Tíminn - 15.03.1952, Blaðsíða 2
iu:i' i i.tr jyrAv•.r.si ífMiV.T *
,‘i*)
2.
XÍMINN, laugardaginn 15. marz 1952.
62. blaS
Vitnisburður leikarans um land-
kynningu þernu og bílstjóra
Hinn frægi leikari, Poul Reum
ert, skrifar skemmtilega grein
um lunderni Dana og Islend-
inga, í Politiken. Þar segir hann
meðal annars frá skiptum sín-
um við herbergisþemu í gisti-
húsi og atvinnubílstjóra.
Skilvís þerna.
Sagan um þernuna er á þá
leið, að leikarinn gleymdi kassa
af stórum og dýrum Havanna-
vindlum, þegar hann fór úr
gistihúsinu austur á Þingvöll.
Hafði hann geymt kassann milli
ytri og innri svalahurðar, svo
að vindlarnir þornuðu ekki um
of. Reumert var búinn að kveðja
vindlana í huganum. En hann
segir, að stúlkan hafi staðið
gegn freistingunni að færa unn
usta sinum reykfórn, ef hún
hafi nokkurri freistingu orðið
fyrir. Vindlarnir gengu til skrif-
stofunnar, og þaðan var símað
út á land til leikarans til þess
að spyrja, hvert senda ætti
vindlakassann.
Bílstjórinn, sem aðeins vildi sitt.
Svo var það sagan um bíl-
stjórann. Til þessarar sömu
Þingvallaferöar fékk leikarinn
leigubifreið. Bílstjórinn var stór
maður og lipur og fékkst ekki
um það, þótt miklu væri hlaðið
af farangri á bílinn. Tveir hálf-
stálpaðir drengir voru í för-
inni, og það kom til tals, að gam
an væri fyrir þá að sjá laxa
stökkva. Bílstjórinn ók óðar að
stað við laxá, væntanlega Elliða
árnar, þar sem drengirnir fengu
að sjá tíu laxa á göngu upp ána.
Þegar komið var á leiðarenda,
greiddi Reumert auðvitað akst-
urinn. En þegar bílstjórinn
skyldi taka við greiðslunni,
Úr hrökk nið
ur í lunga
Maður einn í byggðarlagi
skammt frá Álaborg í Dan-
mörku var að leika sér við unga
dóttur sína, og allt í einu sló
hún á munninn á föður sínum.
Litla telpan hafði verið með
lítið armbandsúr á úlnliðnum,
en við höggið hrökk það upp í
manninn og niður í hálsinn á
honum, og reyndist ekki unnt
að ná því upp aftur.
Farið var með manninn í
sjúkrahús í Álaborg, og það
kom í ljós, að úrið hafði runn-
ið niður í annað lungað. Þá var
maðurinn fluttur í sjúkrahús í
Kaupmannahöfn, og þar tókst
að ná úrinu upp, án þess að
uppskurður væri framkvæmdur.
Ekki fylgir sögunni, hvort úr-
ið er aftur komið á úlnlið telp-
unnar.
Faðirinn fæddist
1793
1 Noregi er enn á lifi maður,
sem er sonur manns, er fæddist
1793. Þetta er ótrúlegt, en satt.
Maður þessi heitir Just Bing,
og var fyrrum ríkisskjalavörð-
ur í Osló. Faðir hans, Just Johan
Bing, réttarskrifari, dó 84 ára
árið 1877. Móðirin, Jóhanna
Holst, fæddist 1838, og var hún
28 ára gömul, en gamli Bing
73 ára, er Just Bing fæddist
1866.
Skyldi einhver hér á landi
eiga föður, sem fæddist árið
seytján hundruð og eitthvað?
studdi hann hendinni á hand-
legg útlendingsins og mælti:
[ „Nei, Poul — fólk, sem ekki býr
á Islandi, veit það ekki. En það
er alls ekki siður að gefa
drykkjúpeninga, og þess vegna
j get ég ekki tekið við þessum pen
! ingum hérna.“ Mótmæli voru
þýðingarlaus — bílstjórinn
breytti ekki um skoðun. Hann
tók við því, sem honum* bar
samkvæmt taxta, hann vildi
hvorki meira né minna, og svo
fylgdi vindill og kveðja með
handabandi.
Ofurlítill eftirleikur.
