Tíminn - 16.03.1952, Blaðsíða 2
»rv*:a» *».* «c<>*!w.«i;u ,>!'■
TÍMJNN, sunnudaginn 16. marz 1952.
Áll er herramannsmatur, en hér
á landi hefir fólk beyg af ál
Fyrir nokkrum árum hóf mað ,
ur einn í Noregi álarækt. Hann
átti flatt land nærri sjó, og á i
landið veitti hann bæði söltu
vatni og ósöltu, svo að þarna
myndaðist hæfilega djúpt lón.
Síðan útvegaði hann sér ála-
seiði, glerál, og lét í lónið. Árin
liðu, og álarnir hans hafa dafn
að vel, og senn líður að því, að
þeir verða fullþroska. Þá veiðir
eigancjinn hæfi.'ega mikið af
þeim, áður en þeir halda langt
út í höf til þess að hrygna. En
eðlishvötin vísar afkvæmum ál-
anna, þeirra, er lifa, aftur í lón
ið, sem foreldrarnir ólust upp í.
Er hér á vetrum.
Hér á landi er viða áll, þótt
hans verði lítið vart. Hann gref-
ur sig nefnilega niður í leðjuna
á daginn, en er fremur á ferð
um nætur. Hann er hér vetur og
sumar, unz hann hefir náð þeim
aldri og þroska, að eðlishvötin
rekur hann í brott út i hafdjúp-
in, og hann leggur upp í þetta
mikla ferðalag og skríður hann
yfir mýrar og móa í áttina til
sjávar, ef því er að skipta.
Állinn er lítilsvirtur hér.
Við gefum álnum lítinn gaum,
og margir eru jafnvel hræddir
við hann. Gamlar þjóðsagnir
um hrökkála og annað slíkt
kann þar að valda miklu um.
Yfirleitt verðum við hans lítið
varir, nema hvað athugull mað-
ur verður stundum var við smá-
ál, sem er að koma af hafi og
skríður upp læki og lænur og
sézt þá stundum á steinum, til
dæmis hérna i Fossvogslæknum
eða við stífluna í Elliðaánum.
Austur í Homafirði kvað vera
mikið um ál, ef vel er að gáð,
og sjálfsagt er svo víðar. j
Herramannsmatur. í
En þótt við hirðum ekki um
álinn, þá er hann herramanns-
matur — einhver bezti matur,
sem á borð fæst, ef hann er
rétt til reiddur. í öðrum lönd- ^
um er hann þess vegna dýr og
eftirsótt vara. En við látum okk
ur nægja gamlar sögur um |
hrökkál. Þetta er ekki mat-
vendni, heldur sinnuleysi.
Hægt að fá álaseiði.
1 stað þess að hundsa álinn,
ættum við að veiða hann og
neyta hans sem hnossgætis, eins
og aðrir gera. Og það gæti jafn-
vel komið til mála, að auka ála-
gengdina, þar sem vel hagar
til, með því að kaupa álaseiði
frá öðrum löndum. í Þýzkalandi,
írlandi og víðar er glerál safn-
að, og hann síðan seldur eins
og hver önnur seiði, hverjum
Árnað heilla
Hjónaband.
Séra Þorsteinn Gíslason gaf
nýlega saman á Blönduósi ung-
frú Elínu Grímsdóttur frá Pat-
reksfirði og Guðmund Theó-
dórsson starfsmann við mjólk ■
ursamlagið á Blönduósi.
Trúlofun.
Nýlega opinberuðu trúlofun
sína ungfrú María Steíngríms-
dóttir frá Dalvík og Geir
Snorrason, Blönduósi.
Sextugsafmæli.
Magnús Jónsson, bóndi í
Hrafnsstaðakoti í Svarfaðardal,
átti sextugsafmæli 10. marz.
