 10,00. Vanadís, tímar., ób. 380 bls. 15.00. Gráskinna 2—4. ób. 320 bls. 15.00. Fuglaheitaorðabók, e. Pál Þor- kelsson, ób. 128 bls. 10.00. Um búreikninga, e. Sig. Guðm., ób. 96 bls. 15.00 Æska Mozarts, e. Fr. Hoffmann, ób. 80 bls. 5.00. Hlýir straumar, e. Richard, ób. 98 bls. 5.00. Leiftur, tímarit um þjóðl. fræði, ób. 48 bls. 10.00. Uppsprettulindir e. Guðm. Friðj. ób. 90 bls. 5.00. Lestamenn, e. Þ. Þ. Þorsteins- son, ób. 264 bls. 10.00. Fíflar, 1.—2., þjóðleg fræði o. fl ób. 128 bls. 10.00. Lífsferill Lausnarans, barnabók e. C. Dickens, ib. 98 bls. áður 20.00, nú 10.00. Piltur eða stúlka, barnabók e E. Jenmore, ib. 170 bls. áður 18.00, nú 10.00. Ferðahugleiðingar Soffaníasar Thorkelssonar frá Wmnepeg, I,—II. 566 bls. ib. áður 88.00, nú 50.00. Björn Jónsson, ráðherra, ævi- minning, 56 bls. nú 5.00. Jón Sigurðsson, e. Pál E. Ólafs- son, I.—V. bindi, 2313 bls. öll | bindin nú 35.00. Almanak Þjóðvinafél., 1920-1940 2148 bls. nú 100.00. ! Æringi, gamanrit 60 bls. nú 10.00 Mannfræði, e. Marned, 192 bls. nú 5.09. ! f norðurveg, I.—II., e. Vilhjálm Stefánsson, 224 bls. nú 8.00. | Svefn og draumar, I.-II., eftir Björg Þorláksson, 184 bls. nú 5.00. Menn og menntir I.—IV. ób.' 60.00. . .. ! SKALDSOGUR: 10 Uglubækur, leynilögreglusög- ‘ i ur, 684 bis. áður 50.00, nú 25.00. Hollywood heillar, e. H. McCoy, i ób. 138 bls. 6.00. t Og sólin rennur upp, e. E. Hem ingway, ib. 184 bls. 15.00. í herbúðum Napoleons, e. A. C. Doyle, ób. 264 bls. 14.00. Ofurhuginn Rubert Hentzau, 1-2 ób. 290 bls. 24.00. Gegnum hundrað hættur, e. A. C. Doyle, ób. 174 bls. 8.00. Vínardansmærin e. E. Dernburg, ób. 120 bls. 8,00. Rauða drekamerkið, ób. 238 bls. 12.00. Krónhjörtur, ób 220 bls. 12.00. Órabelgur, áb.. 3X2 bls. 16.00. Leiftrandi eldingin, ób. 246 bls. 13.00. Eineygði óvætturmn, 1.-2., ób. 470 bls. 24.00. Kappar í kúlnahríð, e. D. Parker, ób. 166 bls. 9.00. Spellvirkjarnir e. R. E. Beach, ób. 292 bls. 15.00. íslenzkir hnefar, ób. 164 bls. 9.00. Hetjan á Rangá e. E. Schroll, ób. 134 bls. 7.00. Gimsteinaránið e. G. Baxter, ób. 174 bls. 10.00. Varúlfur, ób. 238 bls. 12,00. Percy hinn ósigrandi 1., ób. 232 bls. 12,00. Einvígið á hafinu e. S. W. Hop- kins, ób. 232 bls. 12,00. í Vesturvíkmg e. J. Esquemeling ób. 164 bls. 9.00. Percy hinn ósigrandi 2. ób. 188 bls. 10.00. Percy hinn ósigrandi 3. ób. 183 bls. 10.00. Svarta liljan e. R. Haggard ób. 352 bls. 17.50. Percy hinn ósigrandi 4. ób. 378 bls. 20.00. Blóð og ást e. Zane Grey ób. 254 bls. 15.00. Hjá sjóræningjum e. C. Gilbert, ób. 280 bls. 15.00. Percy hinn ósigrandi 5. ób. 196 bls. 10.00. Percy hinn ósigrandi 6. ób. 192 bls. 10.00. Útlagaerjur e. Zane Grey, ób. 332 bls. 19.00. Milljónaævintýrið e. G. Cutche- on ób. 352 bls. 18,00. Hart gegn hörðu, e. H. Clever- ley ób. 142 bls. 10.00. Percy hinn ósigrandi 7. ób. 220 bls. 12.50. í undirheimum e. C. Baxter, ób. 112 bls. 7.00. Svarti sjóræninginn