Tíminn - 14.03.1952, Qupperneq 2

Tíminn - 14.03.1952, Qupperneq 2
2. TÍHÖNN, föstudáginn 14. mara 1952. Gl’.'*biait Og eiginmennirnir leggjast í fæð- ingardeildina ásamt konunum Islands Bók, sem fjallar eingöngu um rekkjur og rekkjuvana manna, er komin út í New York, skrif- uð af sagnfræðingnum Reginald Reynolds. Ber verk hans sjálft með sér, hve margt nytsamt er iðulega gert í rúminu, því að hinn mikli fjöldi neðanmáls- greina, sem í bókinni eru, seg- ist hann allar hafa skrifað í rúminu — „eina staðnum, þar sem hitastigið er ávallt nota- legt.“ Gerði útreikninga sína á iökin og læri sín. Margir eru þeir, sem gert hafa rúmið að einum þýðingar- mesta vinnustað ^ínum. Heim- spekingurinn Thomas Hobbes notaði ekki aðeins lökin í rúm- inu, heldur einnig lærin á sér, er hann fékkst við ýmsa stærð- fræðilega útreikninga. Riche- lieu ferðaðist bókstaflega í rúm inu, og hann lét brjóta niður múra húsa, svo að hægt væri að bera inn rúm hans, þar sem honum þóknaðist að gista. Mark Twain, Rousseau og Napo leon unnu löngum í rúmi sínu, og sama er að segja um tón- skáldin Rossini og Puccini. Og Gaetano Donizetti er sagður hafa verið svo latur, að hann skrifaði heldur lögin upp aftur en skríða fram úr rúminu eftir örk, sem hann missti á gólfið. Benjamín Franklín og Disraeli. 1 þessari bók er Benjamíns Franklíns einnig getið, en með nokkurri vorkunnsemi. Hann fór ekki aðeins nakinn á fætur eldsnemma á morgnanna, og stóð við opinn glugga til þess að láta svalann leika um sig, held- ur hafði hann í svefnherbergi sínu fjórar rekkjur, sem hann flutti sig á milli á nóttunni, svo að honum yrði ekki of heitt. Sömu venjur taldi Disraeli sér, og það uppgötvaði þýzkur njósn ari, sem lá heila nótt við skrá argat svefnherbergis hans, e hann var við samningagerð Berlín. Úívarp/ð Útvarpið í dag: Fastir liðir eins og venjulega. 20.30 Kvöldvaka:: a) Sr. Sigurð ur Einarsson flytur minningar um Ólaf í Hvallátrum. b) Egg- ert Stefánsson syngur lög eftir Sigvalda Kaldalóns (plötur). c) Upplestur (Vilhjálmur S. Vil- hjálmsson rithöfundur). d) Gils Guðmundsson ritstjóri les frá- söguþátt: „Á útskagamiðum“ eftir Þorstein Matthíasson skólastjóra. 22.00 Fréttir og veð- urfregnir. — 22.10 Passíusálm- ur (29). 22.20 Tónleikar (plötur) 23.10 Dagskrárlok. Útvarpið á morgun: Fastir liðir eins og venjulega. 18.00 Útvarpssaga barnanna: „Vinir um veröld alla“ eftir Jo Kristjánssonar (Róbert Arn- finnsson leikari) — II. 20.30 Leikrit: „Sonur stjarnanna“ eft ir Bernard Shaw, í þýðingu séra Gunnars Árnasonar. Leikstjóri: Lárus Pálsson. 22.00 Fréttir og veðurfregnir. — 22.10 Passíu- sálmur (30. 22.20 Danslög (plöt- ut). — 24.00 Dagskrárlok. Arnað fieiUa Níræður í dag. Sigurður Þorsteinsson bóndi í Hólsseli á Hólsfjöllum er ní- ræður í dag. í Hólsseli hefir hann búið 62 ár samfleytt. Grein um Sigurð mun birtast hér í blaðinu næstu daga. Trúlofun. Nýlega opinberuðu trúlofun sína ungfrú Jarþrúður Krist • jánsdóttir, Litla-Múla í Saur - bæ, og Jóhann Sæmundsson, bifreiðarstjóri á Brunná í Saur- bæ. Þegar vöggurnar voru kvalatæki. Höfundurinn furðar sig á því, að foreldrum skuli enn í