Hann hefir búið í rúm þrjátíu ár
og hýst jörð sína og ræktað,
þrátt fyrir erfið skilyrði. Kona
hans er Laufey Þorleifsdóttir
írá Klængshóli og eiga þau þrjú
uppkomin börn. Magnús er mað
ur mjög vinsæll og drengur hinn
bezti.
Vortízka
I Enska knattspyrnan
Úrslit urðu þessi í gær:
1. deild.
Bolton—Chelsea 3—0
Burnley—Derby 0—1
Charlton—Manh. City 0—0
Fulham—Arsenal 0—0
Manh. Utd.—Wolves 2—0
Middlesbro—Blackpool 1—0
Newcastle—Portsm. 3—3
Preston—Aston Villa 2—2
Stoke—Hutídersfield 0—0
Tottenham—Sunderland 2—0
West Bromw.—Liverpool 3—3
W.VVAW.VVV.W.V.V.V.V.V.V.'.V.Y.V.V.V.V.V.V.VJ
-*
Rafmagnstakmörkun
Álagstakmörkun dagana 15. marz — 22. marz
frá kl. 10,45—12,15.
Laugardag 15. marz 2. hluti.
Sunnudag 16. marz 3. hluti.
Mánudag 17. marz 4. hluti.
Þriðjudag 18. marz 5. hluti.
Miðvikudag 19. marz 1. hluti.
Fimmtudag 20. marz 2. hluti.
Föstudag 21. marz 3. hluti.
Laugardag 22. marz 4. hluti.
Straumurinn verður rofinn skv. þessu þegar og
að svo miklu leyti sem þörf krefur.
SOGSVIRKJUNIN.
2. deild. j
Birmingham—Sheffield U. 3—0 t
Brentford—Swansea 3—1 j
Cardiff—Barnsley 3—0
Cardiff—Barnsley 3—0
Doncaster—Bury 1—1
Everton—Luton 1—3
Leeds—Blackburn 1—0
Leicester—West Ham 3—1!
Nottm. For.—Coventry 3—1!
Rotherham—Hull 1—11
Sheff. Wed,—Q. P. R. 2—1 j
! Southampton—Notts C. 4—0 ,
ÍVAVAW.W.VAW.WV.WAW.W.V.
•V/A'
ÞVOTTALOGURINN
Kipp — Chemi,
aftur fyrirliggjandi í % og 1/1 flöskum.
líttríir) S. Jónsson & Co.
HEILDVERZLUN.
Smekkleg, köflótt ferðadragt úr
tvíd og víð kápa úr sama efni. ■
Liturinn er grár, blandaður.
rauðleitu og grænu. j
þeim, sem vill auka álagengdina
hjá sér.
Að vísu er állinn nokkrum
árum lengur að þroskast en
sumar aðrar fisktegundir. Er-
lendis mun hann vera eitthvað
um sjö ár að vaxa, og kann að
vera, að vaxtarskeiðið hér sé
eitthvað lengra, því að vaxtar-
hraði fiskanna er nokkuð háð-
ur hitastiginu. Efnaskiptin
verða örari og vöxturinn hrað-
ari þar sem hlýtt er en kalt. En
eigi að síður væri gaman, ef
einhver reyndi, líkt og Norð-
maðurinn, sem sagt var frá í
upphafi, hvort álarækt gæti
ekki blessazt hér.
I W.W.V.
.c
r
r
IBUÐ TIL SOLU
Sigurður Þorsteinsson, bóndi í
Hólsseli á Hólsfjöllum,'varð ní-
ræður í fyrradag. f gær birtist
grein um hann liér í blaðinu.
Er enn á lífi
átti
föður fæddan 1794
Uppi í þjóðskjalasafni má
íðulega sjá aldurhniginn mann,
sem situr þar yfir gömlum
jarðabókum og manntölum úr
Rangárvallasýslu og öðrum
fornum skræðum og heimildum.
Þennan sama mann má einnig
sjá á ýmsum mannfundum, þar
sem hann heldur tölur til hvatn
ingar ungu kynslóðinni, til dæm
is um skógrækt og trjárækt.
