Tíminn - 23.03.1952, Qupperneq 8
36. árgangur.
Reykjavík,
23. marz 1952.
69. blað.
Heima er bezt: Skipað hvert far-
þegarúm vestur — og líka heim
Hellisheiði varð
ófær um hádegi
í gær
Samkvæmt upplýsingum
írá vegamálastjórninni í gær-
kvöldi varð Hellisheiði ófær
upp úr hádeginu í gær. —
Fyrstu mjólkurbílarnir, sem.
komu til bæjarins í gærmorg- [
un komu Hellisheiði, sem þá;
var greiðfær og fóru flestir
sömu leið til baka, en Wnir
síðustu urðu þó að njóta hjálp
ar. Eftir hádegið tók að skafa
og varð leiðin þá ófær með
öllu. Eftir það fór umferð öll
umKrísuvíkurleiðina og sendi
vegagerðin þangað plógbíl og
dráttarbíl til hjálpar ef
þyrfti. Lítill snjór er á veg-
inum þar nema ofurlitið hjá
Kileifarvatni. Mosfellsheiði er
einnig ófær. —
Fyrri hluti skíða
móts S. Þingeyinga
Prá fréttaritara Timans
í Mývatnssveit.
Skíðamót Suður-Þingey-
inga er að þessu sinni haldið (
við Reykjahlið við Mývatn og |
hófst það í gær. Hófst þaðj
með keppni í svigi og voru 18 j
keppendur, 6 í B-flokki og 12!
í C-flokki. Úrslit í B-flokki
urðu þessi: Gisli Vigfússon,
Völsungi, 75,1 sek. Aðalsteinn |
Jónsson, Eflingu, 80 sek. og!
Aðalsteinn Karlsson Völs. 98, !
7 sek. f C-flokki urðu úrsht
þessi; Kristján Jónsson Völs.
70,9 sek. Guðlaugur Valde-
marssoon, Eflingu, 76,1 sek. j
og Þorsteinn Jónsson, Völs. 76,
9 sek.
Síðan fór fram boðganga
4x10 km. Þar sigraði A-sveit,
Mývetninga á 2 klst. 32,15
mín. Önnur varð C-sveit Mý-
vetninga á 2 klst. 41,30 mín.
Þriðja B-sveit Mývetninga á
2 klst. 41,31 min. Fjórða sveit
Eflingar í Reykjadal á 2 klst
42,52 mín. Beztum tíma á 10
km. náði Jón Kristjánsson á
34,Q5 mín. Matthíaþ Krist-
jánsson á 35,41 mín. ívar Ste
fánsson á 35,58 min og Ste-
fán Þórarinsson á 36,36 mín.
allt Mývetningar.
Mótið heldur áfram í dag'
og lýkur. Fer þá fram keppni
í stökki, 18 km. göngu og 12
km. göngu fyrir drengi. Veð-
ur var ekki sem bezt í gær,
en færi sæmilegt. Hjarn var
undir en nýr snjór féll í fyrri-
nótt og gærmorgun. Þegar leið
á daginn varð bjartara en
hvassara og renndi nokkuð.
íslendingiiriiui festir illa rætur í nýju uni-
hverfi og við framandi Imgsmiarháít
Undanfarna tíu mánuði hefir ekkert skip farið héðan
vsetur um haf, svo að ekki hafi verið fullskipað það farþega-
rými, sem í skipunum er. En eins og kunnugt er, hafa Eim-
skipafélagsskip þau, er til Vesturheims sigla, rúm fyrir tólf
farþega í hverri ferð.
Þetta fólk, sem tekur sér
far vestur um haf, er yfirleitt
ungt fólk, margt af því í leit
að ævintýrum og nýju um-
hverfi og haldið löngun til
þess að sjá sig um í heimin-
um, þótt sumt af því hafi jafn
vel búið sig undir það að setj-
ast að í öðru landi.
Aftur heim eftir
6—8 mánuði.
En svo bregður við, að í
seinni tíð hafa skipin einn-
ig komið heim aftur fullskip
uð farþegum. Til dæmis kom
Lagarfoss í gær fullskipað-
ur farþegum, og Tröllafoss
er á leiðinni með viðlíka far
þegatölu og hann hefir rúm
fyrir.Eftir nokkurra mánaða
dvöl handan við hafið leita
þau heim aftur, Lilja og
Hörður og hvað það heitir,
unga fólkið, sem fór vestur
í fyrrasumar.
Gamla Frón kallar.
Þetta er ljós vottur um það,
að sá brottflutningshugur,
sem nokkuð hefir.verið talað
um að undanförnu, á sér ekki
djúpar rætur, sem betur fer,
og fólkið, sem leitar út úr land
inu, jafnvel með það í huga
að setjast að erlendis, verð-
ur, þegar nýjabrumið er far-
ið af dvölinni í hinu fram-
andi landi, vart við rödd í
brjósti sínu, er kallar það
heim aftur. Það er, þrátt fyr-
ir alla ágalla þess land, og þar
er líklegast ,að það finni þá
hamingju, er það þráir. Þetta
verður því bezt ljóst eftir
hæfilega dvöl í öðru landi, við
aðrar venjur og hugsunarhátt
en því er tamur frá barnæsku.