dag takast áð koma þeirri hug-1 mynd inn hjá börnum, að það sé hegning að láta þau hátta snemma. Annað mál er það, að fyrr á öldum voru vöggurnar kvalatæki. Grískir læknar mæltu stranglega fyrir um það, að mæður skyldu binda hendur ungra barna sinna, og á mið- öldum voru börn vafin og sveip- uð eins og múmíur, svo að þau gátu aðeins hreyft höfuðið. Jafnvel á átjándu öld mælti franskur læknir svo fyrir, að börn skyldu reyrð, ef tryggt ætti að vera, að þau skriðu ekki á fjórum fótum ævilangt. Margir undarlegir siðir hafa líka verið tengdir fæðingu barna. Einn var sá, að eftir barnsburðinn átti konan að skipta um hlutverk við mann sinn. Hann lagðist í rúmið og sýndi gestunum hið nýfædda barn, tók á móti gjöfum og heillaóskum, en konan gekk að vinnu. Kóngurinn lagðist á sæng — drottningin fór í striðið. í frásögn af komu Aucassins til kóngsins í Tórelóre kemur fram, að konungurinn hefir orð ið að hverfa heim úr stríði til þess að „leggjast á sæng“. Þeg- ar Aucassin spurði undrandi, hvar drottningin væri, var hon um sagt, að hún hefði farið í stríðið og stjórnaði hersveitun- um. Svipaðir siðir voru ekki að- eins í Suður-Evrópu, heldur einnig í Kína og Suður-Amer- íku. Og enn í dag eru fæðingar- stofnanir í Kataloníu, þar sem eiginmennirnir leggjast í rúm- ið við hlið kvenna sinna, þegar þær eru að því komnar að fæða. Elísabet drottning var kitluð í svefn. Það er ekki svo ýkjalangt sið an það varð siður, að menn svæfu einir í rúmi. í gamla daga hópaðist fólk saman í sama rúm, bæði vegna kulda og af ótta við illa anda, og loks einnig af fátækt. Franz I. Frakkakonungur svaf oft hjá aðmírál sínum, Bonnivet, og vakti það stórkostlega öfund í garð aðmírálsins. Annar aðmír- áll, Seymour lávarður, heim- sótti oft Elísabetu drottningu eftir háttatíma hennar, ásamt svefnherbsrgisþemu hennar, frú Ashley, og hjálpaði henni til þess að kitla drottninguna í svefn. í sjúkrahúsunum. í sjúkrahúsunum voru tíðum fjórir og fimm í sama rúmi, börn, karlar og konur. í sama rúmi var ef til vill kona, sem var að ala barn, krampasjúklingar og taugaveikisj úklingar. Það, var almenn skoðun, að aldrað fólk endurnýjaði þrótt sinn með því að hvíla hjá börnum. Greifafrúrnar hræktu í lökin. Fyrstu Borbónarnir í Frakk- landi fæddust á dýnum, sem voru svo krökar af möðkum, að þeir hrundu niður á gólfið. Jafn vel greifafrúr hræktu i lökin, (Framh. á 7. síðu). 1 1 Baudouin konungur settur á námskeið í hirðsiðum Óskað er efttr rúmgóðu húsnæði fyrir skjalageymslu (Stjórnartíðindi o. fl.). Tilboðum sé skilað til Jóns Gunnlaugssonar fulltrúa í dómsmálaráðuneyttnu. TaHð er, að Baudoin Belgíu- konungur hafi fengið alvarlega aðvörun vegna framkomu sinn- ar í sambandi við útför Georgs Bretakonungs, og að þess sé krafizt, að ákveðnar varúðar- ráðstafanir séu gerðar til að fyr irbyggja nýja konungsdeilu í landinu. Kröfurnar eru taldar í þrem liðum og eru þessar: 1. Leópold fyrrverandi kon- ungur faðir Baudoins hverfi á brott úr landinu og hætti að hafa náin afskipti af syni sín- um. 2. Baudoin fái nýja ráðgjafa, sem ekki hafi starfað við hirð Leópolds. 