e. C. Clauds leys ób. 184 bls. 12,00. Horfni safírinn e. S. E. Mery, ób. 164 bls. 7,00. Faros egypzki, e. B. Boothbl, ób. 382 bls. 10.00. Marteinn málari e. C. Garvice, ób. 334 bls. 10.00. íslenzku símamennimir e. V. Stacpole, ób. 10.00. Njósnari Lincolns e. L. A. New- come, ib. áður 22,00, nú 12,00. Sögur frá Alhambra e. W. Irving ób. 94 bls. 5.00. Sögur e. J. Runeberg ób. 46 bls. 3.00. Loginn helgi e. S. Lagerlöf, ób. 64 bls. 3.00. Allan Quatermain e. R. Haggard, ib. 418 bls. áður 40.00, nú 25.00. Námur Salomons e. R. Haggard, ib. 344 bls. áður 35.00, nú 20.00. A. Quatermain og Námar saman bundnar, 862 bls. áður 60.00, nú 40.00. Leyndardómur byggðarcnda, e. Agatha Christie, ób. 264 bls. 10.00. s Hver gerði það, e. A. Christie ób. 258 bls. 10.00. Líkið í ferðakistunni, ób. 164 bls. 8,00. Þær elskuðu hann allar e. R. M. Ayres, ób. 250 bls. 10.00. Hönd örlaganna e. C. Stockly, ób. 110 bls. 7.50. Jesu Barrabas e. H. Söderberg, ób. 116 bls. 5.00. Húsið í Hlíðinni (Nótt í Feneyj- um), ób. 118 bls. 8,00. Smásögur e. ýmsa höfunda, 90 bls. ób. nú 5.00. ÍSLENZKAR SKÁLDSÖGUR: Sálin vaknar e. E. H. Kvaran, ib. 204 bls. 10.00. Ströndin e. Gunnar Gunnarsson ib. 358 bls. 15.00. Vargur í véum e. sama ib. 256 bls. 15.00. Rastir e. Egil Erlendsson ób. 128 bls. 5.00. Eins og gengur e. Th. Thorodd- sen ób. 94 bls. 5.00. Andvörp e. Björn Austræna ób. 156 bls. 5.00. Gyðjan og uxmn e. Kristmann Guðmundsson ib. 220 bls. 15.00. Gömul saga e. Kr. Sigfúsdóttur ib. 326 bls. 12,00. LJÓÐMÆLI OG LEIKRIT: Ljóðmæli e. J. M. Bjarnason ób. 128 bls. 10.00. Ljóðaþættir e. Þ. Þ. Þorsteins- son ób. 92 bls. 8,00. Rímur af Perusi e. Bólu Hjálm- ar ób. 46 bls. 5.00. Fernir fornísl. rímnaflokkar, ób. 60 bls. 10.00. Tvístirnið e. J. Guðl. og Sig. Sig. ób. 64 bls. 8,00. Ljóðmæli e. Ben. Þ. Gröndal ób. 228 bls. 10.00. Heimahugi e. Þ. Þ. Þ., 96 bls. ób. 8,00, ib. 12.00. Bóndadóttir e. Gutt. J. Gutt- ormsson, 92 bls. ób. 10.00, ib. 12,00. Hunangsflugur e. sama ib. 124 bls. 35.00. Gaman og alvara e. sama ób. 190 bls. 25.00. Úr útlegð e. Jón Stefánsson, ób. 166 bls. 25.00. Rímnasafn 1—2, rímur af Svold ‘ ar bardaga, Jóh. Blakk, Ála- flekk, Gísla Súrssyni, Gesti Bárðarsyni, Hjálmari hugum- stóra, Stývarði og Gný og Grís hildi góðu, ób. 632 bls. 25.00. Rimur af Goðleifi prúða e. Á. Gísl., ób. 134 bls. 10.00. Ileimleiðis e. Steph. G. Steph., ób. 48 bls. 5.00. Jón Arason, leikrit e. Matth. Joch. ób. 228 bls. 10.00. Skipið sekkur, leikrit e. Indriða Einarsson, ób. 200 bls. 10.00. Glæður e. Gunnar Hofdal, ób. 200 bls. 10.00. Úlfablóð e. Guðm. Frímann, ib. 90 bls. 10.00. Ljóðmæli e. Richard Beck, ób. 200 bls. 10.00. Farfuglar, kvæði e. Gísla Jóns- son, Winnepeg, 244 bls. ib. nú 12.00. Auk þessa fjöldi bóka og smá- rita, sem ekki er hér upptalið. Beztu bókakaupin gera menn hjá okkur. údýri bóUa- markaðurinn

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.