Tíminn - 10.07.1952, Blaðsíða 6

Tíminn - 10.07.1952, Blaðsíða 6
■mnmniiiiiiuniiinnniiiiiiitiniiiminitinimiiniiiiii «. TÍMINN, fimmtudaginn 10. júlí 1952. 152. blað. Óþehhti ma&urinn l PJÖDtEIKHÚSID Mjög athyglisverð, ný norsk f mynd, gerð eftir hinni frægu \ verðlaunabók Arthurs Omres | „Flukten". Aðalhlutvekið | leikur hinn kunrii norski | leikari | Alfred Maurstad. I myndinni syngur dægur-1 lagasöngkonan Lulu Ziegler, er söng hjá Bláu stjörnunnl. | Sýnd kl. 5,15 og 9 NÝJA BIO Leðurblahtm eftir Joh. Strauss, Sýning í kvöld kl. 20,00. i Síðasta sinn. UFPSELT. i» ♦♦♦♦♦♦♦♦*»♦ ; I if Austurbæjarbíó = Drottinn þurfnast 1 þjóna (Dieu a besoin des hommes) 1 Frönsk stórmynd, er farið hef | ir sigurför um allan heim og 1 verið talin eitt mesta snilldar § verk franskrar kvikmynda-1 listar. Leikstjórn annast 1 meistarinn Jean Delannoy. I Aðalhlutverk: Pierre Fresnay Madeleine Robenson Þetta er ein af þeim sérstæðu I afburðamyndum, sem áhorf- | endum mun aldrei líða úr = minni. É Sýnd kl. 9. Bönnuð yngri en 12 ára. \ »♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦< BÆJARBÍÓ - UAFNARFIRÐI - __________________j 3 Dorseyhræður l Skemmtileg amerísk jazz-1 mynd úr lífi Dorsey-bræðra. I Aðalhlutverk: Tommy Dorsey, Jim Dorsey, Jane Blair. Sýnd kl. 9. Sími 9184. I HAFNARBIO Calc uííís ELDURINN terlr ekk< bo8 á undan tér. Pelr, sem em hyggnnr, tryggja strax kja SAMVINNUTRYG6INGUU Lohað vegna suniarleyfa TJ ARNARBIO = | Lohað til 15. jjúlí. GAMLA BÍÓ [| Töf raboryin (Magic Town) i Ný amerísk kvikmynd frá | ; RKO Radio Pictures. Aðal- | i hlutverkin leika: James Stewart, Jane Wyman. Sýnd kl. 5,15 og 9. C = = = TRIPOLI-BIÓ Lohað til 12. júlí I I f veyna sumarleyfa I Amerísk kvikmynd, er ger- i ist í hinum dularfullu Aust- I urlöndum. f Alan Ladd, I Gail Russel. Bönnuð börnum innan 16 ára | Sýnd kl. 5,15 og 9. Eirlent yfirlit (Framhald aí 5. siðu.) stundar en að hugsa um að koma framtíðarstefnu flokksins í framkvæmd. Baráttumál augnabliksins sé baráttan fyrir friði og gegn amerísku heims- valdastefnunni. Það megi ekk- ert láta ógert til að skapa henni íylgi meðal fjöldans og verði kommúnistar að láta öil önnur sjónarmið víkja til hliðar á með an. Fljótlega eftir þessa grein Fajon tóku að birtast í L’Hu- manité játningagreinar eftir þekkta kommúnista, er játuðu villu sína. Meðal þeirra var kona Thorez, sem viðurkenndi það rangt lijá sér, er hún hefði hald ið þvi fram, að ekki væri hægt að hafa samvinnu við lcapitalista um nein mál. Flest bendir þannig til þess, að kommúnistar ætli að breiða yfir ófarir sínar í Ridgeway-mái inu með þvi aö taka upp sam- fylkingaríínu a. m. k. um skeið eða á meöan þessi ósigur þeirra er aö gleymast. Þar sem rétturinn ræður. Meðal andstæðinga kommún- ista í Frakklandi hefir því veriö mjög fagnað, að atburðir þessir hafa leitt í ljós, að styrkur komm únista hefir reynzt miklu minni en við hafði veriö búizt. Það hafði almennt verið talið, að þeir gætu efnt til stórra verk- falla hvenær, sem þeim þætti það nauðsynlegt, og að þeir myndu jafnvel getað komið fram byltingu, ef réttvísin væri látin ná til einhvers foringja þeirra. Allt annað hefir nú kom ið í ljós. Meðal frjálslyndra manna hef ir jafnframt verið varað við því, að ekki mætti um of láta hné fylgja kviði í þessum viðskipt- um við kommúnista. Það eina, sem gæti hjálpað þeim úr þessu, væri það, ef þeim tæki&t að gera sig að píslarvot'tum. Rétt sé að refsa þeim þeirra, er verði uppvísir að brotum, íyrir þau, en lengra megi ekki ganga. Mál gegn Duclos megi ekki hafa á sér neinn blæ réttarofsóknar. Það verði að sjást