Tíminn - 12.03.1952, Blaðsíða 2

Tíminn - 12.03.1952, Blaðsíða 2
i’Xf.y • •T‘tr /•• •»»-,-r tíMINN, miövikudaginn 12. marz 1952. 59. blaö. Gangið á móti umferðinni í myrkri, þar sem engar gangstéttir eru Mörg slys, sem orðið hafa í myrkri á vegum úti, bæði upp til sveita og í útjöðrum bæj- anna og annars staðar þar, sem lýsing er engin eða af skorn- um skammti og engar gangstétt ir handa gangandi fólki, má rekja til þess, að fólk gengur vinstra megin á veginum, á sömu brún og notuð er af bif- reiðum og ökutækjum, sem stefna í sömu átt, sagði Jón Odd geir Jónsson, fulltrúi hjá Slysa varnafélaginu, er hann kom í skrifstofu blaðsins í gær. Fólk ætti að gefa gaum að þeirri hættu, sem því fylgir. Gangið á móti umferðinni. Nú fer í hönd sá tími, er vænta má batnandi veðurfars og hlýrra, og í sveitum fer fólk- ið að skreppa í vaxandi mæli milli bæja, og aldrað fólk í kaupstöðum að ganga sér til hressingar. Þá ber oftar við en áður, að fólk sé á ferli eftir að skyggja fer, og slysahætta af því tagi, sem hér er gert að um- talsefni, fer vaxandi. Sérstaklega er það varhuga- vert, ef fólk er dökkklætt í myrkri úti á þjóðvegi, því að þá er mikil hætta, að bílstjóri, sem á eftir kemur.verði ekki vegfarenda var fyrr en um seinan. Sé gengið á móti um- ferðinni, skina bílljósin aftur á móti á andlit og hendur veg farenda, og þá er betra fyrir bílstjórann að átta sig, og þá eiga líka vegfarendur sjálfir hægara með að forða sér. Það er því ein regla, sem fólk ætti að hafa í huga í myrkri á veg um úti: Gangið hægra megin, á móti umferðinni. Umferðarlöggjöfin. Nú kann einhver að halda, sagði Jón Oddgeir ennfremur, að það sé lögum samkvæmt skylt að ganga vinstra megin á vegi, þar eð lögboðið er, að ökutæki víki til vinstri og yfir- leitt gert ráð fyrir vinstri um- ferð. En í umferðarlögunum seg ir svo um gangandi fólk: „Þar sem engin gangstétt er, skulu gangandi menn gæta sér- Hann fylgir boðorðinu réttilega stakrar varúðar og halda sig utarlega á akbrautinni, en jafn- an víkja greiðlega fyrir öku- I tækjum og ríðandi mönnum ! yzt út á sömu vegbrún og geng- ið er við, eða út af veginum, ef þörf er og því verður við kom- ið.“ 1 Þannig er gangandi vegfar- endum gefinn kostur á að velja um, á hvorri vegbrúninni þeir J ganga. i I Öruggara að vera hægra megin. j Nú hefir reynslan sýnt, að .það er öruggara að ganga á : m> ~ B. S. S. R. íbúð í Vogahverfi TIL SÖLU, 4 herbergi og eldhús á I. hæð. Félagsmenn, sem óska að nota forkaupsrétt sinn, geíl sig fram fyrir n. k. föstudagskvöld. Upplýsingar í skrifstofu félagsins, Lindargötu 9 A, kl. 5—7 daglega. Félagsstjórnin. >♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦< Vegna mjög takmarkaðs húsrýmis eru heiðraðir viðskiptamenn okkar beðnir að sækja hjólbarða þá og slöngur, er þeir eiga hjá okkur, viðgert, sem fyrst. HJÓLBARÐIN H.F. Hverfisgötu 89 — Sími 80281. ►♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦< II o ii «i i> : hægri brúninni, þar sem eng- ar gangstéttir eru við vegi, og því á fólk að gera það. Sums staðar erlendis, til dæm is, til dæmis í Noregi og Svíþjóð,1 hefir það beinlínis verið leitt í lög, að gengið skuli á móti umferðinni, og síðan sú regla komst á, hefiry