En sagan er lengri. Rigning-
ardag viku síðar var Reumert
kallaður út úr vnnuherberg
sínu. Bílstjórinn var kominn
og vildi tala víð hann. Og hann
, sagði: „Þegar ég kom heim
I hér um kvöldið, kom í ljós, að
, tveir alveg spánýir hundrað
króna seðlar, er ég fékk hjá þér
höfðu loðað saman, og ég
hafði fengið hundrað krónum
of mikið. Ger>ð þér svo vel —
hér er seðillinn — nei, kemur
ekki til mála — eg átti erindi
hingað í dag, því að ég ók með
konu í Valhöll, hérna rétt
hjá.“ Og svo kvaddi hann. En
Poul Reumert stóð eftir með
! seðilinn í hendinni.
★
1 Þetta er saga Pouls Reumerts
af skiptum hans við stofustúlk-
una, sem fann vindlana hans,
og bilstjórann, sem ók með
hann til Þingvalla. Heiður sé
þeim öllum.
Písaturninn fellur
eftir tvær aldir
Skakki turninn í Písa mun
missa jafnvægið og leggjast á
hliðina árið 2152, segja þeir,
sem unnið hafa að nýlegum
mælingum á honum og halla
hans. Á hverju ári eykst hall-
inn um meira en einn milli-
metra. Hann er þegar orðinn
meira en fjórtán fet frá réttu
lagi, og jarðvegurinn lætur sí-
fellt undan þunga turnsins.
í meira en tvær aldir hefir
hann verið að smásíga á sömu
hliðina, og þegar Písabúar eru
spurðir, hvað þeir geri til þess
að forða turninum frá falli,
segjast þeir stöðugt biðja vernd
ardýrling Písaborgar, heilagan
Ranieri, að koma í veg fyrir, að
hann leggist á hliðina, og enn
sé áreiðanlega langur tími tH
stefnu. Raunar hafa að minnsta
kosti fimm ríkisskipaðar nefnd
ir reynt að leggja á ráðin með
heilögum Ranieri, og tveir verk
fræðingar athuga daglega hvað
halla turnsins líður. Meðal ann
ars hefir að ráði verkfræðing-
anna verið reynt að þétta grund
völlinn, með þvi að grafa í hann
gryfjur og fylla þær síðan af
steinsteypu. Þetta var gert 1934,
og notaðar í þessu skyni 900
lestir af sementi. Við þetta virt-
ist turninn stöðvast í tíu ár, en
ríðan hefir sama þróunin og áð
ur haldið áfram.
W.V.V.V.V.VW.V.V.V//.VAV.V.V.V.V.V.V.V.V.VW
| Eggert Stef ánsson |
;• les kafla úr hinni nýju bók sinni, jl
LÍFIÐ OG ÉG 11“
söngur á heiði eftir Sigvalda Kladalóns.
|j Aðgöngumiðar á kr. 10,00 fást í bókaverzlun Láursar v
Blöndals, Sigf. Eymundssonar, ísafoldar og við inn- J.
í; ganginn frá kl. 1 e. m.
■.W.WAW.V.V.V.V.V.V.V.W.'^.V.V.V.V.V.’.V.V.VA
V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.’.V.VV.V.V.V.V.V.V.VJ
!
í
1 ■-
Litla flugan
eftir SIGFÚS HALLDÓRSSON
Gætu vötnin okkar
moraö þannig af fiski?
Innan skamms mun Skúli
Pálsson fiskiræktarmaður sýna 1
hér í Reykjavík kvikmyndir, er (
hann hefir fengið frá Alaska,
varðandi nytjafiska og fiskirækt
þar. Gefa þessar myndir hug-1
mynd um það, hve stórfeng-!
legar fiskigöngur geta verið í |
vatnsföll, og hvað hægt er að
gera fiskirækt að miklum og'
arðsömum atvinnuvegi.
Laxveiðarnar stóriðja.
Á myndinni sést, hvernig allt
morar af laxi, þegar torfurnar
stefna að landi á vorin og sækja
i tugþúsunda tali upp árnar, þar
sem hann unir á sumrin og
hrygnir. Síðan eru sýndar veiði-
aðferðir, svo stórtækar að minn
ir á meStu uppgripaveiðar á
þorski og síld við íslandsstrend
ur. Af veiðistöðvunum er lax-
inn svo fluttur beint í niður-
suðuverksmiðjurnar, þar sem
sjálfvirkar vélar vinna svo að
segja allt, og varla þarf að
snerta á laxinum.
Fiskirækt.