Uppþot í Trieste
Stúdentar í Trieste efndu til
mikilla mótmælafunda og kröfu
gangna gegn setu bandarísks og
ensks herliðs í landinu, og urðu
af nokkrar óeirðir svo að um
30 manns særðust. Héldu
stúdentar í hópgöngu að landa
mærum ítalíu og kom þar til
átaka við herverði og lögreglu.
Vantar enn 11 ær
frá Harðbak
Frá fréttaritara Tímans
á Kópaskeri.
Eins og frá hefir verið
skýrt hér í blaðinu hrakti fé
Antons Jónssonar bónda á
Harðbak fram alla Melrakka-
sléttu undan veðri fyrir nær
þremur vikum. Fannst það
síðan flest allmiklu síðar en
tófan hafði dreift fénu mjög
og sálgað að minnsta kosti
einni kind. Síðan hefir ein og
ein kind verið að finnast lif-
andi, en enn vantar 11 ær.
Þykir líklegt, að eitthvað af
þeim sé dautt en tíð hefir
verið góð, svo að kindurnar
þurfa ekki að hafa liðið skort
þótt lifandi séu enn.
Tíðin hefir verið ágæt hér
í sýslunni undanfarinn hálf-
an mánuð og er víðast hvar
góð beitarjörð nema á Hóls-
fjöllum. Þar hefir hlákan ver
ið svo lítil, að ekki hefir náð
niður úr að gagni. Fært er á
bifreiðum um lágsveitirnar,
en ektoi upp yfir sand.
Síærri landhelgi í
Færeyjum
Fiskimenn í Færeyjum hafa
hafið baráttu fyrir því. að
lögþingið lýsti yíir fjögurra
mílna færeyskri landhelgi út
frá yztu nesjum, töngum og
liólmum, og hefir félag út-
róðramanna í Klakksvík sent
lögþinginu áskorun um það
efni.
Jafnframt fer nú fram á-
skriftasöfnun meðal fær-
eyskra fiskimanna, þar sem
tekið er undir áskorun út-
róðramanna í Klakksvík.
Kvartettsöngur, en að-
eins einn söngvari
Athyglisverð tilraun var nýlega framkvæmd í Radíó- og raf-
tækjastofunni, Óðinsgötú 2. Söng kvartett inn á plötu hið vin-
sæla lag Sigfúsar Halldórssonar, Litlu fluguna, og er í sjálfu sér
lítið merkilegt við það, þótt kvartett syngi inn á plötu. En það
er nýstárlegt, að í „kvartettinum“ er aðeins einn maður, Björn
R. Einarsson, hljómsveitarstjóri, og syngur hann allar fjórai
raddirnar. Útvarpshlustendum gefst tækifæri til þess að lieyra
árangur þessarar tilraunar í kvöld í þætti Benedikts Gröndal.
Slíkar upptökur tíðkast nokkuð ^ eru á, að fólk hefði hug á að
erlendis og mun Richard Tauber eignast hana. En þá þarf að fá
hafa verið fyrstur til að syngja leyfi tónskáldsins og söngvar-
þannig inn tvær raddir. Síðan
hefir stöðug þróun verið á þessu
sviði, og undanfarið hafa verið
leiknar hér í útvarpið nokkrar
plötur með gítarleikaranum Les
Paul, þar sem hann leikur marg
ar raddir, og kona hans syngur
með fjórraddað.
Söngur Björns.
Þessi tilraun Björns og radíó-
stofunnar er sú fyrsta, sem
framkvæmd er hér á landi.
Blaðið átti tal við Magnús
Jóhannsson í gær um upptök-
ans, en málið er ekki komið það
langt enn.
Stórmeistaramót í
Búdapest
Skákkeppni stþrmeistara er
háð í Búdapest í Ungverjalandi
um þessar mundir og taka þátt
í henni margir mestu skákmeist
arar heimsins.
Tíu umferðir hafa verið tefld
ar og eru efstir Stálberg frá
Svíþjóð og Geller frá Rússlandi
með sjö og hálfan vinning hvor.
Hinn þriðji er rússneski skák-
Brunkeppni Vest-
fjarðamótsins
Frá fréttaritara Tímans
á ísafirði.
Brunkeppni Vestfjarðamóts
ins fór fram hér í fyrradag.
Brautin var 2 km. og hæðar-
mismunur 550 metrar. Hliðin
, voru 14. Fyrstur í A-flokki
una og fórust honum orð á ö Hallgrímur Njarðvík úr
þessa leið: | Herði á 3 mín 17,4 sek. Fyrst-
— Það er langt fra þvi, að: ur f B.fiokki varð Gúðmund-
það sé neitt þrekvirki að annast ur Heigas0n, Skíðafélagi ísa-
slíka upptöku, aðeins af mað-
ur hefir nægan tíma. Segul-
bandstæki eru notuð, og er
margt hægt að gera með þeim
tækjum.
