Tíminn - 10.06.1952, Qupperneq 8
„ERLENT W1RLIT“ í »AG:
Stjórnmálahorfur í Bretlundi
36. árgangur.
Heykjavík,
10. júní 1952.
127. blað.
Húnvetningar dansa á
götum Reykjavíkur
Ern í fjölmennri bændaför til Suðnrlamls
o«> koma hér við á þjóðhátíðardaginn
Á föstudagsmorguninn hefst fjölmenn bændaför úr Vest-
ur-Húnavatnssýslu til SuSuríandsins. Er það búnaðarsam-
band sýslunnar, sem gengst fyrir förinni, og verður farið
eins langt austur og hægt er að komast með góðu móti.
K.R. — Víkingur
2:0
Úrslit knattspyrnukappleiks-
ins, sem fram fór á íþróttavell
inum í gærkveldi, urðu þau, að
KR vann Víking með 1-0. Leikur
inn var hluti af íslandsmeistara
keppni í knattspymu.
Færeyingurinn
mælti á íslenzku,
*
Islendingurinn
á færeysku
Færeyskt blað skýrði frá
því fyrir skömmu, að íslenzk-
ir og færeyskir stúdentar í
Kaupmannahöfn hefðu haft
m.eð sér sameiginlega tölu-
verða félagsstarfsemi í vetur
og meðal annars haldið sam-
eiginlegt mót færeyskra og ís-
lenzkra stúdenta seint í apríl.
Var um 100 manns á móti
þessu. Héldu þar aðalræðurn
ar Færeyingur og íslending-
ur, og talaði Færeyingurinn
á íslenzku og íslendingurinn
á færeysku.
íslendingurinn, Jónas Krist
jánsson, sagði frá sjálfstæðis
baráttu íslendinga frá fyrstu
tíð og fram á þennan dag. —
Færeyingurinn, Úlvur Zacha-
riasson, sagði frá menningar-
sambandi íslendinga og Fær-
eyringa og nefndi hve mikl-
um mun íslendingar hefðu
staðið betur að vígi, þar sem
þeir áttu fornar gullaldarbók
menntir en Færeyingar eng-
ar. Kvaðst hann vona að mjög
vaxandi menningarsamstarf
milli íslendinga og Færeyinga
ætti sér stað á næstu ára-
tugum.
Rússar safna enn
liði að marka-
Rússnesku hernámsyfirvöldin
í Vestur-Þýzkalandi safna enn
iiði vestur að markalínunni og
hefir aldrei verið þar svo mann
margt sem nú. Brezku hernáms
yfirvöldin tilkynntu í gær, að
hætt væri að hafa brezkan her-
vörð við útvarpsstöðvarbygging
una, sem austur-þýzk yfirvöld
hafa ráðið yfir, en brezki her
ihn tók í sína umsjá á dögun-
um, þar sem hún er í brezka her
Eánashlutanuna.
Ekki er alveg vitað hversu
margir taka þátt í íörinni, en
þátttaka verður mikil, líklega
milli 80 og 100 manns.
Á föstudaginn verður fyrst
ekið suður til Hvanneyrar og
borðaður þar hádegisverður.
Síðan er áætlað að halda til
Þingvalla og Laugarvatns og
gista þar. Á laugardag, sunnu
dag og mánudag verður síðan
ekið um Suðurlandsundirlend
ið. Ráðgert er að fara eins
langt austur í Skaftafells-
sýslu, eins og færð leyfir. En
að því loknu verður snúið
heim á leið á mánudag.
Þriðjudaginn 17. júní hyggst
ferðafólkið að gista höfuð-
staðinn og taka þátt í hátíða-
höldum dagsins þar. Verða
því óvenjumargir húnvetnsk-
ir bændur og bændakonur á
Austurvelli og á útidansleikj-
um á götum bæjarins að þessu
sinni. j
Bændafarir sem þessar, ■
fara nú mjög í vöxt og er á-j
nægjulegt til þess að vita. —■
Hefir fólk jafnan gagn og,
gaman að sækja heim fjar-j
læg byggðarlög og kynnast
þar fólki og nýjum sjó^’--
miðum og starfsaðferðum.
Kosningaskrif stof an
Vonarstræti 4
opin kl. 10—10
Vegna villu í auglýsingu
hér í síðasta blaði skal á það
bent, að kosningaskrifstoía
stuðningsmanna sr. Biarna
Jónssonar í Vonarstræti 4 er
opin frá kl. 10 til 10 að kvöldi
dag hvern, og símar hennar
eru 6784 og 80004. Eru þar
veittar allar upplýsingar um
kosninguna.