3. Baudoin konungur sé þegar settur á námskeið í hirðsiðum, ríkisrétti og gildandi reglum um samskipti ríkja og þjóðhöfð- ingja. Verwilgen einkaritari konungs gekk fyrir nokkru á fund sendi herra Breta í Brússel ttl þess að mótmæla skrifum brezkra blaða um Baudoin konung. Afríkuför Nonna Ilonum Nonna litla þótti orðið tómlegt í Firöinum, svo að hann ákvað að bregða sér til Afríku. Og nú er hann í E1 Alamein. Hann hefir skrifað heim, eins og feröamenn gera, þegar þeir kanna ókunríar slóðir, og að da;mi annarra góðra manna hef ir hann beðið mig að koma pistl um sínum i Tímann. Ég hefi mest gaman af mynt innt hérna, skrifar Nonni — pálmakrónum og sandölum. Heima hafa menn ekki nema keisarakrónur og svo þessar rauðu og bláu krónur með á- I ritun Magnúsar Jónssonar og Gunnars Viðar, en þeim hætt ir öllum til þess að falla svo fljótt. Hér lesa menn lika aðallega fíkjublöð, en gráðugir þykja mér þeir að fletta, og fuglarn- } ir, sem í mestum metum eru hafðir, eru tjaldsúlur. Auðvit- að er hér dálítil spilling eins cg annars staðar, en það eru þá aðallega úlfaldalestir | Pabbi Nonna. Q PIGINAL- Q OHNEP Höfum fyrirliggjandi nokkr- ar ORIGINAL ODHNER margföldunar- og samlagn- ingarvélar. GARÐAR GISLASON H.F. Reykjavík. Jörð til sölu i Jörðin Stekkjarbakki í Tálknafirði er til sölu. Laus til ábúðar í næstu fardögum. Upplýsingar gefur Kaupfélag* J Tálknafjarðar, Sveinseyri. f Framleiðum nú aftur HELLU-OFNA Af öllum stærðum. 15 ára reynsla hér á landi. Spyrjið um verðið h/fOFNASMIÐJAN, liNHOlN lO - mrKIAVlir - /stAND* r Hnefaleikamót ARMANNS < > verður háð í íþróttahúsinu við Hálogaland föstudaginn 1> 14. marz kl. 8,30. o Keppendur verða 22 í 10 þyngdarflokkum. o o Aðgöngumiðar fást i Hellas, hjá Lárusi Blöndal, Bóka- i» verzlun ísafoldar og við innganginn, ef eitthvað verð- Viðkomustaðir strætisvagnanna Hér eru enn tvær tillögur um nafn á viðkomustöðum strætts- vagnanna. Annar ttllögumaður vill nota nafnið skiptistöð. Hin tíllagan er komin alla leið norðan úr Þingeyjarsýslu,1 frá fréttaritara Tímans í Mý-. vatnssveit. Leggur hann til, að tekið verði upp orðið stöðull, sem er fornt orð, en lítið notað nú oröið vegna breyttra hátta. [ Viökomustaðirnir eru stöölar,1 þar sem fólk stendur og bíður strætisvagnanna. ur óselt. Mótmæla innffntn- ingi á fullunnum iðnaðarvörum Félag biikksmiða í Reykja- vík hélt nýlega aðalfund sinn og gerði meðal annars eftir- farandi samþykkt: „Aðalfundur Félags blikk- smiða í Reykjavik haldinn 21. febr. 1952 lýsir fyllstu ó- ánægju sinni yfir hinum tak markalausa innflutningi, sem á sér stað á þeim iðnað- arvörum, sem hægt er að framleiða í landinu sjálfu. Fundurinn bendir á að eðli- legt sé að hafa tolla á inn- fluttu efni til iðnfyrirtækja sem lægsta, jafnframt því sem séð væri um að nægjan- legt efni væri til í landinu, svo að innlent vinnuafl og þau verkfæri, sem fyrir hendi eru, nýtist sem allra bezt. til sem mestra hagsbóta fyrir þjóðarheildina". í stjórn félagsins fyrir næsta starfsár voru kjörnir Þórður Sveinbjörnsson for- maður, Finnbogi Júlíusson ritari og Magnús Magnússon gjaldkeri.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.