Björn söng fyrst ema rödd,
síðan þá næstu og hafði hann
þá heyrnartæki, þar sem hann
gat heyrt fyrri röddina. Gekk ' komu
það þannig koll af kolli, unz
hann. var búinn að syngja all-
ar raddirnar, en þá voru þær
teknar á eina plötu.
fjarðar á 3 mín. 37,7 sek. Fyrst
ur í C-flokki varð Jón Krist-
mannsson, Skíðafélagi ísa-
fjarðar á 4 mín. 14,5 sek. —
Keppendur voru 15. Færi var
illt, og göngukeppni, sem
fara átti fram sama dag var
frestað vegna mikillar snjó-
Verður gefin út platá?
— Eru nokkrir möguleikar á
því, að platan verði gefin út?
— Já, það getur vel komið til
meistarinn Perez með sjö vinn- mála að gefa út lítiö upplag til
inga. sölu hér innanlands,, ef horfur
Skógrækt ríkisins mun að
venju hafa skógarplöntur og
garðplöntur til sölu í vor.
Skógarplönturnar verða
birki, sem verið hefir þrjú ár
í fræbeði, 1000 stykki á 600
krónur, skógarfura, tvö ár í
fræbeði og eitt ár í dreifbeði,
1000 á 500 krónur, sitkagreni,
tvö ár í fræbeði og eitt ár í
dreifbeði, 1000 á 1500 krónur,
I og rauðagreni, sem verið hef-
Malan forsætisráðherra Suður-Afríku hefir tilkynnt að hann ir tvö ár í fræbeði og eitt í
muni Ieggja fyrir neðri deild þingsins lög, þar sem dómstólum dreifbeði, 1000 stykki á 1500
landsins verði bannað að dæma ógild þau lög, sem þingið setur. krónur.
Garðplönturnar verða birki,
Malan vill banna dóm-
stólum að ógilda lög
Strauss krefst þingrofs og kosninga
Skógarplöntur og
poítaplöntur til sölu
í vor
Strauss, leiðtogi stjórnarand-
stöðunnar, hefir krafizt þess að
þingið verði rofið, og nýjar kosn
ingar verði látnar fara fram,
þar sem hér sé um stjórnlaga-
breytingu að ræða og til þess
að samþykkja hana þurfi tvo
þriðju atkvæða.
Ön^þveiti fyrir dyrum.
Engar líkur eru taldar til að
frumvarp Malans fái tvo þriðju
atkvæða, og reyni hann að fram
kvæma slík lög samþykkt með
einföldum meirihluta, mun
hæstiréttur dæma þau ógild.
Skapast þá enn á ný hatrömm
deila milli dómstólsins og lög-
gjafans, og hlýtur það að leiða
til upplausnar á stjórnmála-
sviðinu. Hlýtur þá að því að
koma, að Malan reyni að taka
sér einræðisvald, eða stjórn hans
hrökklast frá, og skipan sú, sem
hann hefir komið á sambúð
hvítra manna og litaðra falli
um sjálfa sig. Talið er, að fylgi
Malans með þjóðinni minnki nú
reynir, þrír gæðaflokkar,
Alaskaösp, tveir gæðaflokkar,
þingvíðir, gulvíðir, sitkagreni,
síberískt lerki, rauðgreni og
fura. Verð á þessum plöntum
er 1—15 krónur hvert stykki
eftir tegundum og þroska.
Fiskiræktarkvik-
myndir sýndar
Skúli Pálsson fiskiræktarmað-
ur sýnir laxveiði- og fiskiræktar
kvikmyndir í Stjörnúbíói í dag
klukkan 1,30 og að Hlégarði í
Mosfellssveit klukkán níu í
kvöld.
Aðgöngumiðar verða seldir við
innganginn.
Barnið á Laugavatni
við góða heilsu
Barnið á Laugarvatni, sem
fékk súrefnisgjöfina á dög-
unum, er nú við góða heilsu,
og þarf ekki lengur á súrefn-
istækjunum að halda . Það Leikritið hefir verið sýnt nokkr
fékk lungnabólgu fyrst á eft- um sinnum og hlotið góða dóma
ir, en er nú batnað. I og aðsókn.
Orustan á Háloga-
landi sýnd á
Húsavík
Frá fréttaritara Tímans
í Húsavík.
Leikritið Orustan á Háloga-
landi hefir verið sýnd á Húsa-
vík að undanförnu við ágætar
viðtökur. Leikstjóri er Njáll
Bjarnason, kennari, en auk hans
eru leikendur Ari Kristinsson,
Inga Jónasdóttir, Einar M. Jó-
hannesson, Björg Friðriksdóttir.