Tíminn - 16.03.1952, Side 8
Bátar á davíðum og ailt með kyrr-
•um kjörum í hinu sokkna skipi
Búnaðarnámskeiði B.S.
í Sandvík lýkur í dag
Um þessar mundir er ærið gestkvæmt á hinu myndarlega
Allnákvæmri skoðun kafara á olíuskip-
inu í Seyðisfirði er að verða lokið
Á morgun lýkur væntanlega skoðun á hinu sokkna olíu-
skipi í Seyðisfirði. Hefir verið kafað að skipinu undanfarið
tvisvar á dag og fengizt með því mikilvæg vitneskja, scm
hægt er að byggja á frekari aðgerðir um björgun olíunnar
úr skipinu og á því sjálfu, ef tiltækilegt þykir.
Vantar skipulag á
sölu grænmetis
Á fundi búnaðarþings 1 gær
var samþykkt tillaga allsherjar
nefndar um skipulag fram-
leiðslu og sölu grænmetis í land
inu. Þorsteinn Sigurðsson hafði
framsögu og lýsti allýtarlega
erfiðleikum þeim, sem garð-
yrkjuþændur eiga í vegna skipu
lagsleysis í þessum efnum. Hefði
það í för með sér, að þessi at-
vinnugrein væri í beinni hættu
á sumum stöðum en þegar væri
búið að festa svo mikið fé í
þessu, að ekki mætti láta skeika
að sköpuðu. Hann sagði, að
Sölufélag garðyrkjumanna
hefði að vísu um þrjá fjórðu
hluta sölunnar í sínum hönd-
um en nokkrir menn stæðu þó
enn utan við samtökin og yllu
glundroða á markaðinum með
undirþoðum og sveiflum á verð
lagi. Tillagan var svohljóðandi:
„Þar sem reynsla undanfar-
inna ára hefir sýnt, að ekki er-
nægilega gott skipulag á sölu
garðávaxta, grænmetis og
hvers konar gróðurhúsa fram-
leiðslu, og vegna áskorana um,
að Búnaöarþing hlutist til um,
að, innlendir matjurtaframleið
endur fái sömu stoð í lögum, til
skipulagningar á framleiðslu
og sölu afurða sinna, eins og
mjólkur- og kjötframleiðendur
hafa, skorar Búnaðarþing á
Framleiðsluráð landbúnaðar-
ins að vinna að því, að nýjum
kafla verði, sem allra fyrst, kom
ið inn í framleiðsluráðslögin,
sem verði hliðstæður við kafl-
ann um kjöt- og mjólkurfram-
leiðslu.“
Mjólkurbú Flóa-
raanna styrkir stofn
un tilraunastöðv-
ar að Laugardælum
Á aðalfundi mjólkurbús
Flóamanna var samþykkt að
mjólkurbúið skyldi á þessu
ári leggja fimmtíu þúsund
krónur til stofnunar hinnar
fyrirhuguðu tilraunastöðvar
um nautgriparækt að Laugar
dælum.
í fjárlögum á þessu ári voru
225 þúsund krónur veittar til
tilraunastöðvarinnar, og fyr-
irheit gefið um sömu upphæð
næsta ár.
Búnaðarsamband Suður-
lands, sem mun reka þessa
tilraunastöð, hefir nú tekið
á leigu jörð og mannvirki af
Kaupfélagi Árnesinga, sem
rekið hefir bú í Laugardælum,
en bústofn og vélar kaupir
búnaðarsambandið af kaup-
félaginu.
Það hefir komið í ljós, að
skipið er furðulega lítið
skemmt að sjá, þótt búið sé
að liggja á sjávarbotni síðan
í febrúar 1944, er því var
sökkt með sprengjukasti frá
þýzkri flugvél.
Skipið sökk alveg að fram-
an á einni klukkustund, og
tókst allri áhöfn þess að
bjarga sér, enda stóð aftur-
endi skipsins upp úr til
kvölds. Skipið situr á mjúk-
um sandbotni, 300-400 metra
frá landi.
Þrátt fyrir allnákvæma
skoðun hefir ekki tekizt að
finna neinar skemmdir á skip
inu fyrir utan rifuna á byrð-
ingi, sem sjórinn hefir fallið
inn um.
Aðeins ein sigla
hefir laskazt.