Aðrir þættir mynda þeirra,
sem Skúli Pálsson hefir fengið,
sýna, hvernig raunveruleg fiski
rækt er stunduð. Þar sjást klak-
hús, miklar byggingar, þar sem
hægt er að klekja út tugum og
jafnvel hundruðum milljóna af
hrognum, flutningur seiða í árn
ar, rannsóknir á gróðri í vötn-
m, hitaskilyrðum og öðru, lag-
færingar á ám til þess að gera
þær, sem ákjósanlegastar fyrir
fiskinn.
Sdungauppeldi.
Loks er þarna sýnt silunga-
uppeldi í tjörnum og starfsaö-
ferðir allar við það. En þá nýj-
ung hefir Skúli Pálsson flutt
inn í landið með regnbogasil-
ungsrækt sinni að Grafarholti,
eins og lesendum blaðsins er
bezt kunnugt.
Mál að vakna.
Það er nú kominn tími til
þess, að íslendingar átti sig á
því til fulls, hvern auð ár okk-
ar og vatnsföll geta veitt, ef
raunveruleg fiskirækt er stund-
uð. Þess vegna færa kvikmynd-
ir þær, sem Skúli mun sýna,
boðskap, sem á brýnt erindi til
fjölda manna hér á landi. |
En jafnhliða fiskirækt í ám
og vötnum virðist það auðsýnt,
að silungaeldi í tilbúnum tjörn
um, þar sem góð aðstaða til þess
að afla úrgangs til fuðurs handa
þeim úr nálægum verstöövum
og unnt að halda vatni í slík-
flýgur í híjóðfæraverzlanir í dag ■:
í í
WW W.’.V.W.’.V.W.V.’AW.'ANW .V.V.W.WWWV.
'.Vy.W.W.V.V.V.V.W.V.V.V.WAtSV/rtV.V.V.V.W
:j Safamiklar og góðar j;
1 JAFFA appelsínur \
Verzlunin Vaönes jj
vV/.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.VV.V.V.V.V.V/.V.V.V.Vw
•.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.vv.v.v.
VATNSLEIÐSLUPIPUR 1
galvaniseraðar pípur y2“ til 2“ nýkomið.
í
Sendum gegn póstkröfu um land allt.
Helgí Magnússon & Co. \
Hafnarstræti 19. — Sími 3184. I;
?.mvA\VA\w.msssw??.w.v???.v??????.w?
I Röskur sölumaður \
ÍJ óskast nú þegar að stóru fyrirtæki hér í bænum. — •*
í; Æs)/ilegt, að viðkomahdi hafi nokkra reynslu í vöru- jí
•I sölu til kaupmanna í Reykjavík. •.
\ Umsókn með upplýsingum um menntun og fyrri J«
um tjörnum hæfilega heitu ár- [ jl störf, ásamt meðmælum, ef fyrir hendi eru, sendist 1«
ið um kring, muni vera hag-
kvæmt fyrir okkur og gæti í
heilum sveitum verið góð auka-
geta með öðrum búskap.
Útvarpib
Útvarpið í dag:
Fastir liðir eins og venjulega.
18.00 Útvarpssaga barnanna:
„Vinir um veröld alla“ eftir Jo
Kristjánssonar (Róbert Arn-
finnsson leikari) — II. 20.30
Leikrit: „Sonur stjarnanna" eft
ir Bernard Shaw, í þýðingu séra
Gunnars Árnasonar. Leikstjóri:
Lárus Pálsson. 22.00 Fréttir og
veðurfregnir. — 22.10 Passíu-
sálmur (30. 22.20 Danslög (plöt-
ur). — 24.00 Dagskrárlok.
I* blaðinu fyrir 17. þ.m. merkt „Röskur sölumaður.“ .■
•: í
.V.V.V.W.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.W.V.VM
miiiiiiiiUMiiiiiiiiiiiiiiiiMiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiM
Bónvclas*
I Err Ess bónvélar, lítil og|
| þægileg til heimilisnotk-1
i unar. Verð aðeins 1274 kr. |
G. E. bónvcl
1 fyrir skrifstofur og sam- |
i komusali. Verð kr. 1957,00. i
í Véla- og raftækjaverzlunin i
| Bankastræti 10. Sími 2852. i
I Tryggvagötu 23. Sími 81279. i
IMMIIIIIimillimilllllllllMIIIIIMIIIIMIIIIIMIMIMMMMMIII
ttbrelðið Tíinann.
..................IIMIMMMMMIII
| Nýkomið: |
| RIFFILSKOT:
Short, i
Long, !
Extralong.
i HAGLASKOT:
I Nr. 12, 1
Nr. 16. I
i Kaupfélag Hvammsf jarðar i
I Búðardal, sími 17. (búðin) i