Tíminn - 10.07.1952, Side 2
*.
TfiMINN, fimmtudaginn 10. júlí 1952.
152. blað.
Góð kynbótakýr getmr gefíð af
sér siokkra tuga kálfa á ári
Fs’jóvjíuð egg íekiii úr kyiilióíukúin ea
Ivostamimii kýr látnar gan»'a mc9 fóstriS
Hvaða ástæða er að láta úr-
valskýrnar slíta sér út á því
og eyða tímanum í að ganga
með og fæöa kálfa, þegar auð
velt er að láta stirtlurnar
gera það? segir amerískur
kynbótafræðingur, dr. J.
Hammond að nafni. Hann hef
ir flogið yfir Atlanzhafið frá
Englandi til Ameríku með
frjófguð egg úr kanínum og
gróðursett eggin í móðurlífi
amerískra kanína með þeim
árangri, að Ameríkanarnir
fæddu Breta. Þetta hefir
hann gert til þess að ryðja
brautina að því markmiði að
flytja á sama hátt frjófguð
egg úr kúm og gróðursetja í
móðurlífi kúa handan hafs-
ins. Hvaða ástæða er að flytja
kynbótapeninginn sjálfan,
þegar hægt er að ná sama
árangri með flutningi frjófg-
aðra eggja? spyr hann.
Kýr hefir tvisvar
fætt kálf annarrar.
Það er ofur eðlilegt, segir
Hammond ennfremur, að
næsta skrefið við gervisæð-
inguna sé flutningur egg-
sellna milli dýra. Afburða und
aneldisdýr eiga ekki að eyða
kröftum og tima í það að
ganga með og ala fóstur sitt,
þegar hægt er að láta kosta-
minni einstaklinga gera það
með sama árangri. í stað þess
að fæða af sér einn kálf á
ári, á afbragðskýr að geta
bætt við stofn sinn nokkrum
tugum kálfa á ári.
í Ameríku hefir tekizt að
flytja frjóvguð egg míili kúa'
með þeim árangri, að fóstur-
kýrnar hafa fætt kálfa ann- |
arra kúa. Tvær slíkar kálfs- '■
fæðingar hafa orðið, og nú er
sú þriðja í vændum með þess
um hætti. Þetta hefir hins
vegar tekizt margoft með kan1
ínur. Og nú er farið að reyna
nýjar aðferöir með kanín-’
urnar. Þeim eru gefnir ákveðn1
ir hormónar, sem valda því
að egg þeirra þroskast fyrir
venjulegan kynþroskatima
þeirra. Þessi egg eru tekin og
frjóvguð en síðan gróðursett
i fullvöxnum kanínum. Það
þarf ekki einu sinni að bíða
eftir því að dýrin verði full-
vaxta til þess að fá úr þeim
egg. Vonir standa til að þessu
sé einnig hægt að beita við
ÚtvarpLð
■Útvarpið í dag
Fastir liðir á venjulegum tím-
um. — 19,30 Danslög. 19,40 Les-
in dagskrá næstu viku. 19,45
Auglýsingar. 20.00 Fréttir. 20,20
Einsöngur: Hemrich Schlusnus
syngur. 20,35 Erindi: Leiklistin
í Bandaríkjunum; fyrra eríndi
(Ævar Kvaran leikari). 21.05
Tónleikar (plötur). 21.20 Upp-
lestur; Jón úr Vör les úr ljóða-
bók sinni „Með örvalausum
boga.“ 21.35 Sinfónískir tónleik-
ar (plötur). 22.00 Fréttir og veð-
urfregnir. 22.10 Framhald sin-
fónísku tónleikanna. 22.45 Dag-
skráríok.
Útvarpið á morgun;
Fastir liðir á venjulegum tímum.
19,30 Harmonikulög. 19.45
Auglýsingar. 20.00 Fréttir. 20.
30 Utvarpssagan: Grónar göt
ur,% frásögukaflar eftir Knut
Hamsun; II. (Helgi Hjörvar).
20.00 Tónleikar. 21.25 Frá út-
löndum. 21.40 tslenzk tónlist.
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22.10 Tónleikar.22.30 Dagskrái
lok. —
kýr síðar meir. Mestur vand-
inn er að komast hjá smiti,
en búizt við að aðferð finn-
ist, sem fyrirbyggi það.
Tilgangurinn með því að
fljúga yíir Atlanzhafið með
frjóvguð kanínuegg er sá, að
aíla þeirrar reynslu, sem þarf
til þess að gera hið sama við
frjóvguð egg úr kúm. Það er
dýrt að flytja fullvaxta kyn-
bótanautgripi yfir úthaf, en
eggsellurnar vega ekki mik-
ið. Auk þess er með þessum
hætti hægt að komast hjá
flutningi hættulegra búfjár-
sjúkdóma milli heimsálfa, en
flutningi kynbótadýra fylgir
alltaf slík hætta.