1200 Færeyingar á 60 skip-
um að veiðum við Grænland
FJög'iir flistiilngaskip eru í förum með tit-
j g’erðarvörur lil Grænlauds og fisk helm
j
j Færeysk blöð skýra frá því að um þessar mundir sé fyrsta
fiskflutningaskipið, Súsanna, á leið heim til Færeyja frá
Grænlandi með fyrsta saltfiskfarminn á vorinu. Alls munu
slík fiskflutningaskip verða fjögur í förum í sumar, og flytja
þau salt, beitu og aðrar útgerðarvörur til Grænlands en fisk
heim. —
Flóttamannastraum
urinn fer hrað-
vaxandi
Flóttamannastraumurinn
vestur á bóginn frá Austur-
Þýzkalandi hefir farið mjög
vaxandi síðustu dagana, síð-
an samningarnir voru undir-
ritaðir í Bonn. Gerist þetta
þrátt fyrir síauknar varnir
Rússa við hernámslínuna. í
gær kom 20 manna hópu í
einkennisbúningum austur-
jjýzku lögreglunnar vestur yf-
ir og baðst vistar. Til brezka
hemámssvæðisins hafa kom-
ið um 2000 flóttamenn síðustu
9 dagana, og svipuð tala til
ameríska svæðisins.
Sjómaunadagur
(Framhald af 1. siðu.)
Á sjómannadaginn fór svo
fram reiptog og knattspyrna
á íþróttavellinum og varð
jafntefli í knattspyrnunni á
milii skipshafna af Reykja
foss og TröIIafoss. Aftur á
móti var langt frá að jafn-
tefli næðist í reiptoginu á
milli átta manna úr sjó-
mannadagsráði og tólf sjó-
mannakvenna, því sjómanna
konurnar sigruðu með yfir-
burðum, dróu þær sjómanna
dagsráðið tvisvar og voru
ekki lengi að því, 36 sek. í
fyrra skiptið «g 35 sek. i
seiaaa skiptíi.
Fjársöfmmin til
*
Arnasafns geng-
nr vel
Fjársöfnun sú, sem efnt var
til fyrir skömmu í því skyni
að reisa hús yfir íslenzku
handritin sem nú eru í Dan-
mörku, hefir gengið mjög vel,
og hafa undirtektir almenn-
ings verið mjög góðar. Mörg
félög og einstaklingar hafa
lagt fram rausnarlegar fjár-
hæðir. Þegar hafa safnazt um
29 þús. krónur, en auk þess
hafa verið tilkynnt framlög ■
frá ýmsum aðilum. Sem dæmi
um áhuga fólks á þessu máli
má geta þess, að innan
margra fyrirtækja og stofn-
ana hefir starfsfólkið efnt til
samskota með prýðilegum j
árangri, sjómenn á skipum
hafa skotið saman, t.d. skips-
höfnin á b.v. Ingólfi Arnar-
syni, er sendi myndarlega pen
ingaupphæð, kr. 3.150,00, og í;
sumum hreppum hefir verið;
stofnað til fjársöfnunar, og
hafa þegar borizt framlög- úr
einum þeirra, Eiðahreppi í
Eiðaþinghá, en þar gekkst
hreppsnefndin fyrir söfnun-
inni. Á mörgum bæjum í Eiða
hreppi lagði hvert einasta
mannsbarn eitthvað af mörk-
um til söfnunarinnar. Þá hafa
ýmsir áhugasamir einstakl-
ingar tekið að sér fjársöfn-
un, en þeir aðrir, sem það
vildu gera, geta fengið af-
henta söfnunarlista í skrif-
stofu fjársöfnunarnefndar í
Háskólanum, sími 5959 (opið
kl. 5—7 e.h.). Þar er einnig
tekið við framlögum til hand
ritahússins.
Alls munu færeysku veiði-
skipin verða um 60 við Græn-
land í sumar, og um 1200 fær-
eyingar verða við ' veiðar á
þessum skipum og fiskverkun
1 landi.
Fleiri en í fyrra. ....
Skipin flytja vörurnar til
Færeyingahafnar, þar sem
færeyska Grænlandsfélagið
annast sölu varanha til út-
gerðarmanna. í fyrra , voru
flest færeysku skiþiii með
línu, en nú hafa mörg þeirra
bæði línu og draghöt. —
Stærstu skipin hafa og litla
báta með, sem sjómennirnir
fiska á frá skipunúm.
Afli er nú mjög góður við
Grænland og gera Færeying-
ar sér hinar beztu vonir um
útgerðina í sumar.-
Færeyingar á
norskum skipum.