dregið þar úr því, að ekið sé á fólk á vegum í sveitum eða útjöðrum bæja.' Það er reynslan, sem við eigum 1 að notfæra okkur. Ungir og gamlir eiga að muna, að í | skuggsýn er bezt að ganga á móti umferðinni. Húsraæðrafélags Reykjavíkur Matreiðslunámskeið hefst nú upp úr miðjum mánuði. — Kennt verður aigengur og fínni matur, ábætísréttir, smurt brauð og bakstur. Kennslustundir milli kl. 2 og 6 daglega. Aliar nánari upplýsingar í síma 4740 og 1810. Þýzkt flóttafólk undir- býr fjöldagöngu í maí Útvarpib Útvarpið í dag: Fastij liðir eins og venjulega. 20.30 Útvarpssagan: „Morgunn lifsins“ eftir Kristmann Guð- mundsson (höfundur les) — XVI. 21.00 Tónleikar: Lög úr óperunni „Brúðkaup Fígarós" eftir Mozart (plötur). 21.20 vett vangur kvenna. — Upplestur: Frú Halla Loftsdóttir les frum- samið efni. 21.45 Útvarpshljóm- sveitin; Þórarinn Guðmunds- son stjórnar: Svíta éftir Edward German. 22.00 Fréttir og veð- urfregnir. — 22.10 Passíusálm- ur (27). 22.20 „Ferðin til El- doradó“ eftir Earl Derr Biggers (Andrés Kristjánsson blaðamað- ur) — XXII., sögulok. 22.40 Svav ar Gests kynnir djassmúsík. 23. 10 Dagskrárlok. Útvarpið á morgun: Fastir liðir eins og venjulega. 20.20 íslenzkt mál (Bjarni Vil- hjálmsson cand. mag.). 20.40 Tónleikar: Kvintett í D-dúr fyrir flautu, óbó, fiðlu, celló og píanó eftir Bach. 21.05 Skóla- þátturinn (Helgi Þorláksson kennari). 21.30 Einsöngur: Alex ander Kipnis syngur (plötur). 21.45 Upplestur: Andrés Björns son les kvæði eftir Guðmund Friðjónsson. 22.00 Fréttir og veð urfregnir. — 22.10 Passíusálmur (28). 22.20 Sinfónískir tónleik- ar (plötur). 23.10 Dagskrárlok. I byrjun maímánaðar í vor munu tugþúsundir flóttamanna í Slésvík- I Holstein halda suður á bóginn, ef 1 stjórnin í Bonn verður ekki fyrir þann j tíma byrjuð að flytja brott hið heim- | ilislausa fólk. Allt er búið undir þessa miklu hópför. Vögnum hefir verið safnað saman, og daglega berst aragrúi tlikynninga um þátttöku. „Treck-Vereinigung“. Miðstöð þessarar breyfingar, sem nefnist Treck-Vereinigung Schleswig- Holstein, er í þröngri flóttamannaíbúð í Siiderbarup, litlu þorpi skammt frá Flensborg, rétt sunnan við dönsku landamærin. Þar býr Reinhardt No- back, maður á sextugsaldri, sem er lífið og sálin í þessum samtökum. Til þess að knýja stjórnina í Bonn til þess að gera eitthvað fyrir flóttamennina, | hótar hann að láta til skarar skríða. . Þrjár fjölskyldur í einu herbergi. Flóttamennirnir í Slésvík-Holstein cru á aðra miljón, og meira en hundr- að þúsund búa í lélegustu bráðabirgða- skálum. Hinum hefir verið komið fyrir í húsum, oft í fullri óþökk húseigenda 1 og þeirra, er fyrir voru. En allt þetta j fólk býr við hræðileg þrengsli. í einu herbergi, sem er fjórtán fermetrar að alftarmáli, búa til dæmis þrjár fjöl- skyldur — gömul hjón með tvær dætur og einn son, ung hjón með þrjú ung- böm og nýgift hjón með kornbarn. Þetta er aðeins eitt dæmi af ótal mörg- um. •— I bráðabirgðaskálunum hefir fólk búið atvinnulaust í 5—6 ár. I sumum bragganna eru allt að 85 manns í sömu vistarveru, karlar og konur. Glatað fólk. Fólk, sem þannig hefir lifað at- vinnulaust árum saman, án þess að eygja von, hefir glatað sjálfu sér. Það framfleytir lífinu