Allt virðist vera með kyrr-
um kjörum á þessu stóra
skipi, þar sem það liggur á
44 metra dýpi. Bátar eru á
davíðum, og það stendur ná
kvæmlega á réttum kili. Sigl-
ur eru með stögum og sigl-
ingatæki utan á brúnni. Þó
er ein sigla löskuð, vegna þess
að bátar hafa fest í hana
legufæri sín, og hafa Seyðis-
fjarðarbátar týnt legufærum
á þennan hátt.
Gott skyggni — kafar-
inn sér 4—5 metra.
Skipið er ekki ryðgað, en
ofan á því er lag af leir-
kenndri skán, rétt eins og
það sé orðið rykfallið á botn-
inum af hreyfingarleysi.
Kafarinn, Grímur Eystur-
oy, sem farið hefir víða um
skipið, segir að aðstæður séu
allgóðar. Sjór er kyrr þarna
og skyggni gott, eftir því sem
hann á að venjast á sjávar-
botni. Getur hann séð frá sér
4—5 metra. Þegar vorleysinga
fer að gæta, mun skyggnið
versna í sjónum svo nærri
landi.
Eina klukkustund að
komast upp.
Grímur hefir orðið að vinna
gætilega að köfun þessari,
sakir víra og staga, sem hvar
vetna liggja um skipið, en
hinn viðkvæmi köfunarútbún
aður má hvergi koma við, og
gæti óhapp af frví tagi gilt
líf kafarans. Hann er aldrei
nema hálfa klukkustund
niðri við skipið í einu, og er
þá eina klukkustund að kom
ast aftur upp á yfirborðið.
Miklar líkur eru til þess, að
reynt verði að bjarga olíu úr
skipinu, og ef til vill því
sjálfu. Verður verkið vand-
lega undirbúið, enda mikil
verðmæti í húfi, þar sem hér
er um að ræða tíu þúsund
lesta skip, sem var með um
níu þúsund lestir af olíu.
l
Lynde McCormick,
yfirflotaforingi.
Sir William Andrewes,
flotaráðsforingi.
McCormiok
kemur til
heimili Stóru-Sandvíkurbræðra. Um mánaðartíma hefir ver
ið þar búnaðarnámskeið, sem Búnaðarsamband Suðurlands
lielöur þar í annað sinn, og lýkur því í dag. En siðustu tvo
daga hefir það verið opið öllum, og eru í Sandvík 60—70
gestir auk fjórtán nemenda á námskeiðinu.
Hjalti Gestsson ráðuháútur
átti í gær tal við blaðíð,. og
sagði hann, að áhugi íuigra
manna á Suðurlandi á |>úhað
arnámi væri að aukip$C í
fyrra hélt búnaðarsamh'andið
í fyrsta skipti námshfeið í
Sandvík, og fóru þrír af.éliefu
nemendum, sem þá vory- þar,
í búnaðarskóla til írékara
náms í vetur. Svipað er búizt
við að verði um þá,. sérn nú
eru á námskeiðinu. .
Veitir fræðslu, sem ékkí
, er kostur á utan skóla.
En auk þess sem náíhskeið
in virðast stuðla að því, að
hugur ungra manna beinist
til lengra búnaðarnáms, veita
þau mörgum ungum mönn-
um verulega fræðslu, sem þeir
annars ekki hafa kost á utan
skóla.
I
Fjöldi gesta í gær
og í dagi
j Þessa tvo síðustu daga, sem
námskeiðið er opið öllum, er
koma vilja, hafa verið í Sand
vík um fimmtíu bændur úr
Árnes- og Rangárvallasýslum,
en auk þeirra nokkrir utan-
héraðsmenn. Meðal þeirra var
Steingrímur Steinþórsson for
sætisráðherra. Pálmi Einars-
son landnámsstjóri og Árni
G. Eylands stjórnarráðsfull-
trúi, en í dag var von á Páli
• Zóphóniassyni búnaðarmála-
stjóra.
yfirflotaforingi
islands I dag
Námskeið F.U.F.
Fundurinn annað kvöld,
hefst stimdvíslega kl. 8,30
í Edduhúsinu. Erindi
„Saga Framsóknarflokks-
ins“. Guðbrandur Magnús
son, forstjóri flyiur.