Auk Færeyinganha á fær-
eysku skipunum, eru um 80
Færeyingar á norskum skip-
um og bátum við Grænland,
aðallega frá Álasundi. Gengið
hefir illa að fá norska fiski-
inenn á Grænlandsveiðar. —
Færri Færeyingar komust
þó á norsku bátaríá en fara
vildu. —
Hlývifcl komið ueh
allt land
Um helgnia brá til hlýrra
veðurs um allt land, og í gær
var viða hlýindarigning, eink
um á Suðurlandi og Austur-
landi en bjartara á Norður-
landi. Vona menn nú að skjótt
bregði til sumarveðurs, er
bæti svo sem verða má her-
virki hins mikla áhlaups, enda
verður nú að koma góð
sprettutíð, ef sláttur á ekki
að hefjast með allra síðasta
móti. —
300 hreindýr flutt
til Vestur-Græn-
lands
Ákveðið er nú, að gera all-
mikla tilraun með hreindýra-
rækt í Vestur-Grænlandi, svo
framarlega sem fjárveiting fá-
ist til þess hjá danska þinginu.
Munu verða flutt þangað 300
hreindýr frá Finnmörk.
Um 100 ár eru nú síðan miklir
flokkar villtra hreindýra ólu ald
ur sinn á vesturströnd Græn-
lands, en á fyrstu 30 árunum
eftir að byssan hélt innreið sína
í landið, er talið, að þar hafi ver
ið lögð að velli um 25 þúsund
fereitedýr.
Fulltrúi frá íslands-
riti í Svíþjóð
Hingað er komin til lands
sænsk stúlka, ungfrú Gunvor
Beijbom, sem starfar við Stock-
holms-Tidningen, en kemur
hingað til að vinna. að málefn
um íslandsvinasamfaka i Sví-
þjóð, sem Sverige-Island nefn-
ast.. T-:
1 fyrra byrjaði félagið. á út-
gáfu vandaðs tímarits, sem sent
hefir verið til skóla og ýmissa
stofnana í Svíþjóð auk þess sem
það er ætlað félagsmönnum og
öðrum þeim sem fræðast vilja
um ísland.
Hefir rit þetta sem-er hið vand
aðasta og kemur tvisvar á ári,
þegar gert mikið,.: gagn og
Stuðlað að aukinni þekkingu á
íslandi og íslendingum í Svía-
ríki.
í félaginu Sverige,-Island eru
175 félagar. Eru það-flest Svíar,
sem yfirleitt hafa bundizt vin-
áttuböndum við lanþ og þjóð í
ferðalögum hingað og íslending
ar, fáir þó, sem búsettir eru í
Svíþjóð. Allmargir Svíar eru í
félaginu, sem aldrei hafa til Is-
lands komið.
Ágóði af útgáfu ritsins hefir
orðið 2 þúsund sænskar krónur
og hefir honum verið varið til
að styrkja íslenzkan-og sænsk-
an stúdent til náms, þeim
sænska á íslandi og íslenzka i
Svíþjóð.
Stúlkurnar fóru í
reiptog í Ólafsfirði
Frá fréttaritara Tímans
í Ólafsfirði.
Hátíðahöld sjómannadags-
ins í Ólafsfirði hófust kl. 11
f.h. með hópgöngu, en að
henni lokinni var hlýtt á
messu. Eftir messu var svo
lagður blómsveigur á minnis-
varða drukknaðra sjómanna.
Eftir hádegi héldu hátíðahöld
in áfram, og fór þá fram riep-
tog á milli stúlkna af frysti-
húsum staðarins og sigruðu
stúlkur frá Hraðfrystihúsi
Ólafsfjarðar h.f. Keppt var í
stakkasundi og tóku fjórir
menn þátt í þeirri keppni.
Fyrstur varð Magnús Stefáns-
son og synti hann 25 metra á
0,29,0 sek. Einnig fór fram
kappsund kvenna, fyrst varð
sveit frá Hraðfrystihúsi Kaup
félags Ólafsfjarðar. í kapp-
róðri kepptu sjö sveitir og
sigraði sveit af m.s. Sævaldi
: 1,39,6 sek. Fyrstu verðlaun í
kappróðrinum var lítið króm-
að stýrishjól úr kopar, var í
fyrsta skipti keppt um það í
fyrra, en þá hreppti það skips
höfnin af Einari Þveræing. —-
Um kvöldið var dansað i sam
komuhúsi staðarins og lauk
dansinum kl. 2. Allmargir tóku
þátt i þessum hátiðahöldum
og fóru þau hið bezta fram.
Söfnuðust um 3.500,00 kr., sem
renna til björgunarskútu
Norðurlands.
Aflabrögð hafa verið léleg
á þessu vori, enda lítið um
beitu. Treyst var á beitu frá
Akureyri, en smásíldarveiðin
þar hefir algerlega brugðizt
í vor. —
Ungfrú Gunvor ætlar að safna
efni í félagsritið hér og eins
auglýsingum og er áreiðanlega
heppilegt fyrir íslenzk fyrirtæki,
ekki sízt fyrir þau, sem viðskipti
eiga við Svíþjóð, eða vantar
aukna markaði fyrir íslenzkar
afurðir, að auglýsa í þessu virðu
lfega tímariti.