á styrkjum og ólög- leguin viðskiptum, og hugsar sér ekki annað líf. Þannig er vonlaust urn fjölda hinna eldri. Og hættan vofir yfir unga fólkinu. Þingið í Bonn samþykkti að flytja 150 þú'sund flóttamenn frá Slésvík-Hol- stein, Neðra-Saxlandi og Bæjaralandi | árið 1951, en ætlaði ekki til þess nægt Ifé, svo að það rann út í sandinn. — Loks misstum við þolinmæðina, sagði Noback. Nokkrir menn komu saman á fund í haust, og við ákváð- um að efna til mikillar hópferðar suður yfir í vor, ef stjórnin hefði ekki þá haf- izt handa. Raunar hefir stjórnin lofað að flytja 200 þúsund manns, helming- inn frá Slésvík-Holstein, fyrir 1. júlí. En hvað vitum við um efndirnar? i Fótgangandí með vagna. | Flóttafólkið hefir enga peninga til þess að kaupa sér far með járnbraut- j um. Það ætlar því að fara fótgangandi, ef af hópferðinni verður, og flytja nauðsynjar sínar í handvögnum, er það dregur sjálft, og kannske að einhvcrju leyti í hestvögnum. I Bonn hafa verið uppi raddir um það, að stöðva þetta með lögregluvaldi. En slíkar aðgerðir af opinberri hálfu væru ólöglegar. Þessu nýstárlega ferðalagi á að haga svo, að fólkið fari í hópum, nokkur hundruð saman, og flóttamennirnir hafa svarið þess dýran eið að stíga ekki inn í bragga, er suður kemur. Fái þeir ckki viðunandi húsaskjól, ætla þeir að setjast um kyrrt á torgum bæja og borga, sem þeir ætla til. Við því er búizt, að nær hundrað þúsund manns muni taka þátt í þessu nýstárlega . ferðalagi og fjöldi blaða- manna, kvikmyndatökumanna og út- varpsmanna muni fara á stúfana til þess að lýsa þessum atburðum. /luglty&ií í Timahufíi í Reykjavík hefir árshátíð sína á Röðli fimmtudaginn 13. marz kl. 8!/2 síðdegis. Þar verður meðal annars: Sameiginleg kaffidrykkja. Kvikmynd. Leikþáttur og fleiri skemmtiatriðið. Og aö síðustu dans. Stjórnin Innflegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð og vináttu við fráfall og jarðarför mannsins míns og föður okkar JENS BJARNASONAR, Mávahlíð 38. Guðrún Helgadóttir, Helgi Jensson, Bjarni Jensson, Björn Jensson. Innilega þökkum við öllum þe'm sem sýndu okkur samúö og vinarhug við andlát og jarðarför eiginmanns míns, föður og tengdaföður okkar ÞÓRÐAR ÓLAFSSONAR útgerðarmanns Ingibjörg Björnsdóttir Sigríður Þórðardóttfr Magnús Þ. Torfason. inv'r' \^XJSÍi Islenzk tónlist (Framhald af 1. síðu.) Auk þess að flytja danska ! og íslenzka tónlist í Osló. þá íerðast þeir á næstunni til Austurríkis og Sviss, en þang- að eru þeir ráðnir til þess að flytja danska og islenzka tón list í útvarp. Árnab keilla Hjónaband. Nýlega voru gefin saman í hjónaband af Bergi Björnssyni i Stafholti, ungfrú Sigríður Jónsdóttir, verzlunarmær í Borg arnesi, og Lúðvík Þórarinsson, i bakari í Ólafsvík. Víða hætt við kali á túnum í vor Viða mun verða mjög hætt við stórkali í túnum í vor, ekki síður en í fyrra, ef veðr- átta verður svipuð og þá á út mánuðunum. Víða um sveitir eru nú mikil svellalög á flat- lendum túnum, og verði sól- far á daginn, en frost um nætur, meðan þessi svell eru að þiðna, hlýtur það að hafa í för með sér mikið kal . Þiðni svellin hins vegar i eindreginni hláku og sunnan átt, er ekki hætta á ferðum.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.