hér svart á hvítu, að réttarfarið í lýðræðis- löndunum sé annað en í löndun- um austan járntjaldsins, þar sem það myndi kosta líflátshegn ingu, ef menn gerðu sig seka um svipað atferíi og Duclps, t. d. ef menn efndu þar til mótmæla- óeiröa í sambandi við heimsókn rússneskra hershöfðingja. Það sýnir, að Frakkar munu fara leið réttaríns, að Duclos hef ir nú verið sleppt úr haldi. Það sýnir mun vestræns lýðræðis og austræns einræðis. Kommúnist ar reyna vafalaust að túlka þetta sem veikleika og undan- látsmerki og segja, að stjórnin hafi ekki þorað annað. Sann- leikurinn er hins vegar sá, að það er einmitt i þvi að víkja ekki af vegi réttarins, sem styrk leiki lýðræðisins er fólginn. Vicki Baum: ►V = = AMPER H.F, Raftsekjaviimustéfft Þlngholtstræti XI Síml 81556. RafUgnlr — ViffgerSÞ l Raflamaefnl I i Munið að greiða blaðgjaldið riú þegar Frægðarbraut Dóru Hart 44. DAGUR «<lllllllIIIIIIIIIIII>4IIIISIIIIIItllllllllllllllllllllllllllflllllllf E = E = S i : I = = I § | Einnig reimskífur, margar | | stærðir. — Sendum gegn § póstkröfu. I H = = Aut^lvsinifasíml TÍMANS er 813** 'J Verzl. Vald. Poulsen h.f. 1 1 Klapp. 29. — Sími 3024. | s 5 MIIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIinfl|lllllf|4||l|(IUIIIIIIIIIIIIItllMIIIIII Vtbreföið Tímaim- hann hughreystandi. Hann undraðist það enn, hver svipbrigði urðu á andliti hennar. „Haldið þér það?“ sagði hún áköf. Hann ætlaöi ekki að strjúka henni um kinnina en gerði það samt. Hún hafði hita, og hann fann það.Ef hann átti að vera fullkomlega hreinskilinn við sjálfan sig, fannst honum hann vera hálfgerður skálkur, þótt hann hefði heitið henni fjörutíu og fimm þúsundum. Hann hafði-gert sér þessa stúlku allt öðruvísi í hugarlund, stúlku, sem átti sök á því að Júddý heimtaði skilnað og hafði komið af stað þessu reginhneyskli. Bryant hugsaði ósjálfrátt með sjálfum sér: Hún er of góð handa Franklín. Hann reis á fætur, hneigði sig fyrir Salvatori og þrýsti hönd Dóru. Hann dró andann léttar, er hann stóð aftur utan dyra og kveikti sér í sígarettu. Hann hugsaði sem snöggvast um jarðarfararlyktina og páfagaukinn í stofu Salvatori, en svo snerist hugur hans aftur um ungu, sjúku stúlkuna. Aumingja stúlkan, fimm ára söngnám og lítur helzt út fyrir aö deyja á morgún. Hann varð heitur af bræði í garð þessa kommúnista, sem hafði skotið hana í brjóstið. Já, það var sannleikur. Alltaf voru það stúlkurnar, sem urðu að þola og líða fyrir syndir karlmannanna, jafnvel þótt þeim tækist stundum að hafa ofurlitlar fjárhæðir út úr körlum eins og hon- um. Hann ranglaöi út á götuna með sígarettuna í munnvikinu og fór að skima eftir leigubíl. Hann haföi nefnilega sent sinn eigin bíl heim, ekki viljað láta hann bíðá utan við þetta hús fyrir allra augum. Hann gat ekki að því gert, að hann hlakkaði ofurlítið til að sjá stúlkuna aftur, þegar samningurinn yrði undirritaður hjá Vanderfelt, og hann undraðist það um leið, að hann skyldi hlakka til þess. í október kom Delmonte til New York. Dóra greiddi tvö hundruð dollara prófgjald fyrir að láta pína sig og þrautprófa í þrjár klukkustundir. Þá var hún hás eins og hrafn, og andardrátturinn var ekki á marga fiska. Hún fann hvernig svitinn hríslaðist niður eftir baki hennar undir nýja, fallega kjólnum, og hún fékk ekkert færi á að syngja sitt bezta lag fyrír Delmonte, aríuna um Rossini. Hann lét hana aðeins tóna, mjúkt og milt. Delmonte virtist búa yfir ofurmannlegri þolinmæði og enga hugmynd háfa ym tíma- takmörk. Eftir þrjár stundir lét hann hana þó fara, kvaddi hana kurteislega og kyssti á hönd hennar brosandi. í fremra