Þá eru einnig komnar vel
á veg tilraunir með að hrað-
frysta nautssæði og flytja
þannig og geyma lengi. Geíur
það einnig aukna möguleika
til kynbóta milli fjarlægra
landa.
För skagfirzkra
kvenna til Mývatns-
sveitar
Frá fréttaritara Tímans
á Hofsósi.
Síðastliðinn laugardag bauð
Kaupfélag Austur-Skagfirð-
inga, Hofsósi, konum af félags
svæðinu í skemmtiför til Mý-
vatnssveitar. Var lagt af stað
í þremur stórum bifreiðum um
morguninn klukkan 7 og hald
ið til Akureyrar, en þar var
boröað. Á meðan staldrað var
við á Akureyri var konunum,
en þær voru áttatíu, boðið að
skoða verksmiðjuna Gefjun
og starfsemi hennar. Frá Akur
eyri var ekið út Svalbarðseyr-
arveg og út fyrir Vaðlaheiðar-
ranann og inn Fnjóskadal.
Var öðru hvoru stanzað á leið
inni og umhvérfið skoðað, síð
an var ^tanzaö í Vaglaskógi.
Frá Vaglaskógi var svo haldið
áfram austur og gist í Reykja-
hlíð um nóttina. Daginn eftir
var farið um Námaskarð og
síðan ekið til Húsavíkur. Frá
Húsavik var ekið eins og leið
liggur til Akureyrar og heim.
Konurnar komu heim á mánu
dagskvöld og Iétu þær hið
bezta yfir förinni, enda fengu
þær ágætis veður.
Túlípanarnir bera
liti fyrirtækisins
Gróðursetning sumarblóma
á ýmsum stöðum hér í bæn-
um gera sitt til aö sýna mal-
arbúanum, að nú er sumar.
Blóm þessi eru í hinum feg-
urstu litum og stórir túlipan-
ar hneigja þung og fögur höf-
uð sín við vegfarendum. Þó að
túlipanar séu litfagrir, þá ber
hver þeirra sérstakan lit, en
hafa ekki blandaða liti. Samt
sér maður, þegar ekið er inn
Suðurlandsbraut, að benzín-
stöðin Shell hefir tekið túlí-
panana í sína þjónustu og
gróðursett þá á litilli grasflöt
fyrir framan stöðina. Eins og
kunnugt er, þá eru einkennis-
litir Shell gult og rautt, og
hver túlípani á grasflötinni
hefir einnig gul og rauð blöð.
Það má segja, að ekki vanti
stílinn á fyrirtækið.
Leikflokkur Guim-
ars Hansens á Norð-
uriandi
Leikflokkur Gunnars Han-
sen sýndi „Vér morðingjár"
í samkomuhúsinu aö Breiðu-
mýri föstud. 4. júlí, Þrátt fyr-
| ir það, að fjöldi fólks úr S,-
þingeyjarsýslu hafði farið á
Eiðamótið, og þeir sem heima
voru höfðu mjög takmarkað-
an bílakost vegna þess, var
aðsókn góð.
Ijeiknum var mjög vel tekið
og vakti óblandna hrifningu.
Enda fer þar saman listaverk
frá höfundarins hendi, ágæt
leikmeðferð og frábærlega
listræn sviðsetning. Undrar
mig ekki, þótt hinir ungu og
glæsilegu leikarar hverfi ekki
fljótt úr huga áhorfenda og
dveljist þar jafnvel í vöku og
svefni. Svo er um þann er
þetta ritar, sem viðstaddur
var.
! Leikflokkur þessi fer víða
um land og ættu menn ekki
að láta undir höfuð leggjast
að sjá sýningar hans.
Að sýningu lokinni að
Breiðumýri, ávarpaði Páll H.
Jónsson kennari leikflokkinn.
Sagði hann, að þetta væri í
fyrsta sinn, sem leikflokkur
úr höfuðstaðnum sýndi í
1 sveitum sýslunnar og þakkaði,
að það skyldi vera svo ósvik-
in og sönn list, sem hann
flytti. Þá bað hann fyrir
.kveöju áhorfenda til Gunnars
'Hansen leikstjóra, og þökk
. fyrir hans frábæru leikstjórn.
Einar Pálsson leikari þakkaði
fyrir hönd leikflokksins, Páli
fyrir vinsamleg orð og áhorf-
endum fyrir skilning þeirra á
svo listrænu en nokkuð erf-
iðu viðfangsefni flokksins.
| Hafi leikflokkur Gunnars
I Hansen mikla þökk fyrir kom
una og hve til ferðarinnar er
i frábærlega vandað.
Áhorfandi.
óskar eftir aö leigja 2 góðar íbúðir með húsgögnum nú
þegar. — Tilboð merkt „íbúð“ sendist skrifstofu flug-
vallastjóra ríkisins fyrir 15. þ. m.