Aliir ungir Framsóknar-
menn velkomnir meðan
húsrúm leyfir.
Fradur F.U.F. í
Reykjavík
F. U. F. í Reykjavík heldur
umræðufund um viðskipta-
málin n. k. miðvikudagskvöld
kl. 8,30 í Edduhúsinu við
Lindargötu. Vonast er til að
ungir Framsóknarmenn fjöl-
menni á fundinn og taki með
sér nýja félaga. Allt Fram-
sóknarfólk velkomið.
Ráðstafanir til
aukinnar srajörsöln
Búnaðarþing samþykkti í
gær eftiríarandi tillögu beirra
Baldurs Baldvinssonar og Ket-
ils S. Björnssonar um smjör-
sölu:
„Vegna þess að vitað er, að
smjöibirgðir í landinu eru mikl
ar, svo að til vandræða horfir
um sölu, skcgar Búnaðarþing á
ríkisstjórnina, að gera ráðstaf
anir til þess, að á máli þessu
verði ráðin bót, t.d. með fyrir-
mælum um blöndun smjörs í
smjörlíki eða öðrum þeim ráð-
um, sem að gagni mega verða.“
I fylgd nicð hoiium er WiIIIam Andrewes
flotaforingi og fylgdarlið þeirra
Lynde McCormick yfirflotaforingi Atlanzhafsbandalagsins
^ er væntanlegur hingað til lands í dag. Kemur hanti til við-
ræðna við ríkisstjórn íslands og yfirmann varnarliðsins. í
i för með honum er flotaráðsforingi hans sir William Andrewes
og fleira föruneyti.
Lynde McCormick er fædd-
ur 12. ágúst 1895 í Annapolis.
Hann útskrifaðist úr foringja
i skóla flotans 1915, en flota-
foringi var hann skipaður
1942. Hann á að baki langan
starfsferil og mikla reynslu í
flotanum og einnig sem kenn
ari við foringjaskóla flotans.
Togbátar koma
til Dalvíkur
í fyrrakvöld komu togbát-
arnir Bjarmi með hálfa
fjórðu lest, Björgvin með
hálfa fjórðu lest og Hannes
Hafstein með hálfa þriðju
lest.
í gærmorgun kom Garðar
frá Rauðuvík með hálfa
fjórðu lest.
í síðustu heimsstyrjöld var
' hann flotaforingi á Kyrrahafs
svæðinu, en síðast í styrjöld-
inni stjórnaði hann orustu-
skipi á Atlanzhafssvæðinu.
1945 var hann skipaður
flotaráðsforingi yfir Kyrra-
hafssvæðið, en síðan Sherman
andaðist hefir hann veriö yfir
flotaforingi Bandaríkjanna á
Atlanzhafssvæðinu unz hann
var skipaður yfirflótaforingi
Atlanzhafsbandalagsins.
Andrewes flotaforingi er
brezkur, fæddur 1899 og hef-
ir verið í brezka flotanum
síðan 1915. Hann stjórnaði
lengi herskipi á Atlanzhafi og
tók þátt i innrásinni á Sikil-
ey. Hann undirbjó og innrás
ina í Frakkland. 1944 og 1945
var hann flotaforingi brezka
Kyrrahafsflotans og síðan
1950 hefir hann stjórnað
Atlanzhafsflota Breta.
140 skippund
eftir 16 daga
Frá fréttaritara Tím-
ans á Seyðisfirði.
Vélbáturinn Valþór kom í
fyrradag af veiðum með 140
skippund af saltfiski, sem bát
urinn hafði aflað á 16 daga
netaveiðum. Fiskurinn var
veiddur út af Austurlandi og
var stór.
Báturinn fór aftur á veiðai
í gær og mun að þessu sinni
reyna fyrir sér út af Súöur-
landinu.
Fangauppreisn á ey
Um miðja síðustu viku efndu
kommúnistar, sem her S.Þ. hef
ir í haldi ásarnt öðrum föngum
frá Norður-Kóreu á eyju einni
við suðurströnd Kóreu, til upp-
reisnar og réðust á meðfanga
sína, sem ekki er kommúnist-
ar. Varð harður bardagi áður en
herinn gat stillt til friðar og
féllu 12 fangar en margir særð-
uðst. Nokkrir hermenn og Suð-
ur-Kóreumenn særðust einnig.