herberginu tilkynnti maðurinn, sem hafði gleypt tvö hundruð dollarana henn- ar, að henni væri vísað frá. Dóra hélt heim á leið fótgangandi. Hún staðnæmdist í Central park og hvíldi sig þar lengi á bekk og hugsaði ráð sitt. Svo féll myrkrið á. Um þetta leyti hafði lögfræðingur Bryants þegar byrjað að senda henni reglulega fjögur hundruö dollara mánaðargreiðslur. Hún var nú ætíð vel klædd, hafði engar skuldu- og lifði áhyggju- lausu lífi. Nokkur hiuti þessarar mánaðaríegu fjárhæðar fór þó til Cowens í því skyni að hann reyndi að fá Basil náðaðan. Nokk- urn hluta setti hún líka í bankabók með mikilU leynd, því að hún hugsaði alltaf um að skapa sér öryggi, og einhvern veginn fannst henni alltaf, að þessi velgengni hlyti að vera draumur einn, sem hyrfi einn góðan veðurdag jafn skyndilega og hann hafði hafizt. Hún bjó enn í sama húsi við 56. götu, en nú var hún í stofunni, sem fyrr hafði verið vinnustofa Basils. Þegar hún hafði hugsað nóg um skipbrot sitt hjá Delmonte og orðið var almyrkt, kallaði hún í leigubifreið og ók heim. Þetta kvöld komst hún hjá að hitta Salvatori. Hún læddist fram hijá dyrum hennar og háttaði í myrkrinu. Hún undraðist það í hljóði, hve þrekmikil hún var oröin, að hún skyld ekki gefa sig'grátin- um á vald. Hún vildi verða söngkona, og hún vildi læra hjá Delmonte. Eftir að hún hafði kynnzt þoUnmæði hans og svefn- gengilsháttum, var hún ákveðnari í því en nokkru sinni fyrr að verða nemandi hans og síðar fræg söngkona. Áður hafði hún ekki veríð sérlega metnaðargjörn, en metnaður hennar hafði með einhverjum kynlegum hætti endurfæðzt á bekknum í Central park. Allir aðgöngumiðar að Metropolitan-óperunni voru seldir. New York var í óperuham og öll leikhús og óperur voru full hvert kvöld. Það leið vika, þangað til Dóru tókst að ná í aðgöngumiða að svölum, en það var þó ekki nema á síðdegissýningu. Það var samt Delmonte, sem söng Otello. j Cavaliére Delmonte var um fimmtugt, risi að vexti með hvítan lokk yfir enni, stór og undrunarfull augu eins og barn. Föt hans voru líka geysivíð, og meðleikendur hans voru eins og smálömb við hlið hans, þótt sumir þeira vægju allt að 200 pundum. Dóra hafði aldrei heyrt hann syngja fyrr. Hún sat stirð og gleymdi að draga andann. Hún vatt hanzkana sína eins og þvottaklút. Þeg- ar hann söng lokaaríuna í fyrsta þætti, fór kuldahríslingur um bak hennar, rétt eins og hún væri að fá hita. Þegar rún gekk út úr húsinu, virtist hún horfa út í bláinn eins og svefngengill, en vaknaði brátt til hversdagslífsins á ný athafnasamarí og ákveðn- ari en fyrr. Á barnsaldri hafði Dóra eitt slnn séð línudansflokk leika listir sínar í fæðingarbæ hennar. Daginn eftir hafði hún hnuplað þvottasnúru móður sinnar.bundið hana milli tveggja trjáa í garð- inum og farið að reyna að ganga á línu. Hún datt og varð að liggja hálfan mánuð í rúminu með handlegginn í gipsi. Á svip- aðan hátt hafði nú vaknað í brjósti hennar ofurmannlegt hug- rekki og dirfska, er hún heyrði Delmonte syngja Otello. Fyrst mannleg vera gat sungið þannlg og haft slík áhrif með söng sín- um, vildi hún einnig gera slíkt. Hún vildi standa sjálf á sviðinu og syngja. Hún haf'ði fyrsta skipti á ævinni fundið með sér þrá, sem var sterkari en ástin. Hún vildi syngja, hVað sem það kostaði. Hún ráðfærði sig fyrst við Borghildi, því að hún var eina heil- brigða, hagsýna og skynsama manneskjan, sem Dóra þekkti. Allir aðrir voru meira og minna. ga-ga eins og Salvatorí kallaði það, og'Basil sát í fangelsi! Borghildur bar alltaf vinarþel í brjósti tU i l

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.