<Sn
Chevrolet fólksbill
2ja dyra chevrolet fólksbíll model 1938 til sölu. Tilvalið
tækifæri fyrir bílaviðgerðarmenn.
Upplýsingar í síma 7776.
t
2 stk. járnrennibekkir, \
l
annar þeirra hentugur fyrir búvéla- og bílaviögerðir 4
o. þ. h., til sölu. ▼
Upplýsingar í shna 7776.
■ 4»^.
(V.V,
.vw,
.V.W.W,
‘.'.‘.V.W.V.W.W
Ferðafólk
j Kexið frá okkur er ómissandi í nestið. Fæst í hcnt-
,
jl ugum og ódýrum pökkum og einnig í lausri vikt.
Þing S.Í.B.S. haldið
í Krisínesi
8. þing S.I.B.S. verður sett
í Kristnesi föstudaginn 11. þ.
m. kl. 2 e.h. Mun þingið fjalla
um skýrslu um rekstur Vinnu
heimilisins og störf sambands
ins.
Aðalmál þingsins verður
byggingaframkvæmdir að
Reykjalundi næstu 2 ár. Auk
þess ýmis önnur mál. Fara
mun fram kosning forseta
sambandsins og þriggja
manna í sambandsstjórn.
Meðal gesta, sem þingið
sitja, eru 8 stjórnarmeðlimir
í De Nordiska Tuberkulos
Förbundens Centralorgani-
sation. Eru tveir frá hverju
landi: Danmörku, Finnlandi,
Noregi og Svíþjóð. Eru þessir
gestir meðal annars komnir
hingað til að sitja 4. -fund
stjórnarinnar, sem haldinn
verður að Reykjalundi 16. og
17. þ.m. Þetta allsherjar-
bandalag berklasjúklinga á
Norðurlöndum, D.N.T.C., var
stofnað að Reykjalundi sum-
arið 1948 á 10 ára afmæli S.í.
B.S. Fyrir S.Í.B.S. í stjórninni
eru þeir Árni Einarsson og
Þórður Benediktsson.
vw.v.w.v.v.w.v.v.v.v.v.w.v.v.v.v.w.v.v.v.v,
| miiHiiMHiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiuiii*
11 # Gerist áskrifendur áð i
l^Jímunum _
Áskriftarsími 2323
‘milllllinHIHIIIIIIItnillllllllllllllllllHIMtllllUIIIIIIMHM
Snitt-Tappar (Whitwort)
1/16”, 5/32”, 1/4”, 5/16”,
3/8”, 7/16”, 1/2”, 5/8”,
3/4”, 7/8”, 1”
Rörsnitt-tappar 1/8”, 1/4”,
3/8”
Spiral-borar H. S. frá 1 mm
Spiral-borar Carbon, stál
frá 1 mm
Patrónur í rennibekki 4”,
5”, 6”, 7”
Pinnálar á kúlulegum Con-
us 1—2—3
Járnsagarblöð 12” All hard
Rörklúppur 1/2”, 1”
do. 1”,2”
Rörhaldarar 1(4”, 2”, 2y2”,
3”, 4”
Úrsnagar f. rör - t
Rörtengur (amerískar)
Ridge, margar stærðir
Lausasmiðju; „Alcosa"
Sendum gegn póstkröfu um
land allt.
Verzl. Vald. Poulsen h.f.
Klapparstíg 29, sími 3024.
a/jca/
ICEIAND
1
T r úlof unarhr inga r
= i
f'ávallt fyrirliggjandi. — Sendi
gegn póstkröfu.
Magnús E. Balðvinsson
Laugaveg 12 — Reykjavík
o
Þetta vinsæla kynningarrit, sem
samið er af Ólafi Hanssyni, mennta
skólakennara, er nýkomið í ann-
arri útgáfu. Það er 80 bls., sett
nijög drjúgu letri, með 45 mynd-
um, ásamt íslandsuppdrætti. Bók-
in flytur margvíslegan fróðleik um
land og þjóð, m. a. Um ís’.enzkt
atvinnuKf og menningu. ÞETTA
ER HENTUG OG • SMEKKLEG
GJÖF HANDA VÍNUM YÐAR OG
VIÐSKIPTAFYRIRTÆKJUM ER-
LENDIS. — TAKIÐ HANA MEÐ
YÐUR, ÞEGAR ÞÉR FARIÐ TIL
ÚTI ANDA. — Verð kr. 16,00 int.
Bókaútgáfa Menningarsjóðs.
IIMJIIIIIIIIHHII
E
Reykjavík-Laugarvatn. |
Grímsnes-Biskupstungur. |
Gullfoss-Geysir.
Sérleyfisferðir sími 1540. |
ÓLAFUR KETILSSON. |
IHmilllHtHllllllllllllllllllllllllllllllillllllllllllM