Þessi maður er Vigfús Guð-
mundsson frá Keldum, höfund-
ur margra fræðibóka .
Faðir hans fæddist árið, sem
Skúli fógeti og Björn í Sauð-
lauksdal dóu.
Nú skulum við rifja upp efni
smágreinar, sem birtist í Tím-
anum í gær. Þar var sagt frá
norskum manni, Just Bing, fyrr
verandi starfsmanni í ríkis-
skjalasafninu í Osió, og því var
hann þar á dagskrá, að faðir
hans var fæddur — 1793.
Svo kemur Vigfús frá Keld-
um aftur til sögunnar. Faðir
hans, Guðmundur Brynjólfs-
son, fæddist nefnilega árið 1794
— fyrir 158 árum. Svo að Vigfús
gefur Norðmanninum lítið eft-
ir.
Til þess að gefa mönnum
betri hugmynd um það, hvað
þetta er í rauninni langt aftur
í tímanum, má geta þess, að
, þetta var sama árið og Skúli
fógeti Magnússon og séra Björn
( Halldórsson dóu og um líkt leyti
(og Landsuppfræðingarfélagið
var stofnað og Leirárgarða-
j prentsmiðja komst á laggirnar.
Foreldrar Vigfúsar.
| Guðmundur Brynjólfsson á
Keldum fæddist 23. nóvember
1794, og þegar Vigfús fæddist,
i 22. október 1868, var hann
tæpra 74 ára. Móðir Vigfúsar
var þriðja kona Guðmundar,
Þuriöur Jónsdóttir frá Skarðs-
hlíð, fædd 1825. Guðmundur
lifði fram á fimmtánda aldurs-
ár Vigfúsar sonar síns, þótt svo
roskinn væri, er hann fæddist.
Hálf húseignin Barmahlíð 9, efri hæð, og tilheyrandi, *;
er til sölu. íbúðin er byggð á vegum Byggingasamvinnu
£ félags Reykjavíkur og eiga félagsmenn forkaupsrétt að í
henni lögum samkvæmt. — Þeir, sem vilja nota for- ■■
jl kaupsréttinn, skulu leggja inn umsóknir á skrifstofu Ij
;■ mína fyrir 22. þ. m.
;* JÓHANNES ELÍASSON hdl., I;
Austurstræti 5. *í
V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.-.VrV.V.V.V.'.VAW.Vs Í
•
o
o
o
o
O
o
O
o
o
!! Bílamarkaðiirinn s.í
o
o
I»
o
o
o
O
o
o
o
O
o
O
ÞRUMA ÚR HEIÐ-
SKÍRU LOFTI.
Þeir höfðu farið öræfi, og
þar- hrepptu þeir ógurlegt veð
ur, týndu áttavitanum, villtust
og hröktust fram og aftur og
vissu ekkert, hvar þeir voru
staddir né hvert þeir áttu að
halda, og þeir héldu, að öll
von væri úti um það, að þeir
björguðust úr þessum háska,
nema einn, sem ætíð var ör-
uggur um það, að þeir fynd-
ust.
Hann átti eftir að greiða út-
svariS og skattinn.
Brautarholti 27. — Sími G373
Höfum á boðstólum flestar tegundir bifreiða.
Fólksbífreiðir 4—6 maiuia
PLYMOUTH
CHEVROLET
AUSTIN
HILLMANN
MORRIS
RENAULT
DODGE
Árgangana frá 1941—1949.
Vörtibifreiðar
FORD
CHEVROLET
DODGE
Seiicliferöabifreiðar
FORDSON
RENAULT
ii Farþegabifreiðar 12—40 maana
FORD
DODGE
Ennfremur höfum við kaupendur að ýmsum tegund-
1 • um bifreiða.
Látið okkur annast bílakaup og sölu fyrir ykkur.
Virðingarfyllst
BÍLAMARKAÐURtVIV S. F.